Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1988, Qupperneq 7
MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBER 1988.
7
Fréttir
Kosningin hjá Heimdalli ólögleg?
„Töpuðum fyrir landsbyggðinni“
„Þetta framboö mitt skýrir sig al-
veg sjálft og sá stuðningur sem þaö
fékk. Vera má að það hafi verið mis-
tök hjá mér að fara út í það með svo
stuttum fyrirvara. Ég hefði kannski
unnið ef ég hefði undirbúið það dálít-
ið betur. Eg vil hins vegar taka það
skýrt fram að ég stend ekki í neinum
persónulegum illdeilum út af þessum
kosningum. Ólafur Stephensen mun
fá aö stjórna þessu félagi í friði,“
sagði Gunnar Jóhann Birgisson lög-
fræðingur sem nú um helgina tapaði
fyrir Ólafi Stephensen í formanns-
slag í Heimdalli, félagi ungra sjálf-
stæðismanna í Reykjavík.
Þetta er í fyrsta skipti sem boðið
er fram á móti ríkjandi formanni í
félaginu og var kosningin mjög jöfn
á einum íjölmennasta fundi sem
haldinn hefur verið í félaginu. Ólafur
sigraði, fékk 246 atkvæði á móti 222
atkvæöum Gunnars Jóhanns.
Hin stutta kosningabarátta þótti
bera dálítinn keim af þeim for-
mannsslag sem varö innan Sam-
bands ungra sjálfstæðismanna í
fyrra þegar þeir Árni Sigfússon og
Sigurbjörn Magnússon áttust við. Er
Gúnnar Jóhann talinn til stuðnings-
manna Sigurbjörns en Ólafur mun
hins vegar vera Árna megin.
Kosningin ólögleg
„Annars hafa menn hent gaman
að ýmsu því sem gerðist á þessum
fundi því við töpuðum eiginlega fyrir
landsbyggðinni. Það mættu allir
stjórnarmenn í nágrannasveitarfé-
lögunum og kusu. Þeir hafa ekki
kjörgengi í þessu félagi."
- Er kösningin þá ekki ólögleg?
„Jú, það má eiginlega segja það.
En þeir hafa gefið sig í að mæta á
fundinn og kjósa. Ef þeir vilja hafa
það þannig þá ætla ég ekki að fetta
fingur út í það.“
- segir Gunnar Jóhann Birgisson
Akureyri:
Mikið atvinnuleysi
í síðasta mánuði
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
í tilkynningu Vinnumiðlunar-
skrifstofu Akureyrar kemur fram að
hinn 30. september sl. var 51 skráður
atvinnulaus á Akureyri, en á sama
tíma í fyrra voru atvinnulausir 32
talsins.
Konur voru nú mun fleiri á at-
vinnuleysisskrá en karlar, eða 32 á
móti 19 körlum. í september var
skráður 891 heill atvinnuleysisdag-
ur, 544 hjá konum og 347 hjá körlum.
Fjöldi atvinnuleysisdaga svarar til
þess að 40 hafi verið atvinnulausir
allan mánuöinn. Gefin voru út 122
atvinnuleysisbótavottorð í septem-
ber með samtals 733 bótadögum.
um innan Sambands ungra sjálf-
stæöismanna frá því í fyrra áfram
og að Árni Sigfússon mætti ekki við
því að tapa þessum kosningum. Þeir
náðu að virkja sína stuðningsmenn
út á þetta. Við vorum hins vegar með
þá stefnuskrá að það þyrfti að gera
eitthvað í þessu félagi.“
- En verða breytingar á félaginu eft-
ir þessa kosningabaráttu?
