Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1988, Side 2
2
FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1988.
Fréttir
_____________________________________________________DV
Öll tekjuöflimarfrumvörpin að lögum fyrir jól:
Aðalheidur greiddi atkvæði
eins og stjórnarþingmaður
fjárlög afgreidd eftir áramót
Aöalheiöur Bjarní'reðsdóttir, þing-
maður Borgaraflokksins, greiddi at-
kvæöi í einu og öllu eins og stjórnar-
þingmenn viö afgreiðslu stóru tekju-
öflunarfrumvarpanna í neðri deild í
gærkvöldi og tryggöi þar meö fram-
gang þeirra. Þar með varö endaplega
Ijóst aö ríkisstjórnin næöi öllum sín-
um málum fram.
Þegar Aðalheiður geröi grein fyrir
atkvæðum sínum sagöi hún aö vegna
aöstæðna í þjóðfélaginu þyrfti aö
samþykkja lög um nýja tekjuöflun
fyrir ríkissjóð. Stjórnarandstaðan
hefði engin slík frumvörp lagt fram.
Það væri því ábyrgðarleysi aö fella
frumvörp stjórnarinnar.
Aðalheiður og Óli Þ. Guöbjartsson,
flokksbróðir hennar, höfðu setið hjá
fyrr um daginn við atkvæðagreiðslu
í lok annarrar umræðu bráðabirgða-
laganna. Þriðju umræðu um þau var
frestað til 4. janúar á næsta ári.
Stjórnarandstaðan féll frá þeirri
kröfu sinni að gengiö yrði til lokaat-
kvæða um lögin þar sem stuðningur
þingsins viö þau var orðinn ljós.
Afgreiöslu á fjárlögum var einnig
frestað fram yfir áramót. Sameinað
þing mun því samþykkja sérstakar
greiðsluheimildir til íjármálaráð-
herra í dag svo að hann geti greitt
út laun og önnur óumflýjanleg út-
gjöld fyrstu daga næsta árs.
Lítils háttar breyting var gerð á
tekju- og eignarskattsfrumvarpinu
að kröfu Karvels Pálmasonar. Hann
hafði lýst því yfir að hann styddi
ekki hækkun tekjuskatts einstakl-
inga umfram þau 2 prósent sem Al-
þýðuflokkurinn hafði samþykkt. Að
málamiðlun varð að í lögunum mun
segja að 2,3 prósent hækkun skatts-
ins sé til bráðabirgða og gildi aöeins
næsta ár.
í gær varð stjórnarliðum ljóst að
verndartollar á innfluttu grænmeti
myndu lækka úr 30 prósentum í 20
um næstu áramót. Því var lagt fram
og afgreitt úr neðri deild frumvarp
sem frestar þessari lækkun um eitt
ár.
í dag mun Alþingi afgreiða stóru
skattfrumvörpin sem lög og greiöslu-
heimildir til fjármálaráðherra. í
kvöld hefst jólafrí þingmanna. Þing
kemur aftur saman 4. janúar og situr
í tvo til þrjá daga. Þá fara þingmenn
aftur í frí.
-gse
Bráðabirgðalögin
bíða fram í janúar
Bráðabirgðalögin verða ekki af-
greidd sem lög frá Alþingi fyrr en
eftir áramót og þá væntanlega um
leiö og fjárlögin eða í kring um 5.
janúar. Þau verða hins vegar af-
greidd frá neðri deild í dag en eftir
er að afgreiöa þau með breytingartil-
lögum í efri deild. Að sögn Guðrúnar
Helgadóttur, forseta Sameinaðs
þings, átti hún ekki von á löngum
fundi í dag og taldi líklegt aö þingið
kæmist í langþráð jólafrí síðdegis.
