Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.1988, Qupperneq 20
20
FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 1988.
íþróttir
• AHi Hilmarsson hefur fallió vei
inn í leik Granollers á Spáni.
Affli skoraði
átta mörk
Eins og fram kom í DV á dögun-
um gekk upp og ofan hjá íslend-
ingaliðunum í spánska handbolt-
anum. Atli Hilmarsson og félagar
hans hjá Granollers unnu stóran
sigur í Arrate, 19-25. Ath, sem
virðist falla vel að leikstíl
spánska liösins, fór hamfórum og
skoraði átta mörk. Var hann lang
atkvæðamestur í liði sínu.
Teka, félag Kristjáns Arasonar,
sýndi hins vegar ekki sinn rétta
svip og lá gegn Valencia,23-20.
Krisfján skoraði tvö mörk, bæöi
með þrumuskotum.
JÖG
Grosswaldstadt
tók forystuna
Sigurður Bjömsson, DV, V-Þýskaland;
Grosswaldstadt tók forystu í
Bundesiigunni í handknattleik
um helgina er liðið sigraði Kiel á
heimavelli meö 24 mörkum gegn
19. Á sama tíma tapaði Essen fyr-
ir Weiche Handewitt á útivelli
með 13 mörkum gegn 12 en fyrir
leiki helgarinnar voru Gross-
waldstadt og Essen jöfn í efsta
sæti.
Úrslit í öðrum leikjum urðu
þessi:
Leutershausen-Göppingen..24-18
Lemgo-Gummersbach....24-25
Dormagen-Hofweier....17-11
• Grosswaldstadt er í efsta sæti
með 13 stig að loknura átta leikj-
um, Essen er í öðru sæti með 11
stig að loknum átta leikjum.
Malmö sigraöi
4. árið í röð
Gunnar Gunnarsson, DV, Sviþjóð:
Sænska úrslitakeppnin er nú á
lokastigi í knattspymunni. Ör-
gryte mætti Malmö FF annars
vegar og fóru leikar 0-1 en viður-
eignin fór fram í Gautaborg. Hins
vegar spiluðu Djurgarden viö
Gautaborg í úrslitunum og unnu
Dýrgarðsdrengimir 2-0.
Þetta vom tyrri viðureignir liö-
anna en þær næstu verða spilaö-
ar eftir hálfan mánuö og fara sig-
urvegarar í hreinan úrslitaleik.
Gautaborgarar eru núverandi
landsmeistarar en Malmö vann
deildarkeppnina fjóröa árið i röö
og fær sæti í meistarakeppni Evr-
ópu. Það lið sem sigrar í úrslita-
keppninni leikur hins vegar í
UEFA-keppninni þótt þaö verki
mótsagnakennt.
Þess má geta að í lok deildar-
keppninnar féll Öster í fyrsta
sinn í sögu félagsins en liöiö kom
upp í Allsvenskan í október 1968
en fellur nú í október 1988. Liðiö
hefur því Jeikiö í sænsku úrvals-
deildinni í 20 ár og gerði til aö
mynda íslendingurinn Teitur
Þórðarson garðinn frægan með
félaginu um árabil.
íslandsmótið í handknattleik:
KA-menn „rúlluðu“
Víkingunum upp!
- unnu 30:20 og sigur þeirra hefði hæglega getað orðið stærri
Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyii:
„Ég er mjög ánægður með leikinn
hjá strákunum, þeir gerðu nákvæm-
lega þaö sem ég lagði fyrir þá og það
skipti öllu máli. Viö höfðum meiri
breidd í leiknum en Víkingar og við
eigum hugsanlega eftir að sýna enn
meiri breidd. Máhð er það að við
höfum ekki getað spilað nógu marga
æfmgaleiki og eins hafa sumir leik-
manna liðsins ekki getað stundað
æfingar af fullum krafti vegna Þess
að þeir hafa veriö í Reykjavík,“ sagði
Ivan Durinec, þjálfari KA, sem vann
yfirburðasigur 30:20 á Víkingi í 1.
deildinni á Akureyri í gærkvöldi.
Júgóslavinn var ánægður og hann
hafði vissulega ástæðu til þess. KA-
liðið lék á köílum í þessum leik betur
en þaö hefur best gert áður og sér-
staklega virðist sem meiri kraftur sé
í liðinu og meiri leikgleði en áður.
Þá hefur breiddin ekki minnkað og
þeir Axel Stefánsson markvörður og
Sigurpáll Aðaisteinsson sem KA fékk
frá Þór settu mikinn svip á leik liðs-
ins.
Leikurinn var jafn framan af eða
þar til staðan var 4:4. Þá skoraði KA
4 næstu mörk og eftir það virtist aldr-
ei spurning um hvort liðið myndi
sigra. Staðan í hálfleik var orðin 12:8,
og KA skoraði síðan 5 fyrstu mörk
síðari hálfleiksins og staðari var orð-
in 17:8 og Víkingar skoruðu ekki fyrr
en á 7. mínútu síðari hálíleiks. Það
sem eftir lifði leiksins gekk á ýmsu,
Víkingar reyndu að taka tvo menn
úr umferð og minnkuðu muninn þá
í 5 mörk en þegar KA hafði fundið
svar við því breikkaði bilið aftur.
