Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.1988, Síða 29
ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 1988.
29
DV kannar ferskleika fisks:
Ný ýsa ekki
alltaf ný
- eitt sýni af átta reyndist óætt
íslenskur fiskur er sá besti í heimi,
hrein og ómenguð náttúruafurð.
Staðhæfmgar af þessu tagi heyrast
oft þegar Islendingar ræða um fisk-
inn sem við lifum öll á.
En hvernig er fiskurinn sem við
kaupum í kvöldmatinn úti í búð? Er
það glænýr og spriklandi gæðafisk-
ur?
DV fór á stúfana og keypti fisk í
matinn í 4 fiskbúðum og 4 stórmörk-
uðum og hverfaverslunum.
Öll sýnin voru síðan sett í svokall-
aða TMA-mæhngu hjá Rannsókna-
stofnun fiskiðnaðarins, undir hand-
leiöslu Sigurðar Einarssonar. TMA-
mæling er notuð til að meta fersk-
leika fisks.
Sýni eru tekin af öllum fiski sem
fer til útflutnings og því er komin
mikil reynsla á notkun þessarar að-
ferðar hér á landi. TMA stendur fyr-
ir trimethylamin, sem er lausbundið
köfnunarefnissamband sem mynd-
ast viö skemmdir í fiskinum.
Eitt ýsuflak á hverjum stað
Keypt var eitt lítið ýsuflak á hveij-
um stað, 3-500 grömm.
Á öllum stöðunum var kílóið af
ýsunni selt á 280 krónur nema í Hag-
kaupi, en þar kostar kílóið 276 kr.
Niðurstaðan úr mælingunum
ásamt skynmati, þ.e. áferö, lit og lykt,
varð sú að öll sýnin utan eitt reynd-
ust vera í lagi.
Fiskur keyptur í Versluninni Aust-
urstræti 17 kom verst út í TMA-
mælingunni. Mikið los var í fiskinum
og lyktin hreint ekki góð.
í Fiskbúð Garðars á Frakkastíg og
Fiskbúöinni Amarbakka var einnig
talsvert los í fiskinum og nokkuð
skorti á að flökin væm fallega hvít.
Engu að síður komu þessi sýni
þokkalega út í mælingunni. En þess
ber að gæta aö slæmt bragð getur
verið komið af fiskinum og hann tals-
vert farinn að tapa gæöum án þess
að skemmdir mæhst í TMA-prófi.
Bestar niðurstöður fengu sýni úr
Fiskbúrinu á Langholtsvegi, Nóatúni
í Hamraborg og Versluninni Star-
mýri. í öllum tilfellum vom flökin
hvít og stinn og fersk og góö lykt af
þeim. Þessi sýni komu best út í mæl-
ingu á TMA-prófmu.
Að sögn kunnugra versla flestir á
fiskmörkuðunum. Þangaö fara fisk-
salar og innkaupastjórar stórmark-
aða til þess að kauþa fisk. Þó eru í
hópi fisksala nokkrir sem hafa sín
föstu viðskiptasambönd við sjómenn
og útgeröarmenn. Þeir fara oft lang-
an veg til Suðurnesja og um ná-
grenni Reykjavíkur til þess að finna
gott hráefni.
Fiskur geymist heill í ís í 6-9 daga.
Vepjan mun sú að fisksalar geyma
fiskinn heilan eins lengi og kostur
er og flaka jafnharðan til þess að
selja.
Nýr og góður fiskur á að vera fall-
ega hvítur, flökin stinn og ekkert los
í þeim. Þegar fiskur er keyptur ætti
kaupandinn að fá aö lykta af honum
Samstarf verkalýðs
Aðeins á
Verkalýðsfélagið Eining á Akur-
eyri greiðir laun starfsmanns Neyt-
endafélags Akureyrar. Það er eina
dæmið um beina samvinnu verka-
lýös- og neytendafélaga í dag.
Víöa um land er óbeint samStarf
milli þessara félaga. Þannig njóta
neytendafélögin í Borgarnesi og
Vestmannaeyjum góös af húsnæði
og vinnuaðstöðu verkalýösfélag-
anna.
Eina markvissa tilraunin sem
gerð hefur veriö til þess að fá neyt-
enda- og verkalýðsfélög til sam-
starfs á breiðum grundvelli var
gerð 1986. Þá voru verðlagsákvæði
felld inn í kjarasamninga.
Aðilar'tóku síðan höndum saman
um eftirlit meA vöruverði í versl-
unum. Þessu samstarfi lauk í raun
á þessu ári þegar verkalýðsfélögin
kostuðu útgáfu kynningarbækl-
ings fyrir Neytendasamtökin.
I Danmörku eiga fulltrúar ólíkra
LífsstOl
Það sem auglýst er sem ný ýsa er ekki alltaf ný ýsa. Eitt sýni af átta i könnun DV reyndist óhæft til neyslu. Sýni
úr Versluninni Austurstræti 17 féll á prófinu.
og gaumgæfa vel Ut og áferö. greinilega nokkur misbrestur á því stendur til boða sé fyrsta flokks hrá-~
Samkvæmt framanskráðu er aðfiskursemneytendumíReyKjavík efni. .pa
og neytendafélaga:
Akureyri
félagasamtaka sæti í danska neyt-
endaráðinu. í Svíþjóð eru neyt-
endasamtökin í heild rekin af rík-
inu.
Neytendur
Víða úti á landi er starfsemi neyt-
endafélaga lítil. Starfið er allt unniö
í sjálfboðavinnu. Ekki er aö efa að
þaö gæti oröið neytendafélögum
lyftistöng ef samstarf tækist við
verkalýðsfélög með þeim hætti sem
er á Akureyri.
Aðilar innan ASÍ, sem DV hafði
samband við, bentu á aö verkalýðs-
félög væru víöa smá og tæplega í
stakk búin til slíks.
-Pa
Philips lækkar
verð á farsímum
Verð á Phihps farsímum hefur
lækkað um 5% síðan í febrúar á
þessu ári. Þaö er þrátt fyrir tvær
gengisfellingar á timabilinu, 6% í fe-
brúar og 11% í maí.
Þessi verðlækkun er afleiðing
verðstríðs milli farsímaframleiðenda
í Danmörku.
Philips farsími kostar í dag 119.440
krónur án ísetningar og stofngjalds.
Að sögn forráðamanna Heimilis-
tæKja, umboðsaöila Philips á íslandi
hafa þeir sótt nyög fast að fá lækkuiP*
erlendis frá.
ísetning og stofngjald kostar rnn 15
þúsund krónur fyrir hvem síma.
Síminn tilbúinn í bílnum kostar því
um 135 þúsund krónur.
Þetta er dæmi um að verölækkanir
erlendis skila sér þrátt fyrir aUt til
íslenskra kaupenda. -Pa
V SJÁI DREGIÐi L B. i FSTÆÐISMENN OKT. OPIÐTILKL. 22 .
% HAPPDRÆTTI SJÁLFSTÆÐISFLOKKSINS