Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.1988, Síða 19
81
m
■
Islandsmótið í handknattleik hófst í gærkvöldi með fjórum leikjum:
„Burt með þessa dómara
úr 1. deildar handboltanum“
- Viggó Sigurðsson óhress þrátt fyrir sigur FH. Aifreð og Páil bytjuðu vel
„Burt með þessa dómara úr 1. deildar hand-
boltanum,“ var það fyrsta sem Viggó Sigurðs-
son, þjálfari FH, sagði eftir að FH hafði sigrað
Stjörnuna, 22-23,1 Digranesi i gærkvöldi í mikl-
um baráttuleik. Viggó hefur oft sent dómurum
tóninn og heldur enn uppteknum hætti. Hann
var mjög órólegur á bekknum hjá FH og eftir
aðeins tæpar fimm mínútur hafði hann fengið
gula spjaldið.
íslandsmótið í handknattleik
hófst í gærkvöldi með fjórum leikj-
um. Leik ÍBV og Gróttu var frest-
að. Leikur Stjömunnar og FH var
leikur 1. umferðar og fór hann fram
íyrir fullu húsi áhorfenda. Nánar
er greint frá leiknum hér neðar á
síðunni
„Þýsku“ vesturbæingarnir
byrjuðu mjög vel
KR-ingar tóku Framara í kennslu-
stund í Laugardalsöll og irnnu með
tiu marka mun. Þeir Alfreö Gísla-
son og Páll Ólafsson léku sinn
fyrsta leik með KR á keppnistíma-
bilinu og sýndu það í gærkvöldi að
þeir eiga eftir að gerbreyta leik KR
til hins betra. Alfreð skoraöi 9
mörk gegn Fram og Páll 6, samtals
gerðu þeir því helming marka KR
í leiknum.
Valdimar skoraöi 10
Homamaðurinn Valdimar Gríms-
son var i miklum ham þegar Valur
sigraði Breiðablik á Hliðarenda.
Valdimar skoraði 10 mörk í leikn-
um fyrir Val og er greinilega í góöri
æfingu.
Víkingar mega muna
fífilinn fegurri
Víkingar eiga greinilega erfiðan
vetur fyrir höndum og i gærkvöldi
vom þeir teknir í bakaríið af KA-
mönnum að viöstöddum 600 áhorf-
endum í íþróttahöllinni á Akur-
eyri. Víkingar sakna margra
sterkra leikmanna og aðrir leik-
menn munu greinilega ekki fylla
skörö þeirra.
Handboltinn
«fyrirrúmi
Sex íþróttasíður em í DV í dag og
era þær að mestu tileinkaöar upp-
hafi íslandsmótsins í handknatt-
leik. Á bls 22,23 og 24 em greinar
um íslandsmótið. Þar eru meðal
annars viötöl við gamla jaxla sem
gerðu garðinn frægan á árum áður.
Þá má benda á yfirlit yfir árangur
1. deildar liðanna á síðustu tíu ís-
landsmótum. Á næstu síðum er
greint frá leikjum Fram gegn KR,
Vals gegn UBK og KA gegn Vfltingi.
-SK
Frétta-
stúfar
Kjartan efstur
Kjartan Briem úr KR sigraði
á styrkleikamóti Borðtennis-
sambands íslands sem fram
fór um síðustu helgi. Hann
sigraði Albrecht Ehmann úr
Stjörnunni, 21-19 og 22-20, í
úrslitaleik. Krisfján Jónasson
úr Vfltingi vann Gunnar Vals-
son úr Stjörnunni, 21-17 og
21-16, í úrslitum um þriðja
sætið. Þátttakendur vora 25
en 32 var boðið til keppni.
Kjartan er þar með efstur á
styrkleikalista BTÍ en hlið-
stæð mót verða notuð í vetur
til að finna út röð bestu
manna, m.a. til aö hafa til
hliðsjónar við landsliðsval.
Dunlop-umboðið Austur-
bakki gaf öll verðlaun og bar
annan kostnað af mótinu.
Körfubolti i kvöld
Níundu umferð Flugleiða-
deildarinnar lýkur í kvöld
með tveimur leikjum sem
hefjast kl. 20.00. KR og Þór
mætast í Hagaskólanum og ÍS
og ÍBK1 íþróttahúsi Kennara-
háskólans. Aö þessum leikj-
um loknum hafa allir mætt
öllum einu sinni i deildinni.
a
Suggett með Newcastle
Colin Suggett var í gær ráöinn
framkvæmdasfjóri enska
knattspymufélagsins New-
castle en hann tekur við af
Willie McFaul sem var sagt
upp störfum fyrir þremur vik-
um.
