Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.1988, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.1988, Blaðsíða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 1988. Skák Heimsbikarmótið: Gestabókin Áhorfendur á fyrstu umferð heimsbikarmótsins sem fram fór í Borgarleikhúsinu í gær voru þó nokkrir, en þó tekur húsnæðiö miklu fleiri gesti. Meðal þeirra sem mættu voru: Einar S. Einars- son, framkvæmdastjóri Visa og fyrrverandi forsefl Skáksam- bandsins, Hans G. Ámason, einn eigenda Stöövar 2, Ingvi Hraöi Jónsson rithöfundur, Jóhann Öm Sigutjónsson skákfrömuður, Davíð Oddsson borgarstjóri, Steingrímur Hermannsson for- sætisráðherra, Ragnar Halldórs- son, stjórnarformaður ísal, Magnús H. Magnússon, fyrrver- andi ráðherra, Sigtryggur Sig- tryggsson, fréttastjóri Mbl., Rúnar Júlíusson hljómlistarmaö- ur, Sigurður Sigurðsson, fyrrver- andi íþróttafréttamaður, Eggert Þorleifsson leikari, Ásgeir Ás- björnsson forritari, Elvar Guö- mundsson skákmaöui-, Karl Þor- steins skákmaður, Eiríkur Jóns- son safnvörður, Jónína Ingva- dóttir (eiginkona Jóhanns Hjart- arsonar), Hjörtur Ingvi Jóhanns- son (sonur Jóhanns), Ásgeir Þór Ámason skákmaður, Áskell Kárason skákmaður, Leifúr Jó- steinsson bankastjóri, Árai Njálsson iþróttaþjálfari, Bjöm Magnússon deildarstjóri, Þröstur Þórhallsson skákmaður, Bjöm Fr. Bjömsson, fyrrv. sýslumaður, Magnús Torfason tannlæknir, Þorgeir Þorgeirsson rithöfundur, Dan Hansson skákmaöur, Guö- mundur Sigmjónsson stórmeist- ari, Valdimar Jónsson verkfræö- ingur, Björgvin Jónsson skák- maöur, Benedikt Jónasson skák- maður, Ólafur Ámason lögfræð- ingur og Stefán Briem kennari. ÍS Helmsbikannótið 1 skák: Jafhtefliskóngurinn vann - um hundrað manna starfslið við mótið Fyrsta umferð heimsbikarmótsins í skák fór fram í stórglæsilegum og rúmum húsakynnum Borgarleik- hússins. Aðstaða er mjög góð fyrir áhorfendur, þeir geta valið um aö horfa á skákmennina sjálfa úr saln- um, horft á skákimár úr sérstakri setustofu eða hlustað á skákskýring- ar í öðrum sal. Alls staðar blasa við sjónvarpsskjáir með stöðumyndum. Því 'miður virtist sem einhveijir þeirra væru bilaðir en það verður vonandi komiö í lag í annarri um- ferð. Búið er að koma upp sérstökum veitingastað sem einungis verður opinn á meöan á mótinu stendur og er það til mikilla þæginda. Einnig geta þeir sem vilja komist á barinn. Alls mun starfsliðið sem vinnur við mótið vera tæplega 100 manns, svo augljóst er að mótið er mjög um- fangsmikið. Þrátt fyrir að yfir 230 miðar seldust fyrir fullorðna og um 40 barnamiðar var eins og húsakynn- in væru hálftóm, svo stórt er hús- næðið. Þá em ótaldir allir þeir sem komu á boðsmiðum á mótið. Hinn þekkti stórmeistari í skák, Jón L. Árnason, sá um skákskýring- ar og voru áhorfendur greinilega vel með á nótunum. Þegar mest var, voru um 120 manns í salnum að hlusta á skýringar Jóns L. Úrslit í sumum skákunum komu furöu fljótt, og flest voru þau jafn- tefli, áhorfendum til vonbrigða. Síð- an kom frétt um tap Margeirs gegn Jusupov, og skák Jóhanns og Speel- mans virtist stefna í mikið tímahrak þar sem Jóhann var með verri tíma. Áhorfendur vora því ekki allt ^of o Jóhann Hjartarson teflir hér vió Speelman. SKák þeirra lauk með jafntefli. DV-mynd GVA bjartsýnir, en Jóhann náði þó