Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1988, Qupperneq 6
6
MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBER 1988.
Sandkom
Herra dómsforseti
JónÓttar
Ragnarsson,
inatvælafncö-
ingur, sjón-
varpsstjóri,
þáttageröar-
maðurog
dómsforseti,
vaktimiklaat-
hygliífyrsta
þættisínumi
þáttarööinni nRödd fólksins". í þætt-
inura fer Jón Ottar raeö aðalhlut-
verkið - sjálfan dómsforsetann. Þetta
er ekki stærsta hlutverkið - en aðal-
hlutveridð samt. Þegar Jón Óttar
dómsforseti gekk í eða úr salnum
stóðu allir viðstaddir á fætur. Það var
ekki borin minni viröing fyrir Jóni
dómsforseta en hæstaréttardómur-
um. Það var ekki annað að sjá en Jón
forseti kynni vel við þá miklu virð-
ingu sem honum var sýnd. Annars
stálu kviðdómendur senunni, Þeir
eyöilögðu gjörsamlega málið með því
að taka ekki afstöðu. Vonbrigði for-
setans voru greinlleg.
Fór HelgiPé
i litgreiningu?
Sandkorns-
ritai'ihefur
heyrtailtaðþví
fu!l>Tt.afgoinl-
umaðdáanda
HelgaPéturs-
sonar.aðkapp-
innhljótiað
hafafáriðíht-
greiningu. Sú
samasegirað
nú orðiö sjáistfréttamaðurinn ekki í
sjónvarpi nema íklæddur brúnum
fótum. Þegar þess er minnst að Helgi
Pétursson var, fyrir einhverjum ára-
fjölda, kosinn kynþokkaíyllsti kari-
maður þessa lands hljóta Deiri aðdá-
endur hans að vilja vita af hverju
hann klæöisteingöngu brúnura fót-
um í seinni tíð. Þess skal getiö að
konunni, sem vitnaö var í, finnst
Helgi hinn penasti brúnklæddur.
Dónaskapur
í Borgamesi
Borgfirsk
ungmenni virð-
astveraafar
fijálslynd.svo
ftjálslyndað
þaulátasig
ekkirounaura
aðdítnsattakin
áböllura. í
blaðinuBorg-
flrðingiersagt
frá nýlegum dansleik, sem haldinn
var í Borgamesi, þar sem ungmenni
tóku upp á þeim áigæta sið aö fækka
fötum á dansgólfinu og það allveru-
lega. Lögreglumenn staðarins, sem
viröast ekki kunna gott að meta, hófú
afskipti af ftjálslyndiungmennanna.
Þegar löggan hélt á brott og taldi að
allir væru orðnir uppgefiúr á nektar-
danslnum hófit ungmenninn fyrri
iðju á ný. Nektardansinum lauk á
sólódansi einnar yngismeyjarinnar.
Blaöiö fyrrnefnda segir að stúlkan
hafi dansað af mikilli innliftm lýrir
alla sem á vildu horfa.
Kenndurvið
bæklun sína
EirikurJóns-
son, fréttttstjóri
Stjömunnarog
fymunblaða-
maðuráDV.er
ekkippvin-
sæUhjáfyrrum
starísfélaga
sínum.Gunn-
ariV.Andrés-
syniljósmynd-
ara, þessa dagana. Elríkur sagði
sannarogtímbærarfréttirafleikDV
og Moggana í fréttatíma á mánudag.
Þaö var allt satt sem Eiríkur sagöi,
ÐV vann öruggan sigur, Gunnar V.
var besti maður vallarins og Gunnar
er framsóknarmaður. Eiríki fipaðist
aðeins þegar hann sagöi Gunnar vera
félagaí Framsóknarfélagi Reykjavik-
ur. Það er Gunnar ekki Hann er hins
vegar trúr og tryggur framsóknar-
maður. Gunnar hefitr ltaft á orði að
Eiríkur hefði getaö sleppt því að
kenna sig við bæklun aina, það er
framsóknarmennskuna.
Umsjón: Sigurjón EgMsson
Skák
DV
Baráttan um efstu
sætin magnast
- Beljavsky er að sleppa með jafntefli gegn Kasparov
Greinilegt var að heimsmeistarinn
Garrí Kasparov ætlaði sér að vinna
Alexander Beljavsky í 13. umferð
heimsbikarmótsins í gær og skjótast
þar með upp í efsta sætið. Kasparov
tefldi stíft til vinnings og haíði betra
tafl lengst af en er skákin fór í bið
eftir 62 leiki var útlit fyrir að Beljav-
sky myndi halda jöfnu.
