Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1988, Side 5
MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 1988.
Fréttir
Dagur og Dagsprent á Akureyri:
Allt starfsfólkið
fékk uppsagnarbréf
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri:
Öllu starfsfólki dagblaösins Dags
og Dagsprents hf. á Akureyri hefur
veriö sagt upp störfum frá og með
1. nóvember en hér er um rúmlega
30 manns að ræöa.
„Við erum aö skoöa reksturinn en
ég reikna meö að allflestir starfs-
menn fyrirtækjanna verði endur-
ráðnir þótt um éinhverja fækkun
geti orðið að ræða,“ sagði Jóhann
Karl Sigurðsson, framkvæmdastjóri
fyrirtækjanna, í samtah við DV.
Hann sagði að reksturinn hefði
verið mjög erfiður að undanfömu.
Dagur hefði haldið nokkuð auglýs-
ingamagni sínu fyrstu mánuði ársins
en að undanfórnu hefði verið um
4-5% samdrátt að ræða og árið í heild
muni sennilega koma út með 2-3%
minnkun auglýsingamagns. Jóhann
sagði að blaðið hefði nokkuð haldið
sínu hvað varðaði áskrifendur.
Jóhann Karl sagði að það myndi
liggja fyrir um næstu mánaðamót
hvernig framhaldið yrði en allur til-
kostnaður viö útgáfu blaðsins hefði
aukist mjög.
Valur Arnþórsson, stjórnarfor-
maður Dags og Dagsprents, sagði í
Degi í gær að erfiðleikar atvinnulífs-
ins útheimtu hagræðingu. Dagur
ætti að sumu leyti við sömu erfið-
leika að stríða og atvinnulífið í heild,
þ.e. að kostnaöur hefði hækkað
meira en tekjur og vaxtakostnaður
væri hár. Hann sagði einnig að hugs-
anlega yrði um endurráðningu
starfsfólksins að ræða meö breyttu
vinnufyrirkomulagi, t.d. væri mjög
þýðingarmikiö að dregið yrði úr yfir-
vinnu eins og hægt væri.
Vantar fímm flotgalla í Engey RE:
Hver galli kostar
um tuttugu þúsund
- segir útgerðarstjórinn
„Astæðan er sú að þetta eina skip
í öllum togaraflotanum er eftir með
svo marga menn. Við eigum tvö eins
skip - á hinu skipinu eru átján menn.
Það stefnir í að það verði átján menn
einnig um borð í Engey. Við keyptum
því ekki fleiri búninga;" sagði út-
gerðarstjóri togarans Engey RE.
Tuttugu og þrír skipverjar eru í
áhöfn skipsins. Um borð eru aðeins
átján flotgahar. Því vantar fimm
gaha um borð í skipiö svo einn gahi
sé fyrir hvern skipveija.
- Er útgerðin ekki að taka áhættu
með þessu?
„Ég veit ekki hvort tekin er ein-
hver áhætta með þessu. Þessir togar-
ar fara ekki niður með manni og
mús. Þetta eru það stór og öflug skip.
Hver galli kostar um 20 þúsund krón-
ur og við kaupum ekki sex galla fyr-
ir einhvern skamman tíma. Fækkun-
in um borð getur orðið þá og þegar.
Þeir eru oft ekki nema tuttugu og
tveir á sjó í einu. Mér hefur heyrst á
Sjómannafélagi Reykjavíkur að það
verði gert í næstu samningum. Það
er að verða liðin tíð að svo margir
menn séu um borð,“ sagði útgeröar-
stjórinn.
-sme
KÆLl' OG FRYSTISKAPUR
Samt. stærö: 275 1.
Frystihólf: 45 I. ★★★★
Hæö: 145 sm.
Breidd: 57 sm.
Dýpt: 60 sm.
Færanlegar hillur í hurð.
Sjálfvirk afþýðing í kæli.
Vinstri eða hægri opnun
Fullkonln viðgerða-
og varahlutaþjónusta.
UMBOÐIÐ AKUREYRI
Helmilis- og raftækjadelld
HEKIA HF
Laugavegi 170-172 Simi 695500
RAFLAND, SUNNUHLIÐ.
02,1 - 90,1 - 92,4 - 93,5
SÍLFUR
Sérlega öflug, næm og góð
útvarpstæki í þremur litum
með FM - LW - MW og
stuttbylgju - tæki sem ekki
bregðast í vinnunni, ferða-
laginu, eldhúsinu, eða hvar
sem er.
IHúer
útvarp
í tísku
Þýsk völundarsmíð.
Verð aðeins 3.568.-
Umboðsmenn um land allt.
• •
STONVARPSMIÐSTOÐIN HF.
J NÚ Á TVEIM STÖÐUM - SÍÐUMÚLA 2, SÍMI 68 90 90, OG LAUGAVEGI 80, SÍMI 62 19 90.