Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1988, Side 32

Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1988, Side 32
32 MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 1988. Lífestfll Að nema bridge við skóla Guðmundur Páll Arnarson, eigandi og skólastjóri Bridsskólans, við hljóðnemann. Eitt af vinsælli tómstundamálum fólks hér á landi er að grípa í bridge- spil. Þetta áhugamál fólks nýtur mik- illa vinsælda vegna allra þeirra möguleika sem bjóðast við spilið. Fólk finnur sér félagsskap í léttri spilamennsku eða nælir sér í spennu ef það fer út í keppnisbridge. Af öll- um þeim fiölda manna sem spila bridge eru þeir sennilega í meirihluta sem grípa í spil með vinnufélögum í matartímum eða með félögum eina og eina kvöldstund. Þó eru þeir ótrú- lega margir sem spila reglulega í keppni, bæði í Reykjavík og úti á landi. Hvert á að snúa sér? Skráðir spilarar innan bridgefé- laga hér á landi eru um það bil 3000 en þeir leggja þó mismikið á sig til þess að ná árangri. Um fiölda þeirra sem grípa í bridgespil af og til eru ekki til neinar tölur. En að sjálfsögðu er nokkur hreyfing á milli þessa hópa, sumir hætta að stunda íþrótt- ina, nenna þessu ekki lengur eða hafa engan tíma. Aðrir heillast af bridge, vilja ná lengra og taka þátt í mótum. Eins og flestar íþróttir býður bridge upp á mikla spennu þegar spilað er í keppni og spenna er það sem fólk sækist oft eftir. Margir vita ekki hvert á að snúa sér þegar þeir vilja byija að læra bridge eða bæta við fyrri kunnáttu en fyrir þá er Bridsskólinn tilvalinn. Skólinn býður bæði upp á byijenda- námskeið og framhaldsnámskeið. Flestir þeir sem sækja námskeið hjá Bridsskólanum eru þó byijendur. Þrátt fyrir það að nemendur séu ýmist byijendur eða kunni eitthvað fyrir sér í fræðunum er óhætt að segja að námskeiðin koma að gagni fyrir báöa hópa. Efniö er tekið á skipulagðan hátt, byijendum kennd undirstöðuatriðin og framhaldsnem- endur fá verkefni við sitt hæfi. Námskeið í Bridsskóianum Blaðamaður DV fór 'eina kvöld- stund á námskeið í Bridsskólanum og kynnti sér aðstæður. Aðsókn var greinilega góð. áhugasamir nemend- ur á 10 borðum (40 manns) fylgdust með útskýringum kennarans, Guð- mundar Páls Amarsonar og aðstoð- armanns hans, Hjálmtýs Baldurs- sonar, á eðli spilsins. Guömundur er jafnframt skólasfióri Bridsskólans, og hefur verið það síðastliðin 3 ár en hann tók við sfióm skólans af Páli Bergssyni sem sfiómað hafði skólan- um í ein 6 ár. Blaðamaður DV beindi nokkrum spumingum að honum um skólann og starfsemi hans. Fyrst var hann spurður að því hvemig kennsl- an færi fram. „Hér em kennd tvenns konar nám- skeið, byijenda- og framhaldsnám- skeið. Hingað til hefur alltaf verið fiölmennast í byijendanámskeiðun- um. Á byijendanámskeiðum er kvöldinu sldpt í 3 lotur. Fyrst er bein kennsla með fyrirlestrum og síðan em spiluð röðuð æfingaspil sem tengjast fyrirlestrinum. í síðustu lot- - heimsókn í Bridsskólann Þessar fjórar á myndinnl eru allar bridge. Það er eins og fólk geri sér ekki grein fyrir að það er hægt aö læra bridge á öllum stigum,“ sagði Guðmundur PáU. Það vakti athygli blaðamanns að mikill meirihluti nemenda á nám- skeiðinu var konur og skýringa var leitað á þessu hjá Guðmimdi. „í keppnisbridge er þetta hlutfall öfugt svo þetta er í raun nokkuð merkilegt og ég hef velt því nokkuð fyrir mér hvemig á þessu stendur. Ég tel hugs- anlega skýringu þá að karlar telji sig síður geta lært eitthvað í skóla sem þessum. Þegar karlar fara að fikta við bridgespilamennsku fara þeir oft beint út í keppni. Það að kvenfólk er svona duglegt að sækja skólann sannar að áhuginn er fyrir hendi en hugsanlega hefur keppnisbridge of Qandsamlegt andrúmsloft í kringum sig. Konur vifia liklega fremur geta slakað á í góðum félagsskap yfir léttri spilamennsku. Enda er það svo að margar konur spyrja mig um það hvort ekki séu til hér einhver félög með afslöppuðu andrúmslofti. Stað- reyndin