Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1989, Page 9
MIÐVIKUDAGUR 25. JANÚAR 1989.
9
Útlönd
Lik f jöldamorðingjans flutt frá aftökustaðnum.
Símamynd Reuter
Steinunn Böðvaisdóttir, DV, Washington;
Laust eftir hádegi í gær að íslensk-
um tíma var fjöldamorðinginn Ted
Bundy tekinn af lífi í rafmagnsstóln-
um í ríkisfangelsinu á Flórída í
Bandaríkjunum. Rúmlega fjörutíu
vitni fylgdust með aftökunni en um
tvö þúsund manns höfðu safnast
saman fyrir framan fangelsið. Mann-
fjöldinn úti fyrir fagnaði ákaft þegar
fréttin af láti Bundys barst út fyrir
veggi fangelsisins. Það eitt í sjálfu sér
segir meira en nokkuð annað um
hversu hataður maður Ted Bundy
var.
Bundy er grunaður um þrjátíu og
sex morð en hefur einungis viður-
kennt rúmlega tuttugu. Hann hlaut
dauðadóma fyrir þrjú morö framin á
Flórída fyrir rúmum áratug en fór í
rafmagnsstólinn fyrir morðið á rúm-
lega tólf ára gamalli skólastúlku.
I viðtah skömmu fyrir aftökuna
sýndi Bundy sjaldgæf merki iðrunar.
Hann kvaðst eiga skihð þyngstu refs-
ingu sem þjóðfélagið gæti veitt hon-
um. Bundy hefur aldrei gefið fuhnað-
arskýringu á hinum blóðuga ferli
sínum en í viðtahnu gaf hann til
kynna að ofbeldi í fjölmiðlum, sér-
staklega ofbeldi tengt kynlífi, ætti
þar hlut að máh. Hann varaði þjóð-
félagið við mönnum af sínu tagi og
sagði að daglega æstu fjölmiðlar upp
hættulegar hvatir í brjósti þessara
manna.
Heildarfjöldi fómarlamba Bundys
er tahnn vera rúmir þrír tugir. Hann
hefur áður sagt að fjöldinn sé nær
því að vera þriggja stafa tala. Héðan
af kemur sannleikurinn aldrei fram
í dagsljósið.
Fjöldi manna hatði safnast saman til að fagna aftöku Teds Bundy á Flórida
í Bandaríkjunum. Simamynd Reuter
Fjöldi fagn
aði aftökunni
Aðgerðir boðaðar
Grikkir munu í dag tilkynna um
nýjar aðgerðir gegn hryðjuverka-
mönnum í kjölfar skotárásanna á
þrjá saksóknara í þessum mánuði.
Haldinn var fundur með æðstu ráða-
mönnum landsins um málið í gær-
kvöldi.
Papandreou forsætisráðherra boð-
aði ráðherra og yfirmenn öryggis-
mála á sinn fund í gær eftir að
vinstrisinnaðir skæruliðar skutu
Vernardos saksóknara til bana á
mánudaginn. Skotið var á tvo aðra
saksóknara fyrr í mánuðinum en
þeir sluppu naumlega með skotsár.
Tveir hópar hafa lýst yfir ábyrgð á
árásunum, 17. nóvember og 1. maí.
Svipaðar ástæður eru gefnar upp fyr-
ir hryðjuverkunum, það er að sak-
sóknararnir hafi þjónað spihtum
stjórnmálamönnum og að hluta til
borið ábyrgð á fjármálahneykslum.
Reuter
Papandreou, forsætisráðherra Grikklands, hélt neyðarfund í gær með ör-
yggisráðgjöfum vegna árásanna á saksóknarana. Papandreou er hér með
vinkonu sinni, Dimitra Liani. Simamynd Reuter
Kalevi Sorsa
segir af sér
Kalevi Sorsa, utanríkisráðherra
Finnlands, rauf á dramatískan hátt
fund með fréttamönnum í gær með
því að thkynna að hann yrði að draga
sig í hlé th þess að fara með afsagnar-
beiðni sína til Mauno Koivisto for-
seta.
Forsetinn er sagður hafa harmað
ákvörðun Sorsa og tilkynnt aö hann
yrði að ræða máhð við Harri Holkeri
forsætisráðherra áður en hann sam-
þykkti afsagnarbeiðnina.
Sorsa vísaði til kreppu í jafnaðar-
mannaflokknum sem ríkt hefur í
nær eitt ár. Hefur málið snúist um
það hvemig 'koma megi formanni
flokksins, Pertti Paasió, inn í stjórn-
ina. Þegar stjómin var mynduð árið
1987 var ákveðið að flokksformaður-
inn yrði fyrir utan stjórnina en að-
stæðumar hafa smám saman orðið
óþolandi fyrir Paasio.
Sorsa kvaðst vonast th að ákvörð-
un hans hefði það í for með sér að
flokksformaðurinn kæmist inn í
stjórnina. Sjálfur sagðist hann ætla
að snúa sér að bankastörfum.
Spurningin um ráðherraembætti
th handa Paasio hefur upp á síðkast-
ið orðið að skopleik. Rætt hefur verið
um ýmsa ráðherrastóla sem setja
mætti hann í en enginn af hinum sjö
ráðherrum úr jafnaðarmanna-
Kalevi Sorsa, utanríkisráðherra
Finnlands, olli miklu uppnámi í
stjórnmálalífi Finna er hann sagði
óvænt af sér í gær.
Símamynd Reuter
flokknum hefur vhjað víkja. Á síð-
asta ári hafa ráðherrarnir oft tekið
ákvarðanir án þess að ræða við
flokksstjórnina. FNB
Skilaboð frá
Vanden Boeynants
Belgíska lögreglan hefur nú hert
leitina að fyrrum forsætisráðherra
Belgíu, Paul Vanden Boeynants, sem
saknað hefur verið síðan 15. janúar.
Ríkissaksóknari Belgíu segir fjöl-
skyldu fyrrum forsætisráðherrans
hafa þekkt rithönd hans á miða sem
sendur var th dagblaðsins Le Soir
ásamt nafnskirteini hans. Með fylgdi
miði frá þeim vinstrisinnuðu sam-
tökum sem segjast bera ábyrgð á
ráninu á Vanden Boeynants. Þar
mátti lesa að fyrrum forsætisráð-
herrann væri á lifi og að hann yrði
látinn laus ef gengið yrði aö kröfum
mannræningjanna um lausnargjald.
Vanden Boeynants skrifaði sjálfur
að hann væri reiðubúinn að borga
umtalsvert fé th góðgerðarstarfsemi.
Mannræningjarnir hafa farið fram á
að fjölskylda hans og stuðningsmenn
greiöi hálfa milljón dollara til bág-
staddra og tvö hundruð og fimmtíu
þúsund dollara til þeirra sjálfra.
Reuter
STÚRÚTSALA
ð teppum og mnttum.
afsláttur.
ssn fepnabútar
TEPPAVERSLUN
FNÐRIKS BERTELSEN
SAMNINGAR
SÍÐUMÚLA 23 SÍMI 68 62 66