Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1988, Blaðsíða 13
MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBER 1988.
13
Fréttir
Bjarni Óskarsson heldur á 50 ára gömlum Vísi og Brynjar Sigmundsson
er með gamalt auglýsingaskilti. í bakgrunni eru aðrir munir er fundust.
DV-mynd BG
Gamlir munir finnast á lofti Café Óperu:
Hattar, öskjur
og gínur duttu
í fang manna
Starfsmenn Café Óperu fengu
óvæntan glaðning upp í hendurnar
er þeir fundu talsvert af gömlum
munum þar á mánudaginn.
Verið var að rífa niður skilrúm á
háalofti Café Óperu þegar hattöskj-
ur, auglýsingaskilti, gínur og hinir
fínustu hattar bókstaflega duttu í
fangið á þeim. Flestir hlutanna eru
í góðu ásigkomulagi þrátt fyrir há-
an aldur en þeir eru í kringum
50-60 ára gamlir.
Einnig fannst dagblaðið Vísir síð-
an 1938 og segja auglýsingarnar í
því talsvert um tíðarandann. Meðal
annars auglýsir hattaverslun
Margrétar Leví en hattöskjumar,
sem fundust, eru einmitt frá henni
eða Haraldi Ámasyni. Greinilegt
er að hattaverslun hefur staðið með
miklum blóma á þessum tíma, mik-
ið lagt í gínur og fjölbreytileik hat-
tanna og ekki hefur landinn síður
verið ginnkeyptur fyrir útlenskum
fínheitum í þá daga en nú því sum-
ar öskjumar eru merktar þekktum
erlendum tískuhúsum.
Þessi fundur kom sér sérlega vel
fyrir Café Ópem en þar er verið
að innrétta nýjan stað og saman-
standa innréttingarnar af gömlum
hlutum víðsvegar að.
Öskjurnar frá Haraldi og hatt-
arnir hennar Margrétar verða því
áfram á sínum upphaflega stað en
ekki lengur í skúmaskotum heldur
í heiðurssæti.
-Ade
Selfoss:
Aldrei meiri slátursala
Regína Thorarensen, DV, SeHossi;
Mikil slátursala hefur verið í slát-
urhúsinu Höfn hér á Selfossi, aldrei
verið eins mikil og á þessu hausti,
sögðu þær dugmiklu systur, María
og Sigurbjörg Óskarsdætur, sem em
búnar að vinna við afgreiðslu í slát-
urhúsinu í níu haust. Þær eru mjög
ábyggilegar og telja ekki eftir sér
skrefin, bera allt slátrið út í bila
kaupenda.
Jón Sigurðsson
Jafet S. Ólafsson
UPPBYGGING IÐNAÐAR
í DREIFBÝLI
lönlánasjóöur gengst nú fyrir fundum
um uppbyggingu iðnaöar í dreifbýli.
Þeir fyrstu verða haldnir:
■ 20. október á AKUREYRI
Hótel KEA kl. 15.30.
■ 21. október á SAUÐÁRKRÓKI.
Hótel Mælifelli kl. 15.30.
að kynna starfsemi Iðnlánasjóds fyrir stjórn-
endum fyrirtækja og fulltrúum atvinnulífs i
dreifbýli,
að vekja áhuga stjórnqnda fyrirtækja á
nýsköpun, sameiningu fyrirtækja og samstarfi
þeirra.
Lögd verður áhersla á þessa málaflokka:
Lánafyrirgreiðslu, vöruþróun, markaðsmál,
tækni, afkastagetu, söluaðferðir, dreifileiðir
og samstarf við önnur fyrirtæki.
■ Dagskrá: WHHMgMMHMBMWMIWKMMiil
1. Kynning á starfsemi Iðnlánasjóðs og þeirri
fyrirgreiðslu sem Iðnlánasjóður veitir fyrirtækj-
um.
Bragi Hannesson, bankastjóri.
2. Fyrirlestur um markaðsathuganir og mat á
markaðsþörf.
Þráinn Þorvaldsson, framkvæmdastjóri.
3. Fyrirlestur um vöruþróun.
Páll Kr. Pálsson, framkvæmdastjóri.
4. Fyrirlestur um samstarf og samruna fyrirtækja.
Pétur Fteimarsson, framkvæmdastjóri.
5. Fyrirlestur um arðsemismat á
hugmyndum.
Jafet S. Ólafsson, útibússtjóri.
Gert er ráð fyrir að hver fyrírlestur taki 2C 30
mínútur. Fundarstjóri verður Jón Magnússon,
formaður stjórnar Iðnlánasjóðs og á fyrsta
fundinum á Akureyri flytur Jón Sigurðsson
iðnaðarráðherra ávarp.
Síðar verða haldnir sams konar fundir á Akranesi,
Ísaíirði, Egilsstöðum, Vestmannaeyjum, Selfossi
og Keflavík.
VIÐ HVETJUM ALLA ÞÁ SEM MÁLIÐ VARÐAR TIL AÐ KOMA.
IÐNLANASJOÐUR
ÁRMÚLA 7, 108 REYKJAVÍK, SÍMI 680400
Páll Kr. Pálsson
Jón Magnússon
Þráinn Þorvaldsson
Bragi Hannesson
___________405 GR OG SRI____
RÝMINGARSALA Á ÁRGERÐ 1988
Við rýmum fyrir 1989 árgerðinni af Peuge-
ot 405, lækkum verðið og bjóðum einstak-
lega góð greiðslukjör - 25% ÚTBORGUN
OG EFTIRSTÖÐVAR TIL 18 MÁNAÐA Á
ÓVERÐTRYGGÐU SKULDABRÉFI.
Staðgr.verð Afborg.verð
PEUGEOT 405 GR1900 ’88 795.000,- 858.600,-
VERÐ1989 ÁRGERÐAR 895.500,- 967.100,-
Búnaður: 110 ha vél, 5 gíra skipting, vökvastýri, veltistýri,
rafhitaðir útispeglar, rafhituð framsæti o.fl.
Staðgr.verð Afborg.verð
PEUGEOT 405 SR11900 ’88 895.000,- 966.600,-
VERÐ1989 ÁRGERÐAR 1.014.700,- 1.095.900,-
Búnaður: 125 ha vél með beinni innspýtingu eldsneytis á vél, 5
gíra skipting, vökvastýri, rafdrifnar rúður, fjarstýrðar miðlæsingar
(central), litað gler, rafhitaðir útispeglar, rafhituð framsæti o.fl.
JÖFUR - ÞEGAR
ÞÚ KAUPIR
BÍL
iÉJ
lJ
JÖFUR HF
Nýbýlavegi 2 • Sími 42600
OPIÐ 9-18 VIRKA DAGA
OG 13-17 LAUGARDAGA