Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1988, Side 48

Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1988, Side 48
60 MÁNUDAGUR 29. ÁGÚST 1988. Fólk í fréttum Eyjótfiir K. Sigurjónsson Eyjólfur K. Sigurjónsson er í efna- hagsnefnd ríkisstjórnarinnar. Eyj- ólfur Kolbeins fæddist 24. ágúst 1924 í Vestmannaeyjum og lauk námi í Verslúnarskóla íslands 1943. Hann var endurskoöandi hjá Birni E. Árnasyni 1943-1949 og lauk prófi sem löggiltur endurskoöandi 1949. Eyjólfur var í framhaldsnámi í end- urskoðun í Bry ant College og Col- umbiaháskóla 1949-1950 og vann í endurskoöunardeild Sameinuöu þjóöanna 1951-1952. Hann hefur rekiö sjálfstæða endurskoðunar- skrifstofu í Rvík frá 1953 og verið endurskoðandi ÍSAL frá stofnun 1966. Eyjólfur var umdæmisstjóri Lions á íslandi 1965-1966 og formað- ur framkværndanefndar bygging- aráætlunar 1969-1980. Hann var formaöur stjórnar Verkamannabú- staða í Rvik 1971-1980 og stjórnar- formaður Alþýðublaðsins 1974-1975. Evjólfur var formaður félags lög- giltra endurskoðenda 1986-1987 og hefur verið í bankaráði Lands- bankans frá 1986. Eyjólfur kvæntist 9. júní 1951 Unni Friðþjófsdóttur, f. 28. september 1930, skrifstofumanni. Foreldrar hennar eru Friðþjófur Ó. Jóhannesson, afkomandi Skúla Magnússonar landfógeta, útgerðar- maður á Vatneyri við Patreksfjörð, og kona hans, Jóhanna C. Jóhann- esson. Börn Eyjólfs og Unnar eru Friðþjófur Karl, f. 7. nóvember 1952, kennari í Rvík, kvæntur Guðnýju Gunnarsdóttur menntaskólakenn- ara; Jóhanna Katrín, f. 19. mars 1954, magister í mannfræði, gift Áskeli Mássyni tónskáldi; Sigurjón Árni, f. 14. mars 1957, guðfræðingur í doktorsnámi í Kiel í Þýskalandi, kvæntur Martina Brogmus sér- kennara, og Eyjólfur Kolbeins, f. 28. júlí 1960, tölvufræðingur í Rvík, kvæntur Unni Valdimarsdóttur skrifstofumanni. Systkini Eyjólfs eru Árni, f. 27. _ september 1925, forstöðumaður Út- lendingaeftirlitsins, kvæntur Þor- björgu Kristinsdóttur menntaskóla- kennara; Líney, f. 7. maí 1928, gift Matthíasi Matthíassyni, rafvirkja í Rvík, Þórey Jóhanna, f. 21. maí 1930, læknir í Rvík; Páll, f. 5. ágúst 1931, forstjóri ístaks, kvæntur Sigríði Gísladóttur; Þórhildur Ásthildur, f. 22. júlí 1938, gift Bjarka Elíassyni yfirlögregluþjóni í Rvik, og Snjólaug Anna, f. 23. mars 1942, kennari í Rvík, gift Tryggva Viggóssyni lög- fræðingi. Foreldrar Eyjólfs eru Sigurjón Þ. Árnason, prestur í Rvík, og kona hans, Þórunn Kolbeins Árnason. Föðurbróðir Eyjólfs er Björn, afi Jóns L. Árnasonar stórmeistara. Föðursystir Eyjólfs er Snjólaug, amma Guðmundar Árna Stefáns- sonar, bæjarstjóra í Hafnarfirði. Siguijón er sonur Árna, prófasts í Görðum á Álftanesi, Björnssonar, af Harðabóndaættinni, bróður Sig- urðar, afa Magnúsar Magnússonar, dagskrárgerðarmanns í Edinborg. Móðir Sigurjóns var Líney, systir