auð- veldlega að jafna taflið og jafntefli varð raunin. Og jafntefliskóngurinn sænski, Ulf Andersson, sýndi á sér nýjar hliðar og vann, en heimsmeist- aranum Kasparov tókst ekki að sigra. Hann þarf örugglega að hafa mikið fyrir sigmnum í þessu móti, því þarna sitja flestir bestu skák- menn heims að tafli. Næsta umferð verður tefld í dag og hefst klukkan 17, og má búast við meiri átökum í annarri umferð en þeirri fyrstu, því menn fara oft var- legaíbyrjunmóts. -ÍS TVær vinningsskákir í fyrstu umferð - Ævintýraleg björgun Tals Enski stórmeistarinn og stærö- fræðidoktorinn John Nunn var sneyptur að sjá eftir 23ja leikja jafn- teflisskák við Ungveijann Guyla Sax í fyrstu umferð heimsbikar- mótsins. „Skákina okkar má finna í öllum byrjanabókum," sagði þessi sókndjarfi skákmeistari. Sax, sem stýrði hvítu mönnunum, leist ekki betur en svo á Marshall-árás Eng- lendingsins (sama byijun og í sum- arskák Stöövar 2 og Fjarkans) að hann knúöi fram þráleik. Landamir Zoltan Ribli og Lajos Portisch sömdu einnig um jafntefli eftir skamma viðureign en barátt- an í öðmm skákum var meiri, þótt öllum nema tveimur lyktaöi með jafntefli. Belgískir sérfræðingar, sem komu til landsins gagngert til að setja upp tölvustýrð sýningatöfl, reyndust ekki vandanuih vaxnir og aöeins sex borð af níu voru í lagi viö upphaf umferðarinnar. Því miöur var borð heimsmeistarans, Garrí Kasparov, eitt þeirra. Hann beitti Grúnfeldsvöm gegn Artur Jusupov. Virtist ætla að tefla til vinnings en með lítilli fléttu náöi Jusupov að halda jafnvæginu. Það vakti athygli að heimsmeistarinn vildi ekki stól á snúningsfæti eins og aðrir keppendur hafa, svo ekki sé minnst á Fischer foröum. Þess í stað situr hann í látlausum stól með tréörmum, aö rússneskri fyr- irmynd. Jafntefli gerðu Timman og Spassky eftir 41 leik, þar sem Tim- man reyndi að knýja fram sigur i biskupaendatafli. Ehlvest og Kortsnoj skiptu upp á drottningum snemma og slíðmðu sverðin eftir 38 leiki. Leynivopniö brást Áhorfendur sýndu skák Speel- mans og Jóhanns mikinn áhuga, þrátt fyrir að taflið færi rólega af stað. Báðir eyddu miklum tíma eft- ir nýbreytni Englendingsins 1 þvældu afbrigði drottningarind- verskrar vamar. Speelman hafði þægilegra tafl framan af en Jóhann rétti smám saman úr kútnum. Ekki er loku fyrir það skotið aö staða hans hafi verið heldur betri er Spe- elman bauð jafntefli eftir 21 leik. Jóhann vildi ekki freista gæfunnar í yfirvofandi tímahraki og þáöi boö- iö, Áhorfendum brá er Margeir kaus að gefa drottningu sína fyrir hrók og riddara gegn Alexander Beljav- sky. Við nánari athugun kom í Ijós aö hann átti ekki annars úrkosti. Margeir beitti Petrovs-vöm, al- ræmdu jafnteflisvopni, sem þó snerist í höndum hans. Beljavsky var vel með á nótunum og fljótur var hann að notfæra sér óná- kvæmni Margeirs: Hvítt: Alexander Beljavsky Svart: Margeir Pétursson Petrovs-vörn. 1. e4 e5 2. Rf3 Rf8 3. Rxe5 d6 4. Rf3 Rxe4 5. d4 d5 6. Bd3 Bd6 7. 0-0 0-0 8. c4 c6 9. cxd5!? í einvígi Timmans og Salovs í St. John var leikið 9. Dc2 og 9. Hel eða' 9. Rc3 em aðrir kostir. 9. - cxd5 10. Rc3 Rxc3 11. bxc3 Bg4 12. h3 Bh5 13. Hbl Rd7 14. Hb5 Rb6 15. c4! Bxf3 Skemmtilegar flækjur koma upp eftir 15. - Rxc4 16. Hxd5! Bh2+ 17. Rxh2! Dxd5 18. Bxc4 Dxc4 19. Dxh5 með betra tafli á hvítt, en þannig tefldist skák tveggja óþekktra meistara (Mahia - Pla) á móti í Mar del Plata í ár. 16. Dxf3 dxc4 17. Bc2! a6? Afleikur. Betra er 17. - Dd7. 