Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1989, Síða 4
4
MIÐVIKUDAGUR 25. JANÚAR 1989.
Fréttir
Skoðanakönnun DV:
Hinn innlendi og ódýrari
bjór hefur meirihlutann
Meirihluti fólks velur hinn inn-
lenda og ódýrari bjór fram yfir er-
lendan, átappaðan hér eða ixmflutt-
an, samkvæmt skoðanakönnun
DV.
Úrtakið í skoðanakönnuninni var
600 manns. Jafnt var skipt milli
kynja og jafnt milli höfuðborgar-
svæðisins og landsbyggðarinnar. Þar
sem verðið verður mismunandi og
skiptir auðvitað miklu var spurt:
Hvaða bjór vilt þú helst fá: a) inn-
lendan bjór á um 125 krónur, b) er-
lendan bjór, átappaðan hér með leyfi,
á um 145 krónur eða c) innfluttan
bjór á um 160 krónur? Verðhlutfólhn
fékk DV hjá ríkinu rétt áöur en könn-
unin fór fram. Þetta eru því nýjustu
verðhugmyndimar. Þær geta eitt-
hvað breyst en hlutföllin ættu aö
haldast miðaö við yfirlýsingar
sfjómvalda.
Niðurstöður skoðanakönnunar-
innar urðu þær að af heildinni kváð-
Margir bíða spenntir eftir bjómum.
ust 46,7 prósent mundu velja inn-
lenda bjórinn, miðað við verðhlut-
föllin sem fólust í spumingunni. 11,7
prósent sögðust mundu velja hinn
erlenda bjór sem yrði tappað á hér.
9.3 prósent völdu innflutta bjórinn.
14.3 prósent af heildinni sögðust eng-
an bjór vilja. Óákveðnir vom 15 pró-
sent og 3 prósent vildu ekki svara.
Af þeim sem tóku afstöðu með ein-
hverjum framangreindra flokka
bjórs sögðust því 69 prósent mundu
velja íslenska bjórinn, 17,2 prósent
hinn erlenda sem yrði tappaö á hér
og 13,8 prósent völdu innflutta bjór-
inn.
DV kannaði í fyrra hvaða bjórteg-
undir fólk vildi helst. Var þar ekki
gert ráð fyrir að íslenski bjórinn
nyti forréttinda í verði, enda völdu
flestallir erlendar tegundir. Hein-
eken, Carlsberg og Tuborg vora lang-
vinsælastar. í þeirri könnun völdu
aðeins um 15 af hundraði íslenskar
tegundir.
-HH
DV
Símiim í Vogum:
Vonum að
þetta sé
komið í lag
„Viö vonum að þetta sé komið
í lag. Við höfum í tvlgang skipt
um þaö í stööinni sem við höfum
talið að orsakaði þessar bilanir.
Við gerðum það síöast á þrettánd-
anum og síðan hefur þetta verið
í lagi. Tíminn verður síðan að
leiða í ljós hvort svo er eða ekki,“
sagöi Hafidór Heiðar Agnarsson,
tæknimaður hjá Pósti og síma.
Símasamband í Vogum og á
Vatnsleysuströnd hefur átt til að
rofiia. I desember skiptu starfs-
menn Pósts og síma um hluta í
símstöðinni í von um að koma
meö því í veg fyrir frekari bilan-
ir. Það dugði ekki og síðast rofn-
aöi sambandið á þrettándanum.
Þá var aftur skipt um þá hluti í
stöðinni sem líklegastir þóttu til
aö vera valdir að bilununum. Nú
á eftir að koma í ljós hvort þessi
viögerð dugir til aö tryggja betra
símasamband við Voga. -sme
Smiði á togskipi
senn að Ijúka
GytB Kréstjánsson. DV, Akureyri:
Smíöi á 250 tonna skipi hjá
Slippstöðinni á Akureyri er nú
komin á lokastig og segir Sigurð-
ur G. Ringsted að hægt verði að
afhenda skipiö eftir 4 mánuði ef
kaupandi hafi þá fengist
Skipið er fyrst og fremst byggt
með togveiöar í huga, og sagði
Sigurður að veröið á því væri
sambærilegt og á sams konar
skipi erlendis frá sem þá væri
niðurgreitt af viökomandi ríki.
