Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1988, Side 14

Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1988, Side 14
14 FIMMTUDAGUR 22. DESEMBER 1988. Sviðsljós Ólyginn sagði... Lisa Marie Presley hin þungaða dóttir rokk-kóngs- ins, á von á barnabami Elvis Presley í mars. Hún segist ákveð- in í því að láta sitt bam ekki al- ast upp við þær ófullnægjandi aðstæður sem hún ólst upp við. Það sem hún ætlar á láta barninu sínu eftir er að ala það upp sjálf. Nokkur þau atriði sem hún taldi sig óhamingusama yfir var að barnfóstrur ólu hana upp, mam- man var aldrei heima og þegar hún var heima var hún alltaf með nýja stjúpfeður handa Lisu Marie litlu. Þq að þetta komi kannski ekki allt til með að standast segja vin- ir hennar aö Lisa vilji ala barn sitt upp án mikillar utanaðkom- andi hjálpar. Amy Imng sem fyrir skömmu skildi við æv- intýraleikstjórann Steven Spiel- berg, hefur nú fundiö sér annan mann sem hún getur grátið viö öxlina á. Sá er einnig kenndur við kvikmyndaheiminn og heitir Jeroen Krabbe og lék annað aðal- hlutverkið í Crossing Delancey. Eftir skilnaðinn vantaði hana einhvern til að vera góðan við sig. Og svo fór að þama var herra Krabbe. Upp frá því hefur tekist með þeim mikil og góð vinátta. Enda þýðir víst ekkert að eiga við Spielberginn lengur. Hann er kominn meö aöra dömu upp á arminn. Hún heitir Kate Caps- haw og lék í síðustu Indiana Jo- nes myndinni. Karólína prinsessa af Mónakó má vænta þess að geta erft krúnuna eftir fóður sinn fljótlega ef svo ber undir. í meira en fjögur ár hefur hún barist við kaþólsku kirkjuna til að fá gift- ingu sína og Stefano Casiragi við- urkennda og að sama skapi börn- in þeirra þrjú skilgetin innan hjónabandsins. Nú virðist það vera í höfn aö hún fái hjónband sitt viðurkennt því sjálfur páfinn hefur gefið vilyrði fyrir því. Hvað varðar að hún verði arftakinn hefur því sterklega verið haldið á lofti þar sem hún þykir víst mun efnilegri en prinsinn Albert. Eiginmaður Onassis: Ólafsvík: Lyftistöng fyrir „Þú mátt fá eins mikla peninga og þú vilt, haltu hjákonununni þinni en ekki yfirgefa mig.“ Þetta fór millj- ónamæringurinn, Christine Onassis, fram á við fyrrum eiginmann sinn, Thierry Roussel. Eftir hið óvænta og sorglega andlát Christine hefur ýmsu, tengdu furðu- legu ástarsambandi við síðasta eigin- mann hennar, skotiö upp á yfirborð- ið. Sérstaklega eftir að það uppgvöt- aðist að Thierry átti í ástarsambandi við ljóshærða fyrirsætu. Christine leyfði glaumgosanum eiginmanni sínum að halda í hjákonu sína til að missa hann ekki. Christine var svo mikiö í mun að halda í eiginmann sinn að hún jós í hann peningum, jafnvel þó að hann hafi eignast börn með hinni sænsk- ættuðu fyrirsætu, Gaby Landhage. Sem kunnugt er skildu Christine og Thierry á síðasta ári en þrátt fyr- ir það ætlaði Christine enn að halda í sinn fyrrverandi eiginmann. Hún heimsótti hjákonuna og leyfði dóttur þeirra hjóna að hitta hálfsystkini sin eins oft og unnt var. ■ Aöeins þremur vikum fyrir dauöa Christine birtist viðtal við hjákon- una. Þar sagði hún að Christine væri alltaf að bjóða sér í samkvæmi auk þess sem hún gæfi börnunum hennar stórgjafir. „Allir vinir hennar og kunningjar vissu um þetta ástand en það fékk ekkert á Christine," segir Gaby í