Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1988, Síða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1988, Síða 11
FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1988. 11 dv Útlönd ísraelskir hermenn undir jolatré í Betlehem í gær. Tréð er ekki skreytt þar sem borgaryfirvöld ákváðu að sleppa jólaskreytingum i ár vegna uppreisnarinnar á herteknu svæð- unum. Símamynd Reuter Samkomu- lag um nýja stjórn undirritað Likudbandalagið og Verkamanna- flokkurinn í ísrael undirrituðu í morgun samkomulag um að mynda nýia samsteypustjórn sem hefur það að markmiöi aö bæla niður uppreisn- ina á herteknu svæðunum og stöðva diplómatískan framgang PLO, Frels- issamtaka Palestínumanna. Shamir, leiðtogi Likudbandalags- ins, sagði við undirritun samkomu- lagsins í morgun að hann yrði for- sætisráðherra hinnar nýja stjórnar og að Peres, formaður Verkamanna- flokksins, yrði varaforsætisráðherra og fjármálaráöherra. Leiðtogar uppreisnarmanna á her- teknu svæðunum hvöttu í gær til meiri þrýstings á Bandaríkin og ísra- el um að ríkin mæti kröfum Palest- ínumanna um sjálfstætt ríki. í síð- asta dreifibréfl frá uppreisnarleið- logunum er ákvörðun Bandaríkja- manna um viðræður við PLO lofuð og hún túlkuð sem sigur fyrir upp- reisnarmenn. Palestínumenn virtu margir hverj- ir ekki boð uppreisnarmanna um allsherjarverkfall á herteknu svæð- unum í gær. Róstur urðu þar og mótmælandi, sem skotinn var á fostudaginn í átökum í Nablus á vest- urbakkanum, lést af sárum sínum í gær. í Nablus, sem er stærsta borgin á vesturbakkanum með um 120 þús- und íbúa, var útgöngubann enn í gildi í gær, sjötta daginn í röð. Sjúkrahússtarfsfólk segir hermenn hafa skotið á og sært að minnsta kosti fimm Palestínumenn á vestur- bakkanumígær. Reuter VopnaburIRA fannst í London Breska lögreglan fann í gær stóra sprengjuverksmiðju og vopnabúr í húsi í suðurhluta London í gær. Hef- ur lögreglan hafið leit að tveimur grunuðum meðhmum írska lýðveld- ishersins, IRA. Fundurinn staðfestir ótta manna um að IRA, sem berst gegn yfirráðum Breta á Norður-írlandi, geti verið að undirbúa sprengjuherferð á Eng- landi. Að sögn lögreglunnar fundust vopnin af tilviljun. Skömmu fyrir miðnætti á þriðjudag braust ungling- ur inn í bíl fyrir utan hús í Clapham í Suður-London. Maður, sem legið hafði sofandi í bílnum, vaknaði og skaut unglinginn í magann. Byssu- manninum tókst að flýja. Við leit í húsinu, sem bíllinn stóð við, fann lögreglan sprengjuverk- smiðjuna og vopnin. Sjá mátti aö aö minnsta kosti þrír menn hefðu hafst þar við í um vikutíma. Reuter Dregið á morgun, Þorláksmessu! ■t'r? Leikandi og létt! Upplýsingasími: 6851 !

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.