Skipið var boðið ákveönum aðila
í nóvember sl. á 230 milijónir
króna en samningar tókust ekki.
Þrátt fyrir það segist Sigurður
G. Ringsted ekki reikna með aö
Slippstöðin muni lenda í erfiö-
leikum með að seJja skipið þegar
smíöi þess lýkur.
Ekki hefúr verið mikið um viö-
gerðarverkefni h)á Slippstöðinni
á Akureyri að undanfömu.
Niðurstöður skoðanakönnunarinnar urðu þessar:
Vilja helst innlendan bjór á
um 125 kr.......................... 280 eða 46,7%
Vilja erlendan, átappaðan hér, á
um 145 kr.............................. 70 eða 11,7%
Viljainnfluttanáum160kr................ 56 eða 9,3%
Vilja engan bjór....................... 86 eða 14,3%
Óákveðnir.............................. 90 eða 15,0%
Svaraekki.............................. 18 eða 3,0%
Ef aðeins eru teknir þeir, sem tóku afstöðu með einhverjum
umræddra flokka bjórs, verða niðurstöðurnar þessar:
Vilja innlendan bjór á um 125 krónur.......... 69,0%
Vilja erlendan, átappaðan hér, á um 145 kr.... 17,2%
Vilja innfluttan á um 160 krónur............ 13,8%
Niðurstöður skoðanakönnunar DV
| Vilja innlendan
bjór á um 125 kr.
I I Vilja erlendan,
átappaðan hér,
á um 145 kr.
□ Vilja innfluttan
á um 160 kr.
Kakan sýnir hlutföllin hjá þeim, sem á annað borð ætla að fá sér bjór, ef
aðeins eru teknir þeir sem tóku afstöðu.
Ummæli ffollcs
Karl sagöi að meira en nóg væri bjórinn yrði alltof dýr en skást
fyrir af áfengi. Karl sagðist velja væri þá að velja íslenskan. Kona
innfluttan bjór fyrir hvem mun, kvaöst óttast að margir unglingar
þótt hann væri dýrari. Kona kvaöst mundu prófa bjórinn. Kona sagðist
mundu taka hinn innlenda vegna vera á móti bjór. Hann mundi
verðsins. Kona kvaðst mundu gefa leggja þjóðfélagið í rúst. Karl
innlenda bjómum tækifæri. Verð kvaöst í byrjun velja ódýrasta bjór-
og gæði þyrftu ekki endilega að inn. Síðan færi þaö eftir gæðum.
fara saman. Kona sagði aö íslensk- Karl kvaö innfluttan bjór mundu
ur þjór væri vondur. Karl sagði að verða bestan. Annar kvaðst auðvit-
fyrst bjórinn kæmi myndi hann aðveljaíslenskt -HH
prófa íslenskan bjór. Karl sagöi að
í dag mælir Dagfari -
Nú er það nýjast úr stórpóhtíkinni
á íslandi að Steingrímur Her-
mannsson forsætisráðherra sé orð-
inn leiður á fjölmiðlafólki. Morgun-
blaðið flutti okkur þessar fréttir
um helgina og Dagfara fannst þessi
tíðindi vera einhver þau alvarle-
gustu sem gerst hafa í íslenskum
stjómmálum um árabil. Steingrím-
ur Hermannsson hefur verið ráð-
herra í tíu ár. Hann er vakinn og
sofinn í starfinu og hefur látiö
mynda sig við öU möguleg tæk-
ifæri. Hann er í laugunum, hann
er í afmæUsboði, hann er í laxi,
hann er við sjúkrabeð Stefáns Val-
geirssonar og raunar hefur þessi
maður ekki mátt hreyfa sig spönn
frá rassi öðmvísi en ljósmyndari
sé mættur á staðinn.
Ekki vissi Dagfari annað en að
Steingrími líkaði þetta vel. Hann
hefur ekki aðeins látið mynda sig,
heldur er hann reiöubúinn til að
tjá sig við fjölmiðla um aUt milli
himins og jarðar og ef hann er ekki
plataður þá er hann að plata ein-
hveija aðra og það hefur aldrei
verið neitt lát á Steingrími. Þetta
hefur gengið svo vel að Steingrím-
ur er fyrir löngu orðinn langvin-
sælasti stjómmálamaður landsins
og gUdir þá einu hvort hann er plat-
Steingrímur leiður
aður eða aðrir era plataöir.
