Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.1988, Qupperneq 5

Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.1988, Qupperneq 5
ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 1988. 5 Haraldur Blöndal bauð verkin upp á Hótel Borg. DV-mynd KAE Uppboð hjá Gallerí Borg: Stóð fér á 420 þúsund Olíumyndin Stóð eftir Jón Stefáns- son seldist fyrir hæstu upphæðina, eða 420 þúsund, á listmunauppboð- inu sem haldið var á Hótel Borg á sunnudaginn. Það var Gallerí Borg í samvinnu við Listmunauppboð Sig- urðar Benediktssonar sem stóð að uppboðinu. Næstdýrust var mynd eftir Kristínu Jónsdóttur, sem seldist á 330 þúsund. í þriðja sæti var stór olíumynd eftir Gunnlaug Blöndal sem seldist á 220 þúsund krónur. Að sögn Úlfars Þormóðssonar, framkvæmdastjóra Gallerí Borgar, seldist gifsstyttan Dögun eftir Einar Jónsson ekki. Styttan fór inn án lág- marksverðs, og skömmu fyrir upp- boðið haföi eigandi hennar samband og tilkynnti að hún yrði ekki seld undir 550 þúsundum krónum. Mark- aðsverð hennar er allmiklu lægra. Gestum gafst síðan kostur á að bjóða í styttuna, en ekkert boð barst. Rúmnlega sjötíu verk voru boðin upp í gær og seldust flest þeirra ■ -JSS Stykkishólmur: Síðasta steypan í nýja íþróttahúsið Robert Jörgensen, DV, Stykkishólnú: Miklum áfanga var náð við bygg- ingu hins nýja íþróttahúss í Stykkis- hólmi sl.fóstudag. Þá fór fram síðasta steypan í húsinu eins og bygginga- menn orða það. Burðarbitar í þak hússins eru komnir og verður þeim fljótlega komið fyrir. Hólmarar hafa verið vitni að því hvemig hægt er að byggja opinberar byggingar ef kringumstæður leyfa. Gerður var samningur við ríkið áður en byggingarframkvæmdir hófust um fastar greiðslur ár hvert. Á grundvelli þessa samnings hefur síð- an verið hægt aðfáfj ármagn til fram- kvæmdanna. Mikil undirbúningsvinna var unn- in með fulltrúum íþróttafélagsins Snæfells og kennara í Stykkishólmi til að tryggja sem besta nýtingu húss- ins. Verktaki byggingarinnar er Tré- smiðja Stykkishólms. Starfsmenn vinna við síðustu steypu íþróttahússins. DV-mynd Róbert. Halldór Snorrason vegna Lödumálsins: Ég mun fara fram á skaðabætur „Bílasalan á að ganga úr skugga um að engin veð hvíh á bílunum sem hún er að selja. Sölumenn hringja þá í viðkomandi fógetaembætti og ganga úr skugga um það. Þetta mál á auðvitað að vera búið að leysa fyr- ir löngu og ég skil að Jón B. Sigurðs- son skuli vera orðinn svekktur. Þeg- ar upp er staðið beinast öll spjót þó að Bifreiðum og landbúnaðarvél- um,“ sagði Halldór Snorrason á Aðal Bílasölunni við DV. DV hefur skýrt frá máli Jóns B. Sigurðssonar sem staðgreiddi Lödu á bílasölu Halldórs í vor án þess að vita um mörg hundruð þúsund króna veð í bílnum. Bíllinn hefur nú verið tekinn af Jóni í annaö sinn vegna veðanna. „Ég hef svarað skrifum um þetta mál einu sinni. Þar talaði ég um að skaðinn yrði bættur og að Bifreiðar og landbúnaðarvélar væru sóma- kært fyrirtæki. Þau orð endurtek ég ekki. Kristinn Guðmundsson bygg- ingarmeistari kom með þennan bíl beint frá umboðinu á söluna til okk- ar. Þess vegna grennslaöist sölumað- ur ekki fyrir um veöbönd í bílnum. Það var okkar ógæfa og við erum reynslunni ríkari.