Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1989, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1989, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 25. JANÚAR 1989. 11 Utlönd Símamynd Reuter Lögreglumaður fjarlægir lík hermanns á meðan bardagar voru í fullum gangi við La Tablada. Alvarlegasta ógnunin Raul Alfonsin, forseti Argentínu, sagði í gær að árás vinstri manna á La Tablada herstöðina á mánudag hefði verið alvarlegasta ógnunin sem ríkisstjórn hans hefði orðið fyrir. í umsátrinu féllu þrjátíu og sex manns. „Ég held að þetta sé alvarlegasta árásin sem ríkisstjóm mín hefur orð- ið fyrir," sagði forsetinn í beinni sjónvarpsútsendingu. „Við eigum í höggi við öfgafullar vinstri sveitir." Eftir að hafa skoðað vígvölhnn við herstöðina, sem er rétt utan við höf- uðborgina, sagði Alfonsin að aðkom- an hefði verið hræðileg, dauðinn hefði verið nálægur alls staðar. Alfonsin, sem tók við embætti í desember 1983 eftir átta ára her- stjórn, hefur staðið frammi fyrir þremur byltingartilraunum síðan í apríl 1987. Þær hafa verið gerðar á vegum hersins til að mótmæla refsi- dómum yfir herforingjum fyrir mannréttindabrot á tímum heifor- ingjastjómarinnar. Þegar árásin á La Tablada hófst héldu yfirvöld að um enn eina valda- ránstilraun herforingja væri að ræða en síðar kom í ljós að um öfgakennd vinstri Scuntök var að ræða. Bardaginn um að ná herstöðinni aftur á vald stjómarinnar var sá mesti sem orðið hefur miUi stjórnar- hers og skæmhða í Argentínu. Þar börðust fjögur hundruð hermenn og fimmtíu skæruhðar. Þegar upp var staðið lágu þijátíu og sex manns í valnum. Sjö vom hermenn, einn lögreglumaður og tuttugu og átta voru skæruhðar. Tal- ið er mögulegt að lík fleiri manna leynist í rústum á svæðinu. Fjórtán skæruhðar vom handteknir eftir að þeir lögðu niður vopn sín. Reuter Landnemar kasta grjóti Nokkrir tugir ísraelskra landnema réðust með grjótkasti að húsum Pal- estínumanna í þorpi á vesturbakkan- um. Árásin var gerð í hefndarskyni við árás á strætisvagn sem hafði þær afleiðingar að ísraelskur farþegi særðist. Það var kona sem hlaut meiðsU og reiðir landnemar þustu strax út á þjóðveginn og grýttu hús Palestínu- manna. Lögregla kom í veg fyrir að þeir fæm inn í þorp Palestínumanna. Mikil spenna hefur ríkt á þessu svæði að undanfömu milh ísraels- manna og Palestínumanna. ísraelsk og egypsk sendinefnd komu 1 gær til hins umdeilda Taba- svæðis við Rauðahafið til að ræða hvað gera eigi við hina sjö hundrað metra strandlengju. ísraelsmenn héldu eftir Taba þegar þeir fóra frá Sinai árið 1982. Reuter Vopnahlé í Líbanon Stríðandi fylkingar shíta í Líbanon hafa komist að samkomulagi um að binda enda á bardagana í landinu, að því er tilkynnt var í morgun. Vopnahléð tók gildi þegar í morgun. Samkomulagið náðist eftir fimmt- án klukkustunda viöræður í Dam- askus. Utanríkisráðherra Sýrlands, Farouq al-Shara, og utanríkisráð- herra írans, AU Akbar Velayati, héldu sérstaka fundi með leiðtogum HizboUahsamtakanna og amalshíta. Diplómatar segja að leiðtogar hinna stríðandi fylkinga hafi ekki hist og átt beinar viðræður. í tilkynning- unni, sem gefin var út í morgun, sagði að viðræðumar myndu halda áfram tíl þess að ná mætti endanleg- um sættum. Að minnsta kosti hundrað fjöratiu og tveir hafa látiö lífið í bardögunum milU HizboUahmanna og amalshíta sem hófust þann 1. janúar síðastUð- inn. Baráttan hefur staðið um yfirráð yfir einni og hálfri núlljón shíta í Líbanon. Reuter Hvílir innan um málverkin sín Salvador DaU, sem eitt sinn sagði að þar sem hann væri snilUngur hefði hann engan rétt á að deyja, verður lagður tU hvUdar í grafhýsi innan um málverk sín. Um fimmtán þúsund manns sýndu Ustamanninum hinstu virðingu með því að virða fyrir sér smurt lík hans í heimabæ hans, Figueras, á norð- austurhluta Spáni, þar sem henn bjó síðustu árin, sjúkur og einangraður frá umheiminum. Útfor súrreaUstans, sem setti allt á annan endann með Ustsköpun sinni, átti að fara fram með hefðbundnum hætti. Reuter Lík Salvador Dali var til sýnis í gær eftir að það hafði verið smurt um nóttina. Sá sem smurði iíkið segir að það geti enst í tvö til þrjú hundr- uð ár. Simamynd Reuter Gegn hoftum á klámi ítalska klámstjarnan sem var kos- in á þing, Ilona Staller, hefur haft það fyrir vana að bera bijóst sín við hvert mögulegt tækifæri til að beijast gegn ritskoðun og gerði það enn í gær. StaUer, eða Cicciolina, eins og hún nefnir sig, sem er þijátíu og sjö ára gömul, afhjúpaði bijóst sín nokkram sinnum á fréttamannafundi þar sem hún tilkynnti tiUögur sínar um klám- ið og gegn því að kvikmyndir séu bannaðar. Með CiccioUnu var ein frægasta klámmyndadrottning ítahu, Moana Pozzi, sem fór að dæmi stöUu sinnar. Reuter Italski þingmaðurinn llona Staller, með annað brjóstið bert, sést hér á fréttamannafundi í gær ásamt klámstjörnunni Moana Pozzi. Símamynd Reuter RÝMINGARSALA 15-50% AFSLÁTTUR * vatnsvirkinn hf. ÁRMÚLA 21 SÍMAR 686455 — 685966 ÉIÉÉH LYNGHÁLSI 3 SÍMAR 673415 — 673416

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.