Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1988, Blaðsíða 2
2
FÖSTUDAGUR 18. NÓVEMBER 1988.
Fréttir dv
Linda Pétursdóttir, nýkjörin ungfrú Heimur:
Ákaflega hamingjusöm
Snemma í morgun mætti hún í viðtal
hjá ITV sjónvarpsstöðinni. Hún sagði
að sér liði ákaflega vel en hún væri
varla búin að ná áttum ennþá. Næsta
ár legðist vel í hana og mest af öllu
hlakkaði hún til að ferðast og kynn-
ast nýju fólki.
Valgerður A. Jóhannsdótlir, DV, London:
„Ég var mjög hissa en einnig ákaf-
lega hamingjusöm," sagði Linda Pét-
ursdóttir, nýkjörin ungfrú heimur, í
gærkvöldi þegar hún var spurð
hvemig henni hefði liðiö þegar ljóst
varð að hún hefði unnið. Linda sagð-
ist í fyrstu ekki hafa verið viss um
að hún hefði heyrt rétt þvi að lófa-
klappið var svo mikið. „Ég trúði
þessu varla, ég átti alls ekki von á
að vinna,“ sagði hún.
Verðlaunin, sem koma í hlut
Lindu, nema tæpum 2,5 milljónum
íslenskra króna. Þá verður hún á
stöðugum ferðalögum um heiminn
næstu 12 mánuðina og sinnir ýmsum
skyldustörfum, svo sem að opna sýn-
ingar, sitja fyrir og fleira. Um leið
og krýningunni var lokið í gærkvöldi
þyrptust tugir ljósmyndara upp á
sviðið og umkringdu Lindu. „Ungfrú
ísland, líttu hingað, httu hingað,“ var
hrópað úr öllum áttum. En lætin í
gærkvöldi voru aðeins forsmekkur-
inn af því sem koma skal. Framund-
an er annasamt ár hjá Lindu.
Nýkrýnd heimsfegurðardrottning, Linda Pétursdóttir, ásamt stöllum sínum,
Yeon-He Choi frá Kóreu, sem varö í 2. sæti, og Kirsty Roper frá Bretlandi
sem varð i 3. sæti. Linda vann ekki aðeins titilinn ungfrú heimur í gær
heldur var hún einnig kjörin ungfrú Evrópa. DV-myndir Reuter
Eitt af því sem keppendur þurftu að
gera var að koma fram á sund-
bolum. Hér sést Linda í þéim þætti
keppninnar.
Ekki var annað að sjá en að Linda væri sallaróleg þrátt fyrir spennuþrung-
ið andrúmsloft í Royal Albert Hall í gærkvöldi þegar komið var að því að
krýna ungfrú heim. Þegar krýningunni var lokið stóð Linda á fætur og gekk
fram undir dynjandi lófataki gestanna.
„Maður bara sveif“
Válgerður A. Jóhaimsdóttir, DV, London:
„Maður náttúrlega bara sveif,“
sagði Ása Hólmgeirsdóttir, móðir
Lindu, þegar hún var spurð hvem-
ig henni hefði verið innanbijósts
þegar úrslitín vora tilkynnL „Það
fyrsta sem Linda sagði við okkur
þegar mestu lætin voru afstaöin
var aö hún vildi fara heim. En
kvöldið var ógleymanlegt. Þetta
var alveg hreint stórkostlegt allt
saman. Auðvitað er maður lika
dálítíð kviðinn eins og alltaf þegar
maður veit ekki hvaö maður er að
fara út í. En Linda er búin að koma
mjög vel út úr þessu öllu saman.
Þessu fylgja auðvitað mikil ferða-
lög, en hún ætti líka aö geta lært
mikið. Hún hefur áður farið aö
heiman, þegar hún var skiptinemi
i Bandaríkjunum í eitt ár. Þannig
að ég vona hið besta að minnsta
kosti.“
íslendingar fögnuðu ákaflega:
Við unniim aftur“
Valgerðux A. Jóharmsdóttir, DV, Londan:
Það voru rúmlega 20 íslendingar
staddir í Royal Albert Hall i gær-
kvöldi og þegar úrslitin voru tilkynnt
mátti heyra fagnaöarhróp á ástkæra
ylhýra málinu í gegnum lófatakið.