Jóhanns skálds. Líney var dóttir Sigurjóns, b. á Laxamýri, Jóhannes- sonar, b. á Laxamýri, Kristjánsson- ar, ættföður Laxamýrarættarinnar, bróður Jóns, langafa Jónasar frá Hriflu. Þórunn er dóttir Eyjólfs Kolbeins, prests á Staðarbakka, Eyjólfssonar, prófasts í Árnesi, Jónssonar, b. á Kirkjubóli í Skutulsfirði, Þórðar- sonar, b. í Kjarna í Eyjafirði, Páls- sonar, ættföður Kjarnaættarinnar. Móðir Eyjólfs Kolbeins var Elín Björnsdóttir, prests á Stokkseyri, Jónssonar, bróður Guðrúnar, ömmu Sveins Björnssonar forseta. Móðir Björns var Elísabet Björns- dóttir, prests í Bólstaðarhlíð, Jóns- sonar, ættfóður Bólstaðarhlíðarætt- arinnar. Móðir Þórunnar var Þórey, systir Þórðar, langafa Jóns Sigurð- arsonar, forstjóra Álafoss. Þórey var dóttir Bjarna, b. á Reykhólum, Eyjólfur K. Sigurjónsson Þórðarsonar og konu hans, Þóreyjar Pálsdóttur, b. á Reykhólum, Guð- mundssonar, bróður Þorbjargar, langömmu Ólafs Thors. Móðir Þór- eyjar var Jóhanna Þórðardóttir, systir Jóns Thoroddsen skálds. Afmæli Sigurjon Einarsson Sigurjón Einarsson sóknarprest- ur, Klausturvegi 11, Kirkjubæjar- klaustri, varð sextugur í gær. Sigurjón fæddist að Austmanns- dal í Vestur-Barðastrandarsýslu og ólst upp í Arnarfirðinum. Hann lauk stúdentsprófi frá VÍ1950, embættis- prófi í guðfræði viö HÍ1956, stund- aði framhaldsnám í kirkju- og mið- aldasögu og almennri trúarbragða- sögu við háskólann í Vínarborg 1957- 58, við háskólann í Köln 1958- 59, við Erlangenháskóla 1959, í Kaupmannahöfn 1967-68 og rann- sóknir á sögu siðbótarinnar í Kaup- mannahöfn 1975-76. Siguijón hefur kennt viö ungl- ingaskólann í Gerðum í Garði; á Brúarlandi í Mosfellssveit; við Gagnfræðaskóla Kópavogs; hélt unglingaskóla á Kirkjubæjar- klaustri ásamt konu sinni og var stundakennari við Kirkjubæjar- skóla. Hann var sóknarprestur í Brjánslækjarprestakalli 1959-60 og hefur verið sóknarprestur á Kirkju- bæjarklaustri frá 1963. Hann var oddviti Kirkjubæjar- hrepps 1978-82, sýslunefndarmaður Vestur-Skaftafellssýslu frá 1986, kirkjuþingsmaður Suðurlandskjör- dæmis frá 1985, formaður fræðs- luráðs Vestur-Skaftafellssýslu 1964-74, í fræðsluráði Suðurlands frá 1982 og í skólanefnd Fjölbrauta- skóla Suöurlands frá 1982 auk fleiri trúnaðarstarfa. Kona Sigurjóns er Jóna Þorsteins- dóttir bókasafnsfræðingur, f. 21.2. 1927, dóttir Þorsteins Kristjánsson- ar, sóknarprests í Sauðlauksdal, en hann fórst með ms Þormóði í febrú- ar 1943, og konu hans, Guðrúnar P. Jónsdóttur. Börn Sigurjóns og Jónu eru: Æsa, f. 23.9.1959, listfræðingur, búsett í París, gift Daniel Baussien, verk- fræðingi og tónlistarmanni, og Ket- ill, f. 19.8.1966, lögfræðinemi. Sam- býliskona hans er Inga Ingvars- dóttir lögfræðinemi. Uppeldissystkini Sigurjóns eru: Stefán Tnoroddsen, f. 12.6.1922, fv. útibússtjóri Búnaðarbankans í