Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1988, Page 3
MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 1988.
3
I>V
Fréttir
Sala á ólöglegu kjöti:
Kílóið af kindakjöti
selt á 300 krónur
BSRB:
Starfsmenn
eru opnir
fyrir öllu
„Ég get hugsaö mér að vinna
með þeim sem geta hugsað sér
að vinna með mér. Ég mun ekki
hlutast til um að þeir starfsmenn
BSRB sem voru andvígir kosn-
ingu minni, láti af störfum hjá
bandalaginu."
Þetta sagði Ögmundur Jónas-
son, nýkjörinn formaður Banda-
lags stárfsmanna ríkis og bæja,
er DV spurði hann hvort hann
myndi hlutast til um aö þeir
starfsmenn, sem voru honum
andvígir í formannskjörinu láti
af störfum hjá BSRB.
Guðrún Árnadóttir, fram-
kvæmdastjóri BSRB, sem bauð
sig fram á móti Ögmundi, sagði
að hún myndi athuga hvort hún
gæti starfað meö nýju stjórninni.
„Stefna mín og Ögmundar fer að
mörgu leyti saman,“ sagöi hún.
Björn Arnórsson, hagfræðing-
ur BSRB, kvaðst enga ákvörðun
hafa tekið um hvort hann léti af
störfum hjá bandalaginu eða yrði
kyrr. „Ég ræði það auðvitað við
Ögmund," sagði hann. „Ég sagði
það hins vegar við alla frambjóð-
endurna að mér væri ljóst að
formaður eigi rétt á að ráða sína
ráðgjafa sjálfur. Svo verður þetta
bara að koma í ljós.“
-JSS
Sjálfstæðismenn:
Vilja fella
prófkjörin
niður
„Þetta sýnir auðvitað almenn-
an vilja í sambandi við prófkjör.
Menn eru að þreytast á þeim,“
sagði Jón Magnússon lögmaður
en á stefnuskrárfundi Sjálfstæð-
ismanna í Reykjavík nú um helg-
ina var samþykkt ályktun til full-
trúaráös flokksins í borginni um
að prófkjör verði felld nriur.
„Við erum með þessi mál í mjög
alvarlegri skoðun enda Ijóst að
menn eru orðnir þreyttir á próf-
kjörsfyrirkomulaginu," sagði
Sveinn H. Skúlason, formaður
fulltrúaráðs Sjálfstæðismanna í
Reykjavík. Hann sagðist ekki
geta sagt fyrir um hvenær
ákvörðun lægi fyrir í þessu máli
en prófkjör ætti að vera í borgar-
stjórn á næsta ári og ákvörðun
yrði að liggja fyrir þá. Sveinn
sagði aö þegar starfaði nefnd á
vegum flokksins um hvernig ætti
aö standa að vali á framboðslista.
-SMJ
Ferju-
bryggja á
Brjánslæk
Kristjana Andrésdóttir, DV, Tálknafirdi:
Frá því um miðjan júlí hefur
verið unnið við nýja ferjubryggju
á Bijánslæk á Barðaströnd. Unn-
ið hefur verið við að reka niður
43 metra stálþil sem verður við-
legukantur feijunnar. Að auki
bætist við 15-20 metra kantur fyr-
ir smábáta.
Áætlað er að strax næsta vor
verði rennan fyrir lyftubrúna
smíðuð og þekjan steypt. Með til-
komu bryggjunnar og feijunnar
munu samgöngur við sunnan-
veröa Vestfirði batna til mikilla
muna og þá sérstaklega yfir vetr-
artímann.
„Eftir sláturtíð munum við fara
vandlega ofan í birgðaskýrslur til að
komast að því hvort og hvar um ólög-
lega sölu á kindakjöti er að ræða,“
sagði Guðmundur Gíslason hjá
Framleiðsluráði landbúnaðarins en
að undanfórnu hefur töluvert boriö
á svartamarkaðssölu með kindakjöt.
Samkvæmt heimildum DV er kílóið
selt á um 300 kr. og er það Verðið á
gæðakjöti sem myndi seljast á um
800 til 1000 krónur í búð. Sagöi Guö-
mundur að hann hefði heyrt þessa
tölu en einnig verulega lægri upp-
hæðir.
Algengt mun vera að heilu skrokk-
arnir, 11-14 kg, séu seldir í einu og
getur þaö að sjálfsögðu þýtt mikinn
spamað fyrir heimilin, svo mikinn
að sumir eru tilbúnir að leggja langa
keyrslu á sig til að nálgast ólöglega
kjötið.
Bændur eiga rétt á því að taka til
heimilisnota 60 kg á hvern heimilis-
mann og er talið að 450 tonn af kjöti
fari þannig aftur til bænda. Er talið
hugsanlegt að sumt af þvi verði selt
áfram.
