Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.1988, Blaðsíða 36
'36
FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 1988.
Jarðarfarir
Þorbjörg Gunnlaugsdóttir, Hraunbæ
22, Reykjavík, lést í Borgarspítalan-
um í Reykjavík aöfaranótt þriðju-
dagsins 1. nóvember. Útforin fer
fram frá Árbæjarkirkju fimmtudag-
* inn 10. nóvember kl. 13.30.
Ágúst Indriðason verður jarðsung-
inn frá Hafnarfjarðarkirkju fóstu-
daginn 4. nóvember kl. 15.
Sigríður Guðbjörnsdóttir frá Hólma-
vík, Langholtsvegi 28, Reykjavík,
verður jarðsungin frá Fossvogs-
kirkju fóstudaginn 4. nóvember kl.
!5.
Sigríður Ásmundsdóttir, Efstalandi
24, Reykjavík, lést þann 29. október
sl. Jarðarfórin fer fram frá laugar-
neskirkju fóstudaginn 4. nóvember
kl. 13.30.
ÆU/I/IENIA
Þvær og þurrkar
á mettíma.
Árangur í hæsta
gæðaflokki.
Eumenia engri lík.
Rafbraut
Bolholti 4, s. 681440
Sigríður Þórðardóttir frá Barðsnesi,
Norðfirði, lést á sjúkrahúsinu í Nes-
kaupstað laugardaginn 29. október.
Útfórin verður gerð frá Norðfjarðar-
kirkju laugardaginn 5. nóvember kl.
14.
Ragnar Gísli Kjartansson, Hverfis-
götu 102b, verður jarðsunginn fóstu-
daginn 4. nóvember kl. 13.30 frá Dóm-
kirkjunni.
Haraldur Ágústsson smiður, Fram-
nesvegi 16, Keflavík, verður jarð-
sunginn frá Keflavíkurkirkju laug-
ardaginn 5. nóvember nk. kl. 14.
Andlát
Margrét Árnadóttir frá Gunnars-
stöðum, Hringbraut 91, Reykjavík,
andaðist 2. nóvember 1988 í Toronto.
Tónleikar
Defunkt íTunglinu
í kvöld 3. nóvember efnir veitingahúsiö
Tunglið til hijómleika með bandarísku
djassfónk hljómsveitinni Defunkt sem er
sex manna hljómsveit ættuð frá New
York borg þar sem hún var stofnuö fyrir
10 árum af básúnuleikaranum og söngv-
aranum Joe Bowie. Tónleikarnir hér-
lendis eru þeir seinustu í hljómleikaferð
Defunkt um meginland Evrópu en upp-
selt hefur verið á alla tónleika hljóm-
sveitarinnar í þessari ferð. Gestahljóm-
sveit kvöldsins er svo íslenska hljóm-
sveitin Risaeðlan. Miðasala opnar kl. 20
en tónleikarnir hefjast kl. 22. Forsala
aðgöngumiða er í verslunum Skifunnar,
Gramminu og Plötubúöinni.
t
Innilegar þakkir til allra fyrir auðsýnda samúð við
andlát og útför
Hallfríðar Jóhannesdóttur
Álfaskeiði 64
Sérstakar þakkir til lækna og starfsfólks St. Jóseps-
spítala sem önnuðust hana í veikindum hennar.
Sigurður Likafrónsson og aðstandendur
Nauðungaruppboð
á eftirtöldum fasteignum fer
fram í dómsal embættisins,
Aðalstræti 92, Patreksfirði,
á neðangreindum tíma:
Þórsgötu 9, Patreksf., þingl. eig. Iðn-
verk hf., fer fram eftir kröfii Bruna-
bótafélags íslands hf., Innheimtu rík-
issjóðs, Eyrasparisjóðs og Byggða-
stofounar fimmtudaginn 10. nóvember
1988 kl. 11.00.
Þórsgötu 12, Patreksfirði, þingl. eig.
Iðnverk hf., fer fram eftir kröfu Iðn-
lánasjóðs, Klemensar Eggertssonar
hdl. og Landsbanka íslands fimmtud.
10. nóv. 1988 kl. 11.30.
Nauðungaruppboð
annað og síðara
^ á eftirtöldum fasteignum fer
fram í dómsal embættisins,
Aðalstræti 92, Patreksfirði
Túngötu 33, Tálknafirði, þingl. eign
Gunnbjöms ólafrsonar, fer fram eftir
kröfo Ammundar Backman hrl. og
Veðdeildar Landsbanka íslands
fimmtud. 10. nóv. 1988 kl. 9.00.
Grænabakka 7, Bíldudal, þingl. eign
Jóns Brands Theodórssonar, fer fram
eftir kröfo Veðdeildar Landsbanka
íslands, Gunnars Sæmundssonar hrl.
og Garðars Briem hdl. fimmtud. 10.
nóv. 1988 kl. 9.30.
