Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.1988, Page 14
Frjálst.óháÖ dagblað
Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF.
Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVHINN R. EYJÓLFSSON
Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON
Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM
Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON
Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON
Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON
Ritstjórn, skrifstofur, aúglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla. áskrift,
ÞVERHOLTI 11, SiMI 27022
Setning, umbrot, mynda- og plötugerð:
PRENTSMIÐJA FRJALSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11
Prentun: ÁRVAKUR HF. - Askriftarverð á mánuði 800 kr.
Verð í lausasölu virka daga 75 kr, - Helgarblað 90 kr.
Fjöreggið hjá róturum
Rótarinn 1 spilverki sjóðanna mun hafa hinn nýja
félagsmálasjóð gæludýranna í Reykjavík, þar sem fyrir
eru sjóðir hinnar svokölluðu byggðastefnu. Þannig
munu gerðir ríkisstjórnarinnar efla vöxt Reykjavíkur
sem skömmtunarstaðarins, er strjálbýhð mænir á.
Kópaskersmenn munu segja Stefáni Valgeirssyni, að
þeir geti fremur sótt skömmtunina til Reykjavíkur en
til Akureyrar. Það er reynsla byggðastefnumanna, að
þægilegast er að geta á einum stað skriðið milli ahra
þeirra stofnana og sjóða, sem skammta gæludýrum fé.
Gott dæmi um mikilvægi einnar skömmtunarmiðju
í landinu er eitt helzta ágreiningsefnið í Fjórðungssam-
bandi Norðlendinga. Það er óánægja jaðarbúa svæðis-
ins, vestan og austan Eyjafjarðar, með að þurfa að sækja
þjónustu hins ágæta sambands til Akureyrar:
Hin hefðbundna byggðastefna, sem einnig mætti kalla
byggðastefnu óskhyggjunnar, byggist einmitt á auknum
aðgerðum stjórnvalda til að afla Qár og skammta það
til þeirra verka, sem mikilvægust eru að mati rótarans
í spilverki sjóðanna og að annarra beztu manna yfirsýn.
Þessi stefna er hornsteinn hinnar miklu og vaxandi
miðstýringar í þjóðfélaginu, þeirrar stefnu, sem oft er
kennd við Framsóknarflokkinn, en er raunar rekin af
öllum stjórnmálaflokkunum. Miðstýringin hefur eðh
málsins samkvæmt aðeíns eina þungamiðju, Reykjavðí.
Hin gagnstæða stefna, sem einnig mætti kalla byggoa-
stefnu raunveruleikans, vill flytja ákvarðanir og ábyrgð
frá einni valdamiðju yfir til einstaklinganna og mikils
fjölda samtaka þeirra í fjölskyldum, fyrirtækjum, félög-
um og sveitarfélögum, hvar sem er í landinu.
Byggðastefna raunveruleikans biður ekki um enn
einn skömmtunarsjóðinn í Reykjavík ofan á alla hina.
Hún sendir ekki fuhtrúa sína til að skríða á hnjánum
milli kontóra í Reykjavík til að þiggja ruður af nægta-
borði hinna afar góðgjörnu stjórnmálamanna landsins.
Raunhæf byggðastefna hafnar slíkum ræfildómi, sem
drepur byggðir landsins í dróma. Um leið og hún hafnar
miðstýringu vill hún einnig leggja niður miðstýrða
skráningu á gengi krónunnar og miðstýrða skömmtun
kvóta til að veiða fisk og selja hann fyrir gjaldeyri.
Ef fiskveiðheyfi væru boðin út og væru í frjálsri sölu
og ef gengi krónunnar væri ákveðið á markaði þeirra,
sem hafa gjaldeyri, og hinna, sem vUja gjaldeyri, mundi
gífurlega mikið vald, bæði fjárhagslegt og annað, flytj-
ast af ríkiskontórum í Reykjavík til sjávarsíðunnar.