Ljúki biðskákinni með jafntefli í
dag verður heimsmeistarinn enn
hálfum vinningi á eftir efstu mönn-
um, Beljavsky, Ehlvest og Tal. í fjór-
um síðustu umferðunum teflir hann
við Timman, Sax, Ehlvest og Nikolic.
Nú fer hver að verða síðastur að
draga af sér slyðruna.
Biðstaðan í skák Kasparovs og
Beljavskys er þannig:
Beljavsky, sem hefur svart, lék bið-
leik í 62. leik.
Ungverjinn Sax jafnaði taflið næsta
auðveldlega með svörtu mönnunum
gegn Jóhanni Hjartarsyni. Jóhann
hefur unnið skákir sínar í mótinu á
svart en með hvítu virðast vopnin
ekki eins beitt. Sax bauð jafntefli
snemma sem Jóhann hafnaði. Er
hann svo gaf tvo hróka gegn drottn-
ingu Ungverjans voru flestir famir
að spá jafntefli. Þó tefldi Jóhann stöð-
una til vinnings, einkum með hlið-
sjón af timaskorti mótheijans. Sax
þurfti að leika nokkra nákvæma leiki
en það vafðist ekki fyrir honum og
eftir 43 leiki sömdu þeir um jafntefli.
Margeir og Andersson tefldu lítt
spennandi skák fyrir áhorfendur en
hafa þó líklegast skemmt sér kon-
unglega sjálfir. Andersson vélaöi peð
af Margeiri og undi sér vel viö að
reyna að nudda taflið af honum.
Margeir er hins vegar þekktur fyrir
kunnáttusemi sína í erfiöum stöðum.
Þó fór svo um síöir að Svíinn hóg-
væri hafði betur. Er skákin átti að
fara í bið, gafst Margeir upp.
Tíðindalítil jafntefli gerðu heims-
meistaramir fyrrverandi Tal og
Spassky, áskorendurnir Speelman
og Jusupov og Portisch og Ehlvest.
Ribli náði hins vegar ögn betra tafli
J. HJARTARSON
Jóhann Hjartarson og Sax sömdu um jafntefli i gær.
gegn Nikolic og gat teflt áhættulaust
áfram, svo hann sættist ekki á jafn-
tefli fyrr en í 48. leik.
Skák
Jón L. Árnason
Timman og Sokolov háðu fræðilega
orrustu í opna aíbrigði spænska
leiksins. Fyrstu 22 leikirnir vom eins
og í skák þeirra á heimsbikarmótinu
í Belfort, sem Sokolov vann. Endur-
bót Timmans í 23. leik virtist koma
Sokolov á óvart. Hann lagði út í vafa-
samar sóknaraðgerðir sem Timman
fékk hmndið á smekklegan hátt. Eft-
ir snjallan „millileik" stóö Timman
uppi með riddara meira og síðustu
leikirnir vom formsatriði. Sokolov
gaf í 48. leik.
Fjörugasta skákin
Mest var fylgst með skák Jóhanns
og Sax og tafli Kasparov við Beljav-
sky. Báðar þessar skákir voru vissu-
lega spennandi og skemmtilega tefld-
ar. Fjömgasta skák kvöldsins var
hins vegar milli Kortsnoj og Nunn.
Kortsnoj stýröi þar hvítu mönnun-
um og lagði mikið á stöðu sina strax
í byijun. Nunn svaraði með peðsfórn
og náði meö henni nokkm frum-
kvæði. Trúr sinni sannfæringu fór
Kortsnoj að seilast eftir öðru peði en
liðsskipanin sat á hakanum. Nunn
náði hættulegum færum með snot-
urri skiptamunsfóm. I miklu tíma-
hraki lék Kortsnoj síðan af sér manni
og þrátt fyrir hetjulega baráttu tókst
honum ekki að bjarga skákinni.
Hvítt: Viktor Kortsnoj
Svart: John Nunn
Kóngsindversk vörn
1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 Bg7 4. e4 d6
5. Bg5!? Rbd7 6. f4
Möguleikar skákarinnar em
ótæmandi. Eftir sex leiki í svo
þvældri byrjun sem kóngsindverskri
vörn er komin fram óþekkt staða!
Óhætt er að segja að Kortsnoj tefli
byrjunina djarfmannlega og Nunn
bregst við með því að snúa taflinu
yfir í nokkurs kanar Benkö-bragð.
6. - Ö-O 7. Rf3 c5 8. d5 b5!? 9. cxb5 a6
10. Rd2 Rh5 11. Df3 f6 12. Bh4 Rxf4!
13. Dxf4 g5
Þannig vinnur svartur manninn
aftur og eftir 14. Bxg5 hxg5 15. Dxg5
yrði biskupinn stórveldi á hornalín-
unni og hrókurinn sterkur eftir f-
línunni.
