Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1988, Qupperneq 5
MIÐVIKUDAGUR 19. OKTOBER 1988.
5
Fréttir
GGS:
Greiddi orlof með inn-
stæðulausum ávísunum
Fyrirtækið GGS, sem er skamm-
stöfun fyrir Gæöi, góð þjónusta og
stööugleiki hf., hefur greitt fólki,
sem vann hjá því, orlof með inn-
stæðulausum ávísunum. Fyrirtæk-
ið rak á sínum tíma skyndibitastað-
ina Tommahamborgara og
Sprengisand.
„Okkur hefur borist ein inn-
stæðulaus orlofsávísun sem fyrir-
tækið greiddi starfsmanni sínum.
Sú ávísun er upp á rúmlega 22 þús-
und krónur,“ sagöi Hjördís Bald-
ursdóttir, starfsmaöur Félags
starfsfólks í veitingahúsum. „Við
höfum fahð lögfræðingi okkar mál-
ið og hann sér um aö innheimta
ávísunina."
Hjördís sagði enn fremur að
starfsmaðurinn, sem fékk ávísun-
ina, heíði lagt hana inn á reikning
sinn. Þegar uppvíst heföi orðið að
ávísunin var innstæðulaus hefði
hann oröið að leysa hana út aftur
meö áfóllnum kostnaöi.
Hjördís sagði enn fremur aö all-
margir hefðu hringt til félagsins
vegna þess að þeir heföu fengiö
innstæöulausar orlofsávísanir frá
GGS. Mundi félagið láta þetta mál
til sín taka, svo fremi sem viökom-
andi gæfu sig fram.
-JSS
GGS:
Skuldar
nær milljón
í lífeyris-
sjóðs-
greiðslur
Fyrirtækið GGS hf. skuldar alít að
milljón í greiðslur til lífeyrissjóðs
Félags starfsfólks í veitingahúsum.
Er þá meötalinn vaxtakostnaður.
Hafði fyrirtækið tekið lífeyrissjóðs-
greiðslurnar af starfsfólkinu en ekki
staðið skil á þeim til lífeyrissjóðs
FSV.
„Það er rétt að þetta er allt í inn-
heimtu hjá lögfræðingi," sagði Mál-
fríður Ólafsdóttir hjá lífeyrissjóði
FSV. „Ég hef orðið aö synja fólki um
uppáskrift um húsnæöislán af því að
það hefur ekki haft neitt í höndunum
og nöfn þess hvergi verið á skrá. Ég
verð að vona að þessir fjármunir
náist en eins og er get ég ekkert sagt
um það.“
Málfríður kvaðst ekki geta sagt til
um hversu margir hefðu orðið fyrir
því aö teknar heföu verið af þeim
greiðslur sem ekki heföi verið skilað
í lífeyrissjóðinn. En samkvæmt
heimildum DV eru það tugir manna
sem orðið hafa fyrir því og nemur
upphæð sú, sem er í innheimtu,
tæpri milljón króna. GGS hf. hafði
stundað þetta um árabil. í fyrstu
samþykkti fyrirtækið víxla fyrir
greiðslunum, en þeir féllu allir. Þeim
greiðslum var náð inn með aðstoð
lögfræðings. En síðan seig enn frekar
á ógæfuhliðina og' nálgast vanski-
laupphæöin nú milljón, eins og áður
sagði. -JSS
Aflinn fyrstu níu mánuðina:
Nær 100 þús-
und lestum
meiri en á
sama tíma
í fyrra
Heildaraflinn fyrstu 9 mánuði árs-
ins varð 1.184.196 lestir en var á sama
tíma í fyrra 1.086.545 lestir. Munur-
inn hér á liggur í meiri loðnuafla í
ár. Hann varð 612 þúsund lestir
fyrstu níu mánuðina en í fyrra var
hann ekki nema 499 þúsund lestir.
Þorskaflinn í ár er minni en hann
var í fyrra. Þá var hann 321 þúsund
lestir fyrstu níu mánuðina en í ár 295
þúsund lestir. Aftur á móti er ýsuafl-
inn heldur meiri í ár eða 38 þúsund
lestir en var í fyrra 25.600 lestir.
Karfaaflinn í ár var 69 þúsund lestir
en í fyrra 64 þúsund lestir og ufsaafl-
inn í ár var 53 þúsund lestir en tæp-
lega 67 þúsund lestir í fyrra.
EINSTAKT TÆKIFÆRI TIL AÐ GERA GÓÐ KAUP
UNO er vinsælasti og mest seldi bíllinn í
Evrópu, enda einstaklega vel hannaður,
rúmgóður og lipur í akstri.
Nú býðst UNO 45 3ja dyra á sérstöku til-
boðsverði, kr. 328 þús. Petta er einstákt
tækifæri til að að fá mikið fyrir peningana.
Tilboðið gildir fyrir síðustu bílana af árgerð
1988.
Staðgreiðsluverð kr. 380.000,-
Tilboðsverð kr. 328.000,-
50% útborgun, eftlrstöðvar lánaðar
í allt að 12 mánuði.
FRAMTÍÐ VIÐ SKEIFUNA
SÍMAR: 685100, 688850.
-S.dór