Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1989, Síða 27
MIÐVIKUDAGUR 25. JANÚAR 1989.
27
Fólkífréttum
Olafur Eiríksson
Ólafur Eiríksson hefur veriö í frétt-
um DV en hann var kosinn íþrótta-
maöur Kópavogs 1988. Ólafur fædd-
ist 29. september 1973 í Rvík og hef-
ur búið í Kópavogi frá 1976 og er í
námi í níunda bekk Kópavogsskóla.
Hann æíöi fótbolta með Breiðabliki
1980-1983 og skák í Kópavogsskóla
frá 1981. Ólafur hefur æft sund og
borðtennis með íþróttafélagi fatl-
aðra í Reykjavík og nágrenni frá
1984. Hann var íslandsmeistari í ein-
hðaleik og opnum ilokki í borð-
tennis 1986 og einbðaleik og tvíliða-
leik 1987. Ólafur vann bronsverð-
laun á opna þýska meistaramótinu
1987 og silfurverðlaun á Norður-
landamóti fatlaðra í flugsundi 1987.
Árið 1988 setti hann íslandsmet í 100
og 200 m flugsundi og 200 og 400 m
skriðsundi. Ólafur setti óstaðfest
heimsmet á Reykjavíkurmeistara-
mótinu 16. júní 1988 í 800 m skrið-
sundi á 11:11,26 mín. Hann vann
gullverðlaun í 100 m flugsundi og
bronsverðlaun í 100 m skriðsundi
og 200 m fjórsundi á opna hollenska
meistaramótinu 20.-21. ágúst 1988.
Ólafur vann bronsverðlaun í 100 m
flugsundi á 1:14,73 mín og 400 m
skriðsundi á 5:00,01 mín á ólympíu-
leikum fatlaðra í Seoul 15.-24. okt-
óber 1988. Hann var fjórði í 100 m
baksundi á 1:18,06, einum hundraö-
asta úr sekúndu frá verðlaunasæt-
inu, og fimmti í 100 m skriðsundi á
1:08,08 mín. á ólympíuleikunum
1988. Ólafur hefur verið vabnn einn
af fimm bestu íþróttamönnum
Kópavogs í sínum aldursflokki frá
1985. Systir Ólafs er Anna Lbja, f.
4.júníl980.
Foreldrar Ólafs eru Eiríkur Ólafs-
son, verslunarstjóri í Kópavogi, og
kona hans, Margrét Hjörleifsdóttir
skrifstofumaður. Eiríkur er sonur
Ólafs, verslunarstjóra í Kópavogi,
Eiríkssonar, kaupmanns í Rvík,
Þorsteinssonar, b. í Neðranesi í Staf-
holtstungum, bróður Þórunnar,
ömmu Þorsteins frá Hamri. Þor-
steinn var sonur Eiríks, b. á Spóa-
mýri, bróður Ólafs, langafa Bjama
Benediktssonar. Eiríkur vsir sonur
Ólafs, b. á Lundum, Þorbjamarson-
ar. Móðir Eiríks Þorsteinssonar var
Þórdís Þorbjamardóttir, b. á Helga-
vatni, Sigurðssonar, prests í Mikla-
holti, Þorbjamarsonar, bróður Ól-
afs á Lundum sem fyrr var getið.
Móðir Þórdísar var Margrét Hall-
dórsdóttir fróða á Ásbjamarstöð-
um, Pálssonar, langafa Jóns, afa
Garðars Habdórssonar, húsameist-
araríksins.
Móðir Eiríks er Sigríður Rögn-
valdsdóttir, kaupmanns á Akureyri,
Snorrasonar, trésmíðameistara og
kaupmanns á Akureyri, Jónssonar.
Móðir Rögnvaldar var Sigríður
Loftsdóttir, b. á Sauðanesi, Jónsson-
ar og konu hans, Guðrúnar, systur
Margrétar, langömmu Jómnnar,
ömmu Jórunnar Viðar tónskálds.
Guðrúnvar dóttir Gísla, prests í
Stærra Árskógi, Jónssonar, biskups
á Hólum Teitssonar. Móðir Gísla
var Margrét Finnsdóttir, biskups í
Skálholti, Jónssonar, fóður Hannes-
ar biskups, ættfóður Finsenættar-
innar. Móðir Sigríðar var Sigríður
Sveinsdóttir, kaupmanns í Rvík,
Sigfússonar. Móðir Sveins var Ólöf
Sveinsdóttir, systir Þuríðar, ömmu
Ólafs Jóhanns Sigurðssonar rithöf-
undar. Bróðir Ólafar var Bjami, afi
Habdórs Habdórssonar prófessors.