vest- urbæjarútibúi, kvæntur Erlu Hann- esdóttur frá Bíldudal; og Rut Saló- monsdóttir, húsmóðir á Patreks- firði, gift Ölver Jóhannessyni verk- stjóra. Foreldrar Sigurjóns voru Einar Bogi Gíslason, b. og sjómaður á Bakka í Arnarfirði, og kona hans, Vigdís Andrésdóttir ljósmóðir. Föð- ursystir Sigurjóns er Ragnhildur, ekkja Ólafs Þ. Kristjánssonar skóla- stjóra, móðir Kristjáns Bersa skóla- meistara. Einar var sonur Gísla, b. á Króki í Selárdal, Árnasonar, b. á Öskubrekku, Árnasonar, b. í Neðri- Bæ, Gíslasonar, prests í Selárdal, Einarssonar, Skálholtsrektors, Jónssonar, langafa Guðnýjar, ömmu Halldórs Laxness. Móðir Árna í Neðri-Bæ var Ragnheiður Sigurjón Einarsson Bogadóttir, b. í Hrappsey, Bene- diktssonar, ættfóður Hrappseyjar- ættarinnar, langafa Sigurðar Breið- fjörð. Móðir Gísla á Króki var Jó- hanna Einarsdóttir, prests í Selárd- al, Gíslasonar, bróður Árna í Neðri- Bæ. Móðir Einars var Ragnhildur Jensdóttir, b. í Feigsdal Gíslasonar. Móðursystir Sigurjóns var Ólína, móðir Stefáns, uppeldisbróður Sig- urjóns, og Magdalenu, móður Halld- óru Þorvarðardóttur, prests í Fellsmúla. Vigdís var dóttir Andrés- ar, b. á Efri-Vaðli á Barðaströnd, Björnssonar, b. á Grænhóli, Sig- urðssonar. Móðir Vigdísar var Jóna Einarsdóttir, vinnumanns í Siglu- nesi, Guðbrandssonar. Tfl hamingju með daginn 90 ára__________________________ Benedikt ólafsson, Skipagötu 5, Akureyri. Þuriður Jónasdóttir, Yrsufelli 28, Reykjavik. Guðbjörn Benediktsson, Dalbraut25, Reykjavík. Hann verð- ur ekki heima á afmælisdaginn. 85 ára Sigurður Sv. Sigiujónsson Hellisbraut 11, Neshreppi. 80 ára Maris Haraidsson, Dalbraut 20, ReyKjavík. Rögnvaldur Jónsson, Flugumýrarhvammi, Akrahreppi. Ingibjörg Guðmundsdóttir, Snorrabraut 58, Reykjavík. 75 ára Stefán Þorsteinsson, Grundarbraut 44, Ólafsvík. Jóhannes Guðmundsson, Syðri-Þverá, Þverárhreppi. Björg Sæmundsdóttir, Aðalstræti 87, Patreksfirði. 70 ára Þórður Eyjólfsson, Aðalstræti 16, Bolungarvík. Regina Guðmundsdóttir, Nónvöröu 6, Keflavík. 60 ára Logi Jónsson, Kleppsvegi 8, Reykjavík. Sigurjón Friðriksson, Ytri-Hlíð 2, Vopnafirði. Kristján Valgeirsson, Rauöarárstíg 30, Reykjavík. 50 ára Agnar Þór'Aðalsteinsson, Sléttuhrauni 15, Hafharfirði. Helgi Þór Jónsson, Urðarteigi, Berunesi. Eggert Eggertsson, Sunnuhlíð 8, Akureyri. Jón Þorgeirsson, Ægisgrund 16, Garðabæ. 40 ára _________________________ Ólafía S. Magnúsdóttir, Bakkaseli 36, Reykjavík. Guðlaugur Ævar Hilmarsson, Stapasíðu 13B, Akureyri. Jens Jónsson, Garðsvík, Svalbarðsstrandar- hreppi. Jón Vigfússon, Efri-Brúnavöllum II, Skeiðahreppi. Þorgeir Vigfússon, Efri-Brúnavöllum B, Skeiöahreppi. Sigurður Andrésson, Brekkulandi 6, Mosfellsbæ. ólafía Ingibjörg Gísladóttir, Hlíðartúni 22, Höfn í Hornafirði. Herdís Jónsdóttir, Rjúpufelli 8, Reykjavík. Olafur Ragnarsson Ólafur Ragnarsson