Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1988, Síða 19
19
MIÐVIKUDAGÚR
19. OKTÓBER 198K
Svidsljós
Eddie Murphy vefur
greinilega kvenfólkinu
um fingur sér þessa
dagana.
Eddie býr
með annarri
Nú er bara að bíða og sjá hvað maðurinn er eigin-
lega að hugsa. Þetta er ekki nokkur framkoma að
segja átján ára saklausri námsmey að hún sé eina
konan í lífi manns og búa svo með tuttugu og íjög-
urra ára gamalli fegurðardrottningu á meðan. Svei.
Shari Headley býr nú með Eddie Murphy i húsinu hans í Hollywood
þótt hann hafi tjáð annarri alla ást sina.
Á döguniun var sagt frá því í Sviðsljósi að Eddie
Murphy væri búinn að finna þá einu réttu. Nú al-
veg nýlega fréttum við af því að drengurinn væri
alls ekki við eina fjölina felldur í kvennamálunum.
Þannig er mál með vexti að þegar Eddie lék í
myndinni um prinsinn sem kom til Ameríku til
aö finna drottninguna sína kynntist hann mjög vel
mótleikkonu sinni, Shari Headley, sem er tuttugu
og flögurra ára gömul.
Á meðan á myndatökum stóð flutti stúlkan inn
í húsið sem Eddie bjó í í Hollywood og á okkar
máh þýðir það einungis eitt.
Þetta var í fyrsta skipti sem Eddie hleypti nokk-
urri stúlku svo nálægt sér.
Um þetta sagði Eddie sjálfur að sér hði eins og
hann væri giftur og að þetta væri alveg stórkostleg
reynsla.
Fer
ekki
lagið
að
verða
búið?
Þær geta verið alveg óskaplega
þreytandi, þessar kveðjuathafnir,
eða svo finnst þessum meðhmi í ísra-
elsku herhljómsveitinni sem á
mánudag sphaði nokkur lög við at-
höfn sem haldin var til að kveðja
forseta ísrael, Chaim Herzog, sem
var að fara í opinbera heimsókn th
Frakklands.
Símamynd Reuter
Ragnar örn Pétursson veitingamaður ásamt eiginkonu sinní, Sigríði
Sigurðardóttur. DV-mynd Ægir Már
Keflavík:
Breytingar
hjá Sjávar-
gullinu
Ægix Már Kárason, DV, Suðumesjum:
„Barinn fyrir framan matsölu-
staðinn verður eingöngu fyrir mat-
argesti, ekki gesti á dansleikjum
eins og áður var,“ sagði Ragnar
Örn Pétursson veitingamaður í
samtali við DV þegar hann kynnti
breytingar á Sjávargulhnu, veit-
ingastaðnum sem hann rekur í
Glaumbergi í Keflavík.
„Með þessu hafa gestir Sjávar-
guhsins meirá næöi og geta látið
fara vel um sig í huggulegu um-
hverfi. Nýr matseðhl fellur gestum
vonandi vel í geð og rík áhersla er
lögð á eins góða þjónustu og kostur
er. Gestir verða boðnir velkomnir
með fordrykk og einnig er boðiö
upp á margt annaö sem ég skýri
ekki nánar, það kemur í ljós,“ sagði
Ragnar Örn. Þama er rúm fyrir 40
manns í sæti. Matur er framreidd-
ur th kl. 23 á föstudögum og laugar-
dögum en th kl. 22 á sunnudögum.
Fyrri tvö kvöldin er hægt að sitja
á Sjávargullsbamum th kl. eitt eft-
ir miðnætti. Gestir Sjávargullsins
þurfa ekki að greiöa aðgang að
dansleikjum á föstudags- og laugar-
dagskvöldum í Glaumbergi.
Yfirmatreiöslumaður í Sjávar-
gullinu er Daði Kristjánsson og
hefur hann starfað á staðnum frá
því hann var opnaður 21. febrúar
1986. Fyrirtæki Ragnars og konu
hans verður hins vegar fimm ára
innan skamms eða 26. desember.
Ólyginn
sagði . . .
Warren Beatty
- gamh hjartabijóturinn - er nú
búinn að gera samning við sjón-
varpsfyrirtæki vestanhafs um
nýjan sjónvarpsmyndaflokk í tíu
þáttmn. í þáttunum á Beatty að
leika sálfræðing sem fer í slagtog
við fyrrverandi konu sína, sem
er búðarlögregluþjónn, við að
leysa glæpamál. Beatty fær tvær
og hálfa mhljón dohara fyrir vik-
iö.
James Woods
er nú farinn aö verða hræddur
um líf sitt. Þykist hann nokkuð
viss um að einhver vhji að því
ljúki sem fyrst. Grunur hans var
þó fyrst staðfestur þegar hann
fann vúdú-dúkku fyrir utan hús-
dymar hjá sér. Var búið að
lemstra dúkkuræfilinn þannig að
ekki fór á mhli mála hver hugur
geranda var.
Annie Lennox
úr Eurythmics gifti sig um dag-
inn föður ófædds bams síns.
Lennox á að verða léttari í desem-
ber og eftirvæntingin er víst kom-
in í algleyming. Annie hefur verið
einu sinni gift áður og gekk þaö
hjónaband ekki sem skyldi og
stóð aðeins í eitt ár. Hún vonast
víst th að hjónabandið með kvik-
myndaframleiöandanum Uri
Fmchtman verði farsæha, enda
styttist nú í ávöxt þess sambands.