Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1988, Page 18
18
MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 1988.
Sviðsljós
Ólyginn
sagði...
Emma
Samms
- sem leikur í Dynasty - er lítiö
hrifin af músum. Um daginn,
þegar hún var aö koma heim til
sín, sá hún þrjár mýs á grasflöt-
inni fyrir utan húsiö sitt. Þegar
sambýlismaður hennar kom
heim klukkustundu síöar fann
hann sína heittelskuöu uppi í tré
nær vitstola af hræðslu. Þrátt
fyrir aö hann fullvissaði hana um
að skepnurnar væru farnar tók
það heilan hálftíma að fá hana til
aö koma niður.
Jane
Wyman
- sem leikur Angelu í Falcon
Crest, auk þess að vera fyrrver-
andi tilvonandi forsetafrú Banda-
ríkjanna - lenti í dýrum hádegis-
mat nýlega. Hún var í hádegis-
verðarboði hjá vinkonu sinni
þegar sú síðamefnda minntist á
aö hún ætlaði að fara að selja
húsið sitt. Jane ákvaö strax að
kaupa húsið og lét umboðsmann-
inn sinn fara í gang með að út-
vega eitt hundrað milljónir í
reiðufé. Það er sennilega alveg
rétt sem Milton Friedman segir
aö það er ekki til neitt sem heitir
ókeypis hádegismatur.
Ron
Woods
í Rolling Stones hefur nú haslað
sér völl á nýju listasviði. Hann
hefur tekiö til við að mála og hef-
ur málaö myndir af frægu fólki
úr tónlistariðnaðinum sem renna
út eins og heitar lummur hjá gall-
eríi einu í London.
Hér eru þau samankomin ásamt Kristni Sigmundssyni, sem syngur djöfulinn i sýningunni nú, Guðmundur Guðjónsson, Svala Nielsen, Guðmundur Jóns-
son og Þuríður Pálsdóttir. Þau sungu öll í uppfærslu Þjóðleikhússins árið 1965 þegar Ævintýri Hoffmanns var sett upp.
Signý Sæmundsdóttir hefur tekið við hlutverki því sem Þuriður Pálsdóttir
fór með á sjöunda áratugnum.
Þórhildur Þorleifsdóttir, leikstjóri verksins, og Egill Ólafsson söngvari ræð-
ast við.
Gisli Alfreðsson heilsar hér Nikolai Dragan sem gerði leikmyndina i Ævin-
týri Hoffmanns í Þjóðleikhúsinu.
Glatt á hjalla
í Þjóðleik-
húsinu
Þjóðleikhúsið frumsýndi á föstu-
dagskvöld Ævintýri Hoffmanns í
samvinnu við íslensku óperuna.
Þetta er viðamesta sýning Þjóðleik-
hússins til þessa dags og í henni taka
þátt fimmtán einsöngvarar, sextíu
manna kór, á fimmta tug hljóðfæra-
leikara og sex listdansarar. Sem
dæmi um umfang sýningarinnar má
nefna aö um þrjú hundruð leikbún-
ingar eru notaðir á sviðinu.
Þaö er Þórhildur Þorleifsdóttir sem
hefur leikstýrt þessu verki en leik-
myndina geröi Nikolai Dragan frá
Rúmeníu. Leikbúningahöfundur er
Alexander Vassiliev frá Sovétríkjun-
um. Hann hefur áöur starfað fyrir
Þjóðleikhúsið en hann gerði búninga
fyrir Villihunang Tsjékhovs fyrir
tveimur árum.
Frumsýningunni var tekiö mjög
vel af áhorfendum og að sjálfsögðu
var haldið hanastél í tilefni hennar.
Magnús Jónsson söng Hoffmann í
fyrri uppfærslu Þjóðleikhússins á
verkinu en að þessu sinni er það
Garðar Cortes sem fer með það
hlutverk.
Það var Guðmundur Jónsson sem lék djöfulinn í fyrri uppfærslunni. Nú er
það Kristinn Sigmundsson sem tekur sig vel út í því gervi.