Það var greinilegt að íslendingamir
í salnum litu ekki á úrslitin sem ein-
ungis persónulegan sigur Lindu.
„Við unnum aftur, við unnum aft-
ur,“ heyrðist hrópað hvaö eftir ann-
að. Þetta var íslenskur sigur - og ef
eitthvað - enn sætari en síðast vegna
þess hve stutt er síðan Hófi tók titil-
inn.
Sigur Lindu kom þó ekki mjög á
óvart. Veðbankar spáðu henni verð-
launasæti og hún naut mikilla vin-
sælda meðal blaðamanna og ljós-
myndara. Baldvin Jónsson umboðs-
maður sagðist alveg viss um að hún
myndi vinna þegar DV talaöi við
hann fyrir keppnina. „Ég var að tala
við tvo blaðamenn frá The Sun og
Daily Mirror, sem fylgst hafa með
þessari keppni í mörg ár. Þeir veðj-
uðu á Lindu og þeir hafa hingað til
haft rétt fyrir sér. Sú sem’ þeir hafa
veðjað á hefur alltaf unnið."
Þannig var það hka í þetta skiptið
og í annað sinn á fjórum árum ber
íslensk stúlka titilinn fegursta kona
heims.
Steingnmur Hermannson a nokksþmgi framsoknarmanna:
Offjárfesting er byrði eins og
rústimar í Evrópu eftir stríð
- krumlan úr heiönabergi íhaldsins tók fram fyrir hendur Þorsteins
Steingrímur Hermannsson for-
sætisráðherra sagðist trúa því aö
þjóðartekjur íslendinga myndu
dragast saman um 7 til 8 prósent á
næsta ári í ræðu sinni á flokks-
þingi framsóknarmanna í morgun.
Þessi samdráttur jafngildir um 20
milljarða samdrætti í þjóðartekj-
um.
„Það er hrun. Við þessar aöstæð-
ur veröur ekki hjá þvi komist að
tekjur einstakhnga og heimila
lækki,“ sagði Steingrímur.
í ræðu sinni dró Steingrímur upp
dökka mynd af ástandi efnahags-
mála. Meðal annars rakti hann
samtal sem hann hafði átt við sjálf-
stæðismann. Sá hafði reiknað út
aö hin stjómlausa fjárfesting á
undaníornum árum væri svo mikil
aö offjárfestingin jafngilti öhum
erlendum skuldum þjóðarbúsins.
Hann likti ástandinu viö Evrópu
eftir stríð. Þá sátu menn uppi með
rústir stríðsins. Við sitjum hins
vegar uppi með óþarfa fjárfestingu.
Steingrímur ræddi einnig um
ástæöu þess aö síðasta ríkisstjóm
greip ekki í taumana í tíma. Hann
minntist atburða síðasthðins sum-
ars og yfirlýsinga Þorsteins Páls-
sonar eftir ferð hans til Vestfjarða.
„Ég er sannfærður um aö Þor-
steinn Pálsson meinti það sem
hann sagði þegar hann kom vestan
af fjörðum. Það var hins vegar enn
krumlan úr heiðnabergi íhaldsins
sem tók fram fyrir hendur hans.
Því miður er það hún sem ræður
þegar hagsmunir fjármagnsins eru
taldir í hættu. Þannig sleit Sjálf-
stæðisflokkurinn stjórnarsam-
starfinu," sagði Steingrímur.
Sjálfstæðismenn fengu kalda
kveðju víöa í ræðu Steingríms.
Hann stillti ríkissfjóra sinni upp
sem stjóm fyrirhyggju gegn sjálf-
stæðismönnum sem vildu láta
kylfu ráða kasti í flestum málum.
Um yfirlýsingu Þorsteins Pálsonar
um að Framsóknarfiokkurinn væri
höfuðandstæðingm- Sjálfstæðis-
flokksins, sagði Steingrímur:
„Okkur er að sjálfsögðu mikih
sómi sýndur með þvi að vera höf-
uðóvinur íhaldsins í landinu. Við
skulum sýna íhaldinu að við erum
verðugir þessa sóma og ekki heldur
valda frjálslyndum og umbótasinn-
uðum mönnum vonbrigðum í þeim
efnum,“ sagöi Steingrímur.
-gse
r