„Það sem aðallega hefur farið fyrir
brjóstið á mönnum er hvað virkni
félagsins er lítil. Þetta virtist vera
orðinn lítill klúbbur og menn minn-
ast þeirra tíma þegar félagið var að
halda öfluga fundi. Það er ekki langt
síöan þetta félag var að reka starf-
semi niðri á Hallærisplani fyrir ungl-
inga og það var ýmislegt í gangi sem
vakti athygli á því. Mönnum fmnst
aö kominn sé tími til að það láti
meira á sér bera, bæði innan flokks
og utan. Ólafur vissi vel af þessari
óánægju fyrir framboð mitt en það á
eftir að reyna á hve mikið mark verð-
ur á því tekið.“
-SMJ
Rótgróinn klofningur virðist hafa
búið um sig meðal ungra sjálfstæð-
ismanna eftir formannsslaginn í SUS
i fyrra. Um helgina tapaði Gunnar
Jóhann Birgisson kosningu hjá
Heimdalli og virðist það staðfesta
klofninginn.
DV-mynd Brynjar Gauti
- Það fór fram smölun fyrir þennan
fund af beggja hálfu - á hvaða for-
sendum fór sú smölun fram?
„Hin armurinn ól dálítið á því að
verið væri að halda formannsslagn-
ÆFINQASTOÐIN
ENGIHJALLA 8 * «46900
I
Líkamsrækt fyrir alla!
lawMiawiaaBII
Dag- og kvöldtímar.
leikfimi fyrir byrjendur og framhaldstímar. Nýjung:
Notum sérstakar teygjur í tímunum sem gefa meiri
og betri árangur.
Hjá okkur erstærsti og einn af best búnu tækjasöl-
um landsins sem gefur meiri og betri þjálfunar-
möguleika. Almenn þrekþjálfun, vaxtarrækt, kraft-
lyftingar og þjálfun fyrir ýmsa íþróttahópa og ein-
staklinga. Konur, athugið. Best er að koma á dag-
inn ítækjasalinn.
Ljósaböð, gufuböð og nuddpottar.
Höfum mikið úrval af Multi Kraft prótínum, einnig
höfum við úrval æfingabelta, hnévafninga og víta-
mína.
MATARÆÐI-VEITUM RÁÐLEGGINGAR UM FÆÐUVAL.
Hjá okkur getur þú borgað með kreditkortum, Eurocard og Vísa.
Hjá okkur kostar mánaðarkort í tækjasal kr. 3.200 fyrsti mánuður en endurnýjun
2.800 ef endurnýjað er strax. Við bjóðum einnig upp á sérstaklega hagstætt verð
fyrir þriggja mánaða kort sem er á kr. 7.150 og þá færðu fjórða mánuðinn ókeypis.
Mánaðarkort í leikfimi, þar sem aðgangur að tækjasal er frjáls, er á kr. 3.500.
Gerðu verðsamanburð!
BYRJAÐU STRAX- KOMDU ÞÉR í FORM
ÆFINGASTÖÐIN ENGIHJALLA8,
KÓPAVOGI - SÍMAR: 46900,46901 OG 46902
Húsi Framtíðar, sími 686611
Tegund
Suzuki Fox, háþekja, silfur
Nissan Sunny LX, hvítur
Ford Bronco, Eddy Bauer, blár/br.
Mitsub. Lancer GLX, hvítur
Fiat Uno 45, svartur
Seat Ibiza GLX, blár
Suzuki Swift GL, hvítur
Peugeot 505 GR st., hvítur
Wagoneer Limited, blár
Argerð Ekinn Verð
1988 12.000 640.000
1987 26.000 440.000
1987 11.00U 1.375.000
1987 26.000 550.000
1988 7.000 330.000
1986 29.000 330.000
1988 2.000 430.000
1987 28.000 890.000
1987 28.000 1.800.000
Vantar nýlega bíla
á söluskrá
Vantar Fiat Uno
45, árg. 1987, lítið ekinn,
staðgreiðsla
Audi 90 2,3 E, svartur, árg. 1988, ekinn 19.000, verð 1.700.000
-------—---—— ------------------------------------------
Framkvæmdastjóri: Finnbogi Ásgeirsson.
Sölustjóri: Skúli H. Gíslason.
Sölumaður: Kjartan Baldursson.