Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1988, Page 3
MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBER 1988.
3
Laun bæjarstjóra á Isafirði valda deilum:
Fréttir
Bæjarstjóm neitar upplýsingum
- launin eru á fiórða hundrað þúsund
Bæjarstjóri og bæjarstjórn ísa-
fjaröar neita aö gefa upp launa-
greiðslur til bæjarstjórans. Mikil
umræða hefur verið á ísafirði um
hversu há laun bæjarstjóra séu.
Kristján Jónasson, forseti bæjar-
stjómar, segir að hann vilji ekki gefa
upp hversu há laun bæjarstjóra séu.
Haraldur L. Haraldsson bæjarstjóri
er sama sinnis. Hann telur að honum
sé óheimilt að gefa upp laun sín.
í blaðinu BB, sem gefið er út á
ísafirði, var í lesendabréfi látið að
því liggja að bæjarstjóri hefði yfir
fjögur hundruð þúsund krónur á
mánuði. Kristján Jónasson sagði
þessa tölu vera of háa. Hann vildi
ekki segja hversu miklu skeikaði.
Samkvæmt skattframtali yfir tekj-
ur ársins 1986 og með því að fram-
reikna þær með launavísitölu eru
laun bæjarstjóra nú rúmlega þrjú
hundmð þúsund krónur. Auk laun-
anna borgar bæjarstjóri lága húsa-
leigu en hann býr ásamt fjölskyldu
sinni í einbýlishúsi sem er eign bæj-
arsjóðs.
Kristján Jónasson, forseti bæjar-
stjórnar, segir að launasamningur
bæjarstjóra og bæjarstjómar sé
óbreyttur frá því bæjarstjóri var ráð-
inn. Haraldur L. Haraldsson gegndi
embættinu einnig á síðasta kjörtíma-
bili. Reyndar sagði Kristján að þegar
samningurinn var geröur hefði hann
verið byggður á samningi við þann
sem gegndi embættinu á undan Har-
aldi.
Ritstjóri blaðsins Vestfirðings rit-
aði bæjarráði ísafjaröar bréf. Þar
óskaði hann eftir upplýsingum um
laun og aðrar greiðslur til bæjar-
stjóra. Bæjarráð varð ekki við óskum
ritstjórans.
DV er kunnugt um að bæjarstjórar
víða á landsbyggöinni eru með há
laun. Bæjarstjórinn á Akureyri, Sig-
fús Jónsson, mun vera með svipuð
laun og bæjarstjórinn á íafirði, ef
ekki hærri. Þá er DV kunnugt um að
í sjávarplássi með innan við 1500
íbúa er bæjarstjórinn með hálft
þriðja hundrað þúsund krónur á
mánuði.
Vegglistaverkið um heilagan Frans.
DV-mynd Róbert
Heilagur Frans
afhjúpaður
Róbert Jörgensen, DV, Stykkishólmi:
Sá ánægjulegi atburður átti sér
stað í Stykkishólmi síðastliðinn
sunnudag að vegghstaverkið Heilag-
ur Frans, eftir hstakonuna Sjöfn
Haraldsdóttur, var afhjúpað við há-
tíðlega athöfn. Það var sett upp við
inngang aö hinni nýju heilsugæslu-
stöð St. Fransiskusspítalans.
Þama var saman kominn fjöldi
manns í hinu fallegasta veðri. Lista-
konan skýrði verk sitt og var henni
óspart klappað lof í lófa. Handverks-
menn frá hdnu fræga verkstæöi Dr.
H. Oidtmann settu verkið upp en
verkstæði þetta hefur verið meö
mörg verk eftir íslenska listamenn.
Eftir afhjúpunina þágu gestir veit-
ingar hjá St. Fransiskussystrum.
Stjóm Fríkirkjusafiiaðarins:
Prestverk séra Gunnars
söfnuðinum óviðkomandi
Stjórn Fríkirkjusafnaðarins hefur
sent frá sér frétt þar sem fjallað er
um höfnun fógetaréttar Reykjavíkur
á kröfu séra Gunnars Bjömssonar
og stuðningsmanna hans um lög-
bann á skoðanakönnun sem haldin
var á vegum stjórnarinnar fyrr í
mánuðinum og kröfu um að séra
Gunnar yrði settur inn í starf safnað-
arprests Fríkirkjusafnaöarins með
beinni fógetaaðgerö.
„Með þessum tveimur úrlausnum
fógetaréttar, sem leitað var af hálfu
séra Gunnars og stuðningsmanna
hans, má öllum vera ljóst að séra
Gunnar Björnsson er ekki lengur
safnaöarprestur Fríkirkjusafnaðar-
ins og hefur ekki verið síðan hann
var leystur frá störfum 1. júlí síðast-
liðinn. Eru því öll prestverk, sem
séra Gunnar hefur framkvæmt síð-
an, eða mun framkvæma, ekki á veg-
um safnaðarins og honum með öllu
óviðkomandi. Er séra Gunnari því
óheimilt að nota nafn Fríkirkjusafn-
aðarins eða eigur hans, nema með
sérstöku leyfi safnaðarstjómar
hveiju sinni.“
Segist stjórnin ekki ætla að verða
við áskomn 109 safnaðarmeðlima
um almennan safnaðarfund eða
halda fleiri safnaðarfundi til að ræða
uppsögn séra Gunnars. Hafi afstaða
safnaðarfólks til setu séra Gunnars
sem safnaðarprests komið ótvírætt í
ljós. Ætli stjórnin að sitja fram að
næsta aðalfundi þar sem kosning
nýrrar stjómar fari fram.
í lokin segir að stjórnin vænti þess
að nú, þegar dómstólar hafa kveðið
upp úrskurði sína, „að friður megi
komast á, safnaðarstarfinu til efling-
ar og kirkjunni til sóma“.
-hlh
Ekki hefur reynst imnt að fá upp-
;efin laun borgarstjórans í Reykja-
vík, Davíðs Oddssonar, nema það eitt
að launin em ekki leyndarmál. Inn-
an borgarkerfisins hafa menn bent
hver á annan. Borgarstjóri, svo og
starfsmannastjóri borgarinnar, Jón
G. Kristjánsson, em báðir í leyfi. Af
samtölum við embættismenn borg-
arinnar er það að heyra að laun borg-
arstjóra séu miðuð við laun forsæt-
isráðherra. Hversu nákvæm viðmið-
unin er vita þeir embættismenn, sem
ekki era í leyfi, þó ekki nákvæmlega.
-sme
Fullkomið öryggi - alls staðar
Láttu
ráda férdinni
FIRESTONE Town & Country Traction (TCT) radial
snjóhjólbarðar eru af nýjustu kynslóð radial fólksbílahjól-
barða og hannaðir með fullkomnustu tölvutækni að
ströngustu kröfum um öryggi, þægindi og endingu. Sér-
stök „snjógrip“-gúmmíblanda gefur aukið viðnám í snjó
og hálku, og hið nýja TCT snjómynstur tryggir ótrúlega
góða endingu. Um gæði FIRESTONE TCT snjóhjólbarð-
anna nægir annars að segja að þeim fylgir 5 ára ábyrgð
framleiðanda — án tillits til aldurs!
4ra mánada greióslukjör
Sért þú handhafi Visa eða Eurocard greiðslukorts stendur þér
til boða.að greiða hjólbarðana á 4 MÁNUÐUM -
án nokkurrar útborgunar *.
Er öryggí þítt og Qölskyldu þinnar ekki góðra hjólbarða virði?
Vextir og bankakostnaður reiknast aukalega.
JOFUR hr
Nýbýlavegi 2 - Kópavogi - Simi 42600