Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1988, Blaðsíða 35

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.1988, Blaðsíða 35
MIÐVIKUDAGUR 19. OKTÓBER 1988. 35 Fólk í fréttum Jóna Gróa Sigurðardóttir Jóna Gróa Sigurðardóttir, formaður Vemdar, hefur verið í fréttum vegna málefna Verndar. Jóna Gróa er fædd 18. mars 1935 í Rvík og lauk prófi frá VI1953. Hún var skrifstofu- maður í Rvík og lestrasalsvörður hjá Alþingi 1964-1971. Jóna var þingritari 1971-1972 og rak Bílaleig- una Fara 1972-1977. Hún var skrif- stofumaður hjá SÁÁ1978-1982 og hefur verið í stjórn Vemdar frá 1981, formaður og framkvæmdastj óri frá 1982. Jóna var í fræðsluráði Rvíkur 1982-1986, í atvinnumálanefnd Reykjavíkur frá 1982, formaöur frá 1986, formaður atvinnumálanefndar höfuðborgarsvæðisins frá 1986 og formaður feröamálasamtaka höfuð- borgarsvæðisins frá 1988. Hún var í stjórn Strætisvagna Rvíkur frá 1982, varaformaöur frá 1986, í stjórn Líf- eyrissjóðs borgarstarfsmanna og borgarfulltrúi í Rvík frá 1986. Jóna giftist 1954 Guðmundi Jónssyni, f. 27. apríl 1932, vélstjóra. Foreldrar hans vom Jón Jóhannes Ármanns- son, stýrimaður í Rvík, og kona hans, Guðlaug Guðmundsdóttir. Böm Jónu og Guðmundar em Ing- unn Guölaug, f. 9. ágúst 1954, stöðv- arstjóri skrifstofu Flugleiða í Salz- burg, sambýlismaður hennar er Rudi Kanapp; Sigurður, f. 10. mai 1957, lögfræðingur í Kópavogi, sam- býhskona hans er Sigrún Kristjáns- dóttir tölvufræöinemi; Helga, f. 10. ágúst 1958, stjórnmálafræðinemi í HÍ, var gift Úlfari Rafnssyni fram- reiðslumanni, d. 2. ágúst 1987; og Auður Björk, f. 15. ágúst 1966, viö- skiptafræðinemi, sambýlismaður hennar er Ægir Birgisson verslun- armaður. Systir Jónu er Mattína, f. 15. mars 1944, gift Siguijóni Krist- jánssyni, framkvæmdastjóra í Rvík. Foreldrar Jónu em Siguröur Guð- mundsson, málarameistari í Rvík, og kona hans, Ingunn Sigríður Jóns- dóttir. Föðursystir Jónu er Guörún, móðir Alfreðs Flóka. Sigurður er sonur Guðmundar, togaraskipstjóra í Rvík, Guðnasonar. Móðir Guð- mundar var Björg Jónsdóttir, b. í Gröf í Ytrihreppi, Jónssonar, bróður Þorsteins, langafa Berthu, móður Markúsar Amar Antonssonar. Þor- steinn var einnig langafi Víglundar Þorsteinssonar. Móðir Sigurðar var Mattína, systir Siggeirs afa Ásgeirs Friöjónssonar fíkniefnadómara. Mattína var dóttir Helga, b. í Mið- felli í Ytrihreppi, Bjarnasonar, bróö- ur Jóns, föður Einars myndhöggv- ara og langafa Stefáns Más Stefáns sonar, prófessors í lögfræði. Systir Helga var Guðfinna, amma Einars Bjarnasonar prófessors og lan- gamma Trausta Valssonar arki- tekts. Móðir Helga var Helga Hall- dórsdóttir, b. í Jötu, Jónssonar, ætt- foður Jötuættarinnar, foður Guð- finnu, langömmu Steinunnar, móð- ur Gunnars Hall aöstoðarhagstofu- stjóra. Móðir Mattínu var Rósa Matthíasdóttir, b. í Miðfelli, Gísla- sonar, b. á Sóleyjarbakka, Jónsson- ar, b. á Spóastöðum, Guðmundsson- ar, b. á Kópsvatni, Þorsteinssonar, ættfóður Kópsvatnsættarinnar. Ingunn Sigríður er dóttir Jóns, stýrimanns í Rvík, Guömundsson- ar. Móðir Jóns var Ingunn, systir Margrétar.móöurAuöar Auðuns, . fyrrv. ráðherra. Ingunn var dóttir Jóns, prests á Stað á Reykjanesi, Jónssonar, bróður Guðlaugar, ömmu Kristínar