Dagblaðið Vísir - DV - 10.02.1989, Blaðsíða 6
6
FÖSTUDAGUR 10. FEBRÚAR 1989.
Viðskipti
Könnun Frjálsrar verslunar:
Davíð Scheving og Pálmi
með vinsælustu fyrirtækin
Sól hf., sem athafnamaöurinn Dav-
íð Scheving Thorsteinsson stýrir, er
vinsælasta fyrirtæki á íslandi, sam-
kvæmt skoðanakönnun sem GaUup
á íslandi gerði fyrir tímaritið Frjálsa
verslun um miðjan desember síðast-
liðinn. Hagkaup hf., fyrirtæki versl-
unarkóngsins Pálma Jónssonar, er
annað vinsælasta fyrirtækið á ís-
landi. Óvinsælustu fyrirtækin eru á
hinn bóginn SÍS og Póstur og sími.
Það er athygjisvert að fyrirtæki
tveggja þekktra athafnamanna skuli
raða sér á topp vinsældalistans. Bæði
Davíð og Pálmi hafa greinilega skap-
að sér góða ímynd hjá fólki. Sól hf.
er raunar afgerandi í fyrsta sæti með
langflestar tilnefningar í það sæti,
nærri tvöfalt fleiri en Hagkaup sem
varð í öðru sæti.
Langvarandi vinsældir Davíðs
Davíð Scheving hefur í áraraöir
verið vinsæll meðal almennings.
Hann skaust upp vinsældalistann
þegar hann varð formaður Félags
íslenskra iðnrekenda fyrir rúmum
áratug. Hann kom fram í sjónvarpi
og frægur er sjónvarpsþátturinn með
honum og verkalýðsforingjanum
Guðmundi Jaka þar sem þeir skiptu
þjóðarkökunni frægu á milli sín. Á
þessum tíma voru vinsældir Davíðs
Scheving hæst á meðal almennings
og manna í bankakerfinu, sem og
viðskiptalífinu. Davíö „var hann“ í
viðskiptaheiminum á þessum tíma.
Eftir að Davíö réðst tfl atlögu við
risana Kók og Pepsi á gosdrykkja-
markaðnum með framleiðslu á nýj-
um gosdrykkjum hefur mjög borið á
gagnrýni á hann innan viðskiptalífs-
ins og bankakerflsins. Þetta er sterk
gagnrýni og hefði aldrei heyrst nokk-
urs staðar fyrir rúmum tíu árum.
Mönnum finnst Davíð hafa verið of
bjartsýnn og framkvæmdaglaöur og
að fjárfesting hans í gosdrykkjaverk-
smiðju, á tímum hárra raunvaxta,
standist ekki.
Sigur Sólar kemur nokkuð á
óvart
Þessir sömu menn segja að D'avíð
hefði fyrst og fremst átt að eyða
kröftum sínum í framleiðslu á smjör-
líki og djúsi. Þar sé hann sterkastur.
Sól hf., með Davíð í fararbroddi,
sigrar hins vegar léttilega í þessari
skoðanakönnun Gallups fyrir
Frjálsa verslun. Miðaö við gagnrýni
á Davíð vegna gosdrykkjaverksmiðj-
unnar kemur þessi stórsigur hans í
rauninni á óvart. En Davíð hefur
fólkið með sér og hann berst við
risana Kók og Pepsi. Sala á kók og
pepsi er samt miklu meiri hérlendis
en salan á kóladrykkjum Davíðs.
Pálmi Jónsson stofhaði Hagkaup
fyrir um 25 árum. Fyrirtækið var lít-
iö í fyrstu en fljótlega fór að fara orð
af því fyrir lágt vöruverð. Nú er litla
fyrirtækið, sem byijaöi sem smábúö
viö Miklatorg, orðið langstærsta
verslunarkeðja á íslandi og ráðandi
risi á matvælamarkaðnum. Fyrir-
tækið velti 6 milljörðum á síðasta ári
og rekur nokkra stórmarkaði í
Reykjavík, á Seltjamamesi, Suður-
nesjum og Akureyri.
Pálmi og Kringlan
Pálmi Jónsson fékk hugmyndina
að byggingu Kringlunnar og hratt
henni í framkvæmd. Kringlan hefur
gengið vel og með henni virðist Pálmi
hafa smellhitt naglann á höfuðið.
