Dagblaðið Vísir - DV - 01.09.1988, Síða 21
FIMMTUDAGUR 1. SEPTEMBER 1988.
21
LífsstíU
Verslunarhúsnæði í höfuðborginni:
Offramboð en
þó byggt meira
Tómir rekkar og hiliur. Myndin er tekin á Eiðistorgi. DV-myndir KAE
húsnæði á jarðhæð. Þama var til Offjárfesting
húsa tölvuþjónustan Andi en henni og hár fjármagns-
var lokaö fyrir skömmu. Húsnæðið kostnaður
er til leigu. Ef undan er skilið húsnæðið á
Einnig má sjá merki um sam- horni Snorrabrautar og Hverfis-
drátt á Laugaveginum. Þar hafa götu og húsnæði Kjötbæjar eiga
nokkrar verslanir lokað að undan- allir þessir staðir eitt sameiginlegt.
Verslun að loka i Kringlunni.
Versþtnum er lokað og engin kem-
ur í staðinn. Þetta er að verða dag-
legt brauð í Reykjavík. Þrátt fyrir
þetta er enn verið að byggja hús-
næði undir verslanir. Dæmi um
stóra verslunarmiðstöð í byggingu
er „litla Kringla", versltmarmið-
stöð sem verið er að byggja í nýja
miðbænum, við hlið Kringlunnar.
Dæmi eru um verslunarhúsnæði
á besta stað sem ekki hefur tekist
að leigja og því staðið autt svo
mánuðum skiptir.
Slíkt húsnæði er að finna í versl-
unarmiðstööinni á Eiðistorgi á
Seltjarnamesi. Torgið er hjarta
bæjarfélagsins og mikið um versl-
anir. Það er þó eins og ekki hafi
gengið sem skyldi að reka verslun
á þessum stað. Þar skipta verslanir
Neytendur
oft um eigendur og öðrum er hrein-
lega lokað. Á annarri hæð við torg-
ið er húsnæði sem hefur verið til
leigu allt þetta ár a.m.k. en ekki
tekist að fá leigjendur.
En þetta er ekki eina ónýtta versl-
unarhúsnæðið við Eiðistorg. Að
minnsta kosti tvær aðrar verslanir
hafa lokað að undanfornu og er
ekki að sjá að húsnæði þeirra hafi
verið ráðstafað enn.
Verslunareigendur við torgið
segjast þó sjá fram á betri tíð með
blóm í haga. Ástæðan er sú að
Hagkaup hefur yfirtekið húsnæði
Nýjabæjar og telja verslunareig-
endur að ef tilvist Hagkaups á þess-
um stað glæði hann ekki lífi þá
geti ekkert bjargað honum.
Erfiðleikar í Kringlunni
En það er ekki bara við Eiðistorg
sem sjá má merki um sámdrátt í
verslun. Teikn era á lofti í Kringl-
unni, sjálfu musteri íslenskrar
smásöluverslunar. Þar er ein versl-
un að leggja upp laupana þótt hús-
næði hennar hafi sjálfsagt þegar
verið ráðstafað.
Á efstu hæð Kringlunnar er að
finna stórt húsnæði sem ekki hefur
verið nýtt nema endram og eins.
Þar var til að mynda haldinn bóka-
markaður og síðar sameinuðust
nokkur tölvufyrirtæki um að halda
þar útsölu á tölvuvöram. Að öðra
leyti stendur þetta húsnæði ónotað
og getur það varla verið hagkvæmt.
Gamli miðbærinn
Frá Kringlunni og niður í gamla
miðbæinn. Þar er einnig að sjá
merki um samdrátt.
Á Snorrabraut, milli Laugavegar
og Hverfisgötu, er stórt húsnæði
sem ekki er nýtt til neins. Þarna
var áður til húsa ferðaskrifstofan
Terra sem lagði upp laupana síð-
astliðinn vetur. Síðan þá hefur
þetta húsnæði staðið autt þrátt fyr-
ir að það sé í nýbyggöu glæsihúsi
á besta stað í bænum.
Þar skammt frá, á horni Hverfis-
götu og Snorrabrautar, er að finna
autt húsnæði. Þar hafa ýmsar
verslanir tyllt niður fæti en ekki
enst. Nú síðast var þarna sérversl-
un með brimbretti og allt sem þeim
fylgir. Nú stendur húsnæðið autt,
engum til gagns.
Beint á móti, í stórhýsi Alþýðu-
bandalagsins á Hverfisgötu 115, er
einnig að finna autt verslunar-
fórnu en yfirleitt komiö aörar í
staöinn. Síðasta dæmið er verslun-
in Kjötbær en talsvert er síðan
henni var lokað. Ekkert hefur kom-
ið í staðinn né hefur Kjötbær opnað
að nýju. Það er hins vegar ljóst að
ekki er hagkvæmt að láta verslun-
arhúsnæði standa autt við Lauga-
veginn þar sem það er dýrast.
Þeir era allir í nýjum byggingum
og á góðum staö. Það er bara ekki
vel gerlegt að reka verslun ef fjár-
magns- eða leigukostnaður tekur
of stóran hluta af veltunni.
Til að starfa við slík skilyrði þarf
viðkomandi verslun að vera ansi
stöndug.
-PLP
Verslunarhúsnæðl til leigu á Hverfisgötu 115. Enn við Eiðistorg. Þetta húsnæði hefur staðið autt svo mánuðum skiptir.