Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1988, Side 13
MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 1988.
Sí
13
Fréttir
Bingó í Eþíópíu
Rauði kross islands leitar að bingóútbúnaði
til nota í Eþíópíu.
Þarf að vera karfa eða tromla, kúlur og spjold
Hafið samband við RKi í síma 26722
Starfsfólk Suðurnesjabakarís á fundi þar sem það ræddi stoðu sina.
Starfsmenn Suöumesjabakarís - áður Ragnarsbakarís:
Atvinnulausir og
fá ekki laun sín
Ægir Már Kárason, DV, Suðumesjum:
„Þessir 45 starfsmenn Suðurnesja-
bakarís, áður Ragnarsbakarí, eru
samankomnir hérna í húsakynnum
Verslunarmannafélags Suðurnesja
til að leita leiða út úr þeim vanda,
sem þeir eru komnir í, atvinnulaus-
ir, fá ekki útborguö mánaðarlaun
sín, enda var þeim sagt af hálfu eig-
anda Suðumesjabakarís, Björgvins
Víglundssonar, fyrir um það bil
tveimur vikum, að starfsemin væri
hætt og þeir gætu farið heim - bak-
aríinu hefðiu verið lokað,“ sagði
Magnús Gíslason, formaður VS, þeg-
ar DV innti hann eftir því hvaö væri
að gerast hjá starfsfólki bakarísins.
„Björgvin haföi ekki svo mikið við
að segja fólki upp bréflega og hefur
ítrekað lofað að koma og ganga frá
þeim hlutum en ávallt svikið það.
Samkvæmt samningum á hann að
greiða launin í dag en sýnt er að svo
verður ekki. Kemur þaö mjög illa við
starfsfólkið sem auðvitað þarf á pen-
ingum að halda til að geta lifað.“
Mál þetta er orðið hið ílóknasta.
Fyrir tæpu ári varð Ragnarsbakarí
gjaldþrota. Ávöxtun keypti þá fyrir-
tækið af þrotabúinu, eða þeir Ár-
mann Reynisson og Pétur Björnsson,
og stofnuð var Brauðgerð Suður-
nesja sem Björgvin Víglundsson
keypti síðan fyrir um það bil tveimur
mánuöum og rak í nokkrar vikur
undir nafninu Suðurnesjabakarí.
Ekki mun hafa verið gengið formlega
frá neinum af þessum kaupum - eng-
ar shkar undirskriftir að því er best
er vitað. Fyrirtækið mun hafa verið
rekið með halla alla tíð en þegar
Björgvin fór að leitast við að selja
sölubúðir fyrirtækisins var farið
fram á lögreglurannsókn á gjörðum
lians af hálfu stærstu kröfuhafa í
þrotabú Ragnarsbakarís sem töldu
að verið væri að reyna að koma eign-
um undan þar sem kaupendur bak-
—----
■'!' ; ----------------------------------------'--------------------- ' " -------------------
Þrír elstu starfsmenn bakarísins með formanni VS. Þau hafa starfað hjá
brauðgerðinni yfir 20 ár. Á myndinni eru: Fanney Hjartardóttir, Sigurður
Gunnarsson, Magnús Gíslason, formaður VS og Lydía Aðalheiður Rósink-
arsdóttir DV-myndir Ægir Már
arísins hefðu ekki staðið í skilum við
þrotabúið. Við þetta fyrtist Björgvin
og ákvað að leggja niður starfsemina
og sendi fólkið heim eins og fyrr seg-
ir.
Björgvin hefur farið fram á riftun
kaupsamnings viö Brauðgerð Suður-
nesja en ekki er búið aö ganga frá
því endanlega. Hins vegar er búiö að
ganga frá riftun kaupsamnings
þrotabús Ragnarsbakarís við Ávöxt-
un þannig að brauðgerðarverksmiðj-
an er komin aftur í hendur þrotabús-
ins og hefur verið auglýst til sölu.
Björgvin og Suðumesjabakarí telja
sig enga ábyrgð bera á starfsfólkinu
og hefur hann ekki í hyggju að láta
það sig neinu skipta samkvæmt sein-
ustu fregnum. Flestir eiga þriggja
mánaða uppsagnarfrest og geta ekki
fariö á atvinnuleysisbætur því erfitt
er að fá vinnu á Suðumesjum um
þessar mundir og eru nú þegar um
10 verslunarmenn á atvinnuleysis-
bótum þar.
Þess skal einnig getið að lokað var
fyrir rafmagn í húsinu fljótlega og
viðkomandi olíufélag lét dæla af
geymi olíu sem það hafði selt Suður-
nesjabakaríi.
„Fimm manna nefnd, kosin af
hálfu starfsfólksins til að vinna í
þessu máli í samráði við VS og Láru
V. Júlíusdóttur, lögfræðing ASÍ, hef-
ur þegar kynnt sér þetta mál og
mætt á fundi hér syðra,“ sagði Magn-
ús.
Byggðin þrengir að Gnfimesi:
HREINIÆTI
ER OKKAR FAG
flswrsturtu
fylgihlutum áfrábæru verði
J. ÞORLAKSSON &
NORÐMANN H.F.
RÉTTARHÁLSI 2
SÍMI8 38 33
Flutningur radíóstöðv-
armnar i
„Það er ekkert ákveðið meö flutn-
ing radíóstöðvarinnar í Gufunesi en
við erum að skoöa ákveðna mögu-
leika í þeim efnum,“ sagði Hilmar
Gunnarsson, deildarstjóri hjá Pósti
og síma, er DV spurði hann hvort til
stæði að flytja stöðina frá Gufunesi.
Byggðin er nú farin að þrengja
nokkuð að yfirráðasvæði Pósts og
síma í Gufuneslandi. Radíóstöðin
þohr ekki mikinn umhverfishávaða
og þarf því að vera sem lengst frá
athugun
byggð. „Byggðin er þó ekkert farin
að trufla stöðina enn,“ sagði Hilmar.
„Þeir hjá borginni vilja hins vegar
losna við stöðina því þeir eru að
hugsa um stærra svæði til bygging-
ar. Þaö hefur ekki verið tekin nein
ákvörðun um flutning á henni en ég
býst viö að slík ákvörðun liggi fyrir
innan hálfs mánaðar eða svo. Við
höfum skoðaö heilu landsvæðin með
tilliti til staðsetningar radíóstöðvar
en ekkert verið ákveðið enn.“ -JSS