Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1988, Qupperneq 35

Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.1988, Qupperneq 35
MIÐVIKUDAGUR 2. NÓVEMBER 1988. 35* Fólk í fréttum Ólafur Ragnar Ólafur Ragnar Grímsson fjármála- ráöherra lagði fjárlagafrumvarpið fram á Alþingi í gær. Ólafur Ragnar er fæddur 14. maí 1943 á ísafirði, lauk B A prófi í hagfræði og stjóm- málafræði frá Háskólanum í Manc- hester 1965 og doktorsprófi í stjórn- málafræðum við sama skóla 1970. Hann varð lektor í stjómmálafræð- um í HÍ1970 og var prófessor þar frá 1973. Ólafur var alþingismaður 1978-1983 og varaþingmaöur 1974- 1978 og frá 1983. Hann var skipaður í hagráð 1966, var formaður fram- kvæmdastjómar Samtaka fijáls- lyndra og vinstri manna 1974-1975, í útvarpsráði 1971-1975, formaður Félagsvísindafélags íslands 1975, formaður framkvæmdastjórnar Al- þýðubandalagsins 1977-1979 og frá 1984, formaður þingflokks Alþýðu- bandalagsins 1980-1983. Ólafur Ragnar sat á þingi Evrópu- ráðsins og sá þá um undirbúning að mikilli ráðstefnu um framlag Evrópu til bættrar sambúðar norö- urs og suðurs 1984. Ólafur hefur verið formaður Parlamentarians for Global Action, alþjóðasamtakaþjóö- þingsmanna sem beita sér fyrir friði og afvopnun. Ólafi hafa verið veitt verðlaun Better World Society, frið- arverðlaun frá kanadískum afvopn- unarsamtökum og frá afvopnunar- stofnun sem starfar á vegum SÞ. Ólafur var kosinn formaöur Al- þýðubandalagsins 1987 og varð fjár- málaráðherra 1988. Kona Ólafs er Guðrún Katrín Þor- bergsdóttir, f. 14. ágúst 1934, bæjar- fulltrúi á Seltjamarnesi. Foreldrar hennar eru Þorbergur Friðriksson, skipstjóra í Rvík, og kona hans, Guðrún Símonardóttir Bech. Dætur Ólafs og Guðrúnar em tvíburarnir Svanhildur Dalla og Tinna, f. 30. ágúst 1975. Foreldrar Ólafs voru, Grímur Kristgeirsson, hárskeri og bæjarfulltrúi á ísafirði, og kona hans, Svanhildur Ólafsdóttir Hjart- ar. Faðir Ólafs, Grímur, var hálf- bróðir Hjalta hagfræðings. Faðir þeirra var Kristgeir, b. í Gilstreymi í Lundareykjadal í Borgarfirði, Jónsson, b. á Heiðarbæ í Þingvalla- sveit, bróðir Jóhanns, afa Arin- bjarnar Kolbeinssonar læknis. Jón var sonur Gríms, b. og skyttu á Nesjavöllum í Grafningi, Þorleifs- sonar, b. á Nesjavöllum, ættfööur Nesjavallaættarinnar, Guðmunds- sonar, b. í Norðurkoti í Grímsnesi, Brandssonar, b. á Krossi, Eysteins- sonar, bróður Jóns, foður Guðna í Reykjakoti, ættfóður Reykjakots- ættarinnar, langafa Guðna, langafa Vigdísar Finnbogadóttur. Guðni var einnig langafi Halldórs, afa Halldórs Laxness. Móðir Ólafs, Svanhildur, var syst- ir Hjartar Hjartar, fv. framkvæmda- stjóra skipadeildar SÍS. Faðir þeirra var Ólafur Ragnar Hjartar, járn- smiður á Þingeyri í