er sú að félögin eru flest skipulögð með stíft keppnisform í huga. Svo er það merkileg staðreynd að á framhaldsnámskeiðunum snýst þetta hlutfall aftur við og karlar verða fleiri," sagði Guðmundur PáU, skólasfióri Bridsskólans að lokum. Nokkrir nemenda á námskeiðinu voru teknir tali. Bjöm Magnússon sagði að það væri þrælgaman á þessu námskeiði. „Ég hef verið notaður sem fiórði maður í bridge svona af og til en ég hafði áhuga á að kynnast íþróttinni betur og þess vegna fór ég á námskeið í Bridsskólanum. Þar ætla ég mér að læra undirstöðuatrið- in svo ég geti farið að spila skamm- laust í heimahúsum en mig vantar bara spilafélaga. En ég get vel hugsað mér að fara út í eitthvað meira, fara á framhaldsnámskeið hjá skólanum eða jafnvel spila hjá bridgefélagi en fyrst þarf ég að öðlast einhveija reynslu. Kennslan hér á þessu nám- skeiði er alveg fyrsta flokks, efnið tekið á skipulegan hátt og kennarinn einstaklega góður.“ DV-myndir KAE Fjórar systur Við eitt borðið sátu fiórar systur saman en það mun sennilega vera einsdæmi hjá Bridsskólanum að fiór- ar systur sæki námskeið. Ein þeirra, Linda Björk Birgisdóttir, svaraði nokkrum spumingum. „Ég hef alla tíð haft gaman af spilum en þó litið fengist við bridge hingað til. Ég hef ekki mikið velt fyrir mér framhald- inu en það er gott að geta tekið í spil. Það er ekki hægt aö segja að það sé mikill bridgeáhugi í minni fiöl- skyldu, þó hafa faðir minn og móðir spilað eitthvað. Mér finnst eftirtekt- arvert hve skýrt og skilmerkilega kennarinn setur reglurspilsins fram og auk þess er kennslubókin nfiög þægileg. Ég hef nfiög gaman af þessu námskeiði hér,“ sagði Linda Björk að lokum. Sóley Ömólfsdóttir sagðist vera alger byijandi og hefði aldrei áður spilað bridge. „Mig langaði einfald- lega til að læra íþróttina og þess vegna skellti ég mér á námskeið og finnst bara reglulega gaman. Við er- an bridgeáhuga vera fyrir hendi í sinni flölskyldu en móðir hennar hefði þó einu sinni sótt námskeið Ifiá bridgeskólanum og því væri hún nú að feta í fótspor hennar. Sóley var sammála öðrum viðmælendum um það að kennarar á námskeiðinu væm einstaklega góðir og hjálplegir. Gróska í bridgelífi Fróðir menn telja að mikil gróska sé í bridgelífi um þessar mundir. ís- lenska landshðinu gengur vel á al- þjóðlegum vettfangi og mikil aðsókn er í félögum og á mót hérlendis. Ekjd er því óeðlilegt að álykta að aðsókn muni verða mikil í Bridgeskólann í hæstu framtíð og þarf jafnvel að fiölga námskeiðum til að anna efdr- spum. í undirbúningi er einnig á vegum Æskulýðsráðs, í samvinnu við Bridgesamband íslands, að hefia kennslunámskeið fyrir nemendur á grunnskólastigi og eflaust verður áhugi á því líka. Það er því bjart útht- ið hjá bridgefólki í nánustu framtíð. -ÍS Bjöm Magnússon taldi sig hafa mik- ið gagn af námskeiðinu. Sóley Örnólfsdóttir sagðist ekki hafa kunnað neitt í bridge áður en hún fór á námskeið í fræðunum. um a.m.k. fiórar saman hér á nám- skeiðinu sem ætla að fara að spila saman en við erum ekki famar að velta fyrir okkur öðrum möguleik- um. Þó gæti ég vel hugsað mér að spila einhvem tíma í keppni í fram- tiðinni," sagði Sóley. Hún kvað eng- Góð aðsókn var að byrjandanámskeiði í Bridsskólanum. Um 40 manns voru þar sfðastllðið mánudagskvöld. Guðmundur Páll Arnarson skólastjóri skýrir út en HJálmtýr Baldursson leiðbeinandi er við myndvarpann. unni er hálftíma til 45 mínútna fijáls spilamennska. Kennslukerfið, sem notað er hér í skólanum, er byggt á bandarískri kennslufyrirmynd sem viðurkennd er um allan heim. Kennt er eðlilegt sagnkerfi með 5 spila háhtaopnun- um. Hvert námskeið er 11 tímar, frá 20.15-23.15 og kostar 7500 kr, og hafa byijendanámskeiðin verið á mánu- dagskvöldum. Innifahö í gjaldinu er kennslubók á íslensku. Aðsóknin hefur yfirleitt verið nfiög góð á byij- endanámskeiðunum en heldur minni á framhaldsnámskeiðunum. Tíðarandi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.