Dagblaðið Vísir - DV - 04.10.1988, Blaðsíða 34
34
ÞRIÐJUDAGUR 4. OKTÓBER 1988.
LífsstOl
DV
Upplýsingar í áskrift:
íslenskur gagnabanki kynntur
- gagnleg nýjung eða gerviþörf?
Meöal þess sem kynnt var á sýning-
unni ..Tölvur á tækniári" i Laugar-
dalshöll var íslenskur gagnabanki
sem Skjásýn hf. hyggst koma á lag-
girnar.
Gagnabankinn á aö taka til starfa
í byrjun nóvember- Um áramót á
síöan starfsemin aö vera komin í
fullan gang.
Hugmyndin er sú aö meö þessu
verði íslenskum neytendum gert
kleift aö tengjast gagnabönkum
innanlands og utan.
Notendur taldir verða 10
milljónir innan tveggja ára
Erlenda kerftð sem Skjásýn
skiptir viö heitir Videotex og er
áætlað aö áriö 1990 veröi skjáir
tengdir þessu kerfi orönir 10 millj-
ónir í Evrópu.
Gegnum tölvunetið á aö vera
hægt aö reka ýmis viðskipti, afla
upplýsinga og veita öörum upplýs-
ingar um vöru eöa þjónustu.
A sýningunni lágu frammi listar
þar sem neytendur gátu skráö sig
sem væntanlega áskrifendur að ís-
lenska gagnabankanum. Aö sögn
forráðamanna Skjásýnar lét mikill
Qöldi skrá sig sem væntanlega
áskrifendur.
Þátttaka fram úr
björtustu vonum
Með þátttöku í sýningunni var
Skjásýn hf. fyrst og fremst að
kanna áhuga íslenskra tölvueig-
enda og fá fram hugmyndir um þær
upplýsingar sem til reiðu ættu aö
vera í banka sem þessum. Að sögn
Berglindar Hilmarsdóttur hjá Skjá-
sýn fóru undirtektir fram úr björt-
ustu vonum.
Rúm 30 þúsund fyrsta árið
Stofnkostnaöur við kaup á mód-
emi, tæki sem tengir tölvuna um
símalínu við aðrar tölvur, er á bil-
inu 15.000 til 22.000 krónur. Einnig
íslenskum tölvueigendum gefst nú kostur á áskrift aö væntanlegum islenskum gagnabanka. Möguleikar á
beinni þjónustu gegnum slikan banka eru þó ekki i augsýn.
Kemur heimilistölva framtíðarinnar til með að gegna hlutverki hinna fornu fræðaþula sem allt vissu og höfðu ávallt svör á reiðum höndum?
þarf aö kaupa samskiptaforrit fyrir
tölvuna og er áætlaöur heildar-
stofnkostnaöur talinn verða á bil-
inu 25 til 30 þúsund. Áskrift fyrir
einstaklinga veröur 800 krónur á
mánuöi en 2400 fyrir fyrirtæki.
Fyrst um sinn mun Skjásýn bjóöa
módem og samskiptaforrit til leigu
í þrjá mánuöi til reynslu. Leigan
mun síöan ganga upp í kaupverð
ef af veröur.
Annar kostnaöur viö áskrift er
enginn en reiknaö er meö að ein-
stök fyrirtæki taki gjald fyrir þá
þjónustu sem þau veita gegnum
tölvunetið. Þannig myndi neytand-
inn þurfa aö greiða fyrir aö panta
sér miöa í leikhús eða fá upplýsing-
ar beint gegnum tölvuna um stöö-
una á ávísanaheftinu sínu.
Þjónusta pöntuð
gegnum tölvupóst
Fyrirtækiö tekur til starfa í nóv-
ember og aö sögn Arnar Guð-
mundssonar hjá Skjásýn verður
fyrst og fremst um upplýsingar aö
ræöa. Síöan verður íljótlega geíinn
kostur á að panta leikhúsmiða,
flugferöir og fleira gegnum tölv-
una. Slík viöskipti myndu fara
fram í gegnum svokallaðan tölvu-
póst þar sem neytandinn legði inn
pöntun og fengi síðar staöfestingu
viðkomandi fyrirtækis á því aö
pöntunin væri móttekin.
Flugleiöa, sagöi í samtali viö DV
að ekki væri gert ráð fyrir þátttöku
í slíkum gagnabanka í náinni fram-
tíö. „Tæknilega séð er mjög erfitt
aö búa þannig um hnútana aö neyt-
andinn geti pantaö sér flugmiða
heiman frá sér.“
Gísli Alfreösson þjóðleikhús-
stjóri sagöi í samtali viö DV að á
þeim bæ væri áhugi fyrir þátttöku '
í væntanlegum gagnabanka. „Ég
býst við aö um auglýsingar um
sýningartíma veröi að ræöa fyrst
um sinn. Það er hins vegar ekki
nyög íjarlægt aö leikhúsgestir geti
pantaö miða beint gegnum tölvu,“
sagöi Gísli
Miðasala Þjóöleikhússins er
tölvuvædd og tæknilega mögulegt
að tengja hana viö aðrar tölvur nú
þegar.
Þarftu á þessu að halda?
Ljóst er að miðað viö þær for-
sendur sem gefnar eru myndi
stofnkostnaður fyrir einstakling,
sem vildi gerast áskrifandi að
gagnabankanum, veröa rúmar 30
þúsund krónur fyrsta árið.
Allar upplýsingar á
einum stað þegar þér hentar
„Þaö eru 15.000 PC-tölvur í
landinu," sagði Öm, „meirihluti
þeirra er í eigu fyrirtækja og því
hefur kynningarstarfsemi okkar
einkum beinst aö þeim.
Hvað varöar einkaaöila, þá er þaö
rétt aö allar þær upplýsingar sem
frammi liggja í gagnabankanum
era til einhvers staöar í hand-
bókum, dagblöðum eöa uppsláttar-
ritum.
Viö viljum hins vegar bjóða fólki
upp á að hafa aðgang aö öllum þess-
um upplýsingum á einum stað þeg-
ar því hentar."
Einar Sigurösson, blaðafuiltrúi
Neytendur
Því vaknar sú spuming hvort um-
svif venjulegs heimilis séu þaö
mikil að slík fjárfesting borgi sig.
Vandséö er aö gagnabanki af
þessu tagi gefi neytendum kost á
betri þjónustu en völ er á í dag
gegnum síma, eða meö því aö fletta
dagblööunum.
-Pá