Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1988, Blaðsíða 8
8
MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 1988.
Viðskipti______________________________________dv
Kaupmannahöfn:
TVeir íslendingar að leggja
undir sig heim neonljósanna?
- á leið með sölusamninga um víða veröld
Ævintýrið hófst á íslandi. Þar
kviknaði hugmyndin. En allar ís-
lenskar peningastofnanir skelltu
hurðum á hugmyndina sem átti að
slá gamla, góða neonljósið út af
markaðnum með nýrri gerö ljósa-
skilta. Þorgeir Daníel Hjaltason, upp-
hafsmaðurinn að ævintýrinu, sá þá
ekki annan kost en að flytja út.
Skömmu síðar kom Guðni Erlends-
son til Uðs við hann. Svíþjóð varð
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóðsbækurób. 5-9 Lb.Úb,- Bb
Sparireikningar
3jamán. uppsogn 9-10 Lb.Úb,- Sp
6mán. uppsögn 10-11 Vb.Ab,- Sp
12mán. uppsögn 11-13 Ab
18mán. uppsögn 17 lb
Tékkareikningar, alm. 2-4 Ab
Sértékkareikningar 5-10 Ab
Innlán verðtryggð Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 2 Allir
nema
Lb og Úb
6mán. uppsögn 4 Vb.Sb,- Ab
Innlánmeðsérkjörum 11-20 Lb
Innlángengistryggð
Bandarikjadalir 7,25-8 Vb.Ab
Sterlingspund 9,75-10,50 Vb.Ab
Vestur-þýsk mörk 4-4,50 Vb.Sp,- Ab
Danskarkrónur 7,50-8,50 Vb.Ab
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlán óverðtryggð
Almennirvíxlar(forv.) 19-20,5 Sb.Sp
Viðskiptavixlar(forv.)(1) kaupgengi
Almennskuldabréf 19,5-25 Vb
Viöskiptaskuldabréf (1) kaupgengi Allir
. Hlaupareikningar(vfirdr.) 22-25 Lb.Sb
Utlán verðtryggð
. Skuldabréf 8-9,25 Vb
Utlán til framleiðslu
ísl. krónur 23-34 Lb
SDR 9-9,75 Lb,Úb,- Sp
Bandaríkjadalir 10,25-11 Úb.Sp
Sterlingspund 12,75- 13,50 Úb.Sp
Vestur-þýskmörk 7-7,50 Allir nema
Húsnæðislán 3.5
Lifeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 33,6 2,8 á mán.
MEÐALVEXTIR
óverðtr. okt. 88 25,0
Verðtr. okt. 88 9,1
VÍSITÖLUR
Lánskjaravísitala okt. 2264 stig
Byggingavísitala okt. 398stig
Byggingavísitala okt. 124,5stig
Húsaleiguvísitala Engin hækkun 1. okt. Veröstoövun
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóða
Einingabréf 1 3,285
Einingabréf 2 1,880
Einingabréf 3 2,128
Fjölþjóðabréf 1,268
Gengisbréf 1,557
Kjarabréf 3,333
Lífeyrisbréf 1.651
Markbréf 1,756
Skyndibréf 1,025
Sjóðsbréf 1 1,604
Sjóðsbréf 2 1,385
Sjóðsbréf 3 1,143
Tekjubréf 1,554
HLUTABREF
Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.:
Almennar tryggingar 118 kr.
Eimskip 346 kr.
Flugleiðir 273 kr.
Hampiöjan 130 kr.
Iðnaðarbankinn 172 kr.
Skagstrendingur hf. 160 kr.
Verslunarbankinn 134 kr.
Tollvörugeymslan hf. 100 kr.
(1) Við kaup á viðskiptavlxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðað við sérstakt kaupgengi,
kge. Búnaðarbanki og Samvinnubanki
kaupa viðskiptavixla gegn 31% ársvöxt-
um og nokkrir sparisj. 30,5%.
Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bb= Búnaðarbankinn, lb = lðnaðar-
bankinn, Lb= Landsbankinn, Sb =
Samvinnubankinn, Úb= Útvegsbankinn,
Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóð-
irnir.
Nánari upplýsingar um peningamarkað-
Inn blrtast f DV á fimmtudögum.
fyrst fyrir vahnu. Þaðan lá leiðin til
Noregs og loks til Danmerkur. Nú
eru þeir að komast á beinu brautina
eftir að nýju skiltin, sem þeir kynntu
snemma í vor, hafa verið seld á Norð-
urlöndunum, Englandi og Þýska-
landi. Síðast en ekki síst eru þeir fé-
lagar orönir hluthafar í bandarísku
fyrirtæki sem annast dreifmguna og
framleiðsluna þar. Hugmyndin er
íslensk og íslendingarnir Þorgeir
Þorgeir Daniel Hjaltason, 34 ára,
annar höfunda ævintýrisins um að
neonskilti heimsborganna byggist á
islenskri hugmynd í framtíðinni.
