Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1988, Qupperneq 32

Dagblaðið Vísir - DV - 18.11.1988, Qupperneq 32
jr FRETTASKOTIÐ Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, hringdu besta fréttaskotið i hverri viku greiðast 5.000 krón- þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert fréttaskot, sem birt- ur. Fullrar nafnleyndar er gætt. Við tökum við ist eða er notað í DV, greiðast 2.000 krónur. Fyrir fréttaskotum allan sólarhringinn. Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Simi 27022 Nítján í fangageymslu: Líkamsárásir og drykkjuskapur Nítján manns voru í fangageymsl- lögreglunnar í Reykjavík í nótt. Tvennt var handtekið eftir að hafa veist að stúlku í Austurstræti og veitt henni minni háttar áverka. Þá var ráðist aö tveimur mönnum í Austur- stræti í gærkvöldi. Einn maður var handtekinn fyrir aö rífa yfirhöfn af manni. Þá var eitt- hvað um rúðubrot og fleiri ólæti. Lögreglan í Reykjavík hýsti einnig fanga fyrir lögregluna á Selfossi og í Kópavogi. -sme Ólafsflaröargöngm: Ná 200 metrunum -2* nú um helgina Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyii: „Það gengur allt vel og eftir áætl- un, bæði verklega og fjárhagslega,“ sagði Björn A. Harðarson, staðar- verkfræöingur Vegagerðar ríkisins með jarðgangagerðinni í Ólafsfjarð- armúla. Starfsmenn fyrirtækisins Kraft- taks sf., sem annast gangagerðina, vinna á vöktum alla daga og er unn- ið frá sex á morgnana til klukkan tvö (siM-nóttunni. Á fimmtudag voru göngin orðin um 180 metra löng, þá hafði verið sprengt fyrir einu útskoti í göngunum og einnig var búið að sprengja út „verkstæðishelli" þar sem starfsmenn Krafttaks munu vinna að viðgeröum og viðhaldi á vélum og tækjum sem þeir nota i göngunum. Varðskipið Óðinn: Færði Skipaskaga til ísafjarðar Varðskipið Óðinn færði tpgarann Skipaskaga AK til hafnar á ísafirði í '••^ærkvöldi. Varðskipsmenn fóru um borð í Skipakaga þar sem hann var á togveiöum á Deildargrunni í gær. Möskvar í poka í vörpu togarans reyndust vera smærri en lög gera ráð fyrir. Mál skipstjórans verður væntan- lega tekið fyrir hjá bæjarfógetanum á Isafirði í dag. -sme Bílstjórarnir aðstoða 25050 senDiBíuisTöÐin LOKI Þarf maður þá að fara á fund hjá AA-samtökunum! Ólafur Ragnar og Jón Baldvin á trúnaðarmannaráðsfundi Dagsbrúnar: Greinilega stefnt að samruna A-flokkanna - þvi það komst ekki hnífurinn á miUi þeirra, segir Guðmundur J. Guðmundsson „Við óskuðum eftir því að þeir Jón Baldvin utanríkisráðherra og Ólafur Ragnar fjármálaráöherra mættu á þennan trúnaðarmanna- ráösfund og sætu þar fyrir svörum, hvað þeir og gerðu. Þeir svöruðu spurningum í þtjá klukkutíma og eftir það er ég ekki í nokkrum vafa um að í báðum flokkum er unnið af krafti að sameiningu þessara flokka. Samstarfið er hafið í ríkis- stjóm, síðan er það verkalýðs- hreyfmgin og sveitarfélögin, þar sem því verður við komið. Það komst ekki hnífurinn i milli þeirra Jóns Baldvins og Ólafs Ragnars í gærkvöldi. Ekki einu sinni í álmál- inu eða varaflugvaUarmá!inu,“ sagði Guömundur J. Guðmunds- son, formaður Dagsbrúnar, í sam- tali við DV. Þessu til viðbótar má geta þess að á morgun, laugardag, er boöað- ur sérstakur fundur á Hótel íslandi ura sameiningu A-flokkanna og er fundurinn í tengslum við flokks- þing Alþýðuflokksins. Guðmundur J. sagöi að ráðherr- arnir hefðu spurt