Vinsældir Hagkaups í könnuninni
markast þó fyrst og fremst af því að
fyrirtækið er þekkt fyrir lágt vöra-
verð. Þaö er þekkt sem baráttufýrir-
tæki og brautryðjandi.
- SÍS og Póstur og simi óvinsælust
Davíð Scheving Thorsteinsson, for-
stjóri Sólar hf. Davið var miklu vin-
sælli fyrir tíu árum en samt er hann
örugglega á toppnum núna.
Pálmi Jónsson, eigandi Hagkaups.
Lftið f fjölmiölum en fólkið veit að
hann er maðurinn á bak við Hag-
kaup og stefnu fyrirtækisins.
Guðjón B. Ólafsson, forstjóri SÍS.
„Neikvæð umræða viðvarandi
gagnvart Sambandinu um langt
skeið.“
Vinsælustu tyrirtækin;
Nefndu fyrirtæki
sem þú hefur já-
kvæðviðhorftil?
1. Sól
2. Hagkaup
3. Flugleiðir
4. Álafoss
5. Mjólkursamsalan
6. ölgerð Egils
7. Eimskip
8. SS
9. SÍS
10-11. Ora
10-11. Osta- og smjörsalan
12. Frigg
13. Axis
14-15. Nói-Sírius
14-15. Sanitas
16-18. Arnarflug
16-18. KEA
16-18. Vífilfell
19. Ríkisútvarpið
SÍS og Póstur og sími voru langoft-
ast nefnd í könniminni þegar spurt
var um hvaða fyrirtæki viðkomandi
hefði neikvæð viðhorf til. Sjálfur seg-
ir Guðjón B. Ólafsson, forstjóri SÍS,
í viðtali við Fijálsa verslun að um
langt skeiö hafi verið neikvæð um-
ræða um SÍS í fiölmiðlum og þessi
umræða skapi aimenningsálitið.
Guðjón segir ennfremur að fiöl-
miðlar hafi fiallað mjög mikið um
meintar deilur milli forsvarsmanna
innbyröis og að ekki hafi yfirlýsing
fiármálaráðherra, Ólafs Ragnars
Grímssonar, um að Sambandið ætti
eftir 10 til 14 mánuði ólifaða hjálpað
tíl.
Skapa fjölmiölar
ímynd fyrirtækja?
Loks segir Guðjón í viðtalinu við
Fijálsa verslun að sér sýnist að álit
manna á fyrirtækjum fari nær alfar-
ið effir því hvort mikil umfiöllun er
um viðkomandi fyrirtæki í fiölmiðl-
um og hvers eðlis hún sé.
Það sem Guðjón minntist hins veg-
ar ekki á er sú staðreynd að SÍS teng-
ist ákveðnum sfiómmálaflokki.
Fólki finnst vera pólitískur þefur af
fyrirtækinu og að það njótí vemdar
og pólitískrar fyrirgreiðslu í meiri
mæli en önnur fyrirtæki. Launamál
Guðjóns sjálfs í lfiölfar þess að hann
rak Eystein Helgason frá Iceland
Seafood í Bandaríkjunum hafa ör-
ugglega haft neikvæö áhrif á almenn-
ing.
Fréttaljós
Jón G. Hauksson
Póstur og sími er annað í röð óvin-
sælla fyrirtækja á íslandi samkvæmt
könnuninni. Svo virðist sem fólki líki
ekki þjónusta fyrirtækisins og ekki
er ólíklegt að fólki finnist þjónustan
dýr. Það veldur líklegast einnig
óánægju að opinber fyrirtæki, eins
og Póstur og sími, fá að því er viröist
átakalaust hækkun á gjaldskrám
sínum. Sjaldan heyrir fólk minnst á
niðurskurð eða spamað hjá opin-
berum stofnunum. Og þá má ekki
gleyma því að flest opinber fyrirtæki
em fyrirtæki sem njóta einokunar.
Svona var spurt
Könnun Gallups var þrenns konar.