Aðalstræti 120a, Patreksfirði, þingl.
eign Jóns Bessa Ámasonar, fer fram
eftir kröfu Þórarins Ámasonar hdl.,
Jóns Sófoes hrl., Amars G. Hinriks-
sonar, Áma Pálssonar hdl. og Stefo-
gríms Þormóðssonar hdl. fimmtud. 10.
nóv. 1988 kl. 10.00.
Lækjarbakka, Tálknafirði, fer fram
eftir kröfo Útvegsbanka Islands hf.,
Samvinnubanka íslands og Iðnlána-
sjóðs fimmtud. 10. nóv. 1988 kl. 10.30.
Orrastöðum, Bfldudal, þingl. eig.
Bergsteinn Ómar Óskarsson, fer fram
eftir kröfo Elvars Amar Unnsteins-
sonar hdl. og Landsbanka íslands
fimmtud. 10. rióv. 1988 kl. 13.30.
Feigsdal, Bfldudal, þingl. eig. Guð-
bjartur Ingi Bjamason, fer fram eftir
kröfo Veðdeildar Landsbanka íslands
fimmtud. 10. nóv. 1988 kl. 14.00.
Selárdal, Bfldudal, þingl. eign Kirkju-
garðasjóðs, fer fram eftir kröfo Stofal-
ánadeildar Landbúnaðarins og.
Brunabótafélags íslands hf. fimmtud.
10. nóv. 1988 kl. 14.30.__________
Hellisbraut 38, Reykhólahreppi, þingl.
eig. Guðmundur Sæmundsson, fer
fram eftir kröfo Veðdeildar Lands-
banka íslands fimmtud. 10. nóv. 1988
kl. 15.00.
Merming
Maðurinn er myndavél
Maðurinn er myndavél
Smásagnasafn eftir Guðberg Bergsson
Forlagið 1988, 133 bls.
Eftirminnileg smásagnasöfn birti
Guðbergur þegar 1964 og aftur 1970,
en ekki síðan nema Hinsegin sögur
1984, en sú bók var samstillt heild
fremur en safn. í þessari nýju bók
eru þrettán smásögur frá undan-
fömum hálfum öðrum áratug. Þær
eru eftir því fjölbreyttar, og safnið
er í rauninni ágætis sýnisbók um
skáldskap Guðbergs. Þeir sem ekki
hafa lesið hann áður, mættu gjam-
an byija á þessari bók. Þarna eru
Suðurnesjasögur sem minna á
djúpbækumar um Hermann og
Dídí, og hreifst ég einkum af
„Dæmisögu um hanska“, brokk-
gengri og fyndinni. Aðrar sögur
eru um „tilvistarvanda einstakl-
ings“, ef sá frasi segir einhverjum
eitthvað. Þá er alltaf um konu að
ræða, og þær eru sjaldnast að
barma sér, ef til vill verður ein-
semd þeirra enn meira stingandi
fyrir bragðið. „Ævintýrið" er tákn-
rænni, „Hálfsögð saga“ er dular-
full, minnir á Hinsegin sögur og
Froskmanninn. Ýmsar sagnanna
hafa birst áður, í Tímariti Máls og
menningar (m.a. „Brúðan" úr
portúgölsku byltingunni), og e.t.v.
víðar. Örstutt skrá um fyrri prent-
anir sagnanna hefði mjög gjarnan
mátt fylgja í þessari bók.
Það eru ekki atburðir, spenna eða
ílétta, sem minnisstæðast verður í
þessari bók, heldur mannlífsmynd-
ir, einstaklingar sem eru dæmi-
gerðir fyrir eitthvað í samtíman-
um. Stíllinn er eftir því margbreyti-
legur og víða eru skopstælingar
ekki síður vel heppnaðar en í
snilldarverki Guöbergs, Tómasi
Jónssyni metsölubók, sem var end-
urútgefið í fyrra. Annars eru sög-
urnar svo margvíslegar að til-
gangslítið virðist að segja meira um
þær almennt. Nær virðist að líta
sérstaklega á eina þeirra, og verður
þá fyrir valinu sú fyrsta og elsta
(frá 1972).
Mannsmynd úr Biblíunni
Þessi saga gerist í Reykjavík ein-
hvem tíma seint á 6. áratugnum,
og eru helstu atburðir þeir að fimm
manna hópur ungmenna hefur
verið að sumbli á Naustinu en fer
síðan heim til eins kunningja að
framlengja skemmtunina. Sá vísar
loks öflum á dyr, sögumaður fer
heim með einu stúlkunni í hópn-
um.
