Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.1988, Qupperneq 19
ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 1988.
19
Svona segja menn að Elvis líti út i dag en margir segjast hafa séð hann
bæði á Hawaii og einnig sem John Burrows í Michigan.
* •
tískan í Bretlandi
Blómín verða allsráðandi hjá Bretum i vetur. Nú þýðir ekki fyrir bre-
skar blómarósir að láta sjá sig í búningsklefum sundstaða, eða annars
staðar þar sem afhjúpa þarf undirfatnað, nema að blómamynstrið sjá-
ist vel. Það má búast við þvi að islenskar stúlkur vilji fara að dæmi
stallsystra sinna hér fyrir suðaustan okkur og þvi er látln fylga með
lelðbeinlngarmynd.
Er Elvis
lifandi?
Aðdáendur Elvis Presley eru nú
farnir að trúa því í alvöru að „kóng-
urinn“ sé á lífi. Það er fyrst og fremst
vegna bókar sem nýlega kom út i
Bandaríkjunum og heitir „The most
incredible Elvis Presley story ever
told“ sem á íslensku mætti útleggja
„Ótrúlegasta Elvis Presley sagan
sem nokkurn tíma hefur verið sögö“.
Höfundurinn er fjörutíu og níu ára
gömul amma sem aldrei hefur haft
neitt sérstakt dálæti á Elvis .
Þetta byrjaöi allt saman með því
að Gail Giorgio skrifaði skáldsögu
um rokkstjörnu, sem hún nefndi
Orion, sem setti á svið eigin dauða.
Hún viðurkennir að hún hafi feng-
iö innblástur þegar Elvis dó en að sér
hafi aldrei komið til hugar að nota
nafn hans. Um leið og bókin kom út,
árið 1978, byrjaði að rigna yfir hana
tilboðum frá stórum bókaútgefend-
um og einhveijir vildu líka kvik-
mynda söguna.
Skyndilega hurfu öll eintök bókar-
innar af'markaðnum, rétt eins og
hún hefði aldrei komið út. Skömmu
síðar hringdi maöur í Gail, sem hafði
rödd alveg eins og Elvis, en hann
talaði um Elvis í þriðju persónu.
Hann skýrði frá því að Elvis byggi á
búgarði og stundaði hestarækt. Að
sögn Gail var eins og maðurinn hefði
hringt til þess eins aö láta vita aö
Elvis væri á lífi.
Upp úr þessu byrjaði Gail aðsafna
öllum upplýsingum sem hún°komst
yfir og leita að sönnunum þess að
Elvis hefði sviðsett dauöa sinn. Allar
þær „sannanir", sem hún komst yfir,
hefur hún nú gefið út í bók.
Meðal þeirra gagna, sem á fjörur
hennar rak, var fimmtán mínútna
segulbandsupptaka frá árinu 1981,
þar sem Elvds talar um hvarf sitt.
Sérfræðingar hafa staðfest að um
rödd Presley sé að ræða en hafa einn-
ig bent á að mögulegt sé að upptakan
hafi verið klippt saman úr litlum
bútum sem hafi verið teknir upp áð-
ur en hann dó.
Á upptökunni talar hann um að
hann hafi fundið góðan felustað þar
sem hann geti verið í friði.
Gail hefur talaö við fólk sem segist
hafa séð „kónginn" á Hawaii og í
bænum Kalamazoo í Michigan. Þar
hefur maður að nafni John Burrows
stundum búið á hóteli sem nefnist
Columbia Plaza.
Síðustu tíu árin hefur Gail varið
öllum sínum tíma til að safna upplýs-
ingum um brotthvarf Elvis og hún
hefur fundið margt furðulegt sem
styður þá kenningu að Elvds hafi
svdðsett dauða sinn.
Það er undarlegt að dánarvottorð
hans finnst hvergi. Það er líka undar-
legt að maður að nafni John
Burrows, sem líkist Elvis mjög mik-
ið, keypti flugmiða til Buenos Aires,
hinn 16. ágúst 1977, daginn sem Elvis
dó.
Gail Giorgio skrifaði bókina sem
hefur vakið upp nýja von meðal
aðdáenda rokkkóngsins um að hann
sé enn á lífi.
Sviðsljós
Ólyginn
sagði...
Rose
Kennedy
ættmóöir Kennedyfjölskyldunn-
ar er nú orðin níutíu og átta ára
gömul og líkamlega er víst nokk-
uð farið að draga af henni. Hún
fékk slag fyrir fjórum árum og
þarf að hafa einhvern til að
hjúkra sér allan sólarhringinn,
en kerlingin er klár í höfðinu.
Hún er eins og herforingi sem
stjórnar her sínum og þaö er víst
heraginn sem gildir á þeim bæ.
Skiptir þá ekki máli hvort við-
komandi hermaður er öldunga-
deildarþingmaður eða eitthvaö
annað, það er hollast að hlýða.
sem er að sjálfsögðu betur þekkt-
ur sem spæjarinn Columbo, hér
á árum áöur, er nú líklega í þann
mund að taka fram gamla krump-
aða frakkann á nýjan leik. Þetta
er nú ekki alveg öruggt en gamlir
samstarfsmenn hans ieggja hart
að kappanum að bregða sér aftur
í gervið. Meðal þeirra er Steven
Spielberg en í hyggju er aö hann
leikstýri fyrsta þættinum í nýrri
þáttaröð um Columbo. Spielberg
var aðstoðarmaður viö gerð þátt-
anna þegar þeir komu fyrst fram
áriö 1971. Þá var hann nítján ára
gamall.
John Denver
sveitasöngvari með meiru hefur
lýst því yfir að hans æðsta ósk
sé að semja lag í þyngdarleysi úti
í geimnum. Hann sótti um það til
NASA að fá aö komast út í geim
meö einni af geimskutlum þeirra
en þeir höfnuðu henni án um-
hugsunar. Þá greip kappinn til
þess ráðs að athuga hvort Sovét-
menn væru tónlistarunnendur á
gervihnattaöld og þeir sögðu já.
Nú er bara beðið eftir því að sjá
hvort söngvarinn hefur kjark í
sér til að puðrast út í himinhvolf-
iö.