Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1988, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1988, Blaðsíða 20
20 FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1988. FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1988. Guðni má leika með gegn Luton - Tottenham fékk helmild 1 gær „Tottenham hefur fengið því fram- gengt að ég megi leika rneð aöalliði félagsins. Stjórn deildaliðanna vildi ekki heimila mér það vegna þess að samningur minn við Tottenham tek- ur ekki formlega gildi fyrr en ég fæ varanlegt atvinnuleyfi í landinu en stjórn Tottenham gat bent á fordæmi þar sem áhugamaður hefði fengið að leika án samnings og það dugöi," sagði Guðni Bergsson, landsliðsmað- ur í knattspyrnu, í samtali við DV í gærkvöldi. Guðni gekk frá samningi sínum við Tottenham sl. föstudag en hann er ekki formlega genginn í gildi eins og áður segir. Hann er með atvinnu- leyfi til bráðabirgða sem rennur út í fyrstu vikunni í janúar. Með þessu er Tottenham heimilt aö nota Guðna þegar liðið fær Luton í heimsókn í 1. deildar keppninni á annan í jólum. „En það er annaö mál hvort ég verð látinn leika. Liðið hefur unnið tvo sannfærandi sigra í röö og það væri rökrétt að gera engar breyt- ingar á því þannig að ég á eins von á að verða ekki valinn,“ sagði Guðni. Jólahald enskra knattspyrnu- manna er ekki mikið. Guðni og félag- ar æfa á Þorláksmessu og aðfanga- dag og þeir sem veröa valdir fyrir leikinn gegn Luton fara inn á hótel um kvöldmatarleytið á jóladag og dvelja þar um nóttina. -VS Malmö tapaði heima gegn Redbergslid - 1 sænsku úrvalsdelldinni 1 gærkvöldi íþróttir „Grafarvogsmálið“ Formaður af villigötu Einn minna ágætu félaga sendi mér kveðju í DV sl. mánudag. Ástæðan var lítil vamargrein vegna nýstofnaðs félags sem langar að lifa. Þótt ég sé flestu sammála í greininni og fagni mörgu kemst ég ekki hjá að koma með smávægilegar ábendingar. 1. UMEI hefur engu Reykjavik- urfélagi sett stólinn fynr dyrnar eða gert tilraun til þess. Ef átt er viö greinarstuf minn þá var hann til varnar Reykjavíkurfélagi. 2. Um þekkingarleysi mitt á íþróttamálum Reykjavíkur má sjálísagt deila og er sjálfsagt eng- inn fullkominn í þeim efnum. Eg á börn sem hafa tekið þátt í starfi hjá fjórum félögum í Reykjavík og hef reyndar sjálfur verið í tveimur, þótt nokkuð sé um liðið. 3. Ekki get ég séð að með grein minni hafi ég lýst neinni óvild íþróttahreyfingarinnar í Reykja- vík til UMFÍ, þótt ég segði að sum- um hefði brugðið er ungmennafé- lag var stofiiað í Reykjavík og engu illu orði vék ég aö einu ein- asta félagi í Reykjavik og minnist ekki að hafa gert. Ég benti aðeins á að félag, sem hefur haslað sér völl á ákveðnu svæði, hafi skyld- ur gagnvart því svæði. Ég fagna ummælum félaga míns um að stuðla að uppbygg- ingu svæðisins í Grafarvogi fyrir félagið þar, Fjölni. Ég hef reyndar aldrei efast um einlægan áhuga hans fyrir uppbyggingu íþrótta- aðstöðu í Reykjavík. Það sem mestu máli skiptir er að byggja upp öflugt æskulýðs- og íþróttastarf og gefa sem flest- um möguleika á þátttöku hvar sem þeir búa. Um það ættum við ekki aö þurfa að deila. Pálmi Gíslason, form. UMFÍ HM í knattspymu: Stórsigur Spánverja Spánverjar unnu stórsigur á Norður-írum, 4-0, þegar þjóðim- ar mættust í 6. riðli undankeppni HM í Seville i gærkvöldi. Rogan skoraði sjálfsmark í fyrri hálf- leiknum og síðan skoruðu Butragueno, Michel og Fem- andez þrjú mörk á tíu mínútum snemma í síðari hálfleik. Staðan í 6. riðli: Spánn....2 2 0 0 6-0 4 Ungveijal..2 110 3-2 3 N-írland......4 112 3-53 írland....2 0 11 0-2 1 Malta.....2 0 11 2-5 1 -VS Malmö mátti sætta sig við ósigur, 27-30, gegn Redbergslid á heimavelli í sænsku úrvalsdeildinni í hand- knattleik í gærkvöldi. Staðan í hálf- leik var 8-14, Redbergslid í hag, en í