Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1988, Qupperneq 11
MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBER 1988.
11
DV
Líbanska þingið
stjórnlaust
Ástandið í Líbanon versnaði enn
frekar í gær þegar þingmönnum
tókst ekki að kjósa nýjan þingforseta,
en þingið er síðasti leikvangurinn
þar sem kristnir og múhameðstrúar-
menn geta rætt málin.
Nú hefur þetta stríöshrjáða land
engan forseta, tvær ríkisstjórnir sem
keppa um völd og óvirkt þing.
/
Elsti þingmaöurinn, Kazem Al-
Khalil, sem er áttatíu og fjögurra ára
gamall múhameðstrúarmaður, sagði
í ræðu, „Ég vil tilkynna andlát þessa
lands.“
Þijátíu og níu þingmenn af sjötíu
og sex þurftu að vera viðstaddir til
að hægt væri að kjósa nýjan þingfor-
seta, en aðeins tuttugu og sex mættu
þannig aö kosning gat ekki farið
fram.
Þetta er í fyrsta sinn síðan Líbanon
fékk sjálfstæði 1943 að þinginu mis-
tekst að kjósa sér forseta. Þykir
mörgum sú staðreynd lýsa vel því
ástandi sem nú ríkir í landinu.
Reuter
Hussein Husseini, fráfarandi forseti líbanska þingsins, yfirgefur hér þing-
húsið eftir að þingmönnum hafði mistekist að kjósa nýjan þingforseta.
Simamynd Reuter
Ríkiseinokunarmaður
fær nóbelsverðlaun
Franski hagfræðingurinr. Maurice
Allais fékk nóbelsverðlaunin í hag-
fræði í ár.
Verðlaunin fékk hann fyrir rann-
sóknir sínar og kenningar um hvem-
ig ná megi hagkvæmni í rekstri
stórra ríkiseinokunarfyrirtækja.
Allais er sjötíu og sjö ára að aldri
og tahnn vera faðir nútímahagfræði
í Frakklandi og hafa kenningar hans
verið notaöar við skipulagningu
franskra ríkiseinokunarfyrirtækja,
svo sem frönsku jámbrautanna og
rafveitunnar.
Allais lagði grunninn að kenning-
um sínum með tveimur ritum sem
komu út árin 1943 og 1952. Þau þóttu
hins vegar allt of löng, leiðinleg og
torskilin til að bera hróður Allais út
fyrir landamæri Frakklands. Fyrra
ritið er 900 bls. og það seinna 800 bls.
Bandaríski hagfræðingurinn Paul
Samuelson, sem hlaut nóbelsverð-
launin árið 1970, hefur sagt um ARa-
is að ef hann hefði skrifað sín fyrstu
verk á ensku en ekki frönsku og
hamið pennann aðeins betur hefði
heil kynslóð hagfræðikenninga tekið
nýja stefnu.
Állais er í raun ekki sérfræðingur
í þjóðhagfræði eins og flestir sem
hingað til hafa fengið nóbelsverð-
launin í hagfræði. Flestar rannsókn-
ir hans hafa snúist um aðferðafræði
og ákvarðanatökuferh innan stórra
ríkisrekinna einokunarfyrirtækja. í
raun má segja að sérsvið hans sé
rekstrarhagfræði þótt hann fari
nokkuð út fyrir það svið í seinni
rannsóknum sínum.
Sjálfur segist Allais hafa fengið
verðlaunin, sem nema nítján milljón-
um króna, fyrir rit sem kom út árið
1984 og heitir „Hugtök um offramboð
og tap og endurmyndun kenninga
um stöðugt hagfræðilegt jafnvægi og
hámarksnýtingu“. Skýrir nafnið á
þessu riti væntanlega hvers vegna
Allais þykir ekki Upur penni og hvers
vegna kenningar hans hafa farið fyr-
ir ofan garð og neðan hjá jafnvel
færustu hagfræðingum, sem þó eru
vanir að lesa miklar og torskUdar
langlokur.
