Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1988, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1988, Blaðsíða 22
22 MÁNUDAGUR 29. ÁGÚST 1988. Préttir Heimsókn Vigdísar í Húnavatnssýslur: Um iður jarðar og víða velli Húnaþings Vigdís Finnbogadóttir, forseti ís- lands, hóf annan dag heimsóknar sinnar í Húnavatnssýslur á laugar- dag með því að þiggja kaffiveitingar á vegum Svínavatns-, Bólstaðar- hlíðar- og Engihlíðarhrepps í Húnaveri. Var fjölmenni mætt á staðinn þar sem Erla Hafsteins- dóttir, oddviti Bólstaðarhlíðar- hrepps, bauð Vigdísi velkomna fyr- ir hönd hreppanna. Karlakór Ból- staðarhlíðarhrepps söng nokkur lög og þar á eftir var fjöldasöngur. Vigdís þakkaði fyrir gestrisnina og sagði méðal annars að hún væri sjálf ættuð úr Bólstaðarhlíðar- hreppi, væri af svokallaðri Bólstað- arhlíðarætt. I iðrum jarðar Frá. ættarslóðum var haldið í heimsókn á athafnasvæði Lands- virkjunar við Blöndu. Þar tóku á móti Vigdísi þeir Jóhannes Nordal, formaður stjórnar Landsvirkjunar, Halldór Jónatansson, forstjóri í iðrum jarðar. Vigdis forseti gengur inn göngin að stöðvarhúsi Blönduvirkjunar sem er um 200 metra undir yfirborði jarðar. Á myndinni má sjá Jóhannes Nordal, formann stjórnar Landsvirkjunar, Halldór Jónatans- son, forstjóra Landsvirkjunar, og Svein Þorgrímsson staðarverkfræðing. DV-mynd Brynjar Gauti Landsvirkjunar og Sveinn Þor- grímsson staðarverkfræðingur. Var ekið niður næstum eins kíló- metra löng göng að stöðvarhúsinu, inni í fjalli, þar sem um 200 metrar eru upp á yfirborð jarðar. Var stöðvarhúsið skoðað og teikningar af framkvæmdum útskýrðar af staöarverkfræðingi. Frá iðrum jarðar lá leiðin að staðnum þar sem Blöndustífla mun rísa og mikið lón myndast um 25 kílómetra frá stöðv- arhúsinu. Til marks um stærð þess svæðis sem Blönduvirkjun með öll- um mannvirkjum nær yfir má geta þess að það er jafnstórt og saman- lagt svæði Búrfellsvirkjunar, Sig- ölduvirkjunar og Hrauneyjafoss- virkjunar fyrir sunnan. Eftir skoð- unarferðina bauð Landsvirkjun upp á hádegisverð í mötuneyti starfsmanna á staðnum og -lauk Á Húnavöllum fékk forseti gefna mynd af Þingeyrakirkju, málaða af Guðráði Jóhannssyni. Var það Sigríður Höskuldsdóttir, húsfreyja að Kagaðarhóli, sem afhenti Vigdísi myndina fyrir hönd Sveinsstaða-, Torfalækjar- og Áshreppa. DV-mynd Brynar Gauti heimsókn Vigdísar í Blönduvirkj- un með gróðursetningu þriggja birkihríslna í gróðurreit þar sem unnið er að ræktun fjölda tijáa. Leiðin lá síðan á Húnavelh þar sem var opið hús með veitingum í boði hreppsnefnda Torfalækjar-, Sveinsstaða- og Áshreppa. Á Húna- völlum tók Sigríður Höskuldsdótt- ir, húsfreyja á Kagaðarhóli, á móti forseta og gaf henni mynd af Þing- eyrakirkju, sem Guðráður Jó- hannsson, heimamaðUr, hafði mál- að. Ræddi forseti við gestina og hélt að því loknu til Blönduóss. í gærköldi var síðan kvöldverður í boði bæjarstjórnar á Hótel Blönduósi. Veður hamlaði ferð út á Skaga í gærmorgun var ætlunin að keyra alla leið að Digramúla úti á Skaga en vegna veðurs var ekki farið lengra en að Örlygsstöðum í Skagahreppi þar sem hreppsstjór- inn býr. Því gat heldur ekki orðið af fyrirhugaðri skoðun Kálfsham- arsvíkur og annarra fagurra staða norðan Örlygsstaða. Um hádegi snæddi forseti soðinn lax á heimili Jóns ísberg sýslu- manns og þar á eftir var Blönduós skoðaður og trjám plantað í Hrú- tey. Síðdegis var opið hús og kafíiveit- ingar í félagsheimihnu á Blönduósi fyrir Húnvetninga og aðra sem vildu hitta forsetann og var fjöl- mennt. Áður en heimsókn Vigdísar í Húnavatnssýslur lauk var ekið að Þingeyrum þar sem kirkjan var skoðuð og um Vatnsdal að Þórdís- arlundi þar sem tijám var plantað í síðasta sinn í ferðinni. -hlh Frá opnu húsi í Vesturhópsskóia við Þorfinnsstaði i Vesturhópi. Agnar J. Levy, oddviti Þverárhrepps, flutti þar skemmtilega ræðu og létt var yfir fólki. Oddvitinn stendur þarna aftan viö Vigdisi. Fjær sést kona oddvitans, Hlff Sigurðardóttir. Kvenfélagskonur höfðu þar, eins og alls staðar annars staðar á viðkomustöðum forseta í Húnaþingi, útbúið fyrirmyndar kaffiborð. - DV-mynd Brynjar Gauti til að heilsa upp á forsetann. Þar, sem annars staðar, settu börnin mikinn svip á móttökuathöfnina. Eftir að hafa heilsað gróðursetti forseti þrjár birkihrislur. DV-mynd Brynjar Gauti Frá móttökuathöfninni á Skagaströnd. Adolf J. Berndsen, oddviti Höfðahrepps, ávarpar forseta að viðstöddu marg- menni í rokinu og rigningunni. Jón ísberg sýslumaður heldur regnhlíf yfir Vigdísi. DV-mynd Brynjar Gauti

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.