Aðrir stjómmálamenn hafa öf-
undast út í Steingrím fyrir alla þess
athygU og ijölmiðlaumfiöllun og
Jón Baldvin og Ólafm- Ragnar hafa
gripið til þess örþrifaráðs að efna
tíl kabarettsýninga á rauðu ljósi og
Stefán Valgeirsson lagðist veikur
og fékk myndir af sér í blöðuninn
fyrir vikið. Minna er talað við Þor-
stein Pálsson, en hann viU líka vera
í sviðsljósinu og skrifar ákaft í
málgagnið til að minna á sig. Al-
bert er á fórum til Frakklands en
hann hefur verið í fremstu röð
þeirra stjómmálamanna sem hafa
notið góðs af fjölmiðlafárinu og
gerir það heldur ekki endasleppt.
Albert er hættur að agnúast út í
Sjálfstæðisflokkinn og ríkisstjóm-
ina en gerir það að svanasöng sín-
um að atyrða sinn eigin flokk og
mælist það vel fyrir. Má af þessu
sjá að menn gera ýmislegt tíl að
komast í fjölmiðlana eins og Stein-
grímur og lái þeim hver sem viU.
Þess vegna em það tíðindi þegar
Steingrímur snýr aUt í einu við
blaðinu og segist vera orðinn leiður
á þessu fjölmiðlafári. Honum hefur
meira að segja dottið í hug að loka
Stjómarráðinu fyrir blaðasnápum
til að hafa frið. í ljósi þeirrar stað-
reyndar aö sá er vinsælastur sem
mest er í fjölmiðlum og í ljósi þess
að allir aörir stjómmálamenn
keppast um að komast í fjölmiðlana
eins og Steingrimur, þá er Dagfari
hálfhissa á þessum hringsnúningi
í Steingrími. Hvða meinar maður-
inn? Er honum Ult eða hvað? Ætlar
hann að hætta í póUtík?
Það er auðvitað grafalvarlegt mál
ef Steingrímur hættir að koma
fram í fjölmiðlum og enginn veit
hvenær hann verður plataður og
enginn veit hvað Steingrímur er
að gera eða hugsa þá stundina.
Menn koma til með að gapa og
gleypa vind og þjóðin verður átta-
viUt og ráðalaus og aðrir stjóm-
málamenn vita ekki sitt rjúkandi
ráð þegar Steingrímur hættir að
vilja tala við fjölmiðla. Kannske er
hann orðinn leiður á sjálfum sér?
Kannske er hann orðinn leiður á
því að láta plata sig fyrir opnum
tjöldum eða þá hann ætlar að hætta
að segja frá því þegar hann er plat-
aður. Enginn segir Dagfara aö
Steingrímur hætti að láta plata sig
þótt hann taU ekki við fjölmiðla.
Maður með svona yfirburðagreind
og mikla þekkingu á öUu miUi him-
ins og jarðar hættir ekki aö láta
plata sig. Maður sem nýtur jafn-
mikiUa vinsælda og Steingrímur
fyrir að láta plata sig hlýtur að vfija
að hann verði plataður áfram.
Það getur vel verið að þjóðin sé
orðinn leið á Steingrími og fjölmiðl-
arnir orðnir leiðir á aö segja frá
því hvað Steingrímur segir. En það
er útilokað mál að Steingrímur sé
orðinn leiður sjálfur. SennUega er
þetta ómerkUegur áróður gegn
Steingrími, sem Morgunblaðið
finnur upp til aö gera lítiö úr hon-
um. En Steingrímur á þetta ekki
skUið og það er líka misskUningur
hjá Mogganum að verða leiður á
Steingrími. Enginn hefur gert
íhaldinu meiri greiöa en einmitt
Steingrímur. Það sýna skoðana-
kannanimar. í guðanna bænum
ekki láta Steingrím hætta að láta
plata sig!
Dagfari