Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1988, Page 10
10
MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 1988.
Útlönd
Órói í ísrael
Svona sér
teiknarinn Lurie kosningabaráttuna i Israel.
Sauveur Pironti sýnir vottorö um
herþjónustu sína í gærkvöldi. Hann
var kvaddur í herinn 1963 þegar
Kennedy var myrtur. Eftir því sem
fram kemur í breskum sjónvarps-
þætti á hann að hafa verið einn af
þremur frönskum leigumoröingjum
sem myrtu Kennedy forseta.
Sfmamynd Reuter
Lucien Sarti, Frakki sem lést árið
1972. Hann á að hafa verið einn
ieigumorðingjanna.
Símamynd Reuter
Christian David sem samkvæmt
upplýsingum í breskum sjónvarps-
þætti á að hafa verið beðinn um að
myrða Kennedy Bandarikjaforseta.
Símamynd Reuter
Nú er aðeins tæp vika til kosninga í ísrael og enn er kosningabaráttan
í jámum, ekki má á milli sjá hvor stjórnarflokkurinn er sigurstranglegri.
í gær var órólegt á Gaza-svæðinu og ísraelskir hermenn skutu unglings-
stúlku til bana og særðu fimmtán Palestínumenn, en mjög órólegt var á
svæðinu í gær.
Útgöngubann hert á Sri Lanka
Mótmælendur eru hér fyrlr utan kvikmyndahúsiö sem hefttrúarmenn
báru eld að siðastliðlnn laugardag. Mótmælendumir kröfðust tjáningar-
frelsls og fordæmdu ikvelkjuna. Verið var að sýna mynd Martins Scorc-
ese, Siðasta frelstlng Krlsts, þegar kveikt var I.
Sfmamynd Reuter
Lögregla í París handtók i gær fjömtíu öfgasinnaða hægrimenn fyrir að
kveikja í kvikmyndahúsi sem var aö sýna hina umdeildu mynd Martins
Scorcese, Siðasta freisting Krists.
Þrettán manns meiddust þegar eldur braust út í kvikmyndahúsinu, sem
er á vútstri bakka Signu, síðastliðið laugardagskvöld. Sumir eru enn í
lífchættu. Reuter
Lögreglumenn stöðva hér hjólreiðamann f Kólombó á Sri Lanka, meðan
á útgöngubanni stóð i gær. Símamynd Reuter
Yíirvöld á Sri Lanka hertu í gær útgöngubann á eyjunni og fjölguöu
stöðum þar sem útgöngubann gildir. Gefin var út yfirlýsing um að þeir
sem ekki viröa bannið eigi það á hættu að vera skotnir á feeri.
Mikill órói hefur verið í landinu að undanfómu og hefur stjómin átt í
höggi við marxíska skæruliða.
TVeSr leiðtogar Albana reknir
Tveir leiðtogar Albana í Kosovo vom reknir í gær að því er virðist í
tilraun yfirvalda þar til að minnka spennu í samskiptum viö Serbíu.
Herskáir Serbar vom hins vegar ekki ánægðir og kröföust þess aö skipt
yröi um forystu í héraðinu.
Héraösþingið rak í gær Abdula Hodza og Danilo Vasic af heilsufars-
ástæðum og vegna nauðsynjar á þvi aö fá nýtt blóð. Þeir vom báöir hand-
hafar forsetavalds í héraöinu.
Sérfræðingar telja aö þetta geti dregið úr spennu um stundarsakir að
minnsta kosti.
Var Kennedy myrtur
af frönskum
leigumorðingjum?
Valgerður A. Johaiinsdóttir, DV, Londorr
Lee Harvey Oswald myrti ekki
John F. Kennedy Bandaríkjaforseta
heldur þrír franskir leigumoröingj-
ar, leigðir til verksins af mafíósum í
Bandaríkjunum. Tveir morðingj-
anna em enn á lífi. Samsæri hátt-
settra manna í bandarísku stjórn-
kerfi kom í veg fyrir aö sannleikur-
inn um morðið á Kennedy kæmi í
ljós.
Þetta var niðurstaða áhrifamikils
sjónvarpsþáttar sem sýndur var á
ITV stööinni í gærkvöldi. í þættinum
komu fram ýmsar áður óbirtar sann-
anir og einnig voru viðtöl við sjónar-
votta sem aldrei hafa borið vitni áð-
ur. Ennfremur var sýnt viðtal við
franskan eiturlyfjasmyglara sem
sagði það á allra vitorði í franska
glæpaheiminum að Kennedy hefði
verið myrtur af þremur leigumorð-
ingjum úr Korsíkumafíunni á
Frakklandi.
í þættinum var sýnd mynd sem
bandarísk kona tók sekúndubroti
eftir að forsetinn var skotinn. Með
nýjustu tækni við myndgreiningu
má sjá útlínur tveggja manna og
virðist annar klæddur einhvers kon-
ar einkennisbúningi. Mennirnir
voru á bílastæði hægra megin og
framan viö bílalest forsetans.
