Dagblaðið Vísir - DV - 26.10.1988, Síða 34
34
MIÐVIKUDAGUR 26. OKTÓBER 1988.
Lífestm
Eiturefnið
PCB
Tífalt meira 1 innfluttum kræklingi
Full ástæöa er til þess aö ætla aö
innfluttur kræklingur innihaldi allt
að tíu sinnum meira magn af eitur-
efninu PCB en greindist í kræklinga-
sýnum við Austfirði fyrir skömmu.
í sýnum, teknum viö Austfiröi ný-
lega, greindust 0,002 mg af PCB í
hverju kílói af kræklingi. Leyfileg
hættumörk í Svíþjóö og Finnlandi
eru talin vera 2 mg í kílói. Talsvert
er flutt til landsins af krækhngi sem
er ræktaður við strendur Danmerk-
ur. Á þeim slóöum er sjórinn talsvert
mengaöri en íslendingar eiga aö
venjast. Strangt eftirlit er haft með
útflutningi en ætla má að PCB inni-
hald í innfluttum kræklingi sé oft um
0,02 mg í kílói eöa tífalt það sem
greindist í íslenskum sýnum.
Að sögn Halldórs Runólfssonar,
deildarstjóra hjá Hollustuvernd rík-
isins, er full ástæða til þess aö gera
víðtækari rannsóknir á útbreiöslu
eiturefnisins PCB hér viö land. Slík-
ar rannsóknir eru mjög kostnaðar-
samar. Greining á hverju sýni getur
kostað allt aö 60 þúsund krónum
sænskum. Heildarrannsókn á út-
breiðslu efnisins við strendur íslands
yrði því ntjög dýr.
PCB hefur fram að þessu einkum
verið notað í rafmagnsiðnaði í
spennubreyta og í kæliolíu. Verið er
að kanna útbreiðslu þess í heiminum
og virðist vera einhver grunnmeng-
un af efninu mjög víða um heim.
Efnið er krabbameinsvaldandi. Það
berst eftir fæðukeðjunni í sjónum frá
þörungum til fiska og safnast fyrir í
þeim sem eru á enda keðjunnar, t.d.
selum .og mönnum. Einnig er talið
að það geti borist milli staða í lofti.
-Pá
Óhætt er að reikna með að innfluttur kræklingur í dósum innihaldi allt að tíu sinnum meira magn af eiturefninu
PCB en greindist nýlega í íslenskum kræklingi við strendur Austfjarða.
DV-mynd KAE
Odýrt í október
„Það er gifurleg samkeppni í mat-
vöruverslun, það er enginn vafi á
því,“ sagði Jón Sigurðsson, kaup-
maður í Straumnesi, í samtah viö
DV. „En gott og hlýlegt viðmót er
sterkur grundvöllur fyrir hverfis-
búðirnar til þess að keppa við stór-
markaðina.“
Þessa dagana er í gangi sérstakt
októbertilboð í versluninni Straum-
nesi í Breiðholti. Á auglýsingablaði,
sem verslunin hefur dreift í Breið-
holti, er bent á verð á kartöflum sem
kosta 69 kr. kg. Hálft kíló af Java
kaffi kostar 158 krónur og 2 kg af
strásykri kosta 62 krónur.
Einnig er fólki gefinn kostur á 5%
staðgreiðsluafslætti að auki gegn
framvísun auglýsingaseðilsins sé
verslað fyrir meira en 1000 krónur.
-Pá
Verðlagsstofnun kannaði 11. októ-
ber verð á bílaþvotti hjá 12 þvotta-
stöðvum á höfuðborgarsvæðinu.
Átta af stöövunum annast alhliða
þrif, handþvott og bón að utan og
hreinsun að innan. Fjórar stöðvar
eru með vélþvott og -bónun að utan-
verðu.
Handþvottur og -bónun að utan og
þrif að innan á litlum fólksbhum
kostar frá 1.700-2.000 krónur. Þama
munar 17,6% á hæsta og lægsta
verði.
Þessi þjónusta fyrir stóra fólksbha
kostar frá 1.900-2.500 krónur. Mun-
urinn er 31,6%. Sama hreinsun á htl-
um jeppa kostar 1.900-2.600 sem er
36,8% munur.
Vélþvottur er ódýrastur hjá KIöpp
við Skúlagötu, 490 krónur. Dýrast er
þetta hjá Bón- og þvottastöðinni, Sig-
túni, en þar kostar það 675-790 krón-
ur. Munurinn er 38-61%.
Það er þvi ljóst að það getur borgað
sig að gera samanburð á verði þess-
arar þjónustu áður en hún er keypt
en Verðlagsstofnun leggur ekkert
mat á gæði þjónustunnar.
-Pá
Innflytjendur
Verslunareigendur
Til leigu í glæsilegum sýningarsal pláss (básar) á
jólamarkaði er haldinn verður frá 20. nóv. til 20.
des. Uppl. í símum 674290 og 46844.
TILSÖLU EÐA LEIGU
DUGGUVOGUR 13-15
Jarðhæð við Kænuvog, 340 fm stórt malbikað port,
2 innkeyrsludyr, þar af 130 fm með 6 metra lofthæð.
Jarðhæð við Dugguvog, 230 fm innkeyrsludyr, vöru-
lyfta á milli hæða, 2. hæð, 115 fm, hentar fyrir skrif-
stofur eða íbúð.
Upplýsingar í síma 688888.
Krabbameinsrann-
sóknir - ógnar
umhverfið okkur?