Rannsóknir AUais á hagkvæmni í
rekstri stórra ríkiseinokunarfyrir-
tækja.eru í nokkurri andstöðu við
þær kenningar sem hafa verið
áhrifamestar í Bandaríkjunum und-
anfarin ár og áratugi. Það er vegna
þess meðal annars aö í þeim felst
viöurkenning á að ríkið eigi að reka
stór einokunarfyrirtæki en þorri
bandarískra hagfræðinga, sem hlotið
hafa viðurkenningar á undanfómum
áram, gengur út frá því að umsvif
ríkisins eigi að vera eins UtU og
Maurice Allais, nóbelsverðlaunahafi i hagfræði, talar við blaðamenn ð
heimili sínu skammt utan við Paris rétt eftir að hann frétti að hann hefði
Útlönd
Ákærðir fyrir
hryðjuverk
Bjamí Hmnksson, DV, Bordeaux:
Réttarhöld era hafln í Bordeaux
í Frakklandi yflr íjóram Kor-
síkubúum sem sakaðir era um
hryöjuverkastarfserai. Tveir þeirra
era ákærðir fyrir árás á herbúðir
á Korsíku áriö 1982 þar sem einn
hermaöur lét Ufið og annar særðist
alvarlega. Hinir tveir era ákærðir
fyrir að geyma og flytja skotvopn
en ákærar yfirvaldsins byggjast að
mestu leyti á vitnisburöi annars
þeirra.
Þessi réttarhöld eru rajög mikil-
væg I augum þeirra Korsíkubúa er
löngum hafa krafist sjálfetæðis eyj-
arinnar og aðskUnaðarhreyfmg
Korsíku telur niðurstöðu þeirra
ráða miklú inn ffamtíðaraðgerðir
hreyfingarinnar. Sakbomingamir
flórir era taldir meðlimir sjálfstæð-
ishreyfingarinnar og jafiivel helstu
foringjar hennar.
Viðbúnaður lögreglu er því mik-
Ul í Bordeaux og bæði ákæravaldiö
og lögfræðingar sakbominganna
búa sig undir snúin réttarhöld.
Ýmis atvik hafa tafið fyrir, eins og
til dæmis hræðsla læknisins sem
rannsakaöi tvo fjórmenninganna
skömmu eftir handtöku þeirra á
Korsíku. Hann ber nú fyrir sig
veikindum svo hann þurfi ekki að
bera vitni
PóUtísk hUð réttarhaldanna
verður Uklega tímafrek og þegar
má sjá fyrir atvik í réttarsalnum,
tafir og útúrsnúninga. Til dæmis
eyddu hinir ákærðu góðum tima í
að þylja upp nöfn á þeim fangelsum
sem þeir hafa setið i þegar dómar-
inn spiuði þá um heimilisfang.
Óleysanlegfc morðmál
Gunnar Guamundsacn, DV, Khife
Þann 8. nóvember 1986 fékk hinn
sex ára gamU Jóakim leyfi til þess
að fara einn í bakaruð í fyrsta sinn.
Það reyndist einnig hið síöasta.
Jóakim var stunginn tU dauöa á
hrottalegan hátt af óþekktum
ástæðum.
Eftir tæplega tveggja ára rann-
sókn á málinu hefur lögreglan gefið
það upp á bátinn sem óleysanlegt.
Lögreglan þykist nú með vissu vita
hver morðinginn er en getur ekki
hróflað við honum þar sem hann
var aðeins fiórtán ára þegar raorðið
var framið. Samkværat dönskura
lögum er enginn undir fimmtán ára
aldri sakhæfur.
Sá sem taUnn er hafa framið
moröið varð hins vegar fimmtán
ára daginn eftir að ódæðisverkið
var framiö.
MáUÖ hefur vakið mikla umræðu
í fjölmiðlum og einmitt verið tekið
tU umræðu í þjóðþinginu. Meðal
annars hefur veriö skorað á dóms-
málaráðherrann, Erik Ninn Hans-
en, að gera lagabreytingu svo hægt
sé að draga raorðingjann fyrir rétt.
Því hefur dómsmálaráðherrann
neitaö á þeirri forsendu að ein-
hvers staðar verði aö draga mörkin
og neðar en í flmmtán ára sé ekki
hægt að fara.
Foreldrar Jóakims neita að gefast
upp þótt lögreglan hafi gert þaö.
Þeir ætla að fara í skaðabótamál
við foreldra drengsins sem talinn
er hafa myrt Jóakim. Ef þau vinna
máUð neyðist saksóknari ríkisins
tíl þess að höfða mál á hendur hon-
um fyrir morð.
Þaö er þó óvíst hvort dómsmála-
ráðherrann þvingar lögregluna tU
að gefa upp nafn hins grunaða og
foreldra hans.
KARATEFÉLAG
VESTURBÆJAR
Byrjendanámskeið er að
hefjast. Góð aðstaða.
Leitið uppiýsinga í síma
12355 og 12815.
SHOlOKÍWf
KARhTiE
STENDURENN FRÁBÆR GREIÐSLUKJÖR -OL^é-h-**
LÆKJARGÖTU 22 • HAFNARFIROI • SlMI 50022