Dýrafirði, Hjart- arson, b. í Arnkötludal Bjarnasonar, Grímsson bróður Eiríks, langafa Maríu, móð- ur Þorvaldar Garðars Kristjánsson- ar alþingismanns. Hjörtur var son- ur Bjama, b. á Hamarlandi, Eiríks- sonar. Móðir Bjarna var Rannveig Oddsdóttir Hjaltalín og konu hans Oddnýjar Erlendsdóttur, systur Sig- urðar, langafa Hlaðgerðar, langömmu Guðrúnar, móður Ragn- ars Amalds. Móðir Oddnýjar var Sesselja Tómasdóttir, b. á Amar- hób, Bergsteinssonar, ættfóður Amarhólsættarinnar, langafa Bjarna, langafa Jóns, afa Jóhannes- ar Nordal. Móðir Hjartar var Sigríð- ur Friðriksdóttir, prófasts á Stað á Reykjanesi, Jónssonar, bróður Þor- varðar, langafa Sigurgeirs Jónsson- ar, ráðuneytisstjóra í fiármálaráöu- neytinu, og Skúla, föður Ólafs vígslubiskups. Annar bróðir Frið- riks var Jón Reykjalín, langafi Val- gerðar, ömmu Valgerðar Sverris- dóttur alþingismanns. Friðrik var sonur Jóns prests á Breiðabólstaö í Ólafur Ragnar Grimsson. Vesturhópi, Þorvaldssonar, forföð- ur Margrétar Frímannsdóttur al- þingismanns. Móðir Sigríðar var Valgerður Pálsdóttir, prests á Stað á Reykjanesi, Hjálmarssonar. Móðir Páls var Filippía Pálsdóttir, systir Bjarna landlæknis. Afmæli Andlá^ Sína Bjarnadóttir Sína (Vigfúsína) Bjamadóttir, Víf- ilsgötu 20 í Reykjavík, er sjötug í dag. Sína er fædd á Fjalla-Skaga við Dýrafiörð. Sína ólst upp við öll venjuleg sveitastörf og lauk barna- skóla. Hún var í vistum við þjón- ustustörf, fyrst á Þingeyri og síðar í Reykjavík. Sína var við nám í Húsmæðraskóla Reykjavíkur vet- urinn 1939-1940. Hún var sauma- kona í Reykjavík um áratugi, starf- aði að ýmsum félagsmálum og söng í kirkjukór Hallgrímskirkju í 27 ár. í hátt í þijátíu ár hefur Sína búið áVífilsgötu20. Sína eignaðist fiórtán systkini: Rannveig, f. 19.7.1901, húsfreyja í Stóru-Sandvík í Flóa, d. 11.6.1987; Sigríður, f. 15.9.1901, húsfreyja í Lambadal, nú að Ási í Hveragerði; Jónasína, f. 11.9.1908, húsfreyja í Grafardal í Borgarfirði, nú á Þyrb í Hvalfirði; Sigurður, f. 27.8.1909, bóndi í Lambadal, síöar trésmiður í Reykjavík, d. 13.10.1988; Guðmund- ur, f. 17.10.1910, bóndi í Lambadal og síðar verslunarmaður í Reykja- vík; Ólöf, f. 25.11.1911, húsmóðir á Næfranesi í Dýrafirði, nú búsett í Reykjavík; Sæmundur, f. 18.5.1913, fórst á togaranum Karlsefni 1944; Vigdís, f. 14.6.1914, húsmóðir á Pat- reksfirði, nú búsett í Reykjavík; Jó- hannes, f. 10.7.1915, togarasjómaður og síðar verslunarmaður í Reykja- vík, d. 1.9.1972; Sigurlaugur, f. 16.10. 1916, bóndi á Vestra-Miðfelb í Hval- firði, Ytrahóli í Landeyjum og síðast á Ragnheiðarstööum í Flóa, d. 11.2. 