KA sannfærandi
KA-liðið var sannfærandi i leik sín-
um. Sóknarleikurinn afar ijölbreytt-
ur, Erlingur Kristjánsson, Friðjón og
Jakob Jónssynir geta allir skorað
fyrir utan, Sigurpáll og Haraldur
Haraldsson stóðu sig vel - sérstak-
lega Sigurpáll sem styrkir liðið veru-
lega, og Pétur Bjarnason stjórnar
spili liðsins. Vörn liðsins opnaðist oft
illa framan af, en var síðan sannfær-
andi og Axel Stefánsson, sem varði
17 skot, þar af 12 í síðari hálfleik, á
án efa eftir að gera það gott í vetur
í markinu. Hann, Erlingur, Sigurpáll
og Guðmundur Guðmundsson voru
bestu menn liðsins að þessu sinni.
Erfitt hjá Víkingi
„Þetta var í samræmi við það sem
menn hafa lagt á sig, æfingasókn hjá
okkur hefur verið afar léleg. Útkom-
an var þó enn verri en ég átti von
á, en KA-liðið virkaði mjög sannfær-
andi,“ sagði Páll Björgvinsson, þjálf-
ari Víkings, eftir leikinn.
Hans bíður erfitt hlutverk í vetur,
enda hefur Víkingsliðið orðið fyrir
blóðtöku síöan í fyrra og við bættist
að Guðmundur Guðmundsson var
meiddur og lék ekki með í gær. En
þeir sem léku voru slakir og gerðu
aragrúa mistaka og þeir voru gæða-
flokki neðar en KA-menn á öllum
sviðum, og á þaö jafnt við um lands-
liðsmenn sem aðra. Það var helst að
Eiríkur Benónísson, sem lék í horn-
inu í stað Guðmundar, sýndi eitthvað
af viti.
Mörk KA: Sigurpáll Aöalsteinsson
9(6), Erlingur Kristjánsson 5(1), Pét-
ur Bjarnason 4, Friöjón Jónsson 4,
Jakob Jónsson 4, Guðmundur Guð-
mundsson 3, og Svanur Valgeirsson
1(1).
Mörk Víkings: Árni Friöleifsson
7(2), Eiríkur Benónísson 4, Bjarki
Sigurðsson 3, Sigurður Ragnarsson
2, Karl Þráinsson 2(1), Jóhann Samú-
elsson 1 og Siggeir Magnússon 1.
Dómarar voru Björn Jóhannsson
og Siguröur Baldursson og afgreiddu
þeir auðveldan leik af öryggi.
Víkingum gekk illa að verjast skyttum KA-manna sem skoruðu mikið í
gærkvöldi. DV-mynd GK
Alfreð og Páll
skoruðu 15
- Þegar KR vann stórsigur á Fram, 18-30
• Alfreð Gfslason sést hér skora eitt af níu mörkum sínum gegn Fram
I gærkvöldi. DV-mynd S
KR-ingar með þá Alfreð Gíslason og
Pál Óiafsson innanborðs virðast vera
íirnasterkir úm þessar mundir ef marka
má leik þeirra gegn Fram í gærkvöldi.
KR-ingar sigruöu með 18 mörkum gegn
30 eftir aö staöan í leikhléi hafði verið
7-15 KR í vil.
í síðari hálfleik breyttist gangur leiks-
ins lítið sem ekkert. KR-ingar réöu allri
framvindu mála og þegar tíu minútur
voru Jiönar af síðari hálfleik var staðan
11-21 KR í vil.
Reyndar veittu Framarar enga mót-
spyrnu í þessum leik ef frá eru taldar
fyrstu rainútur hans. Fljótlega í fyrri
hálfleik tóku þó KR-ingar öll völd á vell-
inum og skoruðu hvert markið á fætur
öðru og voru í raun komnir með unna
stöðu í leikhléi.
Alliog Palli
fóru á kostum
Það er greinflegt og var reyndar vitað
aö þeir Alfreö og Páll styrkja KR-liðið
gifúrlega í vetur og liöiö verður án efa
í toppbaráttunni. Þó má ekki taka leik
liðsins of alvariega gegn afarslöku liði
Fram í gærkvöldi. Þeir Alfreð og Páll
voru allt í öllu hjá KR og skoruðu 15
mörk í leiknum eöa helming marka
KR-inga.
• Mörk Fram: Birgir Sigurðsson 5, Júl-
íus Gunnarsson 4, Egill Jóhannsson 4,
Ólafur Vilhjálmsson 2, Hermann
Bjömsson 1, Sigurður Rúnarsson 1 og
Jason Ólafsson 1.
• Mörk KR: Alfreð Gíslason 9, Páll
Ólafsson 6, Stefán Krisljánsson 5, Sig-
urður Sveinsson 3, Konráð Olavsson 3,
Þorsteinn Guðjónsson 3 og Guðmundur
Albertsson 1.
• Leikinn dæmdu þeir Stefán Arn-
aldsson og Ólafur Haraldsson aö við-
stöddum um 500 áhorfendum.
-SK