síðari hálfleiknum náði Malmö að minnka muninn í tvö til þrjú mörk en vantaði herslumuninn til að jafna. Gunnar Gunnarsson skoraði þrjú marka Malmö en markahæstur í lið- inu var hornamaðurinn Jörgen Kamph sem skoraði 7 mörk. Björn Jilsen skoraði 6 mörk fyrir Red- bergslid og Markus Wieslander 5 en í liðinu eru sjö leikmenn sem hafa leikið með sænska landsliðinu á þessu ári. Eftir níu umferðir eru Sávehof og Drott efst með 14 stig, Redbergslid 13, Cliff 12, GUIF og Lugi 11, Katar- ineholm 8, Ystad, Malmö og Kropps- kultur 6, Saab 4 og Karlskrona rekur lestina með 2 stig. -GG/VS Iþróttamaður ársins 1988 Nafn íþróttamanns: íþróttagrein: 1. 2. 3. 4. 5. Nafn: Sími: Heimilisfang:_ Sendið til: íþróttamaður ársins - DV - Þverholti 11-105 Reykjavík. L Af hverju finnst KRÖKKUM bækurnar um LITLU VAMPIRUNA svona skemmtilegar? Þær eru FYNDNAR SPENNANDI ÆVINTÝRALEGAR 0G GÓÐAR! Nálin bókaútgáfa • Þorgils Óttar Mathiesen er ekki svipur hjá sjón þessa dagana með íslenska landsliðinu frekar en margir aðrir lykilmenn liðsins. í gærkvöldi misnotaði Þorgils Óttar mörg góð marktækifæri, nokkuð sem hann gerir ekki við eðlilegar aðstæður. DV-mynd Brynjar Gauti íslendingar mörðu sigur 1 síðari vináttuleiknum við Svía: „Stutt í að mig fari að dreyma handbolta“ - Landsnðsmenmrnir eru að gefast upp. Hrafh og Guðjón skópu sigurinn „Leikmenn íslenska landsliðsins eru alveg yfir sig þreyttir. Ég til dæmis er búinn að eyða svo að segja hverjum ein- asta degi síðustu tvö árin við æfingar eða keppni og svo er um marga fleiri," sagði Alfreð Gíslason eftir nauman sig- ur íslenska landsliðsins í handknattleik gegn því sænska í Laugardalshöll í gær- kvöldi. ísland marði eins marks sigur, 23-22, eftir að hinir ungu Svíar höfðu haft forystuna í leikhléi, 7-11. Leikurinn í gærkvöldi var nánast martröð á að horfa. Baráttuglaðir Svíar yfirspiluðu íslenska liðið lengst af og ef frá eru taldar nokkrar mínútur í síðari hálfleik var leikur íslenska liðsins hroðalega lélegur. En sigur vannst í leiknum og það var mikil sárabót. Reyndar var heiður landsliðsins okkar í veði og sigurinn því mikilvægur. Menn verða að átta sig á staðreyndum Frammistaða íslenska landsliðsins í fyrri leiknum hefur verið eitt helsta umræðuefni íþróttaáhugamanna upp á síðkastið og síðari leikurinn mun ekki síður verða umræðuefni enda ástandið alvarlegt. Bogdan hefur verið gagn- rýndur fyrir innáskiptingarnar, valið á liðinu og fleira og fleira. Allt á þetta eflaust rétt á sér. En staðreyndin er hins vegar sú að leikmenn landsliðsins, og þá er átt við þá sem léku á síðustu ólympíuleikum, eru að þrotum komnir líkamlega og andlega. Það er ekki enda- laust hægt að hlaða verkefnum á sömu herðarnar og ætlast sífellt til þess að liðið nái að sýna toppleik. Og það er heldur ekki hægt að krefjast þess að menn berjist af fullum krafti einungis vegna þess að þeir leiki í landsliðspeys- um. Þrekið verður að vera fyrir hendi. Ef haldið verður áfram að djöfla leik- mönnum landliðsins út eins og þrælum fram að b-keppninni geta menn gleymt þeim draumum að ísland eignist aftur a-þjóð í handknattleik. Svíaleikirnir voru alger tímaskekkja Þeir tveir vináttuleikir sem nú eru aö baki gegn Svíum voru gersamlega til- gangslausir. En fyrst ákveðið var að fá Svía hingað með tíu nýliða átti að gefa ungum leikmönnum tækifæri í leikjun- um í stað þess að „keyra“ sífellt á upp- gefnum ólympíuförum. „Það er engin leikgleði í þessu núna hjá okkur. Mín skoðun er sú að landsliðið ætti algerlega að fá frí þar til í lok janúar. Þá kæmu menn inn í þetta fullir af leikgleði og hungraðir í að gera góða hluti. Þá myndu menn berjast og hafa gaman af því í stað þess að reyna af veikum mætti að berjast af eintómri skyldu- rækni,“ sagði Alfreð Gíslason eftir leik- inn gegn Svíum