1978; Jón, f. 29.9.1917, bóndi í HUð á Hvalfiarðarströnd; Ingibjartur, f. 1.9.1921, var bústjóri við HUðardals- skóla, átti síðar heima í Hverageröi og vann hjá Náttúrulækningafélag- inu, d. 19.12.1981; Árný, f. 28.1.1923, húsmóðir á HvassafelU og Stokka- hlöðum í Eyjafirði, d. 22.9.1957; Ingi- björg, f. 22.9.1926, bóndi á Gnúpu- felUíEyjafirði. Faðir Sínu var Bjarni Sigurðsson, fæddur að Botni í Dýrafirði, 27.5. 1868, dáinn 3.10.1951, í Innri- Lambadal. Bjami var sonur Sigurð- ar, bónda í Minna-Garði, f. 8.11.1835, d. 17.8.1907, Bjamasonar, bónda á Vífilsmýri í Önundarfirði, f. 28.3. 1800, d. 28.7.1846, Þorgilssonar, bónda á Vífilsmýri, Sigurðssonar, bónda á HóU á Hvilftaströnd. Föðuramma Sínu var Guðrún frá Granda í Brekkudal, f. 11.4.1833, d. 26.8.1894, Bjamadóttir(Murru), bónda á Granda, Ólafssonar, bónda á Brekku, Péturssonar. Móðir Sínu var önnur kona Sína Bjarnadóttir Bjarna, Sigríður Gunnjóna, f. 16.9. 1881, Vigfúsdóttir, f. 13.5.1851, d. 5.5. 1941, Nathanelssonar, Ólafssonar, bónda á Kirkjubóli í Valþjófsdal, Jónssonar. Ólafur var bróðir Sveins á Hesti í Önundarfirði sem mikil ætt er komin frá. Móðir Sigríðar Gunnjónu var Sigríöur, f. 1841, d. 1927, Gunnarsdóttir, ísleifssonar. Sína tekur á móti gestum í Sókn- arsalnum, Skipholti 50, á föstudag- innkl. 15. Ragnar Kjartansson I dag fer fram frá Dómkirkjunni í Reykjavík útfór Ragnars Kjartans- sonar, myndhöggvara og heiðursfé- laga Myndhöggvarafélagsins í Reykjavík. Ragnar fæddist 17. ágúst 1923 á Staðastað í Staðarsveit, sonur Kjart- ans Kjartanssonar prests þar og seinni konu hans, Ingveldar Ólafs- dóttur frá Sogni í Ölfusi. Ragnar gekk í Héraðsskólann á Laugarvatni 1937-1938. Hann lærði leirkerasmíði hjá Guðmundi Einars- syni frá Miðdal 1939-1944 og var sam- hliöa frá 1940 í kvöldskóla Handíðá- skólans. Árin 1946-1947 var Ragnar við nám í Valand bstaskólanum í Gautaborg og hjá Ásmundi Sveins- syni myndhöggvara í Myndbstaskóla Reykjavíkur 1947-1951. Árið 1951 til 1952 vann hann á vinnustofu í Svíþjóð. Ragnar var einn af stofnendum Funa keramik og síðar Gbts hf. árið 1958 sem hann veitti forstöðu til árs- ins 1967. Eftir það helgaði hann sig höggmyndabstinni og hélt fiölda sýn- inga hér heima og erlendis. Hann var framkvæmdastjóri og þátttakandi í útisýningum á Skólavöröuholti á ár- unum 1967-1972. Ragnar var einn aö- alhvatamaður að stofnun Mynd- höggvarafélags Reykjavíkur árið 1972 og átti stærstan þátt í því að félagið fékk vinnuaðstöðu á Korpúlfsstööum. Hann var geröur að fyrsta heiðurs- félaga Myndhöggvarafélagsins í apríl íár. Ragnar Kjartansson. Eftir Ragnar liggja mörg stærstu bstaverk landsins, svo sem „Auð- humla“ á Akureyri, „Bárður Snæ- fellsás" á Snæfellsnesi og „Björgun“ á Siglufirði sem er minnisvarði um drukknaða sjómenn. Líf í sjávarþorp- um var Ragnari ætíð hugleikiö yrkis- efniendaleituðumargirtilhansum ' gerð