Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.1988, Side 3
ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 1988.
3
Fréttir
Helgarumferðin 1 Reykjavik:
A þriðja hundrað teknir
fyrir umferðariagabrot
Á þriðja hundrað manns voru
teknir fyrir ýmis umferöarlagabrot í
Reykjavík um helgina. Þar af voru
yfir 100 teknir fyrir of hraðan akst-
ur, 60 sem ekki virtu umferðarljósin,
auk annarra sem voru ölvaðir eða
brutu á annan hátt af sér í umferð-
inni. Af þeim sem óku of hratt voru
nokkrir sviptir ökuleyfi strax. Er
meðalaldur þeirra, sem misstu öku-
leyfið, rúm 22 ár.
Að sögn lögreglunnar í Reykjavík
var ekki um neina rassíu að ræða.
Væri umhugsunarvert á haustdög-
um, þegar farið er að dimma, hálku
er að vænta og skólaböm eru á ferð,
hvort ekki væri ástæða til að fara
með gát í umferðinni. Þyrfti fólk að
huga að því hverjum væri að kenna
að nú stefnir í metár hvað varðar
umferðarslys. Væm mannleg mistök
og kæruleysi þar aðalorsökin. Eins
og DV skýrði frá á laugardag munu
óeinkennisklæddir lögreglumenn í
bílum fylgjast náið með því á næst-
unni að ökumenn virði umferðarljós-
in. Mun ekki veita af ef marka má
tölur helgarinnar þar sem 60 virtu
ekki umferðarljósin.
-hlh
11 ...«" ....
Landsbankinn:
Næturvörðum
sagt upp
Öllum kvöld- og næturvörðum
Landsbankans hefur verið sagt upp
störfum. Standa forráðamenn bank-
ans í viðræðum við vaktfyrirtæki um
að hafa eftirlit með bankanum að
næturlagi.
Ari Guðmundsson, starfsmanna-
stjóri Landsbankans, sagði í viðtali
við DV að 4-6 vikur væra síðan
fyrstu vörðunum heiði verið sagt
upp. Tækju uppsagnimar gildi eftir
þrjá mánuði minnst frá því að þær
hefðu verið afhentar starfsmönnun-
um. Þessar breytingar væra gerðar
i fullu samráði við starfsmannafélag
Landsbankans. Ekki kvaöst Ari vilja
gefa upp við hvaða vaktfyrirtæki
forráðamenn bankans væra að
semja, það væri „einkamáT.
-JSS
Pottur á eldavél:
íbúarnir sváfii
í reyknum
Slökkvihð var kallað að íbúðarhúsi
við Njálsgötu í fyrradag. Fólk haíði
orðið vart við mikinn reyk í húsinu.
Þegar slökkvilið kom á vettvang var
búið að brjóta upp útihurð. Ibúar
hússins reyndust vera heima og í
fastasvefni. Skemmdir á íbúðinni
urðu einhveriar en engan mun hafa
sakað.
Þá var slökkvilið fengið í gær til
að soga vatn vegna leka í klósett-
kassa í íbúö við Grenimel. Klósett-
kassi tók að leka án þess að íbúarnir
yrðu þess varir. Vatnið fann sér leið
niður á næstu hæð og olli skemmd-
um þar. Slökkviliðið sogaði vatnið
úr íbúðinni.
-sme
Akranes:
Eldur í
íbúðarhúsi
Eldur varð laus í íbúðarhúsi við
Heiðarbraut á Akranesi í fyrrakvöld.
Eldurinn var í kjallara hússins. Allt
slökkvilið Akraness var kallað út.
Vel gekk að ráða niðurlögum elds-
ins. Tjón af völdum elds og reyks er
töluvert.
Eldsupptök era ekki kunn. Álitið
er að eldurinn hafi komið frá frysti-
kistu sem er í kjallara hússins.
-sme
Dósasöfiiun lokiö:
Um300þúsund
dósum skilað
Um 300 þúsund dósum var skilaö
inn í dósasöfnunarátakinu sem lauk
um helgina. Það þýðir að um 600
þúsund krónur hafi verið greiddar
út fyrir dósimar. í DV í gær misritað-
ist að dósasöfnuninni lyki um næstu
helgi. Það er rangt, henni lauk á laug-
.ardaginn. -hlh
Þú breytir flóknum hlut í einfaldan með einu símtali
ogeinniundirskrift.
5AMVINNU
TRYGGINGAR
- með betri tryggingu á lægra verði.
Hringdu
strax í dag
eða kvöld!
ísíma 68*14*11
Vegna mikillar eftirspumar undanfarin kvöld
munum við svara spumingum og selja nýju
F-trygginguna samfleytt frá kl. 9:00-23:00 í dag
og á morgun.
Við þökkum frábærar undirtektir og biðjumst
velvirðingar á því að á stökum álagspunktum nær
skiptiborðið ekki öUum símhringingum inn.
m
Allt að ^\J /Llafeláttur
af venjulegum iðgjöldum er ávísun á áþreifanlegan
spamað á hverju ári!