Bróðir Ólafar, sammæðra, var Dav-
íð, langafi Gíslínu, móður Eyþórs
Einarssonar grasafræðings. Móðir
Sigríðar var Þorbjörg Runóbsdóttir
Jónssonar, b. í Litlu-Breiðuvík, Þor-
leifssonar, bróður Þómnnar,
langömmu Sigríðar, móður Ey-
steins, fyrrv. ráðherra, og Jakobs
prestsJónssona.
Margrét er dóttir Hjörleifs, af-
greiðslumanns í Rvík, Guðnasonar,
læknis í Vík í Mýrdal, Hjörlebsson-
ar, oddvita í Skarðshlíð undir Eyja-
fjöbum, Jónssonar, dbrm. í Skarðs-
hbð, Hjörleifssonar, b. í Drangshbð,
Jónssonar. Móöir Hjörleifs var Þu-
ríður Guðmundsdóttir, b. á Stein:
um, Jónssonar, lögréttumanns í Sel-
koti, ísleifssonar, ættföður Selkots-
ættarinnar. Móðir Jóns Hjörleifs-
sonar var Valgerður Ólafsdóttir,
prests á Eyvindarhólum, Pálssonar
og konu hans, Helgu Jónsdóttir
„eldprests" Steingrímssonar. Móðir
Hjörleifs Jónssonar var Guðrún,
systir ísleifs, afa Sveinbjarnar, afa
Sveinbjarnar Baldvinssonar rithöf-
undar. Guðrún var dóttir Magnús-
ar, b. á Kanastöðum í Landeyjum,
Magnússonar, b. í Núpakoti, Einars-
sonar, ættfoður Núpakotsættarinn-
ar. Móðir Guðna var Sigríður, systir
Torfhbdar, langömmu Davíðs Odds-
sonar. Sigríður var dóttir Guðna, b.
í Forsæti í Landeyjum, Magnússon-
ar, bróður Torfa, langafa Þórs
Magnússonar þjóðminjavarðar.
Móðir Sigríðar var Guðrún, systir
Sigríðar, móður Helga Pjeturss
heimspekings. Guðrún var dóttir
Vigfúsar Thorarensen, sýslumanns
á Borðeyri. Móðir Vigfúsar var Guð-
rún Vigfúsdóttir, sýslumanns á
Hbðarenda í Fljótshbð, Þórarins-
sonar og konu hans, Steinunnar
Bjamadóttvu- landlækiús Pálssonar.
Móðir Steinunnar var Rannveig
Skúladóttir landfógeta Magnússon-
ar.
Olafur Eiríksson.
Móðir Hjörleifs Guðnasonar var
Margrét Þórðardóttir, verkamanns
á Fáskrúðsfirði, Árnasonar. Móðir
Þórðar var Elín Einarsdóttir, b. á
Gvöndarnesi, Torfasonar og konu
hans, Guðrúnar Þórarinsdóttur, b.
á Einarsstöðum Gunnlaugssonar.
Móðir Þórarins var Oddný Erlends-
dóttir, b. á Ásunnarstöðum, Bjama-
sonar, ættföður Ásunnarstaðaætt-
arinnar. Móðir Margrétar var Sig-
urbjörg Sigurðardóttur frá Gbsá í
Eyjafirði, af Kjamaættinni.
Móðir Margrétar er Anna, systir
Guðrúnar, móður Habdórs Ás-
grímssonar ráðherra. Anna var
dóttir Ingólfs, b. á Skjaldþingsstöð-
um í Vopnafirði, Eyjólfssonar, b. í
Fagradal, Guðmundssonar, b. á
Fagranesi, Bjömssonar, b. í Lundi,
Guðmundssonar, bróður Páls, lang-
afa Stefáns, afa Guðmundar Bjarna-
sonarráðherra.
Afmæli
Valborg Stefánsdóttir
Valborg Stefánsdóttir, húsfreyja að
Hrafnabjörgum í Hbðarhreppi í
Norður-Múlasýslu, er sjötíu og
fimmáraídag.
Valborg fæddist aö Merki í Jök-
uldal og ólst þar upp. Hún naut al-
mennrar bamafræðslu og var síðan
einn vetur á Laugaskóla í Suður-
Þingeyjarsýslu. Valborg vann öb
almenn sveitastörf heima fyrir og
var síðan í kaupavinnu í sinni sveit
og á Norðurlandi. Þá starfaði hún
einn vetur á saumastofu á Akureyri.
Valborg hefur búið á Hrafnabjörg-
um frá 1940, að undanskbdum
tveimur ámm er hún dvaldi á
sjúkrahúsi á Vífbsstöðum.
Maður Valborgar er Guðmundur
Bjömsson, b. að Hrafnabjörgum, f.
1.6.1913, sonur Bjöms Jónssonár,
b. og smiðs að Hrafnabjörgum, og
Sveinveigar Eiríksdóttiu-, en fóstur-
faðir Guðmundar var Jónas Þórar-
insson.
