Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.1988, Page 21
ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 1988.
21
fþróttir
hér ásamt félögum sinum í Val á æfingu í gærkvöldi á leikvelli Monaco. Frá vinstri: Magni Blöndal Pétursson, Tryggvi Gunnarsson, Ingvar Guðmundsson,
Símamynd/Reuter
æta Monaco í kvöld 1 EM í knattspymu:
menn góðir
Glenn Hoddle í samtali við DV
iikur haíia gífurlega mikla þýðingu fyr-
Evrópukeppninni og vinna Marseilles í
) búnir að snúa blaöinu við eftir heldur
stímabili. Þá éigum viö möguleika á að
veröum komnir í seilingarfiarlægö frá
Hoddle, enski landsiiösmaöurinn bjá
naöur ársins í Frakklandi í fyrravor, í
forskot. fslensk knattspyrna er góð og
verð fullrar virðingar, það sýnir best
jafntefli íslendinga við Sovétmenn í
heimsmeistarakeppninni á dögunum.
Viö vitum nákvæmlega hvað bíður
okkar og gerum okkur grein fyrir því
að við verðum að leika mjög vel tíl aö
slá Val út úr keppninni. Okkur hefur
gengið frekar illa tíl þessa á keppnis-
tímabilinu miöað við velgengnina í
fyrra þegar við urðum meistarar og það
er aðallega vegna þess hve óheppnir við
höfum verið með meiðsli. Okkur hefur
aldrei tekist að stilla upp okkar sterk-
ásta hði til þessa í haust og þess vegna
hefur gengi liðsins verið svona rokk-
andi,“ sagði Hoddle en lið Monaco er í
sjöunda sætí 1. deildar, fimm stigum á
eftir þremur efstu liðunum.
Lokuð æfing hjá Monaco
Lið Monaco æfði fyrir luktum dyrum
í gær og var fréttamönnum meinaður
aögangur að æfmgasvæði félagsins fyrr
en æfmgunni var lokið. Arsene Wenger,
þjálfari Monaco, tók sérstaklega fram
að íslenskir fréttamenn væru óvel-
komnir á svæðiö og taugatitringurinn í
röðum frönsku meistaranna var vel
merkjanlegur!
Þessi framkoma þjálfarans kom
frönskum fréttamönnum í opna skjöldu
og þeir voru furðu lostnir. Ekki batnaði
skap þeirra þegar allar dyr voru opnað-
ar fyrir fréttamanni frá útvarpsstöðinni
Radio Monte Carlo en var síðan jafn-
harðan skellt aftur.
onaco á þriðju hæð
Laugardaisvöllurinn tæki um 90 þús-
und manns í sæti! Rainier fursti af
Monaco og Albert prins, sonur hans,
eiga sérstaka stúku fyrir miðjum velli
og er hún að öllu leyti á bak við gler
og búin hinum ýmsu þægindum. Þeir
mæta á flesta leiki liösins og er Raini-
er fursti sérstaklega mikill stuðnings-
maöur AS Monaco.
Leikvangurinn og byggingar í kring-
um hann standa á uppfyllingu sem
gerð var í sjó fram fyrir nokkrum
árum, enda er það eina leiðin til að
stækka borgina sem bókstaílega hang-
ir utan í fjallshlíð. Jarðvegurinn í
uppfyllinguna var sóttur upp í fjallið
fyrir ofan borgina og þá myndaðist
þar svæði sem hægt var aö byggja á
æfingasvæöi Monacoliðsins. Þar eru
tveir grasvellir og yfir þeim gnæör
hamraveggur sem Valsmenn líktu
helst viö Asbyrgi þegar þeir æfðu þar
í gærmorgun.
• Glenn Hoddle verður
Valsmönnum eflaust erfiður í
Evrópuleiknum í kvöld i
Monaco. Hoddle sagði í sam-
tali við DV í gærkvöldi að hann
ætti von á því aö Valsmenn
myndu verjast af hörku. Hann
sagði einnig að Valsmenn
væru með mjög gott lið.
