Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1988, Side 31
MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBER 1988.
31
LífsstOl
Notalegast að hafa
marga Ijósgjafa
Viö ákvöröun á rafmagns-
dósum og tenglum, sérstaklega
í heimahúsum, er heppilegt aö
hafa nógu marga möguleika til
að vinna úr, þó innan eðlilegra
marka.
Segja má að notalegasta
umhverfið skapist með notkun
fleiri heldur en færri ljósgjafa.
Aðstæður breytast einnig í hí-
býlum t.d. vegna innréttinga og
húsgagna og þá verður þörf á
breyttrilýsingu.
Erfitt er að setja fram mjög
afmarkaðar reglur varðandi
lýsingu þar sem hún er svo háö
umhverfinu. Hins vegar má
benda á helstu meginatriði með
tilliti til helstu herbergja í hús-
um.“
Margir
ljósgjafar
í stofunni
- Stofanersjálfsagtsástaður
sem mest er dvalið í á veturna.
Notalegasta umhverfið í stof-
unni skapast með því að nota
frekar mörg ljós á afmörkuð
svæði, án þess þó að ljóssvæði
þeirra blandist. Lampi yfir sófa-
borði á að lýsa sem mest niður
en aðeins þó til hliðar svo að
fólk sjái hvert annað þegar það
talast við. Endurkast af borðinu
getur einnig lýst upp andlit.
Hreyfanlegir standlampar eða
kastarar frá vegg eru ágæt les-
ljós í stofu. Þannig er hægt að
beina ljósinu á ákveðna fleti.
Kastarar í lofti eru hins vegar
varhugaverðir efþeireruof
sterkir og stórir. Þeim verður
aðbeinafráaugum.
Ef stofa og borðstofa eru sam-
tengdar verður að gæta að sam-
spili þar á milli. Sterkari lýsing
öðrum hvorum megin dregur
athygli augans að sér og truflar
og þreytir. Þarna verður að
jafna mismuninn ef svo má
Heimilið
segja. Efborðstofulýsinger
sterkust á sjálfu borðinu en
jafnast samt út (flóölýsir ekki)
getur stofulýsing verið dempuö
ísamræmiviðþað.
Eldhús og
borðstofa
Við matarborðið veröur að
aðgæta að enginn blindist - að
hvergi sjáist í peruna. Samt
verður að aðgæta að lýsing nái
yfir allt borðið. Undir efri skáp-
um í eldhúsinnréttingu er best
að hafa ljós með kappa fyrir
framan og láta birtuna koma
niður.
Sé boröstofuborðið mikiö not-
að verður að huga að sömu
hlutum og með eldhússborð. Sé
það mjög stórt er ekki úr vegi
að hafa tvö ljós. En birtan verð-
ur aö jafnast út og gefa einnig
almenna lýsingu í borðstof-
unni.
í göngum er mjög heppilegt
að lýsa með vegglömpum eða
háum loftljósum, jafnvel inn-
felldum ef kostur er. En þá
verður að forðast ofbirtu.
í forstofu, þar sem spegill er,
veröur að gæta að því að hafa
ljósgjafa sinn hvorum megin til
að ekki skapist óþægilegir
skuggar.
Svefnherbergi
og bað
Við rúm er nauðsynlegt að
hafa lesljós - stillanleg með til-
liti til þess hvort legið er eða
setið. Staðsetning almennu lýs-
ingarinnar er heppilegust við
fataskáp. í svefnherbergi sem
annars staðar verður að huga
að því að afstaða við ljósgjafa
breytist eftir því hvort mann-
eskja stendur, situr eða liggur.
Almennu lýsinguna verður því
að hugsa vel út hverju sinni.
Á baðherbergjum spilar speg-
ill stórt hlutverk. Lýsing við
spegil er best báöum megin frá
honum. Almenna lýsingin á
baðherbergi getur verið í lofti
eða á veggjum, bein eða óbein
- þessu verður að haga eftir
innréttingum þar sem annars
staðar.
-ÓTT.
Á myndunum hægra megin sést lýsing í dökku og Ijósu herbergi. Ljósstyrkurinn er sá sami á öllum myndunum. Lamparnir hægra megin eru staðsettir of hátt en það er aðeins til að fá
réttan samanburð miðað við óbeinu lýsinguna vinstra megin og „rússalýsinguna". Þar sem fletir eru mjög dökkir er lýsingin óviðunandi þvi hlutir, sem standa þar, hverfa (vinstra megin
að ofan) - hörð lýsing. Þar sem óbeina lýsingin er (loftið upplýst) eru skuggar aðeins inni í skápnum og undir borði, vinnulýsing er óviðunandi. Loftið er oflýst og virkr\in er þreytandi. í
Ijósa herberginu, hægra megin, er vinnulýsing nægilega góð og loftið hæfilega bjart. Hlutir, sem standa i skugga, eru sýnilegir vegna hálfskugga sem eru ávallt æskilegir. í dökka
herberginu fyrir neðan er vinnulýsing einnig í lagi og loftlýsing hæfileg, hálfskuggar eru á veggjum. ■