Því miður hefur fólkið í landinu ekki borið gæfu til
að skilja muninn á byggðastefnu raunveruleikans og
óskhyggjunnar. Það hefur sett fjöregg sitt í hendur góð-
gjarnra rótara í sphverki sjóðanna. Þessir rótarar hfa
á miðstýringu frá Reykjavík og vilja auka hana.
Ekki má gljeyma hágsmunum rótaranna. Þeir ganga
aUir með lítinn ráðherra og bankastjóra 1 maganum.
Stýring og skömmtun er þeirra líf og yndi, auk þess sem
hún gefur töluvert í aðra hönd. Sá, sem einu sinni er
orðinn rótari, viU efla völd rótara, einkum sjáhs sín.
Hinn nýi miUjarðasjóður, sem á að efla velferð fyrir-
tækja á vegum Sambands íslenzkra samvinnufélaga og
annarra shkra gæludýra, verður í Reykjavík, þar sem
miðstýringin og skömmtunin er fyrir. Hann er ný grein
á meiði hefðbundinnar byggðastefnu óskhyggjunnar.
Vonandi verður hún leyst af hólmi af raunhæfri
byggðastefnu, sem hafnar miðstýringu og veitir í þess
stað frelsí frá sjávarútvegskvótum og gengisskráningu.
Jónas Kristjánsson
ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 1988.
. BOREARSTABFSMENN
SYNtlM SAW5TDDU X-
4ALwU-.yVV.yv.T-T
öflug, samhent verkalýðshreyfing og sigur á verðbólgunni er lausnin.
Látið lánskjara-
vísítöluna í friði!
í yflrlýsingu ríkisstjórnarinnar
um fyrstu aðgeröir í efnahagsmál-
um er að finna eftirfarandi klausu
um lánskjaravísitölu:
„Ríkisstjórnin hefur falið Seðla-
bankanum að breyta grundvelli
lájrskjaravísitölu þannig að vísjfala
layna hafi helmingsvægi á móti
framfærsluvísitölu og vísitölu
byggingarkostnaðar, sem hafi
fjórðungsvægi hvor. Jafnframt
verði heimilað að velja viðmiöun
við gengi sem lánskjaravísitölu.
Með þessari breytingu er dregiö úr
misgengi launa og lánskjara sam-
hliða því sem sparifé er varið fyrir
verðlagsbreytingum. Ríkisstjórnin
ætlar sér að koma í veg fyrir víxl-
hækkanir verðlags og lánskjara,
þegar jafnvægi í efnahagsmálum
er náð.“
Hvernig má þetta verða?
Spumingamar, sem hlaðast upp,
eru margar:
1. Hvenær á að tengja lánin við
launin á þennan máta? Ef teng-
ingin á sér stað eftir langvarandi
launastöövun og kjararýmun
gefur augaleið að þessi vísitala
mun auka skuldabyrðina meira
en gildandi lánskjaravísitala.
Allar tilraunir launafólks til aö
bæta sér kjararýmun undanfar-
inna mánaða munu koma á full-
um þunga á húsbyggjendur og
mest þá sem mest skulda.
2. Nú koma launabreyt.ingar að
sjálfsögðu fram í bæöi fram-
færslu- og byggingarvísitölu
þannig að vægi launanna yröi
meira en helmingur vísitölunn-
ar, nema sérstakar ráðstafanir
veröi geröar þar aö lútandi.
3. Hugsumokkursvoaðlánskjara-
vísitala þessi hin nýja væri kom-
in í gagnið og ASÍ semdi um 20%
kauphækkun til sinna félags-
manna, samningar hinna væru
enn bundnir til einhverra mán-
aða. Helmingurinn af þessari
hækkun kæmi inn í lánskjara-
vísitölu til haskkunar í því hlut-
falli sem ASÍ er á launamark-
aönum, þ.e.a.s. lánskjaravísital-
an mundi hækka um a.m.k.