Atli hrelldi blaðamann
Atli Eövaldsson lék franskan
blaðamann grátt fyrir fyrri æfingu
Valsmanna í gær. Blaðamaöurinn
kom aö máli við Atla og baö um
stutt spjall en honum brá í brún
þegar Atli opnaði munninn og benti
á tennumar í sér sem allar vora á
ská og skjön!
Atli sagðist hafa fengiö slæmt
hög® á andlitið og ætti erfitt með
að tala, spurði hvort ekki væri í
lagi að viötalið yrði tekið á morg-
un. Blaðamaðurinn hrökk við og
sagöi aö það væri alveg sjálfsagt
en þá kom gamalkunnugt glott á
andlit Atla. Hann dró út úr sér
plastgóm með tannbeyglunum á og
skellihló. Blaðamanninum varð
mjög skemmt, enda slíkar uppá-
komur óvanalegar í bransanum og
hann fékk sitt viðtal að vörmu
spori!
Góð landkynning
Franskir sjónvarpsmenn voru á
ferðinni á íslandi fyrir skömmu
vegna leiks Vals og Monaco og
geröu kynningarmynd um liðið og
þjóðina sem var sýnd á „Kanal 5“
í fyrrakvöld. Þar voru Siguijón
Kristjánsson og Þorgrimm- Þráins-
son heimsóttir á vinnustaði sína
og mikið gert úr því aö þama væru
á ferö áhugamenn sem stunduöu
æfingar eftir vinnu á kvöldin. Þá
var brugöiö upp landslagsmynd-
um, t.d. frá Þingvöllum og Svarts-
engi, og fegurö Islands rómuö.
Lolli mætir
Ellert Sölvason, hinn eini og sanni
„Lolli í Val“ er væntanlegur tíl
Monaco í dag. Lolli, einn besti
knattspyrnumaður landsins á
fjórða og fimmta áratug aldarinn-
ar, er kominn á áttræöisaldur en
lét þaö ekki aftra sér frá mikilli
langferð. Hann er nefnilega á leiö-
inni hingaö til Monaco frá Seoul í
Suður-Kóreu þar sem hann fylgdist
meö ólympíuleikunura. Hann fór
meö Valsraönnum í æfingaferðina
til Jamaica síöastliðið vor og vill
fy rir enga muni missa af þeira stóra
viöburði í sögu félags síns þegar
það mætir frönsku meisturunura i
Monaco í kvöld.
Valsmenn í villum
Guömundur Baldursson, mark-
vöröur Vals, var seinn fyrir þegar
liðið æfði á keppnisvellinum, Louis
II Stadium, í gær. Hann var síöast-
ur út úr búningsklefanum og hafði
ekki hugmynd um í hvaða átt félag-
ar hans höfðu farið, enda er leik-
vangurinn stórbrotið mannvirki og
auðvelt fyrir ókunnuga að villast
þar innandyra. Guðmimdur mættí
fljótlega fréttamönnum DV og
franska sjónvarpsins sem voru líka
aö leita að réttri leið upp á þriðju
hæöina þar sem völlurinn er og
slóst í för meö þeim. Eftir mikiö
hringsól, innan dyra og utan, fann
hópurinn loksins völlinn og Guö-
mundur gat farið aö einbeita sér
aö æfingunni. Aö henni lokinni
lentu síðan Sævar Hjálmarsson
liösstjóri og Steinar Adolfsson í
miklum villum og fundu búnings-
klefann eftír mikla leit!
Langt ferðalag
Flestir leikmanna Vals koma heim
á næstu dögum en lengra er í að
landsliðsmennirnir skili sér. Þeir
Atli Eövaldsson, Sævar Jónsson og
Guöni Bergsson og hugsanlega
fleiri fara ekki til íslands heldur
koma þeir til móts viö landsliðið í
London á laugardaginn og fara með
því til Tyrklands í HM-leikinn dag-
inn eftír. Þar er leikiö miðvikudag-
inn 12. október en á fimratudag fara
þeir til Vestur-Berlínar. Þar dveija
þeir þar til liöiö í heild saraeinast
á ný fýrir leikinn gegn Austur-
Þýskalandi sem fram fer í Austur-
Berlín 19. október.