útiverka. Ragnar kenndi um árabil við Mynd- hstaskólann í Reykjavík og þar var hann einnig skólastjóri. Þá kenndi hann við Myndbsta- og handíðaskóla íslands. Ragnar kvæntist 26. maí 1945 Katr- ínu Guðmundsdóttir, f. 19.5.1921, og lifir hún mann sinn. Leiðréttingar Guðmundur H. Garðarsson al- þingismaður heitir Guðmundur Helgason Garðarsson. Valgerður Freysteinsdóttir var móðir Garð- ars Gíslasonar. í afmæhsgrein um Þórhab Habdórsson féll úr að Samúel Samúelsson er bak- arameistari, Erbng Hestnes er trésmíðameistari, Theodór Hab- dórsson er garðyrkufræðingur og yfirverkstjóri í Skrúögörðum Rvíkur, Halldór Jónsson var b. á Amgerðareyri við ísafiörð, sonur Jóns Helgasonar, b. á Grasi viö Dýrafiörð, og konu hans, Guðnýj- ar Halldórsdóttur. Börn Jóns og Guðnýjar voru Jóhanna, gift Friðfinni Þórðarsyni, b. á Kjar- ansstöðum við Dýrafiörð, Mar- grét, búsett í Kaupmannahöfn, Bjamfríður, gift Ingibjarti Ingi- mundarssyni á ísafirði, Elías, dó á besta aldri, sonur hans er Sig- urður, fyrrv. tbraunastjóri á Reykhólum. Steinunn var dóttir Jóns Þórðarsonar, b. á Múla á Skálmarnesi, og konu hans, Hólmfríðar Ebenesersdóttur. Systkmi Steinunnar eru Halld- óra, gift Sveini Guðmundssyni jámsmið, Ingunn, ógift, hjúkrun- arkona, og ívar, járnsmiöur, kvæntur Guöbjörgu Stéindórs- dóttur. Halldóra er móðir Auðar, konu Habdórs Laxness, Ásdísar, konu Sigurðar Thoroddsen verk- fræðings og Fríðu, konu Braga Þorsteinssonar verkfræðings. ívar er faðir Jóns flugmanns, Sveins arkitekts og Kristínar El- ínborgarkennara. Til hamingju með daginn Ólafur Þórólfsson, Skeiðárvogi 93, Reykjavík. Ólafur er aö heiraan. Sæbraut 20, Reykjavík. Sigurður Jónsson, Þórsraörk 7, Sebbssl 90 ára Jón Laxdal, Evemarie bse Bauer, Austurbyggö 19, Akureyri. Halldóra Jóhannesdóttir frá Mosfebi í Mosfebssveit. Habdóra er að heiman. 60 ára Guðmundur F. Sigurðsson, Faxabraut 65, Keflavík. Habdóra Þórarinsdóttir, Skútahrauni 4, Skútustöðum. 85 ára Jón Sigurðsson, Stafholti 22, Akureyri. 40 ára Þuriöur Sæmundsdóttir, Álakvísl 34, Reykjavík. Ragnhildur Þorgeirsdóttir, Ásabraut 9, Kópavogi. Hjálmar Th. Ingimundarson, Fógrukinn 20, Hafnarfirði. Guðmundur Valdimarsson, • Faxabraut 57, Reykjavík. Ásdís Ásgcirsdóttir, Höfn 1. Svalbarðsströnd. Guðmundur Kr. Sigurðsson, Njarðvíkurbraut 33, Njarðvík. Steini Þorvaldsson, 80 ára Engjavegi 61, Sebbssi. Ingimar Sumarliðason, Vallargötu 35, Sandgerði. Bjarni Indriðason, Byggöarholti ld, Mosfellsbæ. Ragnheiður Pálsdóttir, Árni Jóhannesson, Vatnsenda, Þverárhrepppi. «fA * ^ 70 árð 50 ára óuuurvÖ| HtUiwnij vi, Magnca Bjarnadóttir, Sigtúni 9, Selfossi Guðbjörn Einarsson, Kárastööum, Þingvallahreppi. Valdis Vilhjálmsdóttir,

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.