Sagan hefst á stuttri sviðsetn-
ingu; drykkjumóður hópur í snjó.
En síðan koma miklar hugleiðing-
ar, og þá einkum um að vera mað-
ur sjáífur eða eftirlíking einhvers
annars. Þetta stef birtist einnig í
því að skipt er um nöfn á persónun-
um í rás sögunnar. Fólkið öðlast
sjálfsvitund af því að vera í éin-
hverjum hóp, „og allir sátu þeir á
Naustinu og fyrirlitu hver annan
Guðbergur Bergsson: sláandi,
fyndnar afhjúpanir.
fyrir lítilmennsku sína og músar-
holusjónarmið“. Sá dómur hlýtur
þá að vera réttur. Hvers kyns tíska
drottnar í hópnum sem birtist per-
sónugerður fyrst í Adda. Hann er
róttækur, og birtist það einkum í
útliti hans, en hann „lauk síðan
lögfræðiprófi, lét síðan ekki sjá sig
í hópnum en skrælnaði upp á heitri
skrifstofu". Stúlkurnar birtast allt-
af sem hópur, fyrst „með harðvið-
areyrnalokkana, í batikkjólunum
Bókmenntir
Örn Ólafsson
og með smeltarmböndin“, seinna
sér hann eina þeirra ganga „hæg-
um skandinavískum skrefum á tré-
klossum heim til sín, með þijár
mjólkurfernur í grænu innkaupa-
neti og hugsaði eflaust um hvað
vísitölufjölskyldan skilur mikið
rusl eftir sig á hveiju ári og reyndi
að fmna róttæk ráð gegn því (...en
var) umfram allt eðlileg og blátt
áfram undir öllum kringumstæð-
um“.
Andstætt þessari háðsku íýsingu
á aðlögun í nafni þess að vera eðh-
legur er að þegar húsráðandinn
heldur aö enginn sjái til hans, þá
ræðst hann fólskulega á meðvit-
undarlausa menn. Sögumaður ætl-
ar að rísa þeim til varnar, en hætt-
ir við það, af því að honum hefur
sjálfum risið hold í höndum stúlk-
unnar.
Allt frá upphafi er sögumaður að
skilgreina sjálfan sig gagnvart
hópnum. Þaö verður neikvæð skil-
greining; hann er einstæðingur í
meiningarlausu lífi. Við vitum því
ekki mikið um hann, nema hvað
hann segist hafa verið „í felum við
aö vinna og græða sár sín“, seinna
kemur fram að hann hafði verið
fjarri hópnum um haust og fram á
vetur, og breyst við það svo, að
hann er nú ekki lengur unglingur
heldur hálffullorðinn. Ólíkt hinum
er hann ekki fíkinn í vímu, en borg-
ar drykkju hinna og flnnst hann
þannig vera eins konar ísak, en
kunningjahópurinn líti þá á sig
sem föðurmyndina Abraham að
fórna honum. Þetta er þá væntan-
lega skýringin á titli sögunnar. í
sumblinu heima hjá Idda les hann
eins konar Biblíutilvitnun á veggn-
um, og hlýtur það að minna á frá-
sögn Gamla testamentisins af því
þegar Nebúkadnesar kóngi birtist
áletrun á hallarvegg sínum: Þú ert
veginn, metinn og léttvægur fund-
inn. En hér er meiningin alveg
andstæð þessu, hátíðlegur lofsöng-
ur um ættkvísl ísraels, sem ætti
þá að gefa þessum ísak, sögumann-
inum, fyrirheit um að hann verði
dýrlegur. Það væri þá eðlileg afleið-
ing af því að ólíkt hinum hefur
hann staðið einn, utan hópsins.
Sögulokin draga enn fram að
þetta fólk er að mótast fyrir fullorð-
insár. Þegar sögumaður vaknar hjá
stúlkunni verður honum fyrst fyrir
að loka sig inni í klæðaskáp. Stúlk-
an finnur hann þar og grætur,
vegna þess, segir hún, að hún held-
ur að sögumaður verði rellinn eig-
inmaður, samkvæmt mynstrinu.
Hann tekur undir það og skýrir
með bældri löngun shkra manna
til annarra kvenna. Þannig breytist
tónninn í lok sögunnar og verður
aftur farsakenndur.