Sjónvarpsþátturinn var byggður á
vinnu bandarísks rithöfundar sem
unnið hefur linnulaust aö rannsókn
málsins síðasthðin fjögur ár. Hann
skýrði frá því að franskur glæpamað-
ur, sem nú er í fangelsi fyrir morð á
lögreglumanni, hefði lýst fyrir hon-
um hvernig staðið hefði verið að
morðinu. Þeim franska hafði verið
boðinn samningur um að myrða for-
setann en talið of hættulegt að taka
að sér verkið. Hann þekkir hins veg-
ar þá sem myrtu forsetann og hefur
vitneskju sína frá þeim en neitar að
bera vitni af ótta við hefndaraðgerð-
ir,
í ár eru tuttugu og fimm ár frá því
að Kennedy var myrtur en allar göt-
ur síðan hafa verið uppi efasemdir
um að allt hafi verið sem sýndist í
sambandi við morðið á forsetanum.
Svokölluð Warrennefnd, sem rann-
sakaði morðið, komst að þeirri nið-
urstöðu að Lee Harvey Oswald væri
morðinginn og að hann hefði verið
einn að verki. Oswald var sagður
hafa skotið þremur risaskotum; eitt
skotiö hafi hitt ríkisstjórann, sem sat
fyrir framan Kennedy í bílnum, ann-
að forsetann í bakið og hið þriðja,
banaskotiö, forsetann í hnakkann.
Þetta þýddi að Oswald, sem sagður
var léleg skytta, hefði skotið þremur
riffilskotum á sjö sekúndum. Sér-
fræöingar segja hins vegar að slíkt
sé ekki einu sinni á færi snjöllustu
byssumanna en Warrennefndin
horfði fram hjá þessu, sem og fram-
buröi fimmtíu sjónarvotta sem sögðu
að skotið hefði komið hægra megin
að framan við forsetann.
Eftir opinbera krufningu var birt
mynd af höíði forsetans sem sýndi
pínulítið kúlugat í hnakka hans.
Sannað þykir hins vegar að myndin
hafi verið fölsuð og að átt hafi verið
við lík forsetans áður en það var
krufið. Læknar á Parklandsjúkra-
húsinu í Dallas, sem önnuðust forset-
ann eftir árásina, og einn þeirra sem
annaðist krufninguna í Washington
báru að skotið, sem drap Kennedy,
hefði tætt í sundur höfuð hans og að
sárið hefði komiö heim og saman við
að hann hefði verið skotinn framan
frá.
í þættinum var einnig sýnt fram á
tengsl milli Rugby, sem drap Oswald
sólarhring eftir morðið á Kennedy,
og bandarísku mafíunnar.
í þættinum var skýrt frá því að
sannanir hefðu verið lagðar fyrir
bandarísku alríkislögregluna, FBI,
fyrir ári en að ekkert hefði verið að
gert. Tveir franskir mafíósar, sem
sagðir eru hafa myrt Bandaríkjafor-
seta, lifa því enn góðu lífi í Marseille
í Frakklandi.
Kohl hittir Sovétþjóðverja í dag
Helmut Kohl, kanslari Vestur-
Þýskalands, ætlar í dag að hitta full-
trúa þeirra Sovétmanna sem eru af
þýsku bergi brotnir og hlusta á um-
kvörtunarefni þeirra.
Þetta er síðasti dagur heimsóknar
Kohl tíl Sovétríkjanna og hann ætlar
að halda fund í vestur-þýska sendi-
ráðinu með fulltrúum þýska minni-
hlutans í Sovétríkjunum, sem voru
reknir frá heimilum sínum á Volgu-
bökkum í seinni heimsstyrjöld vegna
ásakana um aðstoð við nasista.
Meöal þess sem búist er við að verði
rætt á fundinum eru kröfur þeirra
um að þeim varði aftur leyft að fara
til heimkynna sinna á Volgubökkum,
kröfur um trúarfrelsi og einnig um
tilslökun á reglum um brottflutning
þeirra frá Sovétríkjunum.
Um það bil tvær milljónir Sovét-
þjóðverja eru nú dreifðir um Sovét-
ríkin. Þetta eru aíkomendur fólks
sem settist að á bökkum Volgu fyrir
tvö hundruð árum.
Flutningur þessa fólks til Vestur-
Þýskalands hefur aukist mjög að
sögn Gennady Gerasimovs, tals-
manni sovéska utanríkisráðuneytis-
ins, í gær. Hann sagði að tuttugu og
þrjú þúsund manns af þýskum upp-
runa hefðu yfirgefið landið á þessu
ári, samanborið viö samtals sjötíu
og flögur þúsund á árunum 1964-84.
Á mánudag hét Gorbatsjov Sovét-
leiðtogi því að leysa vanda þessa
fólks, en varaði Kohl við því að
blanda sér í það mál.
Reuter
Helmut Kohl heilsar hér lerðamönn-
um á Rauða torginu í Moskvu i gær.
Símamynd Reuter