Að undanfómu hefur PCB meng-
un valdið mönnum áhyggjum. Vit-
að var um hættuna af -PCB fyrir
nokkmm ámm og hvemig það
kemst út í umhyerfiö. Má telja að
PCB mengun á íslandi hafijafnvel
veriö tímaspursmál frekar en hvort
hún yrði eöa ekki. En það er önnur
og meiri hætta sem vert væri að
hta á í tæka tíð.
Er vitað hvaða efni em í hafinu
umhverfis okkur? Er vitað hvaða
magn þarf af þeim th aö valda vem-
legri eða minniháttar mengun af
tilteknum efnasamböndum? Er vit-
að (að einhveiju leyti) hvaöa efnum
hefur veriö hent í hafiö, hvar og í
hve miklu magni? Er vitað hvort
og hver á að kanna þessi mál?
í Bandaríkjunum er töluverð
mengun á okkar mælikvarða. Má
telja vist að við eigum langt í land
með að ná því mengunarmarki. En
hversu hættuleg er sú mengun sem
þar er?
Ekki eins hættuleg og talið
var?
í grein eftir Kristine Napier nær-
ingarfræöing, sem birtist í banda-
rÍ9ku næringarfræðiriti (American
Council of Science & Health’s News
and Views for nov/des 1987) er hart
deht á eyðslu fjármagns til krabba-
meinsrannsókna. Grein þessi hefur
verið notuð af öðrum fagritum til
að vekja umræður um þessi mál
meöal sérfræöinga í Bandaríkjun-
um.
En tökum aöeins þátt í umræö-
unni og hlustum á hvað Kristine
hefur að segja um krabbamein og
umhverfi.
Kristinefær orðið
Árið 1987 eyddi sarabandsstjóm
Bandaríkjanna meira en 2,8 billjón-
um dohara í forvamir. Þessum
Öármunum hefur verið iha varið.
Of miklu hefur veriö eytt í mis-
skhda baráttu gegn umhverfisþátt-
um, sem em minniháttar áhrifa-
valdar á krabbamein. Alltof litlu
var eytt í herferöir sem gátu skilað
árangri.
Umhverfisverndarstofimnin hef-
ur eytt um 2,77 bihjónum $ af 4,88
bihjóna dollara íjárlögum til að
berjast gegn umhverfismengun
sem á að geta valdiö krabbameini.
Helstu niöurstöður krabba-
meinsrannsókna benda til þess að
orsakaþættina sé að fnma í fæöi,
veirtun, kynhegöan, áfengi og ekki
síst reykingum. Mengunarefni í
Neytendur
umhverfi, þar með talin á vinnu-
stöðum, eru talin valda færri en 8%
dauösfalla vegna krabbameins.
Eftir áratuga framþróun á skiln-
ingi manna á sjúkdómsferli
krabbameins fóru vísindamenn að
benda fólki á það hversu lífsstíll
þess gæti verið tengdur orsakaþátt-
um krabbameins. Um 1950 voru
vísindamenn óðum að falla frá
þeim skoðunum að fólk fengi al-
mennt krabbamein af krabba-
meinsvaldandi ethum úr umhverf-
inu.
Á sama tima og faraldsfræöing-
um var að takast að greina meginá-
hættuþætti krabbameinssjúkdóma
komu fram ákveönir áróðursmeist-
arar og héldu uppi þeim kenning-
um að við værum umkringd hafsjó
af krabbameinsvaldandi iðnaðar-
efnum og aö eina von okkar um
björgun væri allsheijarstríð gegn
efnasamböndum, sérstaklega iðn-
aöarefnum.
Það eru engin vísindaleg rök fyr-
ir því að gera þá kröfu að um-
hverfi okkar verði laust við öh
efnasambönd.
Þetta umhverfis-forvarnarstarf
hreinlega svarar ekki kostnaði. Þaö
er heldur engin vistfræðileg rétt-
læting til fyrir þvi að hreinsa öh
efhasambönd, sem eru af manna
völdum, úr umhverfinu. Eyösla á
almannafé til forvarna er í engu
samhengi við þær niðurstööur sera
liggja fyrir.
Til umræðu
í tímariti um þróun í efnaverk-
fræði var þessari grein varpað
fram sem umiæðugrundvelh um
málið. Umhverfismengun er víða
til umræðu eins og áður hefur ver-
ið minnst á. Einnig hefur verið
sýnd fræðslumynd í sjónvarpinu
hérlendis um hauga af iðnaðarúr-
gangi hér og þar um Bandaríkin.
Vitað er að slíkir haugar eru einnig
til í hafinu. Tahð er að þetta séu
eins og tímasprengjur þegar um-
búðimar fara að leka.
Er þá ómögulegt að vita hvað efn-
in gera ein og sér eða í samspili við
önnur efni í náttúrunni?
Hvað varðar ræðu Kristine þá
lýsir hún ástandinu eins og það er
í dag þegar talað er um að 8%
dauðsfaha vegna krabbameins
stafi af umhverfismengún. Við
skulum bara vona aö það hækki
ekki í framtíöinni þó margir telji
að svo muni ófijákvæmilega fara.
Þó að margt sé mjög umdeilt í
ræðu hennar er þar margt athyglis-
vert fyrir margra hluta sakir en
leiöir ósjálfrátt hugann að ástand-
inu hér heima og hversu blessunar-
lega laus við erum við áhyggjur af
þessu tagi (ennþá a.m.k.) þrátt fyrir
þaö að ýmislegt mætti betur fara.
Þó er rétt að vera stöðugt á varð-'
bergi og því nauösynlegt að hugsa
fram í tímann.
Kristine Napier hefur stundað
rannsóknir á hehsufari tengdu
umhverfisþáttum og erfðafræði-
legri eitureftiafræöi.
Ólafur Sigurðsson
matvælafræðingur