Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1988, Qupperneq 11
MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 1988.
11
DV
Útlönd
Skæruliðar gera
árás í San Salvador
Hermenn i San Salvador standa yfir likum félaga sinna sem féllu i árás
skæruliða í gær. Simamynd Reuter
Vinstri sinnaðir skæruliðar
fleygðu sprengjuvörpum inn í aðal-
stöðvar þjóðvarðliðsins í San Salvad-
or í gærdag. Fjórir hermenn biðu
bana við árásina og að minnsta kosti
þijátíu og sjö særðust. Er þetta fífl-
djarfasta árás skæruliða í höfuðborg
E1 Salvadors í nokkur ár.
Árásin var gerð nokkrum klukku-
stundum eftir að hinn nýi yfirmaður
hersins hafnaði friðarviðræðum við
skæruliða. Mikil ofbeldisöld hefur
ríkt í E1 Salvador undanfarnar vikur
og á mánudag drápu skæruliðar
fjórða borgarstjórann á einum mán-
Uði. Fangar í fangelsi norðan við
höfuðborgina gripu þijá gísla um
svipað leyti.
Skæruliðar hafa undanfarin kvöld
gert árásir í höfuðborginni og þykir
þaö því tíðindum sæta að þeir skyldu
hafa gert árás í gær um hábjartan
dag. Flestir þeirra sem slösuðust í
árásinni í gær voru nýliðar.
Umsjón
Ingibjörg B.
Sveinsdóttir
og
Ólafur Arnarson
Margaret Thatcher, forsætisráðherra Bretlands, er nú sögð vera í vandræð-
um með hvaða afstöðu hún á að taka til lokunar Leninskipasmiðastöðvar-
innar i Pollandi þegar hún kemur þangað í dag. Símamynd Reuter
Thatcher í
vandræðum
Margaret Thatcher, forsætisráð-
herra Bretlands, kemur í opinbera
heimsókn til Póllands í dag. Er þetta
í fyrsta skipti sem breskur forsætis-
ráðherra sækir Pólland heim.
Thatcher gerir ráð fyrir að ræða
við bæði stjómina og forystumenn
Samstöðu, hinna ólöglegu verkalýðs-
samtaka, um efnahagsumbætur og
breytingar í stjórnmálakerfmu.
Áætlað er Thatcher komi til Gdansk
á föstudaginn til viðræðna við Wa-
lesa, leiðtoga Samstöðu. Pólska
stjómin tilkynnti á mánudaginn að
hún hygðist loka Lenínskipasmíöa-
stöðinni í Gdansk þar sem Samstaða
varð til.
Breskir embættismenn segja að
lokun skipasmíðastöðvarinnar valdi
forsætisráðherranum eríiðleikum.
Ef hún fordæmir lokunina getur hún
átt von á ásökunum af hálfu pólsku
stjórnarinnar þar sem um er að ræða
aðgerðir sem eru svipaðar þeim sem
Thatcher framkvæmdi í Bretlandi til
að koma efnahagnum á réttan kjöl.
Ef hún gagnrýnir ekki lokunina gæti
virst sem hún styddi ekki beint kröf-
ur Samstöðu.
Skipasmíðastöðin er tákn andstöðu
pólskra verkamanna. Walesa spáir
því að lokunin muni valda spennu
og deilum.
JggP’ AUK/SlA k586-22
SJONVARPIÐ BROSIR
- enda hefur það forystu.
Sjónvarpsnotkun um landið allt, miðvikudaginn 19. október 1988.
Athyglisverðar upplýsingar fyrir auglýsendur!
Kl. 15 ' 16 17 18 19 20 21 22 23
19:19
Knattspyrna
Stöð 2
Fréttir
Kvendjöfullinn
RUV
Dagatia 17.-19. október katmaði
Félagsvísindastofnun sjónvarpsnotkun
yfir landið allt og ndði hún til fólks á
aldrinum 15-70 ára. Eins og þetta
dœtni utn niðurstöður ber ttieð sér
nýtur SJÓNVARPIÐ yfirburðavin-
sœlda.
SJONVARPIÐ
ekkert rugl