Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1988, Blaðsíða 12
12
MÁNUÐAGUR 29CÁGÚST 1988.
Útlönd
Ný vika mótmæla hefst
í morgun hófust mótmæli á nýjan
leik í Rangoon, höfuðborg Burma,
en mótmæli síðustu vikna hafa orð-
ið tveimur leiötogum stjórnarinnar
að falli.
Mótmælendur söfnuðust saman á
götum borgarinnar og kröfðust
þess að stjórn Sósíalistaflokksins
segöi af sér. Mótmælendur bíða
þess að leiðtogar stjórnarandstöð-
unnar taki af skarið. Einn helsti
leiötogi mótmælenda, Áung: Gyi,
sagði í gær að ástandið i landinu
væri að fara úr böndunum. Vest-
rænir stjórnarerindrekar segja að
vaxandi hætta sé á stjórnleysi í
landinu taki stjórnvöld ekki til
sinna ráða.
Yfirvöld hafa látið marga þá sem
gist hafa fangelsi lausa: síðustu
daga, annaðhvort vegna þrýstings Mótmæli hófust á nýjan leik i
frá stúdentum eða af eigin frum- Burma í morgun. Simamynd Heuter
kvæöi. Til uppþota hefur komið i
fangels unum. Eldur braust út í stærsta fangelsi landsins, sem er í Rango-
on, þegar fangarnir efndu til uppþota.
Soyuzi TM-6 skotið á loft
Sovésku Soyuz Tm-6 geimfari var skotiö á loft snemma í morgun. Innan-
borðs eru þrír geimfarar, þ.á.m. fyrsti afganski geimfarinn.
Geimfarinu er ætlað að gera rannsóknir svo og aö koma viö hjá tveim-
m' sovéskum geimförum um borð í sovésku Mir-geimstöðinni.
Tveir geimfaranna munu dvelja í stöðinni í viku en sá þriðji, læknir,
mun dvelja hjá geimfórunum tveimur á Mir-geimstöðinni þangað til þann
21. desember.
Þann dag munu geimfararnir tveir 1 Mir-stöðinni, sem dvalið hafa þar
í tæpt ár, einnig snúa til jaröar á ný.
Ný sfjórnarandstaða á Fllippseyjum
Þjóðaratkvæðagreiðsla í nóvember
Salvador Laurel, varaforseti Filippseyja, i miðju, ásamt tveimur öðrum
meðlimum nýrrar hægri flokka samsteypu. Símamynd Reuter
Varaforseti Filippseyja, Salvador Laurel, tilkynnti um helgina að
hann hefði stofnað nýja stjórnarandstöðusamsteypu gegn Corazon Aquino
for-
seta.
Laurel sakaði Aquino um vanhæfni í starfi og sagði að fólkið í landinu
hefði misst trúna á hæfileika forsetans til stjórnunar. Hann sagði ríkis-
stjórnina vera spillta og hafa brugðist fólkinu. Laurel hvatti Aquino til
að segja af sér og boða til nýrra kosninga.
Samsteypa Laurels er samtök séx hægri flokka, þ.á.m. stjórnmálaflokks
Ferdinands Marcos, fyrrum forseta, sem steypt var af stóli.
Laurel hvetur til uppstokkunar á ríkisstjórninni og að núverandi stjóm-
unarhættir verði endurskoðaðir. Hann leggur til aö bandarískar herstöðv-
ar verði áíram á eyjunni, a.m.k. í áratug og aö kommúnistaflokkurinn
veröi leyfður svo framarlega sem meðlimir hans sverji af sér ofbeldi.
Rocard, forsætisráðherra Frakklands, hefur verið á ferðalagi um Nýju
Kaledóníu. Simamynd Reuter
Forsætisráðherra Frakklands, Michel Rocard, tilkynnti í gær að
þjóðar-atkvæðagreiðsla ura framtíö Nýju Kaiedóníu, sem er frönsk ný-
lenda í
Kyrrahafinu, færi að öllum líkindum fram þann 6. nóvember.