Börn Valborgar og Guðmundar
eru: Sveinn Guðmundsson, f. 5.9.
1941, sveitastjóri á Vopnafirði,
kvæntur Sæunni Stefánsdóttur, en
þau eiga fiögur böm; Eyþór Guð-
mundsson, f. 4.11.1944, bifreiðar-
stjóri á Egbsstöðum, kvæntur
Kristjönu Valgeirsdóttur, en þau
eiga tvö börn, og Jónas Guðmunds-
son, f. 8.3.1946, b. að Hrafnabjörg-
um, kvæntur Ingibjörgu Sigurðar-
dóttur, en þau eiga þrjú börn:
Alsystkini Valborgar: Aðalheiður,
dó ung; Benedikt, f. 5.1.1907, lengi
b. að Merki en nú búsettur á Egbs-
stöðum; Brynhildur, f. 25.3.1908, d.
1984, ljósmóðir á Egilsstöðum; Þór-
ey, dó ung; Ásgerður, f. 25.7.1910,
húsfreyja á Guðlaugsstöðum í Aust-
ur-Húnavatnssýslu, gift Guðmundi
Pálssyni, en þau eiga tvö böm, og
Unnur, f. 17.12.1912, húsfreyja á Brú
í Jökuldal, gift Halldóri Sigvarðs-
syni, en þau eiga fimm börn.
Hálfsystkini Valborgar: Helga, f.
4.6.1922, gift Guðmundi Sæmunds-
syni á Gíslastöðum í Vahahreppi,
en þau eiga fiögur böm; Óli, f. 24.10.
1923, b. á Merki, á fiögur börn; Lbja,
f. 17.6.1925, húsfreyja í Reykjavík,
gift Sigurði Sæmundssyni, en þau
eiga fiögur böm, og Jóhann, f. 2.12.
1930, smiður á Egilsstöðum, en hann
áþrjúbörn.
Foreldrar Valborgar vom Stefán
Júlíus Benediktsson, b. á Merki, f.
24.4.1875, d. 21.12.1954, og Guðný
Björnsdóttir, húsfreyja á Merki, f.
1.5.1875, d. 31.12.1917. Stúpmóðir
Valborgar var Stefanía Óladóttir.
Systkini og hálfsystkini Stefáns
voru átta sem komust á legg en syst-
Valborg Stefánsdóttir.
ur Guðnýjar vom tvær.
Foreldrar Stefáns voru Benedikt
Sigurðsson, veitingamaður á
Vopnafirði og síðar b. í Hjarðarhaga
í Jökuldal, og Sólveig Marín Þórðar-
dóttir frá Sævarenda í Loðmundar-
firði.
Foreldrar Guönýjar voru Bjöm
Jónsson, b. á Merki, og Guörún
Magnúsdóttir frá Skeggjastöðum.
Ásdís Ólafsdóttir
Ásdís Ólafsdóttir íþróttakennari,
Stórahjaba 35, Kópavogi, er fertug í
dag. Ásdís er fædd á Hrauni í Ölfusi
og ólst þar upp. Hún lauk gagn-
fræðaprófi frá Gagnfræðaskóla
Austurbæjar 1966, nam í Gymna-
stikhöjskole í Ollerup í Danmörku
1968-1969 og lauk íþróttakennara-
prófi 1970. Ásdís var á flugfreyju-
námskeiði 1972 og hefur verið á
nokkrum íþróttanámskeiðum. Hún
var íþróttakennari í barna- og ungl-
ingaskóla Fáskrúðsfiarðar 1970-
1971, íþróttaskóla Jóns Þorsteins-
sonar 1971-1974, Barnaskóla Bol-
ungarvíkur 1974-1976 og í Snæ-
landsskóla í Kópavogi frá 1981. Hún
var með sundnámskeið í Brautar-
holti á Skeiðum sumarið 1970 og
hefur stjórnað frúarleikfimi í
Hehsuræktinni í Kópavogi 1979-
1981 og frá 1982. Ásdís giftist 15. júlí
1973 Sverri Jóhanni Matthíassyni,
f. 18. júh 1949, endurskoðanda í Út-
vegsbanka íslands. Foreldrar Sverr-
is voru Matthías Guðmundsson, lög-
regluþjónní Kópavogi, og kona
hans, Sigrún Jónasdóttir. Börn Ás-
dísar og Sverris eru Elísabet Agnes,
f. 19. ágúst 1973; Einar Freyr, f. 7.
febrúar 1975, og Sverrir Steinn, f.
17. júlí 1978. Systur Ásdísarem:
Þórdís, f. 20. nóvember 1940, gift
Ólafi Þór Ólafssyni, b. á Valdastöð-
um í Kjós; Guðrún Ingibjörg, f. 15.
október 1943, gift Helga ðlafssyni,
verkstjóra í Þorlákshöfn; Hjördís, f.
