Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.1988, Side 34

Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.1988, Side 34
34 FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 1988. Lífsstm íslenskir áhorfendur greiöa 600 krónur fyrir aðgöngumiöa aö kvik- myndinni í skugga hrafnsins eftir Hrafn Gunnlaugsson sem nú er verið aö sýna í Laugarásbíói. Þetta er um helmingi hærra verð en greitt er fyrir miöa á erlendar kvik- myndir almennt. I skugga hrafnsins er sýnd um þessar mundir á Norðurlöndum. í Noregi og í Svíþjóö greiða kvik- myndahúsagestir sama verö fyrir aögöngumiöa á myndina og á aðrar kvikmyndir. Veröiö er um 440 krónur íslenskar í Svíþjóð en 275 í Noregi. Samkvæmt reglum um verð- stöövun er óheimilt aö hækka verö á aðgöngumiðum aö kvikmyndum án þess aö sérstaklega sé sótt um þaö. Engin umsókn hefur borist til Verölagsstofnunar vegna verös á aðgöngumiðum að í skugga hrafns- ins. Samkvæmt ströngustu túlkun laganna er því miöaveröið ólöglegt. Sú hefö hefur hins vegar ávallt ríkt aö miöaverð á íslenskar kvikmynd- ir hefur aö jafnaði verið tvöfalt liærra en á aðrar myndir. Miöaveröið hefur verið rökstutt þannig aö verið sé aö styrkja ís- lenska kvikmyndagerð sem vegna smæöar markaðarins á allt sitt undir góöri aösókn íslendinga. Að sögn Guðbrands Gíslasonar hjá Neytendur Kvikmyndasjóöi hefur markaðurinn tekiö viö þessari hækkun og hefðin því haldist. Grétar Hjaltason, forstjóri Laugar- ásbíós, sagöi aö Hrafn Gunnlaugsson réði aifariö verðlagi aðgöngumiða á myndina. Ekki náðist samband við Hrafn eöa aðra af aðstandendum myndarinnar. -Pá Norskir og sænskir áhorfendur greióa sama verð og venjuiega fyrir að sjá í skugga hrafnsins. Öðru máli gegnir um íslenska áhorfendur sem greiða helmingi hærra verð en venjulega. Um það bil tuttugu atriði eru athuguð í vetrarskoðun sem umboðin bjóða á föstu verði. Ýmis tilboð í gangi Mótorþvottur, skipt um kerti og platínur ef þarf. Skipt um bensín-, olíu- og loftsíu. Blöndungur athugað- ur og stilltur, vifturéim athuguö og skipt um ef meö þarf. Rafgeymir mældur, settur frostlögur á kæli- kerfi, litiö á stýrisbúnað, fjaörir og hemla. ljósin athuguö og stillt. Kúpl- ing stillt og borið silikon á alla gúmmí- og þéttilista. Þetta hljómar eins og allsherjar yfirhalning á fjölskyldubílnum. Þetta eru atriði sem nokkur bílaumboð bjóöa upp á í svokallaðri vetrarskoð- un sem er seld á föstu verði. Mazda umboöiö Bílaborg býöur svona skoðun á 5.680 meö söluskatti. Innifalin eru 19 atriði. Verð vara- hluta og þess sem þarf að skipta um er ekki innifaliö. Toyota umboöið býöur svona vetr- arskoðun á 6.082 krónur meö sölu- skatti. Innifaliö í því veröi er eftirlit meö 22 atriðum og varahlutir eins og platínur, loftsía og frostlögur. Hjá Ingvari Helgasyni er boöiö upp á vetrarskoðun sem innifelur eftirlit meö 20 atriöum. Veröiö er 5.200 meö söluskatti og innfalin eru kerti, plat- ínur, frostlögur og ísvari. Þegar veturinn gengur í garð með frosti og snjó er betra að vera vel undirbúinn meö bíhnn í lagi. Það getur borgað sig aö hyggja að þessum hlutum í tíma áður en hitinn fellur undir frostmark, bíllinn neitar aö fara í gang og hurðirnar frjósa fastar. -Pá Ekki bíða eftir snjónum - skiptið strax um dekk „Þaö kom smákippur í þetta fyrir helgina en um leið og sólin fór að skína datt þaö niður,“ sagði starfs- maður á Gúmmívinnustofunni í samtali viö DV. Hann sagði aö þaö væri fóst regla aö í fyrstu snjóum á haustin yröi örtröð á öllum hjólbarðaverkstæð- um. Til þess að losna viö biö eftir dekkjaskiptingu er hægt að panta tíma á verkstæðum. Full ástæöa er til þess að hvetja fólk til þess aö láta skipta um dekk í tíma áöur en snjór og hálka mynd- ast til þess aö forðast örtröö og síðast en ekki síst til þess að tryggja öryggi sitt í umferðinni. í byrjun október birti DV lauslega verökönnun á dekkjum og þjónustu hjólbarðaverkstæða. Verð á umfelg- un, skiptingu og jafnvægisstillingu á fjórum dekkjum var á bilinu frá 2.180 hjá Bandag og upp í 3.040 hjá Gúmmí- körlunum. Algengasta veröiö var í kringum 2.800. -Pá Þegar snjórinn kemur er betra að vera tilbúinn í slaginn á vetrardekkjum til þess að forðast aðstæður eins og þessar. verðstöðvun „Síðan breyting var gerö á regl- um um verðstöðvun í bytjun okt- óber er ekki rétt aö kalla þetta verðstöövun. Nær væri að tala um strangt verðlagseftirlit,“ sagði Jó- hannes Gunnarsson, blaðafulltrúi Verðlagsstofnunar og formaður Neytendasamtakanna, i samtali við DV. Mikillar óánægju gætir meðal fólks með þær veröhækkanir sem leyfðar hafa verið að undanfornu. Það á sérstaklega við um nýlega hækkun á eggjum og kjúklingum sem fólki finnst koma hart niður á matarinnkaupum heimilanna. Einnig ber við að fólk sé ekki á- nægt með þau svör sem það fær hjá kvörtunarþjónustu Verðlags- stofnunar. „Mér var sagt að stofn- unin skipti sér ekki lengur af svona málum,“ sagöi kona sem hringt haföi og kvartað undan hækkun á skólagjöldum tónlistarskóla meðal annars. „Þegar um er að ræða árstíða- bundnar hækkanir verðum við að taka tillit til kostnaðarhækkana sem orðið hafa á tímabilinu,“ sagði Jóhannes. Hann benti á að verð- skrá tónlistarskóla hefði ekki breyst frá síðústu áramótum. Þær tilslakanir og undanþágur sem gerðar voru á reglum um verð- stöðvun hafa gert almenningi mun erfiðara fyrir að fylgjast með verð- þróun en var á meöan algjör verö- stöðvun gilti í september. -Pá

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.