Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1988, Síða 9
FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1988.
9
dv Utlönd
Tyrkinn Huseyin Yildirim var hand-
tekinn í gær í Bandarikjunum ásamt
bandarískum hermanni. Eru þeir
grunaðir um njósnir fyrir Austur-
Þjóðverja. Símamynd Reuter
Handtekinn
vegna gruns
um njósnir
Steinunn Böðvarsdóttir, DV, Washington;
Bandarísk alríkisyfirvöld hand-
tóku í gær bandarískan hermann,
James HiU, vegna gruns um njósnir.
Hill, sem starfaði í leyniþjónustu-
deild hersins, var ákærður fyrir að
selja Austur-Þjóðveijum leynilegar
upplýsingar um dulmálslykla og
fjarskipti bandaríska hersins fyrir
tugi þúsunda dollara.
Það var íburðarmikill lífsstíll Hills
sem kom upp um njósnastarfsemi
hans, að sögn yfirvalda. Hann var
handtekinn þegar hann státaði af
afrekum sínum við bandarískan
leyniþjónustumann sem Hill taldi
vera útsendara handan jámtjaldsins.
Talið er að HiU hafi stundað
njósnastarfsemi frá árinu 1982 og
komið á framfæri við Austur-Þjóð-
veija og ef til vill Sovétmenn mörg-
um mikilvægum upplýsingum. Sér-
fræðingar telja að afleiðingar at-
hafna Hills verði dýrkeyptar þegar
fram líða stundir. Þó er ekki talið að
hann hafi valdið eins miklum skaða
og önnur nýleg njósnamál sem kom-
'ið hafa upp innan hersins síðastliðna
mánuði.
Óljóst er hvort hér sé um að ræða
víðtækan njósnahring. Auk Hills var
tyrkneskur maður, sem búsettur er
í Bandaríkjunum, handtekinn vegna
gruns mn aðild að málinu. Rannsókn
málsins er þó ekki enn lokið og gætu
fleiri verið handteknir áður en yfir
lýkur.
Hreinsanir
í pólska
kommúnista-
flokknum
Átta nýir umbótasinnaðir menn
komu inn í forystuliö pólska komm-
únistaflokksins í gær í stað sex félaga
sem látnir voru víkja úr stjórnmála-
ráði flokksins. Þetta var árangur
tveggja daga miðstjórnarfundar
flokksins sem þó hafnaði skilyrðum
Samstöðu, hinna bönnuðu verka-
lýðssamtaka, fyrir hringborðsum-
raeðum um framtíð landsins.
í staðinn bentu ræður Jaruzelskis
hershöfðingja og annarra háttsettra
leiðtoga til þess að stefna flokksins
gagnvart formlegu samkomulagi við
Samstöðu hefði harðnað og að horfur
á viðræðum hefðu minnkað.
Jaruzelski sagði í ávarpi að það
væru margar ástæður til þess að
menn væru með efasemdir vegna
viðræðna við Samstöðu. Forsætis-
ráðherra landsins, Rakowski, sagði
einnig í ræðu að flokkurinn myndi
ekki gefa loforð um að íhuguð yrði
lögleiðing Samstöðu til þess að fá
samtökin til viðræðna. Sagöi hann
Samstöðu eiga að setjast að hring-
borðsumræðum án nokkurra skil-
yrða. Reuter
BONDSTEC
”1
aocK 1 6
ÖOICK p y
afpRðfcif
EINN FULLKOMNASTI OG BESTI
ÖRBYLGJUOFNINN
Á MARKAÐNUM!
GETUM NÚ BOÐIÐ TAKMARKAÐ
MAGN AF ÞESSUM FULLKOMNA
BONDSTEC OFNI. Á EINSTÖKU
JÓLABOÐI. VERÐIÐ GILDIR AÐEINS
MEÐAN BIRGÐIR ENDAST.
650 VATTA ELDUNARORKA.
10 ORKUSTIG. 32 LÍTRA INNANMÁL.
99 MÍN. OG 99 SEK. KLUKKA.
MATREIÐSLUPRÓGRÖM.