Auk Biblíutextans, sem er í ljóð-
formi, er önnur klausa sem stingur
í stúf við stíl sögunnar að öðru
leyti. Það er lýsingin á ferð þeirra
í leigubíl frá Naustinu. Seinna
kemur fram að hún er úr sögu eft-
ir einn þeirra, sögu sem lesin er
upp í sumblinu. Og í klæðaskápn-
um finnur - sögumaður margar
stílabækur með sögum þessa fé-
laga, sem er þá líklega fyrirrennari
hans í faðmi stúlkunnar. Svona var
„prósinn" þá, segir sögumaður:
„í gljáandi regninu, sem
sprengdi nálar sínar á slikj-
uöum bjarma flóðljósanna á
malbikinu, en þaðan kast-
aðist ljósspilið upp á móti
hinum svarta himni, eins og
bergmál ljóss, líkt og skín-
andi bolti, á milli tveggja
svartra veggja í tóminu,
jarðar og himins, líkt og
trylltur elddans hins ævar-
andi ekkerts" o.s.frv.
Klausa þessi sýnir hugarfar
hópsins, viðleitni hans til að tjá sig.
Hún er myndræn og háspekileg og
einmitt andstæðan við stflinn á lýs-
ingu hópsins sjálfs sýnir hana sem
tilgerðarlega, logna. Það er eins og
margt annað í þessari bók, sláandi,
fyndnar afhjúpanir.
Leikhús
Dagbókin hans Dadda
Leikritið Dagbókin hans Dadda hefur nú
á undanfómum vikum verið sýnt í Hlé-
garði í Mosfellsbæ við góðar undirtektir.
Það hefur verið staðfært og reynt að hafa
stemninguna sem mest íslenska. Síðasta
sýning á leikritinu verður fóstudaginn
4. nóvember kl. 21.30. Tekið verður við
miðapöntunum í Hlégarði frá kl. 19 á
sýningardag.
Tilkyimingar
Safnaðarfélag Ásprestakalls
Kaffisala félagsins verður sunnudaginn
6. nóvember eftir messu sem hefst kl. 14.
Allir velkomnir.
Lögfræðiaðstoð Orators
Orator, félag laganema, veitir ókeypis
lögfræðiaðstoð á fimmtudagskvöldum frá
kl. 19.30-22 í síma 11012.
Grískt kvöld í Geirsbúð
Vegna veikinda sr. Rögnvaldar Finn-
bogasonar breytist áður auglýst dagskrá,
þannig að í stað hans mim dr. Einar Sig-
urbjömsson tala um grísk-orþódoxu
kirkjuna. Fundurinn hefst kl. 20.30 í
kvöld í Geirsbúð, Vesturgötu 6.
Félageldri borgara
Opið hús í Goðheimum, Sigtúni 3, í dag.
Kl. 14 frjáls spilamennska. Kl. 19.30 fé-
lagsvist. Kl. 21 dans. Óskað er eftir kök-
um á kökubasar sem haldinn verður í
Tónabæ nk. laugardag 5. nóv. kl. 15.
Basarar
Húsmæðrafélag Reykjavíkur
Basarinn verður að Hallveigarstöðum á
sunnudaginn kl. 14. Þær félagskonur sem
eiga effir aö skila munum em beðnar að
hafa samband við Sigríði í síma 14617.
Kvenfélag Háteigssóknar
heldur basar í Tónabæ sunnudaginn 6.
nóvember kl. 13. Á boðstólum verða kök-
ur, handavinna, ullarvörur og fleira.
Heitt kaffi og ijómavöfflur. Tekið verður
á móti gjöfum á basarinn í kirkjunni á
föstudag milli kl. 17 og 19.
Kvenfélag Óháða safnaðarins
verður með kökubasar laugardaginn 5.
nóvember kl. 14 í safnaðarheimilinu
Kirkjubæ. Þá verður einnig flóamarkað-
ur og skyndihappdrætti. Þær sem vilja
gefa kökur og aöra basarmuni komi þeim
í Kirkjubæ á fóstudag kl. 17-19 og á laug-
ardagsmorgun kl. 10-12.
Tapað fundið
Kvenúr tapaðist
sl. mánudag á leiðinni á milli Borgarspít-
alans og Kársnesbrautar í Kópavogi.
Finnandi vinsamlegast hringi í síma
41864.
Tjaldvagni stolið
í Breiðholti
Nýjum Combi Camp fjölskyldutjaldvagni
var stolið fyrir utan UnufeU 23 í Breið-
holti í gær á tímabilinu frá kl. 8-13. Vagn-
inn er með rústrauðri yfirbreiðslu. Ef
einhver hefur séð grunsamlega á ferð
með tjaldvagn í efördragi er hann vin-
samlegast beðinn að hafa samband í síma
71062 eða við lögregluna.
Fundir
Kvenfélag Hallgrímskirkju
Fundur verður haldinn í safnaðarheimiU
kirkjunnar í dag, 3. nóvember, kl. 20.30.
Bjöm Th. Bjömsson Ustfræðingur verð-
ur gestur fundarins. Fleira verður á dag-
skrá, kaffi og að lokum hugvekja sem sr.
Ragnar Fjalar Lámsson flytur. Vænst er
að konur fjölmenni.