stýrimaöur, Sólheimum 27, Reykjavík, er fimm- tugurídag. Olafur fæddist í Keflavík en ólst upp á ísafirði og í Borgarnesi. Hann lauk fiskimannaprófi frá Stýri- mannaskólanum í Reykjavík 1963 og síðar farmannaprófi við sama skóla 1980. Ölafur var háseti og stýrimaður á farskipum, bátum og togurum frá 1952 en eftir 1980 hefur hann verið stýrimaður á farskipum, síðustu árin hjá Ríkisskip. Hann er nú yfir- stýrimaður og afleysingaskipstjóri á ms. Esju. Ólafur er kvæntur Guðbjörgu Pálmadóttur, dóttur Pálma Sigurðs- sonar, fv. skipstjóra, og Stefaníu Marinósdóttur frá Vestmannaeyj- um en þau eru nú búsett í Garðabæ. Ólafur og Guðbjörg eiga eina dótt- ur, Rósu, f. 21.1.1971, en hún er símastúlka hjá leigubílastööinni Hreyfli í Reykjavík. Guðbjörg á tvær dætur frá fyrra hjónabandi. Þær eru: María Kristín, f. 17.1.1962, fisk- vinnslustúlka í Reykjavík, en sam- býlismaður hennar er Hörður Inga- son; og Hafdís, f. 24.7.1964 en sam- býlismaður hennar er Oddur Gunn- ar Hauksson. Ólafur átti eina dóttur fyrir hjónaband. Hún er Ragnhildur Halldóra, f. 24.5.1964, en sambýhs- maður hennar er sænskur og búa þau í Svíþjóð. Móðir Ragnhildar er Ingibjörg Sigurðardóttir. Olafur á þrjú systkini samfeðra. Ólafur Ragnarsson Þau eru: Elín Jóna, búsett í Noregi; Ragnhildur Helga, búsett í Borg- arnesi; og Brynjar, búsettur í Garði. Ólafur á fimm systkini sam- mæðra. Þau eru: Kristbjörg Mark- úsdóttir, búsett í Hveragerði; Guð- mundur Þ. Guömundsson, búsettur í Reykjavík; Ragna Moyjer, búsett í Bandaríkjunum; og Pétur og Karl Wooton, búsettir á Englandi, en þar hefur Auður móðir þeirra verið gift og búsett um áratuga skeið. Foreldrar Ólafs eru: Ragnar Ás- mundsson, fv. verkamaður og hús- vörður við grunnskólann í Borgar- nesi, og Auður Ólafsdóttir frá Hnífs- dal. Þau slitu samvistum. Ragnar giftist síðar Halldóru Jónsdóttur og ólst Ólafur upp að mestu leyti hjá þeim, fóður sínum og fósturmóður í Borgarnesi. Leiðréttingar í grein um Einar Odd Kristjáns- son, 16. ágúst, var ranghermt frá móður Herdísar og Ólínu Andrés- dætra. Hún hét Sesselja Jónsdóttir og var einnig móðir Maríu Andrés- dóttur í Stykkishólmi. Rangfærslur urðu í grein um Ólaf Ólafsson 13. ágúst. Móðir Áslaugar Jónsdóttur, konu Ingvars Vil- hjálmssonar, var Sigríður Ásgeirs- dóttir, b. á Lambastöðum, Finn- bogasonar, og konu hans, Ragn- hildar Ólafsdóttur, b. í Bakkakoti í Bæjarsveit, Sigurðssonar, sem fyrr átti Ólaf Ólafsson á Lundum, og voru þau foreldrar Ólafs í Lind- arbæ, fóöur Ólafs. Tilmæli til afmælisbarna Blaðið hveturafmælisbörn og aðstand- endur þeirra til að senda því myndir og upplýsingar um frændgarð og starfssögu þeirra. Þessar upplýsingar þurfa að berast í síðasta lagi tveimur dögum fyrir afmælið. Munið að senda okkur myndir

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.