í gærkvöldi og hann bætti við: „Það er mjög stutt í að mig fari að dreyma handbolta." Nýliðarnir stóðu sig frábærlega vei í heild var leikur íslenska liðsins í gær- kvöldi mjög slakur. Þó áttu þeir Hrafn Margeirsson, markvörður úr ÍR, og Guðjón Árnason úr FH, sem lék sinn fyrsta landsleik, mjóg góðan leik. Hrafn varði 16 skot, eitt víti, og Guðjón gerði vart mistök er hann kom inn á í síðari hálfleik og skoraði 5 mörk. Aörir leik- menn voru ekki svipur hjá sjón. Tæpt í lokin Svíar komust yfir strax í byrjun leiks og héldu forystunni allt þar til um miðj- an síðari hálfleikinn. Mest höföu Svíar sex marka forskot í fyrri hálfleik. í leikslok munaði minnstu að sigrinum yrði gloprað niður. Svíarnir voru með knöttinn síðustu 20 sekúndurnar en tókst ekki að skora. Mörk íslands: Guðjón Árnason 5, Valdimar Grímsson 5, Sigurður Sveins- son 3, Þorgils Óttar Mathiesen 3, Júlíus Jónasson 2, Héðinn Gilsson 1 og Guð- mundur Guðmundsson 1. Danskir dómarar voru hörmulega slakir og fór íslenska liðið illa út úr dómgæslu þeirra. íslendingar voru ein- um leikmanni færri í 6 mínútur en Svíar í 4 mínútur. -SK 21 fþróttir Haf þor i Kalmar - mjög góður samningur, segir Hafþór Sveinjónsson Hafþór Sveinjónsson hefur skrifað undir eins árs samning við hið kunna 1. deildar félag Kalmar frá Svíþjóð. Eins og DV hefur áður sagt frá settu Svíam- ir sig í samband við Hafþór í síðasta mánuði, hann fór og æfði meö þeim í eina viku og í kjölfar þess var gengið Ul samninga. Hafþór heldur utan til æf- inga strax eftir áramótin. „Samkvæmt þeim upplýsingum, sem ég hef aflað mér, er þetta mjög góður samningur sem ég get ver- ið hæstánægður með. Þetta er mikil uppreisn æru fyrir mig eftir aö hafa átt í basli í knattspyrnunni hér heima 1 mörg ár og þarna fæ ég gullið tækifæri til að sanna mig,“ sagði Hafþór í samtali við DV í gær. Hafþór er 26 ára og lék með Fram til ársins 1984, reyndar smátíma einnig með Víkingi og einnig einn vetur með vestur-þýska 3. deildar liðinu Paderborn. Hann missti af timabilunum 1985 og 1986 vegna meiðsla, sat á varamannabekk Valsmanna 1987 en lék með Víði í 2. deild sl. sumar. Kalmar er eitt af kunnari knattspymufélögum í Svíþjóð. Það féii á tveimur árum úr úrvalsdeildinni niður í 2. deild og lék einmitt við Skagamenn í Evr- ópukeppni í fyrra, 1987. Liðið vann sig í haust upp úr 2. deild í fyrstu tilraun og leikur því í 1. deild á ný á næsta ári. -VS í Billiardbúðinni er aðal áherslan lögð á og þjónustu gæði Svo þú getir spilað borðtennis, billiard eða stundað pílukast af einhverri alvöru skaltu leita til þeirra, sem bjóða ein- göngu upp á vönduð og viðurkennd merki og þar sem þú getur gengið að góðri þjónustu vísri. Á þetta allt leggur Billiardbúðin megin áherslu. Þar færðu Champion borð- tennisborð, Riley billiardborð og Unicorn pílukastvörur, allt heimsfræg merki. Og þegar slík merki eiga í hlut dugar ekkert minna en fyrsta flokks þjónusta. Leikurinn hefst fyrir alvöru í Billiardbúðinni, Ármúla 15. „Nýliðagleðin skóp sigurinn“ - sagði Þorbjöm Jensson „Nýliðamir í íslenska liðinu, Hrafii Margeirsson og Guðjón Árnason, léku báðir mjög vel og það má þakka þeim fyrir þennan sigur gegn Svíum. Það var nýliðagleðin sem skóp þennan sigur,“ sagði Þorbjöm Jensson, fyrrum fyrirliði landliðsins, eftir leikinn gegn Svíum í gærkvöldi. Þrjár breytingar voru gerðar á ís- lenska liðinu í gærkvöldi frá fyrri leikn- um gegn Svium. Markveröimir Einar Þorvarðarson og Brynjar Kvaran vom iátnir hvíla ásamt Páli Ólafssyni. Hrafh Margeirsson og Guðmundur Hrafnkels- son komu í markið og Guðmundur Guö- mundsson lék í stað Páls. Það var því aöeins einn miðjumaður í íslenska liðinu í gær, nýliðinn Guðjón Árnason, FH. -SK \|e\^eu« tWvaví't Metð W-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.