fundarmenn í gærkvöldi, sem voru rétt um eitt hundrað, hvort þeir væm tilbúnir til að taka höndum saman og berj- ast með ríkisstjóminni gegn þeim árásum atvinnurekenda og Sjálf- stæðisflokksins sem þegar væru hafnar, eins og þeir kölluðu það. Var þeirri spumingu svarað ját- andi. Samkvæmt öðrum heimildum DV þurfti aö stoppa menn í að flytja tillögu á þessum fundi um að þegar í stáð yrði hafist handa um samein- ingu flokkanna. Þótti sumum fund- urinn ekki rétti vettvangurinn til slíks. -S.dór Manndráp: 67 ára maður fannst látinn í íbúð sinni Kona um sjötugt lést í gærdag eftir að sendiferðabíl var ekið á hana á gangbraut á Garðastræti í Reykjavík. Slysið var tilkynnt til lögreglu klukk- an rúmlega fimm í gærdag. Konan var að gangá yfir gangbraut við Hall- veigarstaði þegar sendiferðabifreið, sem var ekið niður Túngötu, beygði inn í Garðastræti og á hana. Konan var látin þegar komið var með hana á sjúkrahús. Þetta er fjóröa slysið á gangbraut í miöbæ Reykavíkur á þremur dög- um. Lögreglan hefur af þessu miklar áhyggjur og væntir þess að ökumenn sem og gangandi veröi vel á veröi í skammdeginu. -sme - 38 ára maður gnmaður Sextíu og sjö ára gamall maður fannst látinn í íbúð sinni í Haga- hverfi í Reykjavík í gærmorgun. Á líki mannsins voru talsverðir áverk- ar og greinilegt að hann hafði látist af völdum stungna eftir eggvopn. Rannsókn málsins er á byrjunarstigi. Þrjátíu og átta ára karlmaður var handtekinn síðdegis í gær. Hann er grunaður um að vera valdur að dauða mannsins. Formlegar yfir- heyrslur hafa ekki farið fram. Gæsluvarðhaldsúrskurðar verður væntanlega krafist í dag. Rannsóknarlögregla ríkisins vinn- ur að rannsókn málsins. Eins og áður sagði er rannsóknin á frumstigi og ekkert hefur enn komið fram um hver ástæðan fyrir verknaöinum er. Sá sem handtekinn var hefur ekki verið dæmdur fyrir líkamsárásir eða álíka mál. -sme Lögreglan handtók mann í nótt grunaðan um að hafa brotist inn í Sparisjóð Kópavogs í Engihjalla og fleiri fyrirtæki í sömu byggingu. Þjófurinn haföi ekki árangur sem erfiöi í sparisjóðnum. Þar eru öll verðmæti í kyrfilega læstum hirsl- um. Ekki er vitað hverju maourmn net- ur getað stolið frá öðrum fyrirtækj- um. Þó er vitað að hann gaf sér góö- an tíma og reykti meðal annars tvo vindla og át sælgæti úr jóladagatali. Einhverjar skemmdir vann maður- inn á hurðum og fleiri innanstokks- munum. Þegar maðurinn komst inn um glugga á annarri hæð hússins var ekki farið að snjóa. Þegar hann lagði á flótta eftir að þjófavarnakerfi spari- sjóðsins fór í gang hafði fallið snjór og því var hægt að rekja slóð hans. -sme Gangbrautarslys: Kona um sjötugt beið bana Veðrið á morgun: Hægviðri og frost Á morgun verður hæg breytileg átt á landinu. Frost verður þó- nokkurt um allt land, mest inn til landsins og á Norðurlandi. Skýjað verður á mestöllu landinu. Hitinn verður -2-8 stig. Miklir húsflutningar fóru fram í miðbæ Reykjavikur í nótt þegar syðsti hlutinn af Lækjargötu 4 var fluttur upp á Árbæjarsafn. Flutningurinn gekk vel en ætlunin er að flytja miðhluta hússins, sem er elstur, eftir hálfan mánuð. Þetta hús hefur stundum verið kallað Ingibjargar-Johnsen-húsið og er eitt af fyrstu tvílyftu íbúðarhúsunum sem hér voru byggð. Hafa nú um 25 hús verið flutt upp á Árbæjarsafn. DV-mynd KAE

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.