Jónsdóttur hstmál- ara. Móðir Ingunnar Sigríðar var Gróa Jóhannesdóttir. Móðir Gróu var Ríkey, systir Þuríðar, langömmu Onundar Ásgeirssonar, fyrrv. forstjóra Olís, fóður Ragnars, Jóna Gróa Sigurðardóttir. bankastjóra Iðnaðarbankans. Önn- ur systir Rikeyjar var Jensína, móð- ir Gunnars Ásgeirssonar forstjóra. Bróðir Ríkeyjar var Finnur, langafi Böðvars Bragasonar lögreglustjóra. Ríkey var dóttir Eiríks, b. á Hrauni á Ingjaldssandi, Tómassonar, bróð- ur Halldóm, langömmu Halldóra, móður Magnúsar Torfa Ólafssonar blaðafulltrúa. Halldóra var einnig langamma Maríu, móður Gunnars B. Guðmundssonar hafnarstjóra. Afmæli Garðar Benedikt Ólafsson Garðar Benedikt Ólafsson, fyrrv. efnisvörður hjá Rafveitu Ákur- eyrar, Eyrarlandsvegi 27, Akureyri, er áttræður í dag. Garðar Benedikt varð gagnfræðingur frá Gagnfræða- skóla Akureyrar 1926. Hann vann ýmsa vinnu til sjós og lands til um 1930 en hóf þá akstur bifreiða hjá KE A og vann þar við akstur, af- greiðslu og birgðahald til 1947. Garðar var efnisvörður hjá Rafveitu Akureyrar 1947-1983. Garðar kvæntist 12. maí 1938 Jakobínu Önnu Magnúsdóttur, f. 30. ágúst 1920. Foreldrar Jakobínu vora Magnús Þorsteinsson, b. á Grund í Amameshreppi, og kona hans, Amþrúður Friðriksdóttir. Böm Garðars og Jakobínu eru Jóhannes Óli, f. 16. maí 1939, vallarstjóri í Rvík, kvæntur Huldu Jóhannsdótt- ur starfsmannastjóra; Anna, f. 20. október 1941, verslunarmaður í Rvík, gift Ólafi M. Ólafssyni véla- manni; Magnús Öm, f. 11. júní 1951, skipstjóri í Rvík, sambýliskona hans er Hrafnhildur Jóhannsdóttir sjúkraliði; Kristján Bjöm, f. 15. febr- úar 1953, verkfræðingur í Álaborg, kvæntur Helgu Alfreðsdóttur þroskaþjálfa; Ingvar, f. 9. apríl 1957, rafmagnseftirlitsvörður á Akureyri, ogBergur, kjörsonur, f. 15. mars 1957, skipstjóri í Grundarfirði, kvæntur Margréti Andersen Frí- mannsdóttur. Systkini Garðars era Bára, f. 17. apríl 1911, gift Kristjáni Aðalsteinssyni, skipstjóra í Rvík, og Hreinn, f. 8. janúar 1924, verkstjóri í Rvík, kvæntur Sólveigu Sigurðar- dóttur skrifstofumanni. Foreldrar Garðars voru Ólafur Sumarliöason, stýrimaður á Akur- eyri, og kona hans, Jóhanna Bjöms- dóttir. Ólafur var sonur Sumarliöa, sjómanns í Holti í Álftaveri, Ólafs- sonar, b. í Holti, Gíslasonar, b. á Seljalandi í Fljótshverfi, Jónssonar. Móðir Ólafs í Holti var Sigríður Lýðsdóttir, sýslumanns í Vík í Mýrdal, Guðmundssonar og konu hans, Margrétar Eyjólfsdóttur spaka, lögréttumanns á Eyvindar- múlai Fljótshlíð, Guðmundssonar. Móðir Sumarliða var Margrét Jóns- dóttir, b. í Svartanúpi í Skaftártung- um, Ámasonar og konu hans, Guð- rúnar Vigfúsdóttur. Móðir Ólafs Sumarliðasonar var Guðríður Þor- steinsdóttir, b. á Hrauni í Grindavík, Jónssonar og konu hans, Guðbjarg- ar Jónsdóttur. Jóhanna var dóttir Björns, tómthúsmanns á Akureyri, Garðar Benedikt Olafsson. Jóhannssonar, b. á Stóra-Eyrar- landi í Eyjafirði, Guðmundssonar, b. á Meðalheimi í Ásum í Húna- vatnssýslu, Guðmundssonar. Garð- ar og Jakobína dvelja í dag hjá Kristjáni syni sínum á Næssundvej 47,9220 Álborg-Öst í Danmörku. Asta Amadóttir Ásta Árnadóttir. Ásta Ámadóttir, Álfheimum 34, Reykjavík, er sjötug í dag. Asta er fædd á Kúskerpi í Húna- vatnssýslu en ólst upp í Hrísey, á bænum Akri. Átján ára fór Ásta til Siglufjarðar og var þar til ársins 1945 en flutti þá til Akraness og bjó þar hátt í hálfan annan áratug. Til Reykjavíkur kom Ásta árið 1961 og hefur búið þar síðan. Ásta hefur í rúman áratug starfað í Hagkaupi. Ásta giftist 22.6.1940 Jónasi Már- ussyniríkisstarfsmanni, f. 11.1.1909, d. 24.1.1982, syni Márasar Símon- arssonar, f. 3.8.1879, d. 14.4.1968, og Sigurbjargar Jónasdóttur, f. 25.5. 