Alvarlegast er þó þegar verið er að
selja heimaslátrað kjöt á svarta-
markaðnum. „Það er auðvitað
hneyksli ef menn eru að selja kjöt
af fé sem slátrað er við réttarvegg-
inn,“ sagði Guðmundur. Erfitt hefur
þó reynst að uppræta þessa sölu sem
mun hafa aukist mjög eftir að kvóta-
kerfi var tekið upp í landbúnaðinum.
-SMJ
Þessi kona, sem kom á kjörstað í Reykjavík á fyrsta degi atkvæðagreiðslunn-
ar um hundahald i borginni, hefur sennilega ekki kosið gegn hunda-
haldi. Kjörsókn hefur verið dræm en kjördeildir, sem eru alls 8, verða
opnar fram á sunnudag. DV-mynd GVA
Sigurður Sigurðarson dýralæknir:
Niðurskurðarfé
selt á milli bæja
Að sögn Sigurðar Sigurðarsonar,
dýralæknis bjá Sauöfjárveikivörn-
um, mun vera eitthvað um að það
sé verið að skipta fé á milli bæja í
tengslum við fækkunarsamninga.
Þá eru yngri kindur seldar í burtu
en gamlar kindur koma í staöinn
og er þeim fargað eins og þær væru
niðurskurðarkindurnar. Sagði Sig-
urður að þetta yrði til þess að þetta
fé dreifðist á milli bæja sem vita-
skuld stefndi markmiði niöur-
skurðaraðgerðanna í hættu.
„Þetta er afleitt þvi þegar fluttar
eru fullorðnar kindur á milli bæja
er meiri hætta á að þær lendi á
flakki og það hlýtur að stríða gegn
þessum aðgerðum sem verið er að
fara út í með ærnum kostnaði og
eru viðkvæmar gagnvart mörg-
umsagöi Sigurður. Hann sagði
að þetta gæti valdið ákveðinni
hættu á útbreiöslu smitsjúkdóma
svo sem riðuveiki.
Þá sagöi Sigurður að tilvik sem
þessi væru nú í skoðun á riðuveiki-
svæðunum fyrir norðan. Sagði Sig-
urður að svo gæti farið að ógilda
þyrfti niðurskuröarsamninga. „Ef
menn eru að brjóta reglur með
á sunnudag. DV-mynd GVA menn eru að brjóta
RGERAST VARLA GLÆSILEGRI
þessu nær auðvitaö engri átt að
vera að borga mönnum bætur úr
ríkissjóði eftir svona framkomu.“
Eins og greint hefur verið frá hér
áður í DV þá hefur eitthvað borið
á því aö lömbum frá riðuveikibæj-
um flölgi þegar til slátrunar kem-
ur. Erfitt er þó að sjá fyrir stærðir
í þvi sambandi. Hjá Kjartani Blönd-
al hjá Sauðflárveikivömum feng-
ust þær upplýsingar aö í ár verða
keypt 25.000 til 30.000 ærgildi til
niðurskurðar vegna riðuveiki. Em
það þá ær sem verða urðaðar. Mun
þetta vera svipuð tala og í fyrra.
Varðandi greiðslur fyrir kindur
sem em urðaðar eru tveir valkost-
ir. Annars vegar að fá greitt fyrir
24 kg fallþunga í flokknum F 1.
Flestir bændur tóku þennan kost
sem gefur 4.469,47 kr. fyrir kind.
Hinn kosturinn er aö fá greitt eftir
'rigt og flokki.
Lambainnlegg frá þessum bæjum
er hins vegar stærð sem enginn
virðist vita hver er en bændur fá
fullt verð fyrir öll þau lömb sem
þeir leggja inn gegn framvísun full-
virðisréttar síns.
-SMJ
joli Gourmet, stálpottarnir trönsku Jrá
AUBEC0. eru tvimælalaust með þvi glæsi-
rtB messmflhöldun' og bo,m
sem leiðir hitann ákaflega vek
ftokmii « notuvMrtill som h«9< « oi
AUBEM-J0U Gouimet pottamit eiu i
hemugmn stæiöum á hellui “0m ootaöat
5,-“b..oi.g
•aiks hitanýtm. ,itra.
Pottarmr fast 1,6, 3,1, o,* 9
2 stærðir af skaftpottum 09 2 stærðir
pönnum.
srSit. - SI.0. - *.4
Dæmi'um ve.6: '■« !lt,1‘k, «f
3.1 litra a kr. 3600-
5.2 litra á kr. 4500.
Fáðu þér AUBEC0 potta 09 þú getur verið
stolt af þeim um langa framtiö.