Daníel Hjaltason og Guðni Erlends-
son hafa einkaleyfi á henni.
„Tæknin byggist á því að í stað
neonljósa erum við með fiúrskilti
sem búið er að fræsa í vörumerki eða
stafi og það lýsist síðan skemmtilega
upp með útfjólubláu ljósi. Ljósið er á
bak við skiltið, inni í kassa,“ sagði
Þorgeir Daníel Hjaltason er DV hafði
samband við hann í gær til Kaup-
mannahafnar þar sem þeir Guðni
eru með fyrirtæki sitt, Visual Mar-
keting.
Fyrirtækið heitir Visual Mar-
keting - framleiðslan Neox
Visual Marketing hefur fengiö dá-
góða umfjöllun í dönskum blöðum.
Þar virðist það samdóma áht aö
gamla neonljósið heyri brátt fortíð-
inni til vegna íslensku hugmyndar-
innar. Þeir Þorgeir Daníel og Guðni
nefna framleiðslu sína Neox.
Báöir eru þeir ungir að árum. Þor-
geir Daníel er 34 ára og Guðni er 38
ára. Guðni er líklegast þekktastur á
íslandi fyrir það að hafa stofnað
matsölustaðinn Hornið í Hafnar-
stræti. Þorgeir Daníel rak um tíma
skíðadeild Fálkans, skíðaskálann í
Skálafelli og þá rak hann fyrirtæki í
Kópavogi sem hét Trölli og fram-
leiddi Trölla-samlokur.
„Við stofnuðum fyrirtæki á íslandi
í kringum árið 1984. Við hugsuðum
öðruvísi. Við hönnuðum tölvufræs-
ara í Vestmannaeyjum í kringum
hugmyndina. Þetta var dæmigert
þróunarverkefni. Við reyndum að fá
styrk en fengum engan. Ekki tókst
heldur að fá lán í bönkum. Niður-
staðan var einfóld. Þaö varð að halda
til útlanda og reyna að framkvæma
hugmyndina þar,“ segir Þorgeir
Daníel.
Svíinn kveikti á hugmyndinni
Að sögn Þorgeirs kveikti Svíinn
fljótt á hugmyndinni. „Þar fengust
bæöi bankalán og þróunarlán. Síðan
höfum við stöðugt verið að þróa og
endurbæta hugmyndina. Við vorum
í Noregi í tvö ár og stofnuðum fyrir-
tækið Zign-light og fengum til liðs
við okkur peningamenn. Farið var
út í að markaðssetja þau skilti sem
við bjuggum þá til. En svo gerðist það
að upp kom ósætti á milli okkar og
þeirra sem höfðu fjárfest í fyrirtæk-
inu. Þeir byrjuðu eiginlega að éta
okkur upp. Þá hættum við og í fyrra-
vor fluttum við báðir til Danmerkur.
Þar fengum við bankalán til að þróa
þá hugmynd sem við höfðum fengið
í Noregi en náðum ekki að koma í
gegn í Zign-light fyrirtækinu. Það tók
okkur 9 mánuði að koma með nýju
línuna sem er sú sem ætlar að slá í
gegn. Þetta var í mars síðastliðnum.
Nýja línan felst í því að við erum
með upplýsta stafi - við felum ljósið
á bak við flúrplastið.“
Markaðssetning fyrirtækis þeirra
félaga, Visual Marketing, er komin á
fullt skrið. Þeir hafa selt skilti á
Norðurlöndunum, Englandi, Belgíu
og Bandaríkin eru að opnast.
„Við höfum gert samning við
Bandaríkjamenn. Stofnað var fyrir-
tækið Right Light í Bandaríkjunum.
Við eigum 40 prósent í því. Þetta fyr-
irtæki hefur svokallað framleiðslu-
leyfi í Bandaríkjunum en við hjá
Visual Marketing fáum prósentur af
allri sölu þar, auk hagnaöar sem
Right Light kann að skila af sér.“
Risafyrirtækið Waist Manage-
ment að koma inn í dæmið
Að sögn Þorgeirs Daníels er verið
að undirbúa stofnun heimsmarkaðs-
fyrirtækis fyrir hugmyndina. „Það
er bandaríska stórfyrirtækið Waist
Management, sem er eitt af 500
stærstu fyrirtækjunum í Bandaríkj-
unum meö um 2ja milljarða dollara
veltu á ári, sem hyggst koma inn í
dæmið. Fyrirhugað er að fyrrum
markaðsstjóri IBM-fyrirtækisins
verði í eldlínunni í þessu fyrirtæki.
Markaöurinn, sem reyna á aö vinna,
er ekki síst í Asíu.“
Á meðal stórfyrirtækja, sem pant-
að hafa skilti samkvæmt Neox-lín-
unni, eru Carlsberg og Tuborg í Dan-
mörku, Telefunken í Þýskalandi,
Ecco, Pepsi, Faxe, Baccardi og Ikea.