Guðrún lagði mikla áherslu á það
að þinghald yrði ekki milli jóla og
nýárs og sagöist fagna því mjög að
þaö heföi tekist. Reglulegt þinghald
hefst aftur 23. janúar en þingmenn
verða þó að koma í janúarbyrjun til
að afgreiöa íjárlög og bráöabirgða-
lögin. -SMJ
Kind varð fyrir
flugvél og drapst
Kind drapst samstundis þegar
hún varð fyrir flugvél á flugvellin-
um i Vestmannaeyjum i gærmorg-
un. Flugvél af gerðinni Piper Navjo
frá Val Andersen var aö heíja sig
til ílugs þegar flugmaöurinn, Pétur
Jónsson, sá skyndilega íjórar kánd-
ur á flugbrautinni. Þremur þeirra
tókst að forða sér. Ein rakst á hjóla-
legg flugvélarinnar.
Pétur lenti vélinni strax aftur og
við skoðun kom í Ijós að ekkert var
aö vélinni svo hún var komin í fulla
notkun skömmu síöar.
Myrkur var er óhappið varð.
Greinilegt er að kindurnar hafa
komist inn fyrir girðingu sem er
viðflugvöllinn. -sme
Blómakörturnar streymdu til Lindu við komuna til Vopnafjarðar. Hér er hún
við blómahafið ásamt foreldrum sinum, Ásu Hólmgeirsdóttur og Pétri 01-
geirssyni. DV-mynd Ásgeir
Llnda komin heim:
Æðislegt að
fá að sofa út
Kríuhólar:
Ráðist á tvær konur
Lögregla og sjúkrahð voru kvödd
aö íbúð við Kríuhóla í Reykjavík um
klukkan átta í gærkvöldi. Þar hafði
ungur maöur ráðist að tveimur kon-
um. Flytja varð þær á slysadeild.
Lögreglan leitaði árásarmannsins
i gærkvöldi og í nótt.
-sme
„Ég hef aðallega slappað af síðan
að ég kom heim og þaö er alveg æðis-
legt að fá að sofa út,“ sagði Linda
Pétursdóttir heimsfegurðardrottn-
ing sem nú er komin til síns heima
á Vopnafirði.
Þegar Linda kom heim fyrr í vik-
unni beið hennar múgur og marg-
menni á flugvellinum. Þar voru flutt
ávörp og henni færð blóm. „Ég held
að þaö hafi aldrei annar eins fjöldi
verið samankominn á flugvellinum,"
sagöi hún.
Linda byrjaði á því að fara í heim-
sókn á hótelið og í frystihúsið þegar
hún kom austur en hún hefur unnið
á báðum stöðum. Hún heldur suður
til Reykjavíkur á nýársdag en að
kvöldi hans verður hún heiðursgest-
ur á Hótel íslandi. Á landinu dvelur
hún svo til 13. janúar. Hún sagðist
ekkert vera farin að hugsa til brott-
fararinnar enn en aðspurð hvað hún
vildi helst fá í jólagjöf.svaraði hún:
„Góð og gleðileg jól.“
-JSS
Bókalisti DV:
Bókin um Leif Muller
komin í annað sætið
„Ég get ekki sagt að þetta komi athygli. Þar á meðal var Jón Karls-
mér á óvart. Þeir sem sáu verkiö á son hjá Iðunni sem hafði mikla trú
meðan ég var að vinna það sann- á þessari bók og veitti mér frá upp-
færðu mig um að þetta væri góð bók hafi góðan stuðning. Bókin fór rólega
sem ætti eftir áð vekja umtalsverða af stað en er nú að fá þær viðtökur
Listi DV yfir 10 söluhæstu bækurnar í síöustu viku:
1. (1) Ein á forsetavákt..................Steinunn Sigurðardóttir
2. (7) Býr íslendingur hér?....................Garðar Sverrisson
3. (5) Forsetavélinni rænt.:..........John Denis/AUstairMacLean
4. (2) Og þá flaug Hrafninn..................Ingvi Hrafn Jónsson
5. (3) Bryndís..............................Ólína Þorvaröardóttir
6. (9) Markaðstorg guðanna................Ólafur Jóhann Ólafsson
7. (-) Öldin okkar
8. (4) Á miöjum vegi í mannsaldur.........Guömundur Daníelsson
9. (6) íslenskir nasistar..............Illugi og Hrafn Jökulssynir
10.(-) Sigurbjöm biskup...................Sigurður A. Magnússon
sem fyrstu lesendurnir sögðu mér
að hún myndi fá og fyrir þaö er ég
mjög þakklátur," sagði Garðar
Sverrisson rithöfundur en bók hans
um Leif Muller reyndist næstsölu-
hæsta bókin þessa vikuna þó hún nái
ekki aö skáka bókinni um Vigdísi.