Þjóðaratkvæðagreiðslan, sem yrði sú fyrsta í Frakklandi í 16 ár, myndi
að öllum líkindum veröa tun friðarsamning þann sem Kanakar og
frönskumælandi búar eyjarinnar skrifuöu undir þann 20. ágúst sl.
Reuter
DV
Wojciech Jaruzelski, leiðtogi Pól-
lands, viðurkenndi um helgina að
ríkisstjórn landsins bæri ábyrgð á
vandamálum þeim sem komið heföu
af stað verkföllum undanfarinna
tveggja vikna og lagði ákvörðunar-
vald um framtíð stjórnarinnar í
hendur þingi landsins sem fljótlega
mun koma saman.
Jaruzelski sagði að afloknum
tveggja daga fundi miðstjórnar
pólska kommúnistaflokksins að
hann vildi ná sáttum við þá sem vildu
halda stjórnarskrárbundinni reglu í
landinu og lýsti hann yfir stuðningi
við hugmynir um hringborðsum-
ræður um vandamál verkamanna í
Póllandi.
Zbigniew Messner, forsætisráð-
herra Póllands, skýrði miðstjórnar-
fundinum frá því um helgina að mis-
tök hefðu átt sér stað í efnahagsmál-
um og lægju þau að hluta til grund-
vallar þeim verkföllum sem staðið
hafa í landinu undanfarnar vikur.
Lech Walesa, leiótogi Samstöðu, ræðir við fréttamenn við Lenin-skipa-
smíðastöðina í Gdansk um helgina. Simamynd Reuter
FJörutíu og sjö létu
Irfið á flugsýningu
Áhorfendur forðuðu sér eftir bestu getu. Simamynd Reuter
Ljóst er nú að fjörutíu og sjö manns
létu lífið og nokkur hundruö slösuð-
ust þegar þrjár ítalskar herþotur
rákust saman á flugsýningu í Ram-
stein í Vestur-Þýskalandi í gær. Ein
þotnanna hrapaði niður í hóp af
áhorfendum sem fylgdust með flug-
sýningunni.
Lögreglan í Ramstein og talsmenn
bandaríska hersins í V-Þýskalandi
hafa ekki staðfest þennan fiölda lát-
inna en talsmaður bandarísks her-
sjúkrahúss í Landstuhl sagði að
fiörutíu og sjö lík hefðu fundist.
Um tvö hundruð og þrjátíu manns
voru í sjúkrahúsum í Ramstein og
nágrenni í nótt vegna bruna og bein-
brota af völdum slyssins. Um fimm-
tíu þeirra voru taldir alvarlega slas-
aðir.
Alls er talið aö um Qögur hundruð
manns hafi meiðst.
Slysið varð þegar sveit tíu herþotna
frá ítalska flughernum var að sýna
hstir sínar. Tvær af þotunum rákust
þá saman, báðar á um fiögur hundr-
uð kílómetra hraða á klukkustund.
Þoturnar tvær hröpuðu báðar á akra
við flugvöllinn en sú þriðja, sem varö
fyrir braki úr þeim, hrapaði beint
niður á fiugvöllinn rétt við áhorf-
endaskarann þar.
Þotan hrapaði á bifreiðar en brak
úr henni og logandi eldsneyti lenti á
áhorfendum.
Slysum við flugsýningar hefur
fiölgað mjög undanfarin ár og eru
nú uppi raddir um að takmarka mjög
heimildir til að halda þær.
í september 1982 létu fiörutíu og sex
manns lífið þegar herþyrla fórst við
flugsýningu í Mannheim.
Fyrr á þessu ári fórst ný Airbus
farþegaþota við flugsýningu í Mul-
house í Frakklandi.
ítalska herþotan sprakk í loft upp rétt við áhorfendahópinn. Símamynd Reuter