viðtalinu. Auk þess segist hún aldrei hafa fundið fyrir neinni af- brýðisemi af hennar hálfu þrátt fyrir að hún vissi um ást hennar á Thi- erry. Þegar Christine og Thierry gengu í hjónaband vissi hún ekkert um að hann hefði átt í ástarsambandi við Gaby undanfarin 10 ár og var enn mjög ástfanginn af henni. Hann sagði Gaby að það myndi hafa mjög mikið að segja fyrir sig í viðskiptaheimin- um ef hann giftist Christine og Gaby játti því. Þrátt fyrir að hjónabandið gengi ekki of vel eignuöust þau dótturina Aþenu í janúar 1985. Sjö mánuðum síðar eignaðist Gaby son sem nefnist Erik. Þar með vissu þeir sem vita vildu um hið tvöfalda líf Thierrys. Aðeins tveimur mánuðum eftir skilnaðinn, í mars á síðasta ári, eign- aðist Gaby annað barn sitt með Thi- erry, stúlku að nafni Sandrine. Christine tók þessu öllu með stó- ískri ró og eins og áður segir tók hún upp samband við hjákonuna. Með þeim tókst vinskapur og er eins lík- legt að Aþena litla komi til með að búa hjá hjákonunni og fóður sínum í Svíþjóð. Hins vegar eru ættingjar Christine heldur óánægðir með þann ráðahag þar sem þeim finnst Thierry hafa komið illa fram við fyrrum eig- inkonu sína, Christine Onassis. Það má því búast við að mikið striö muni ríkja um litlu 5 milljarða dollara telp- una. Thierry og Gaby. Hún er konan sem hann hætti aldrei að elska og átti með tvö börn meðan hann var giftur Christine Onassis. Christine Onassis ásamt milljarðadótturinni sem margir vilja eiga, þar meðal viðhaldiö Gaby. Með Christine og Gaby rikti mikii vinátta. Framara Ámi E. Albertsson, DV, ÓLilsvík: Nýr og glæsilegur salur Framsókn- arfélags Ólafsvikur var vígður sunnudaginn 4.desember. Salurinn tekur með góðu móti milli 60 og 70 manns í sæti og kemur að sögn Atla Alexanderssonar, formanns Fram- sóknarfélags Ólafsvíkur, til með að verða mikil lyftistöng í félagsstarf- inu. Það var fyrir tæpum tveimur árum að stofnað var hlutafélag í um kaup- in á húsnæðinu sem áður hafði hýst vélsmiðju. Hlutafélagið hlaut nafnið Miðbær hf. og eru hluthafar nær ein- vöröungu félagar í Framsóknar- flokknum. Endurbætur hófust fljót- lega eftir kaupin og hafa að mestu veriö unnar af flokksfélögum en þó hafa verið keyptir iðnaðarmenn í einstaka verkhluta. Salurinn var svo vigður 4. desember og af því tilefni voru mættir, auk íjölda annarra Gestir viö veisluborð m.a. Guð- mundur ráðherra og Alexander þingmaður. DV-mynd ÁEA. gesta, Guömundur Bjarnason heil- brigðisráðherra og Alexander Stef- ánsson, þingmaður og fyrrum ráð- herra. Það var hriðarbylur á Egilsstöðum svo ekki var hægt að taka myndir úti en hér sést formaöur kiwanismanna, Jón Karlsson, afhenda Aldísi lyklana að nýja bílnum. DV-mynd Sigrún Skodi í jólagjöf Sigrún Björgvmsdóttir, DV, Egilsstöðunv Félagar í kiwanisklúbbnum Snæ- felli efndu til happdrættis fyrr í haust. Gefnir voru út 500 miöar og var miðinn seldur á 1000 krónur. Er skemmst frá því að segja að allir miöamir seldust eins og heitar lummur. Mánudaginn 5. desember var bíll- inn afhentur eigenda miða nr. 4. Sá stálheppni og nýbakaði skodaeigandi er Aldís Kristjánsdóttir á Seyðisfirði. Hún kvaðst mundu nota bílinn til að skjótast á innanbæjar, svo sem í vinnuna. á Bjó með tveimur konum samtímis

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.