Dagblaðið Vísir - DV - 29.08.1988, Blaðsíða 52
FRETT ASKOTIÐ
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greið-
hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta- ast 4.500 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt.
skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 1.500 Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Augiýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
Frjálst,óháð dagblað
MÁNUDAGUR 29. ÁGÚST 1988.
Hættuástand er á Ólafsfírði:
70 íbúðarhús yfirgefin
vegna aurskriðuhættu
- enginn hefur slasast þrátt fyrir að sjö skriður hafi fallið á bæinn
Ajgjört neyöarástand hefur rikt
á Ólafsfiröi siðasta sólarhring.
Margar aurskriður hafa falliö úr
fjallinu Tindaöxl, ofan við bæinn.
Gífurlegt vatnsveöur hefur verið á
ÓlafsfirðL Tvær skriöanna hafa
veriö öðrum stærri. Sú fyrri féll
um klukkan hálffjögur í gærdag og
hin um kvöldmatarleytið.
Almannavarnanefnd Óiafsfiarð-
ar lýsti yfir hættuástandi í gær. í
dag verður metið hvort því veröur
aflétt. Skýjað er á Ólafsfirði og því
litlar líkur á aö hættuástandi verði
aflétt. Þó kemur þaö til greina í
skamman tíma i dag. Vatnsveðrinu
slotaði rnikið í nótt. Gert er ráð
fyrir rigningu síðar í dag. íbúar um
sjötíu íbúðárhúsa, sem standa efst
í bænum, hafa oröið að yfirgefa hús
sín. íbúar þeirra húsa gistu ýmist
hjá vinum og vandamönnum, sem
búar neðar í bænum, eða voru í
Gagnfræðaskólanum i nótt.
Engin slys hafa orðið á fólki. Þó
mátti litíu muna er skriða féll um
miöjan dag í gær. Skriðan hreif
með sér tvo bfla. f öörum bilnum
voru hjón með ungt barn. Þrátt
fyrir að bflhnn bærist töluvert meö
skriðunni sakaði fólkið ekki.
Allt aö 30 sentímetra
vatn á götum
Auk aurskriðanna, sem hafa
valdiö miklu eignatjóni, eru götur
í neðri hluta bæjarins undir vatni.
Vatnið nemur víða tuttugu til þrjá-
tiu sentímetrum á dýpt. Niöurfoli
eru mörg hver stífluð eöa anna
ekki hinum mikla vatnselg sem er
á götunum. Drykkjarvatn bæj-
arbúa er mengað af óhreinindum.
Flugvöllurinn er óíær sökum vatns
og aurbleytu. Brim í firðinum er
mikiö og stendur það beint á höfn-
ina. Höfnin á Ólafsfirði hefur veriö
mjög erfið vegna þess hversu mik-
ill sandur berst í hana þegar vind-
átt er af noröaustri eins og nú.
Mikið tjón fyrirsjáanlegt
Fyrsta skriðan, sem féllúrTinda-
öxl, féll í gærmorgun. Þá var al-
mannavarnanefnd staðarins köll-
uð út, svo og björgunarsveitir.
f efri hluta bæjarins hafa mörg
íbúöarhús, garöar, götur og fleiri
mannvirki orðiö illa úti. Aur og
grjót hefur víða komist i kjallara
húsa. í neðri hluta bæjarins.hefur
vatn náð að flæða inn í hús.
í morgun hófst fundur almanna-
vamanefiidar. Á fundinum átti að
ákveða hvort hættuástandinu yrði
aflétt. Eftir er aö meta tjónið sem
orðiö hefur á Ólafsfirði. Greinilegt
er að það er gífurlega mikið.
-sme
Hættuástand:
Landhelgis-
' gæsluþyrian
er til taks
á Akureyri
„Viö höfum flutt þyrlu Landhelgis-
gæslunnar til Akureyrar. Hún er
höfð þar ef eitthvað kemur fyrir fólk
á Ólafsfirði eða Siglufirði. Báöir þess-
ir staðir em einangraðir sökum
vegaskemmda," sagði Guðjón Pet-
ersen, framkvæmdastjóri Álmanna-
varna ríkisins.
Flugvöllurinn á Ólafsfiröi er ófær
sökum aurbleytu. Höfnin er illfær
þar sem brimið stendur á höfnina.
Vegurinn um Ólafsfjaröarmúla er
ófær. Á hann hafa fallið margar
skriður. Lágheiði er einnig ófær þar
sem skörð hafa komið í vegi beggja
vegna heiðarinnar.
-sme
LOKI
Þaö fór greinilega allt í
hundana um helgina
Tíkin Contessa var valin fallegasti hundurinn á hundasýningu HRFi sem haldin var í Reiðhöllinni í gær. Á mynd-
inni eru einnig annar dómaranna, Ole Staunskjær, og Sonja Felton, eigandi verðlaunahundsins. Alls voru 170
hundar sýndir og þótti hátíðin heppnast vel. DV-mynd S
5 laxakvíar rak á land:
Tjónið
losar 30
milljónir
„Það rak fimm kvíar með laxaseið-
um upp á land í veðrinu í fyrrinótt
og um 250 þúsund seiði drápust.
Tjónið losar um 30 milljónir, en við
vitum enn ekki hve mikið kvíarnar
eru skemmdar. Þær voru allar á legu
á víkinni við höfnina í Straumsvík.
Við vorum með fleiri kvíar með fiski
utar, en þær sluppu alveg,“ sagði
Álfheiður Ingadóttir, einn eigenda
Haflax hf., við DV í morgun.
Kvíamar hafa verið dregnar út á
sjó aftur og verður fljótlega hægt að
kanna skemmdirnar á þeim. Þrátt
fyrir þetta tjón sagði Álfheiður að
það yrðu líklega keypt ný seiði, en
yfrið nóg væri af seiðum í landinu.
Hafi Haflax veriö með laxakvíar við
Straumsvíkurhöfn undanfarin 3 ár
og ekki ástæða til að leggja upp laup-
ana.
„Þarna var allt sem hjálpaðist að.
Veðrið var snarvitlaust og um leið
stærsti straumur ársins. Norðanátt-
in var einnig mjög óhagstæð fyrir
okkur, en þá blæs beint inn í
Straumsvíkurhöfn. Við höfum veriö
með kvíar þarna í tvo vetur, en kall-
arnir þarna segja þetta það lang-
versta sem þeir hafa séð.“
-hlh
Kalt
áfram
Norðan- og norðaustanátt verður
um allt land, víðast 5-7 vindstig,
rigning á Norður- og Norðaustur-
landi en úrkomulítið fyrir sunnan.
Hiti verður á bilinu 5-12 stig.
Hrímbakur EA:
Ungur piltur
missti framan
af fæti
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Ungur piltur á togaranum Hrím-
bak frá Akureyri missti allar tær af
öðrum fæti og framan af ristinni er
hann varð fyrir slysi fyrir helgina.
Skipiö var aö veiðum úti fyrir
Norðurlandi er slysið varð. Klemmd-
ist pilturinn í skutrennuloka með
þessum afleiðingum. Hann var flutt-
ur í land á Siglufirði og þaöan í bíl
til Akureyrar en unniö hefur veriö
að rannsókn málsins um helgina.