Garðar sagðist ekki hafa neina
skýringu á því af hverju bækur sem
fjölluðu um tengsl íslendinga og nas-
ista nytu þvílíkrar hylli nú. Hluti af
skýringunni gæti þó veriö að nægi-
lega langur tími væri nú liðinn til
að hægt væri að fjalla um þessa hluti.
Það er ekki mikið um breytingar á
listanum en þó koma tvær bækur þar
inn sem ekki voru síöast. Það er ein-
róma álit bóksala að bókin Ein á for-
setavakt njóti langmestrar hyfli og
eru reyndar ýmis teikn á lofti um að
Bók Garðars Sverrissonar um Leif
Muller og hörmungar þær sem Leif-
ur upplifói i fangabúðum nasista
nýtur mikillar hylli.
sú bók fái einstaka sölu.
Bóksalar voru bjartsýnir á söluna
og töldu að bóksala yrði síst minni
nú en í fyrra en flestir voru að biða
eftir bóksöludeginum mikla, Þor-
láksmessu.
-SMJ
Þingmenn Borgaraílokks:
Harma afstöðu
Aðalheiðar
Allir þingmenn Borgaraflokksins,
sem tóku til máls um hækkun vöru-
gjalds og tekju- og eignarskatta, sögö-
ust harma þá ákvörðun flokkssystur
sinnar, Aðalheiðar Bjarnfreðsdóttur,
að styðja þessi frumvörp ríkisstjórn-
arinnar í neðri deild.
Aðrir þingmenn Borgaraflokksins
í neðri deild greiddu atkvæði gegn
þessum frumvörpum. Aðalheiður
greiddi hins vegar atkvæöi eins og
stjórnarþingmenn; bæði með tillög-
um stjórnarliða og eins gegn tillögum
stjórnarandstæðinga og þá einnig
Borgaraflokks. -gse
Kvennálistinn:
Fékk ekki að
samþykkja
sætindaskatt
Þaö fór ekki svo aö Kvennalistinn
greiddi atkvæði með sérstökum
skatti á sætindi á Alþingi í gær eins
og flokkurinn hafði þó lýst sig fylgj-
andi.
Ástæðan var sú að frumvarp um
breikkun vörugjaldsstofns og sér-
staks skatts á sælgæti, gos og kex var
boriö þannig upp að Kvennalistinn
gat ekki greitt atkvæði með skatti á
sætindi án þess að samþykkja næst-
_um allt frumvarpið. í því var einnig
"~ákvæðl“um að vörugjald skyldi lagt
á byggingarvörur, húsgögn og bíla-
varahluti sem Kvennalistinn var
mótfallinn.
Eftir sem áður var sætindaskattur-
inn samþykktur ásamt öörum hlut-
um frumvarpsins í neðri deild meö
atkvæðum stjórnarþingmanna og
Áðalheiðar Bjarnfreðsdóttur. -gse
Áfengi hækkar
ekki fyrr en
á næsta ári
Þar sem staðfestingu bráðabirgða-
laganna var frestaö fram yfir áramót
á Alþingi í gær var jafnframt frestað
breytingartillögu við þau sem heim-
ilar íjármálaráðherra að hækka
áfengi og tóbak þrátt fyrir þau
ákvæði laganna að ólöglegt sé að
hækka vöruverð umfram það sem
nemur kostnaðarhækkunum erlend-
is.
Ef fjármálaráöherra ætlaöi að
hækka áfengi og tóbak áður en þing-
ið afgreiðir bráöabirgðalögin þyrfti
ríkisstjórnin því aö setja sérstök
bráöabirgðalög sem heimiluöu þessa
hækkun. Það er því afar ólíklegt að
áfengi og tóbak muni hækka fyrr en
eftir fyrstu vikuna í janúar þegar
Alþingi hefdur staðfest bráöabirgða-
löginmeðbreytingum. -gSe