Þá er fjöldinn allur af smáfyrirtækj-
um að gera samninga um kaup á
skiltum.
Right Light fyrirtækið í Bandaríkj-
unum hefur þegar kynnt skiltin fyrir
Coca-Cola og Budweiser. Þar er verið
að ræða um kaup á þúsundum skilta
sem fari inn á alla McDonalds ham-
borgarastaði. Enn hefur ekki veriö
gengið frá samningum í þessum efn-
um.
Sviti og strit að baki
„Síðustu ár hafa verið erfið hjá
okkur. Það hefur kostað mikið fé að
þróa og hanna Neox-hugmyndina.
Við höfum barist við að greiða þenn-
an kostnað til baka. En nú erum við
loksins farnir að sjá fram á betri tíö
og að erfiði síðustu ára skili ár-
angri,“ segir Þorgeir Daníel Hjalta-
son.
-JGH
Ver0bréfaþing
Islands
- kauptilboö vikunnar
FSS = Fjárfestingarsjóður Slátur-
félags Suðurlands, GL = Glitnir,
IB = Iðnaðarbankinn, Lind = Fjár-
mögnunarfyrirtækið Lind, SIS =
Samband íslenskra samvinnufé-
laga, SP = Spariskírteini ríkissjóðs
Hæsta kaupverð
Einkenni Kr. Vextir
FSS1985/1 14440 104
GL1986/1 156 60 11.1
GL1986/291 11706 10.7
GL1986/292 105.84 10-6
IB1985/3 174.07 8.7
IB1986/1 15652 89
LB1986/1 122.21 9-1
LB1987/1 11931 89
LB1987/3 11171 90
LB1987/5 10711 89
LB1987/6 12609 10.0
LB:SIS85/2A 187-09 12.0
LB:SIS85/2B 16546 11.0
UN«1986/1 13848 11,1
LYSING1987/1 11228 114
SIS1985/1 24619 11.7
SIS1987/1 15590 11.0
SP1975/1 1240222 93
SP1975/2 929061 9.3
SP1976/1 8681 78 9.3
SP1976/2 6824-04 94
SP1977/1 617722 93
SP1977/2 505741 9.2
SP1978/1 4188-27 9-3
SP1978/2 3230.90 9.2
SP1979/1 2812-27 93
SP1979/2 2100.91 9-3
SP1980/1 189998 9-3
SP1981/1 1261.89 9-3
SP1981/2 905.13 9.3
SP1982/1 86813 9.3
SP1982/2 62966 9.2
SP1983/1 50438 9.3
SP1983/2 33845 9-3
SP1984/1 33395 94
SP1984/2 333-95 94
SP1984/3 32683 94
SP1984/S»« 30442 94
SP1985/1A 28957 94
SP1985/1 SO« 215-91 9.2
SP1985/2A 22397 93
SP1985/2SOK 19044 9.0
SP1986/1 A3A« 19960 93
SP1986/1 A4A« 20695 92
SP1986/1 A6A« 21271 87
SP1986/1« 16969 92
SP1986/2A4AR 17863 9.1
SP1986/2A6AR 180.93 8.6
SP1987/1 A2A« 161,07 93
SP1987/2A6AK 13356 84
SP1987/202AK 142.06 94
SP1988/1Ð2AK 126.70 91
SP1988/1 «3AR 12594 92
SP1988/203AK 10M6 90
SP1988/205AK 9965 84
SP1988/208AK 9778 7.8
Taflan sýnirverð pr. 100kr. nafn-
verðs og hagstæðustu raunávöxt-
un kaupenda í % á ári miðað við
viðskipti 24.10.'88. Ekki er tekið
tillittil þóknunar.
Viðskipti á Veröbréfaþingi fara
fram hjá eftirtöldum þingaðilum:
Fjárfestingarfélagi Islands hf.,
Kaupþingi hf., Landsbanka Is-
lands, Samvinnubanka Islands
hf., Sparisjóði Hafnarfjarðar,
Sparisjóði Reykjavíkur og ná-
grennis, Útvegsbanka Islands hf.,
Verðbréfamarkaði Iðnaðarbank-
ans hf. og Verslunarbanka Islands
hf.
Munurinn á Neox og Neon. Ljósið er á bak við i Neox og lýsir upp merkið
sem fræst hefur verið í flúrskilti. Hugmyndin er einföld og stafir miklu ná-
kvæmari en í Neonskiltum þar sem stafirnir eru búnir til úr neonrörum.
Framleiðslustjórinn, Guðni Erlendsson, til vinstri, og Bandaríkjamaðurinn
sem stendur á bak við fyrirtækið Right-light í Bandaríkjunum sem hefur
framleiðsluréttinn þar.