28. júlí 1946, skrifstofumaður í Kópa-
vogi; Þórhildur, f. 11. apríl 1953, b.
á Hrauni í Ölfusi, gift Hannesi Sig-
urðssyni, b. og útgerðarmanni í Þor-
lákshöfn; og Herdís, f. 1. mars 1957,
skrifstofumaður í Reykjavík, gift
Þórhabi Jóséfssyni, blaðamanni á
Morgunblaðinu.
Foreldrar Ásdísar eru Ólafur Þor-
láksson, b. á Hrauni í Öifusi, og
kona hans, Helga Sigríður Eysteins-
dóttir. Ólafur er sonur Þorláks, b. á
Hrauni í Ölfusi, Jónssonar. Móðir
Þorláks var Guðrún, systir Magnús-
ar, langafa Ellerts Schrams rit-
stjóra. Guðrún var dóttir Magnúsar,
b. á Hrauni, Magnússonar, b. í Þor-
lákshöfn, Beinteinssonar, lögréttu-
manns á Breiöabólstað í Ölfusi, Ingi-
mundarsonar, b. í Hólum, Bergsson-
ar, b. í Brattsholti, Sturlaugssonar,
ættfoður Bergsættarinnar. Móðir
Ólafs var Vigdís Sæmundsdóttir, b.
á Vindheimum í Ölfusi, Eiríkssonar.
Móðir Sæmundar var Helga Jóns-
dóttir, b. á Vindási á Landi, Bjarna-
sonar, b. á Víkingslæk, Habdórsson-
ar, ættfóður Víkingslækjarættar-
innar.
Helga er dóttir Eysteins, b. á Með-
alheimum á Ásum, bróður Guðrún-
ar, móður Habdórs, búnaðarmála-
stóra, Bjöms, fv. alþingismanns, og
Hannesar, afa Hannesar H. Giss-
urarsonar. Guðrún var einnig
amma Páls Péturssonar alþingis-
manns. Eysteinn var sonur Bjöms,
b. í Grímstungu, Eysteinssonar,
bróður Ingibjargar, langömmu
Friðriks Sophussonar alþingis-
manns. Móðir Eysteins var Helga
Sigurgeirsdóttir, b. í Svartárkoti,
Pálssonar, b. á Hólum, Jóakimsson-
ar, bróður Hálfdánar, fóður Jakobs,
stofnanda Kaupfélags Þingeyinga.
Annar bróðir Páls var Jón, langafi
Herdísar, móður Hrafns Gunn-
laugssonar. Páb var sonur Jóakims,
b. á Mýlaugsstöðum, Kethssonar,
bróður Sigurðar, langafa Habgríms
og Sigurðar Kristinssona, forstjóra
SIS, og Aðalbjargar, móður Jónasar
Haraldz. Móðir Helgu var Vigdís
Ásdís Ólafsdóttir.
i ***
Habdórsdóttir, b. á Bjamastöðum í
Bárðardal, Þorgrímssonar, b. í
Hraunkoti, Marteinssonar, og konu
hans, Vigdísar Hallgrímsdóttur, b. í
Hraunkoti, Helgasonar, ættfoður
Hraunkotsættarinnar. Móðir Helgu
Sigríðar var Guðrún Gestsdóttir,
systir Guömundar, íoður Helga,
dósentsííslensku.
TÍI hamingju með daginn
85 ára
Elenore Margaret Klein, Hvassaleiti 99, Reykjavík.
tmm a*> 0
75 ara
Stella Lydia Nielsen, Hringbraut 113, Reykjavík.
70 ára
Sigvaldi Jónsson, Kirkjustræti 2, Reykjavík. Hafsteinn Jónsson, Höfðavegi 3, Hafnarhreppi.
60 ára
Haraldur Halldórsson, Blebtsárhbð 14, Eskifirði. Oddgeir Guðmundsson, Skarphéðinsgötu 16, Reykjavík. Andrés Hjörleifsson, Grýtubakka 30, Reykjavík. Hann verður aö heiman á afmæhsdag- inn.
50 ára
Sigríður Pétursdóttir, Hrauntungu 43, Kópavogi. Gunnhildur Snorradóttir, Völvufelh 46, Reykjavík.
40 ára
Bernharð Hjaltalin, Blönduhhð 3, Reykjavík. Kjartan Benediktsson, Hvassaleiti 8, Reykjavík. Bryndis Helgadóttir, Boðagerði 4, Presthólahreppi. Bjöm Emb Sigurðsson, Möðrufebi 5, Reykjavik. María Dagsdóttir, Þjótanda, Vbbngaholtshreppi. Gunnar Frímannsson, Amarsíðu 12A, Akureyri.