• Óskar Ármannsson sést hér skora mark fyrir FH gegn Stjörnunni i gærkvöldi en hann var markahæstur FH-inga með 7 mörk.
DV-mynd Brynjar Gauti
„Attum skilið stig“
- sagði Brynjar Kvaran efdr eins marks sigur FH á Stjömunni í Digranesi
„FH-ingar vora ótrúlega heppnir
að vinna þennan leik. Við áttum
sannarlega skihð annað stigið og það
er gifurlega sárt að þurfa að sætta
sig við tap eftir svona leik,“ sagði
Brynjar Kvaran, þjálfari Stjörnunn-
ar, eftir að lið hans hafði tapað fyrir
FH-ingum, 22-23, í Digranesi í gær-
kvöldi. Leikurinn var æsispennandi
og fjörugur allt frá fyrstu mínútu og
það var ekki fyrr en á síðustu sek-
úndunum sem FH-ingum tókst að
tryggja sér sigurinn.
Stjaman byriaði af miklum krafti
í gærkvöldi og eftir að FH hafði kom-
ist í 3-1 náðu Garðbæingar 4 marka
forystu, 9-5, þegar 20 mínútur voru
hðnar af leiknum. Þá tóku FH-ingar
við sér og gerðu 6 mörk í röð og kom-
ust yfir, 11-9. Stjörnumenn náðu síð-
an að jafna, 11-11, og staðan var jöfn
í hálfleik, 12-12.
Síðari hálfleikur var hreint ótrú-
lega spennandi og jafnt á öllum
tölum, FH-ingar ávallt einu marki
yfir en Stjömumenn jöfnuðu sífellt
metin. Á lokakaflanum var síðan allt
á suðupunkti, innan vallar sem utan.
Þegar rúmlega 5 mínútur voru eftir
komust FH-ingar loks tveimur mörk-
um yfir, 22-20, og aftur 23-21 þegar
2 mínútur vora til leiksloka. Þá skor-
aði Hafsteinn Bragason fyrir Stjörn-
una og munurinn aðeins eitt mark.
En leikreynsla FH-inga gerði senni-
lega gæfumuninn og hðið náði að
hanga á boltanum síðustu mínútuna
og fiska síðan vítakast á lokasekúnd-
unni. Brypjar Kvaran varði aö vísu
vítið en það kom ekki að sök og FH-
ingar fógnuöu naumum sigri. Það
fauk reyndar heldur betur í leik-
menn í lokin og Guðjón Árnason
FH-ingur fékk rautt spjald eftir að
honum haföi lent saman við einn
leikmanna Stjörnunnar.
Markverðir hðanna, þeir Brynjar
Kvaran hjá Stjörnunni og Magnús
Árnason FH-ingur, voru bestu menn
leiksins og vörðu báðir mjög vel ahan
tímann. Magnús varði þrjú vítaköst
Garðbæinga og munar um minna í
svo jöfnum leik. Sigurður Bjamason
var einnig sterkur í hði Stjörnunnar
og þetta unga hð er til alls líklegt í
vetur.
Hjá FH bar mest á Magnúsi eins
og áður sagði en aðrir leikmenn hðs-
ins geta gert mun meira en í þessum
leik. Óskar Ármannsson op T-.0rgils
Óttar Mathiesen áttu ágæta spretti
en duttu niður þess á milli. Liðiö á
erfiðan leik fyrir höndum á sunnu-
dag en þá leikur það gegn Fredriks-
borg/SKI í Evrópukeppninni og ljóst
er að FH-liðið verður að leika betur
þá ef þaö ætlar sér í aöra umferð
keppninnar.
Dómarar vora þeir Hákon Sigur-
jónsson og Guðjón Sigurðsson og
dæmdu vægast sagt iha. Hvoragt lið-
ið hagnaöist þó sérstaklega á slakri
dómgæslu þeirra félaga.
Mörk Stjömunnar: Gylfi 6 (2 v.), Sig-
uröur 5, Hafsteinn 4, Skúh 4, Valdi-
mar 2 og Hilmar 1.
Mörk FH: Óskar Á. 7 (3 v.), Guðjón
5, Þorgils 5, Héðinn 4 og Einar 2.
-RR