Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1988, Page 41

Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1988, Page 41
MÁNUDAGUR 29. ÁGÚST 1988. 53-í Fréttir Flateyri: Aflabrestur hjá trillukörlum Reynir Tiaustason, DV, Flateyri: Vertíöin hjá trillukörlum á Flat- eyri hefur algjörlega brugöist í ár og er algengur samdráttur á afla frá í fyrra um 40%. Meginástæðan er rysj- ótt veður svo og hallæri af manna- völdum, það er sóknarstopp sjávar- útvegsráöuneytisins. Konráð Guðbjartsson trillukarl sagði í viðtali við DV að hann væri búinn að veiða 27 tonn nú en á sama tíma í fyrra var hann kominn með 40 tonn. Konráð lýsti óánægju sinni með stoppdagakeríi ráðuneytisins og nefndi sem dæmi að í-10 daga stopp- inu í ágúst hefði bátur sem reri á aflamarki veitt níu tonn á meðan aörar trillur lágu bundnar við bryggju í blíöviðri. Konráð Guðbjartsson um borö í trillu sinni. Veiðitakmarkanir koma hart niður á trillukörlunum. DV-mynd Reynir. Hjónin William og Colleen eyddu brúðkaupsferð sinni á íslandi en þau eru frá S-Afríku. DV-mynd Reynir Traustason Frá S-Afríku til íslands: Sáu snjó í fyrsta sínn á ævinni William og Colleen Labuschagne eru ung hjón frá S-Afríku sem dvalið hafa á Flateyri síðan í fyrrahaust en eru nú á fórum til síns heima. Að sögn þeirra hjóna giftu þau sig í fyrra og héldu til Islands í brúðkaupsferð og unnu sér inn peninga meö fisk- vinnslustörfum hjá Hjálmi h/f á Flat- eyri. „Þegar við komum til íslands í fyrrahaust sáum við snjó í fyrsta sinn á ævinni og við lékum okkur í nokkra daga við snjókast og aðra leiki. Það var stórkostleg upplifun," sögöu þau William og Colleen. „En íslenski veturinn var okkur erfiður því við áttum bara fót sem hentuðu s-afrísku veðurfari en nú þegar við yfirgefum ísland að hausti munum við fagna vori í S-Afríku,“ sögðu þau að lokum og voru greinilega ánægð með þá uppstokkun árstíðanna. Listahátíö á Akureyri: Tapið nam 347 þúsundum Gylfi Kriajánsson, DV, Akureyri: Halli á þremur listviðburðum á listahátíö á Akureyri í sumar nam alls 347 þúsundum króna og samþykkti menningarmálanefnd á fundi sínum nýlega að Menn- ingarsjóöur greiddi þann halla. A sama fundi var einnig sam- þykkt tillaga vegna Davíðshúss og ákveðið aö auglýsa eftir um- sóknum fyrir árið 1989 sem þyrfti að skila fyrir septemberlok. Aukin hlustun á Ríkisútvarpið riiu RIKISUTVARPIÐ Hlustendur vita greinilega hvaða miðil er hægt að treysta á í önn dagsins. Hlustendakönnun SKÁÍS* fimmtudaginn 25. ágúst sýnir tvímælalaust aukna hlustun á Ríkisútvarpið, Rásir 1 og 2. Við þökkum traustið. 40.1 *Könnunin náði til alls landsins, kannaðir voru sex tímar yfir daginn. 1488 manns voru spurðir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.