5-10% - einnig hjá hinum sem
enga kauphækkun. fengju. Því
varla hefur nokkrum dottið í
hug að vera með margar láns-
kjaravísitölur - eina fyrir hvert
stéttarfélag!
4. Og hvernig á launavísitalan aö
vera samsett? Á eingöngu að
mæla samningsbundnar taxta-
KjaJlarinn
Björn Arnórsson
hagfræðingur BSRB
hækkanir eða á einnig að taka
launaskrið - yfirborganir - inn
í dæmið? Mundu auknar yfir-
borganir hækka lánskjaravísi-
töluna og þar með skerða kjör
þeirra sem ekki njóta þessara
yfirborgana?
5. Og hvað varðar verndun spari-
fiárins þá er það auðvitað hin
hliðin á krónunni. Eiga spari-
fjáreigendur - sem fyrst og
fremst eru launafólk og ellilíf-
eyrisþegar - einnig að sjá sparifé
sitt rýrna meðan kaupmáttur-
inn dvín, til að síðan sjá spariféö
rjúka upp þegar kaupið hækkar?
6. Launabreytingar eiga sér stað í
stórum stökkum við gerð samn-
inga en standa síðan í stað - jafn-
vel langan tíma. Fjárhagsskuld-
bindingar - einkum húsbyggj-
enda og fyrirtækja - eru geröar
til lengri tíma. Launavísitalan
mundi skapa miklu meiri óvissu
á fiármálamarkaðnum en nú er.
7- Hjá okkur sem störfum í verka-
lýðshreyfingunni vaknar eðh-
lega einnig spumingin um
hvaða áhrif slík vísitala mun
hafa á brothætta samstöðu
launafólks. Það mun verða beint
efnahagslegt hagsmunamál
skuldara (eins og til dæmis hús-
byggjenda) að enginn fái launa-
hækkun nema þeir.
8. Hvernig á síðan að tengja gengið
inn í þetta alh saman? Núver-
andi lánskjaravísitala er tengd
genginu órjúfandi böndum í
gegnum framfærslu- og bygging-
arvísitöluna.
En er ástandið þá gott núna?
Undir öllum venjulegum kring-
umstæðum er ekkert yfir láns-
kjaravísitölunni að kvarta, þ.e.a.s.
ef menn eru á því að skuldarar eigi
að endurgreiða lán sín. Allar verö-
breytingar í þjóðfélaginu skila sér
í gegnum lánskjaravísitöluna, þar
með taldar launahækkanir í þeim
mæli er þær leiða til veröhækkana.
En þó ætla megi - til lengri tíma
litið - að þessar stæröir allar hald-
ist í stórum dráttum í hendur þá
koma tímabil þegar misgengið
verður mikið. Eftirminnilegasta
dæmið er líklega frá 1983 þegar rík-
isstjórn skerti kjör launafólks
verulega á meðan lánskjaravísital-
an hélt áfram upp á við.
Misgengi sem þetta verður aldrei
leiðrétt með sjálfvirkri vísitölu. í
fyrsta lagi var það ekki lánskjara-
vísitölunni að kenna heldur kjara-
skerðingu þeirri er ríkisstjórnin
kom á og i öðru lagi hefði verið
unnt á þeim tíma að laga töluvert
af þeim alvarlegu skakkaíollum,
sem fylgdu aðgerðum ríkisstjórn-
arinnar, með sérstökum ráðstöfun-
um.
Lausn vandans
Þessi hnútur verður sem sagt
ekki leystur með nýjum vísitölum
heldur með því að koma í veg fyrir
kjaraskerðingar, þ.e. öflug, sam-
hent verkalýðshreyfing, og með því
að vinna á verðbólgunni. Aþrar
lausnir eru því miöur ekki til.
Björn Arnórsson.
„Undir öllum venjulegum kringum-
stæðum er ekkert yfir lánskjaravísi-
tölunni að kvarta, þ.e.a.s. ef menn eru
á því að skuldarar eigi að endurgreiða
lán sín.“