14. Df2 gxh4 15. Dxh4
E.t.v. hefði hvítur mátt láta þetta
peð kyrrt liggja og reyna að koma
mönnum sínum fram á borðið í stað-
inn.
15. - Re5 16. Be2 axb5 17. Bxb5 Da5
18. Dg3 Db4 19. Hbl
19. - Hxa2! 20. Rxa2 Dxb5
Skiptamunsfómin gefur bersýni-
lega mikla möguleika. Hvítur fær
ekki hrókað stutt og á d3 vofir yfir
óþægileg riddaraskák. Hvíti kóngur-
inn strandar á miðborðinu.
21. Rc3 Da6 22. Kdl f5 23. Hfl Hf6 24.
exf5
Hótunin 25. - Hg6 vár erfið viður-
eignar. Kortsnoj grípur til þess ráðs
að gefa skiptamuninn til baka með
góðu.
24. - Bxf5 25. Hxf5 Hxí5 26. Kc2 Kh8
27. Rb3?!
Þessi og næsti leikur virðast byggð-
ir á misreikningi. Kortsnoj var nú
kominn í mikið tímahrak.
27. - Bh6 28. Hal? Hf2+!
Hvítur kemst ekki hjá mannstapi,
því að eftir 29. Dxf2 Dd3 yrði hann
mát.
29. Kbl Hfl+ 30. Kc2 Hxal 31. Rxal
Dxal 32. Dh3 Dcl+ 33. Kb3 c4+ 34.
Ka2 Rd3 35. Dc8+ Kg7 36. Db7 Bg5 37.
Re4 Bf6 38. Rxd6 Kg6 39. Rc8 c3 40.
d6 Dxb2+ 41. Dxb2 cxb2 42. d7 Rb4 +
43. Kbl Rc6 44. g4 Kg5 45. h3 Kh4 46.
Rb6 h6 47. Rd5 Kxh3 48. Kc2
Og Kortsnoj gafst upp.
-JLÁ
Gestabókin
Áhorfendur vom nokkuð margir
á 13. umferð heimsbikarmóts
Stöðvar 2, en alls munu um 450
manns hafa komið á skákmótið í
gærkveldi. Meðal þeirra sem
mættu vom: Steingrímur Her-
mannsson forsætisráðherra, Guðni
Þorsteinsson fiskifræðingur,
Magnús V. Pétursson heildsali,
Ásgeir Þór Ámason lögfræðingur,
Leifur Jósteinsson hankastjóri,
Magnús L. Sveinsson, forseti borg-
arstjómar, Petra Leuwerink, kona
Kortsnojs, ívar Jónsson skrifstofu-
stjóri, Hflmar Viggósson banka-
stjóri, Elvar Guömundsson skák-
maður, Símon Hallsson endur-
skoðandi, Hrólfur Hjaltason við-
skiptafræöingur, Björgvin Gunn-
laugsson tölvufræöingur, Jakob
Hafstein borgarfulltrúi, Helgi Jó-
hannsson, framkvæmdastjóri
Samvinnuferða/Landsýnar, Einar
Einarsson, framkvæmdastjóri
Visa, Baldvin Jónsson hæstaréttar-
lögmaður, Sverrir Kr. Bjamason
hljóðmeistari, Guðmundur Sveinn
Hermannsson blaðamaður, Ólafur
Orrason skákfrömuður, Helgi Sæ-
mundsson ritstjóri, Stígur Herlufs-
son hárskeri, Sæmundur Pálsson
lögreglumaður, Bjöm Ámason
múrari, Kristján Guðjónsson skrif-
stofustjóri, Geir Sveinsson hand-
boltakappi, Eggert Þorleifsson leik-
ari, Hallmar Sigurðsson leikhús-
stjóri, Jóhann Þórir Jónsson útgef-
andi, Sveinn Hauksson læknir, Jón
Sigurðsson líffræðingur, Þröstur
Árnason skákmaður, Stefán Jón
Hafstein fréttamaður, Guöfinnur
R. Kjartansson framkvæmdastjóri,
Árni Ármann Ámason lögfræðing-
ur, Magnús Magnússon, fyrrver-
andi ráðherra, Siguröur Haralds-
son verslunarmaður, Bragi Kristj-
ánsson skákmaður, Sigurður Sig-
urðsson, fyrrverandi fréttamaður,
og Reynir Ólafsson jámsmiður. -ÍS.
Þessir tefla
saman í
14. umférð
í 14. umferð heimsbikarmótsins
sem tefld verður á fimmtudaginn
tefla saman:
Margeir-Nunn
Spasski-Kortsnoj
Beþavsky-Tal
Timman-Kasparov
Sax-Sokolov
Ehivest-Jóhann
Nikolich-Portisch
Júsúpov-Ribli
Andersson-Speelman
-ÍS.