1888, d. 5.12.1958, en þau áttu alltaf heimaíFljótum. Böm Ástu og Jónasar era Jónas, f. 31.8.1941, lögregluþjónn; Guðrún Björg, f. 25.7.1943, d. 5.3.1945; Guö- rún Björg, f. 25.3.1945, húsmóðir; Sólveig, f. 21.3.1962, háskólanemi. Ásta átti tólf systkini en átta þeirra eru á lífi. Hún á sjö barna- börn. Foreldrar Ástu vora Ámi Sigurðs- son, f. 19.8.1886, d. 6.7.1958, og Guð- rún Jónasdóttir, f. 18.1.1894, d. 12.6. 1961. Jón Þórisson Jón Þórisson leikmyndateiknari, Brávallagötu 14 í Reykjavík, er fer- tugurídag. Jón er fæddur og alinn upp á Siglufirði. Frá árinu 1965 starfar hann við leikmyndagerð og hefur gert fiölda leikmynda fyrir leikhús, sjónvarp og kvikmyndir. Til dæmis gerði Jón leikmyndir fyrir kvik- myndimar Útlagann og Land og syni; leikhúsverkin Saumastofuna, Rommy og Hárið; sjónvarpsmynd- imar Vér morðingjar og Hælið. Jón er kvæntur Ragnheiöi Stein- dórsdóttur, f. 26.6.1952, leikkonu, dóttur Steindórs Hjörleifssonar leikara og Margrétar Ólafsdóttur leikkonu. Barn þeirra er Steindór Grétar, f. 1.10.1985. Systkini Jóns eru Fylkir, f. 8.10. 1941, tæknifræðingur hjá Sjónvarp- inu; Helga, f. 10.10.1943, gjaldkeri; Jens, f. 15.11.1946, augnlæknir; Konráð, f. 20.3.1952, líffræðingur; Vörður, f. 12.6.1958, leiktjaldamál- ari; Þorbjörg, f. 25.9.1959, danskenn- ari. Foreldrar Jóns era Þórir Konráðs- son, f. 10.7.1916, bakari, og Hrönn Jónsdóttir, f. 4.1.1918, húsmóðir. Þau bjuggu lengi á Siglufirði en eiga núna heima í Reykjavík. Jón Þórisson. Tilmæli til afmælisbama Blaðið hvetur afmælisbörn og aðstandendur þeirra til að senda því mynd- ir og upplýsingar um frændgarð og starfssögu þeirra. Þessar upplýsingar þurfa að berast í síðasta lagi þremur dögum fyrir afmælið. Munið að senda okkur myndir Til ham- ingju með daginn 85 ára Sœmundur Þórðareon, Merkurgötu 3, Hafnarfiröi. 80 ára Þuríður Emilsdóttir, Hverfisgötu 88b, Reykjavík. 75 ára Elínborg Sigurðardóttir, Aðallandi 1, Reykjavik. Magnús Jochumsson, Kletthlíð 12, Laugardalshreppi. Sólveig Sigurðardóttir, Suðurgötu 51, Reykjavik. 70 ára Jakobína Kristmundsdóttir, Síðumúla 21, ReyKjavík. 60 ára Bjarni Sigurðsson, Aragötu 12, Húsavík. Einar Kristjánsson, Vesturgötu 161, Akranesi. 50 ára Margeir Björnsson, Mælifellsá, Lýtingsstaðahreppi. Jóhann Bjarnason, Túngötu 6b, Suðureyri. Sigurjón Stefánsson, Steiná 3, Bólstaðarhlíð. Sæbjörn Jónsson, Krosshömrum 10, Reykjavik. Skjöldur Tómasson, Einilundi lOe, Akureyri. Hallbera Ágústsdóttir, Mánasundi 6, Grindavík. Stefán Már Stefánsson, Háteigsvegi 30, Reykjavík. 40 ára Anna Ragnaredóttir, Goðalandi 19, Reykjavik. Pétur J. Jónasson, Steinageröi 18, Reykjavik. Guðjón Sigurðsson, Kirkjuferjuhjáleigu, Ölfusi. Arnhjörn Gunnareson, Hraunbraut 4, Grindavík.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.