Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1988, Page 33
MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 1988.
33
Lífsstíll
Hægt að draga úr tannskemmdiim
- með notkun á tannkremi sem innheldur bæði flúor og tannsteinsheftandi efni
Tannkrem, sem inniheldur tannsteinsheftandi efni ásamt flúor, vinnur betur en tannkrem sem einungis inniheldur flúor. Heimsóknum til tannlækn-
isins fækkar að sama skapi. DV-mynd
Tannsteinshindrandi efni í tannkr-
emi auka tannvemdaráhrif flúors
í tannkremi. Þetta em niðurstöður
úr umfangsmikilli rannsókn sem
fram fór á vegum Skólatannlækn-
inga í Reykjavík á árunum 1984-
1987.
Alls tóku 1.100 börn þátt í rann-
sókninni sem framkvæmd var af
ísle'nskum og sænskum vísinda-
mönnum. Rannsóknin fór þannig
fram aö bömunum var skipt í fimm
hópa og fékk hver hópur sitt
tannkrem til aö nota í þrjú ár.
Neytendur
Tilgangurinn var sá að bera saman
tannverndaráhrif fimm mismun-
andi tannkremstegunda sem inni-
héldu misjafnt magn af mismun-
andi flúorsamböndum og tvær
þeirra innihéldu aö auki fosfór-
sambönd sem hindra tannsteins-
myndun.
Tennur bamanna voru síðan
skoðaðar árlega. Einn hópurinnn
fékk marktækt minni tann-
skemmdir en hinir. Það var hópur-
inn sem hafði notað tannkrem sem
innihélt 1% aza-cycklo-heptan-
diphosphonat (APH). Munurinn á
þeim og öðmm hópum var meira
en 15%.
Hinar tannkremstegundirnar, en
þar á meðal var ein algengasta teg-
undin á markaðnum þá, sýndu
ekki marktækan mun á tannvemd-
aráhrifum sín á milh. Það voru
fjórar tegundir frá Henkel sem not-
aöar voru í tilrauninni ásamt Col-
gate tannkremi með flúor. Colgate
hefur síðan hafið framleiðslu á
tannkremi með tannsteinsheftandi
efni.
Tannskemmdir hafa minnkað
nyög á Norðurlöndum síðasta ára-
tuginn og er það þakkað notkun
flúortannkrems fyrst og fremst.
Þessar tilraunir sýna að með því
aö nota flúortannkrem með tann-
steinshindrandi efni er hægt að ná
enn betri árangri.
-Pá
Karíus og Baktus á i
45% fjögurra ára bama í Reykja- skemmdir og bendir það til þess að
vík eru meö allar tennur heilar og foreldrar bíði meö að fara með böm
er það svipaö hlutfall og í Svíþjóð sín til tannlæknis þar til þau era
ogFinnlandi.Þettaeraniöurstöður sex ára og fá fulla endurgreiðslu
úr rannsókn sem náði til 158 Sög- tannlæknaþjónustunnar.
urra ára barna. Börnin höfðu að 27% bamanna í rannsókninni
jafnaöi 2,4 skemradar, tapaðar eða voru með 70% allra skemmda og
viðgerðar bamatennur. 67% af fyllinga i hópnum. Það kom í Ijós
þessari tölu voru ómeðhöndlaöar að tannkrem raeð flúor var al-
mennt mikið notaö en flúortöflur
sjaldan og komu áhrif taflnanna
ekki fram nema þær væru notaðar
reglulega. Þau börn, sem notuðu
flúortöflur, höfðu að meðaltali 1,1
skemmda eða viögerða tönn á móti
2,8 tönnum í hinum bömunum.
-Pá
Ný ostaverslim
I nýju ostabúðinni í Kringlunni er hægt að fá alla osta sem framleiddir eru
á íslandi. DV-mynd Hanna
Osta- og smjörsalan hefur opnað
nýja ostaverslun á neðri hæð Kringl-
unnar. Fyrirtækið rekur nú sérversl-
anir með osta á þrem stööum, á
Snorrabraut 54, Bitruhálsi 2 og í
Kringlunni.
í nýju versluninni verður boðið
upp á veisluþjónustu líkt og á hinum
stöðunum. Osta- og smjörsalan hefur
gefið út meira en 60 fræðslu- og upp-
skriftabækhnga um osta og ostarétti.
Fyrirtækið leitast viö að auka þekk-
ingu neytenda á osti og öðrum mjólk-
urafurðum og að gefa fólki tækifæri
á að smakka á sýnishornum af sem
flestum ostum sem framleiddir eru á
íslandi.
Hér á landi eru framleiddar flestar
af meginostategundum heims og ís-
lendingar voru árið 1987 í 4. sæti af
þjóöum heims hvað varðaöi osta-
neyslu. -Pá
Framleiðendur bættu vöru sína
„Þaö komu skýrar línur í þós
strax eftir fyrsta árið og þær niður-
stöður voru kynntar á erlendum
ráðstefnum. Tannkremsframleiö-
endur hafa í framhaldi af þessu
flestir breytt vöra sinni og bætt
tannsteinsheftandi efni í tann-
kremið“ sagði Stefán Finnbogason
skólatannlæknir í samtah við DV.
Flestar algengustu tannkrems-
tegundir á markaðnum í dag er því
hægt aö fá meö tannsteinsheftandi
efni en Stefán sagði aö á grundvelli
þessara niðurstaöna væri fúll
ástæöa til þess aö mæla með notk-
un þess.
-Pá
Egg og kjúkl-
ingar hækka
- má búast við frekari hækkunum
Heimiluö hefur verið hækkun á
verði eggja og kjúkhnga. Samkvæmt
upplýsingum Verðlagsstofnunar er
leyfilegt hámarksverð á kjúklingum
nú 406 krónur kílóið í heildsölu en
var 376 krónur. Kílóverð á kjúkling-
um út úr búð er því komiö yflr 500
krónur. Hækkunin tók gildi um 20.
október. Hennar gætir fljótlega á
eggjum en síðar á kjúkhngum.
Egg kosta nú 328 krónur kílóið út
úr búð en kostuðu áður 298. Hækk-
unin er 10%.
Það eru þurrkar í landbúnaðar-
héruðum Bandaríkjanna sem valda
þessari hækkun. Uppskeruþrestur
leiðir til hækkunar á korni sem leið-
ir til hækkunar á kjúklingafóöri.
Að sögn Guðmundar Sigurðssonar
hjá Verðlagstofnun má búast viö
frekari hækkun á eggjum og kjúkl-
ingum fyrir áramót. Samkomulag
varö milli Verðlagsstofnunar og
kjúkhnga- og eggjabænda um að ein-
ungis hluti þeirrar hækkunar, sem
fóöurverð gaf tilefni til, yrði látinn
taka gildi nú.
í októbermánuði bárust Verðlags-
stofnun um 30 umsóknir um innlend-
ar verðhækkanir og voru þær
flestallar samþykktar.
-Pá
Fljótlega má búast við enn frekari veröhækkun á kjúklingum og eggjum.
DV-mynd