“ Halldór segir frá því að hann hafi talað við Kristin Valtýsson hjá Bif- reiðum og landbúnaðarvélum og að Kristinn hafi sagt honum að koma og ná í peninga fyrir andvirði bílsins. „Guðmundur Gíslason, aðaleig- andi og upphafsmaður fyrirtækisins, hafði séð skrif DV um málið í milli- tiðinni og gefið fyrirmæli um að ekki kæmi til greina að fyrirtækið leysti til sín bílinn. Ég sneri því peninga- laus til bílasölunnar og síðan hefur máhð staðið í tómu hjakki. Nú fara þrír lögfræðingar í málið með til- heyrandi kostnaði. Jón fer í mál við mig, ég við Kristin og Kristinn við Bifreiðar og landbúnaðarvélar. Ég mun auk þess fara fram á skaðabæt- ur þar sem ég er ekki vanur því að borið sé út að mínu fyrirtæki sé ekki treystandi." -hlh Fréttir „Tildrög glæpsins voru þau að sjöunda júlí 1980 fékk ég mér rauð- vinskút í ríkinu við Snorrabraut. Ég settist á bekk á Skólavörðuhæð og fékk mér sopa úr kútnum. Af- leiöingar glæpsins eru mér ekki að fullu ljósar nema aö ég greiddi sex þúsund króna sekt fyrir. Augljóst er að glæpurinn hefur veriö mjög alvarlegur þar sem hann er skráð- ur á sakaskrá að átta árum liön- um,“ sagði Magnús Hafsteinsson. Magnús sótti sér sakavottorð fyr- ir fáum dögum. Honura til mikillar undrunar var skráð á sakavottorð- iö aö hann hefði gert sex þúsund króna sátt vegna brota gegn 21. grein áfengislaga. Þar er kominn rauðvínssopinn fyrir framan Hall- grímskirkju sumarið 1980. „Það fer eftir þvf til hvers á að nota sakavottoröið hvað tekið er fram á því. Ef verið er aö end- umýja ökuskírteini þá er aðeins getiö um umferðarlagabrot og áfengislagabrot síöustu þriggja ára. Ef verið er að sækja um byssuleyfi er allt talið upp. Sama glldir ef ver- ið er að sækja um starf hjá hinu opinbera, til dæmis í iögreglunni. Ef hins vegar er veriö að sækja um starf hjá einkaaðilum er hægt að sleppa öllu öðm en hegningarlaga- brotum,“ sagði Guömudur Arn- finnsson hjá ríkissaksóknara. Guðmundur sagði að þau afbrot sem skráð væru á sakaskrá færu ekki þaðan aftur. Það væri hins vegar ekki alltaf nauðsynlegt að skrifa afbrotin á sakavottorð. Það fer efdr því til hvers á að nota saka- vottorðiðhverjusinni. -sme 2ÍÍ3Pac ^STÍPoi^r Góðar fréttir í sláturtiðinni: ÓSKADRAUMUR húsmaeðra og húsfeðra hefur raest! ------- Ný tegund sjóHlokandi frystipoka með „rennilás' og aprentuðum merkingarreit. alfapac - frystipokarnir fást í 3 stærðum. 40 pokar í pakka 18 x 22 cnr 40 pokar í pakka 22 x 32 cm m'ðsterð) 25 pokar í pakka 30 x 40 cm (storir) 0g auk þess atlar stærðir saman í einum pakka: 20 pokar 18 x 22 cm (litlir) 15 pokar 22 x 32 cm (miðstærð) 5 pokar 30 x 40 cm (storir) alfapac gæðaplast fyrir matvæll _ petit modfefó Heildsölubirgðir: SVEINSSON HEILDVERSLUN SÍMAR 621607-671441.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.