18. Bg5! . K W i« A A 4 4 sl4 Á ,|_________ ABCDEFGH Hvað á svartur nú til bragðs að taka? Drottningin verður aö gæta riddarans á b6 og getur því aðeins vikið sér undan til c7 (ef 18. - f6, þá 19. Dh5 með mátsókn). Eftir 18. - Dc7 gætu næstu leikir hins vegar oröið 19. Bxh7+! (Þess ber aö geta að 19. Dh5 g6 20. Bf6 með hótunun- um 21. Dh6 og 21. Dxh7 +!, strandar Skák Jón L. Árnason á 20. - Bh2+ 21. Khl Df4! og svart- ur nær að veijast.) Kxh7 20. Dh5+ Kg8 21. Bf6 og nú 21. - gxf6 22. Dg4 + Kh7 23. Hh5 mát; eöa 21. - axb5 22. Dg5 g6 23. Dh6 og mátar. Margeir neyðist því til aö láta drottningu sína af hendi en gegn öraggri taflmennsku Beijavskys er jafnteflisdraumurinn fjarlægur. 18. - axb5 19. Bxd8 Hfxd8 20. Dh5 g6 21. Dxb5 Bc7 22. a4 Hxd4 23. Dc5 Hd7 24. g3 He8 25. a5 He5 26. Db4 Rd5 27. Dxb7 Hde7 28. a6 Bb6 29. Dc8+ Kg7 30. Dc4 Hc7 31. Da4 He2 32. Bb3 Rc3? 33. Bc4 Hc2 34. Bd3! Hd2 35. Df4 - Og Margeir gafst upp. Töfrabrögð frá Riga Hin vinningsskákin fór fyrir ofan garð og neðan hjá áhorfendum. Svíinn hógværi, Ulf Andersson, virtist ætla að nudda taflið af An- drei Sokolov, svona með tíð og tíma, en áður en nokkur vissi af var hann búinn að vinna. Sokolov var of lengi að leika 40. leik sinn og féll á tíma. Kannski var þaö meö ráðum gert. Hann var peði undir og að auki með rangstæðan hrók. Andersson hefði áreiðanlega notiö þess að fá að tefla þetta svolítið lengur. Lengsta skák umferðarinnar var milli Predrag Nikolic og Mikhail Tal - töframannsins frá Riga. Er Tal tefldi hér á Reykjavíkurskák- mótinu 1964 sagði hann að of langt væri milli Riga og Reykjavíkur til að gera stutt jafntefli í fyrstu um- ferð. Hann var heldur ekki aö tefla til jafnteflis gegn Nikolic, beitti tví- eggjuðu byijunarafbrigði. Nikolic tefldi aftur á móti frábærlega vel og það var með ólíkindum að Tal skyldi hafa sloppið lifandi úr tafl- inu. Um tíma hafði hann tveimur peðum minna og óljós gagnfæri! Þetta var ein skemmtilegasta skák umferðarinnar. Hver segir að jafn- teflisskákir þurfi nauðsynlega aö vera leiöinlegar? Hvítt: Predrag Nikolic Svart: Mikhail Tal Benóní-vörn. 1. d4 RfB 2. c4 c5 3. d5 g6 4. Rc3 Bg7 5. g3 0-0 6. Bg2 d6 7. Rf3 e6 8. 0-0 exd5 9. cxd5 a6 10. a4 Rbd7 11. Bf4 De7 12. a5 Hb8 13. Ra4 b5 14. axb6 fr.hl. Rxb6 15. e4 Rfd7 16. Rxb6 Hxb6 17. Rd2 Hb4 18. Ha4 Hxa4 19. Dxa4 g5 20. Be3 Re5 21. b4! cxb4 22. Dxb4 Bd7 23. Db7 a5 24. Hcl a4 25. Hc7 a3 26. Da6! Bb5 27. Hxe7 Bxa6 28. Ha7 Be2 29. Bxg5! Hc8 30. Hxa3 X w tti A % Á. A s ; A abcdefgh Hvítur á tveimur peðum meira og 30. - Hcl+ 31. Rfl (hótar 32. Bxcl) Hdl 32. Ha8+ leiðir beint til taps. Þar við bætist að Tal var kom- inn í mikla tímaþröng. 30. - h6!? 31. Bf4 Hcl+ 32. Bfl! Rd3 33. Kg2? Rxf4 34. gxf4 Hdl! 35. Ha8+ Kh7 36. Bxe2 Hxd2 37. Kf3 Bd4 Tal hefur töfrað fram mislita biskupa og þar með em jafnteflis- líkurnar orönar talsveröar. Enn aukast þær. 38. f5? Kg7 39. Hb8 Bc5 40. Hbl Kf6 41. h4 Ha2 42. Hb7 Ha7 43/Hxa7 Bxa7 44. Bd3 Bc5 45. Kg3 Bd4 46. f4 Be3 47. Bb5 Bd2 48. Kg4 Bcl 49. Be8 Ke7 50. Bc6 Kf6 51. Bd7 Bd2 52. Bc8 Og jafntefli samið. -JLÁ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.