Fyrst var spurt: Getur þú nefnt mér
þijú íslensk fyrirtæki sem þú hefur
jáicvætt viðhorf til? Þama vom Sól
og Hagkaup á toppnum. Síðan var
spurt: Getur þú nefht mér þjú íslensk
fyrirtæki sem þú hefur neikvæö við-
horf tíl? Oftast var svarið SÍS en
næst Póstur og sími. Loks var spurt:
Ég ætla að lesa upp fyrir þér nöfn tíu
fyrirtælfia. Er viðhorf þitt neikvætt
eða jákvætt til þeirra? Þama var Sól
aftur vinsælast og SÍS lenti í hópi
með Hótel íslandi og Hótel Örk. Það
síðastnefnda var raunar óvinsælast.
SÍS lendir í níunda sæti á stóra vin-
sældalistanum. Skýringin er sú aö
fólk greindi frekar frá jákvæðum til-
finningum sínum en neikvæðum. Á
vissan hátt rýrir þetta gildi könnun-
arinnar. En þaö er sama. SÍS komst
vel á blað um fyrirtæki þar sem já-
kvæðar tilfinningar vora nefndar.
Fyrirtækin Marel og Pólstækni,
sem háð hafa harða samkeppni í sölu
tölvuvoga á íslandi, hafa ákveðið að
vinna saman ásamt fyrirtækinu
Rekstrartækni. Fyrirtækin þijú ætla
að vera með sameigjnlega hlutafiár-
aukningu og treysta samstarf sitt á
allan hátt.
Herbert Guðmundsson hjá Versl-
imarráði íslands segir að það stefni
í metaðsókn á viðskiptaþing ráðsins
sem haldið verður í Sújnasal Hótel
Sögu á þriðjudaginn. Á viðskipta-
þinginu verður rætt um ísland og
Evrópubandalagið. Sérstakur gestur
þingsins er Hans-Joachim von
Mikil aösókn en litlar
vinsældir
Það vekur athygli að Hótel ísland
er óvinsælt í könnuninni. Þetta kem-
ur þvert á aösókn aö staðnum. Hótel
ísland er nefnilega best sóttí
skemmtistaðurinn á Islandi. Einhver
óánægja er samt í gangi hjá fólki, svo
sem eins og með hátt miðaverð.
Flugleiðir era þriðja vinsælasta
fýrirtækið á íslandi samkvæmt
könnuninni og Álafoss kemur í
fiórða sætí. Þaö er athyglisvert að
góður hugur er til beggja flugfélag-
anna. í spumingunni þar sem spurt
var um viðhorfið til tíu valinna fyrir-
tækja var Amarflug eitt þeirra og
fékk raunar þá útkomu að fæstir
vora á mótí því af þessum tíu fyrir-
iækjum. Félagið virðist því njóta
samúöar í þeim miklu hremmingum
sem það gengur í gegnum.
Tólf af nífián vinsælustu fyrirtækj-
unum á listanum era iðnfyrirtæki,
langflest svonefnd stórfyrirtæki.
Könnunin var gerð um miðjan des-
ember en þá var rekinn afar sterkur
áróður fyrir því að kaupa íslenskt
og íslenskar vörur.
Sterkir forstjórar vinsælir
Gallupkönnunin sýnir samt glöggt
að fyrirtæki með sterka forsfióra
ifióta vinsælda. Davíð er vinsælasti
forsfiórinn á íslandi í hugum fólks-
ins. Pálmi er líka ákaflega virtur
þrátt fyrir að hann sé aldrei í fiöl-
miðlum. Fólkið veit hins vegar aö
hann er maðurinn á bak við Hagkaup
og þá stefnu að hafa vöruverð lágt.
Guðjón B. Ólafsson er öragglega virt-
ur forsfióri en launamál hans hafa
líklega skaðað orðstír hans og þar
með Sambandsins. Ólafur Laufdal
gæti virst of mikill kóngur í hugum
fólks. Honum hefur vegnað feikivel
Hlutafiáraukning fyrirtækjanna
verður um 50 milljónir króna.
Ákveðið er að fyrirtækin verði áfram
sjálfstæð hlutafélög en verði nátengd
rekstrarlega. Eimskip er aðaleigandi
Pólstækni en Hagvirki á Marel.
-JGH
Bulow, framkvæmdasfióri Euro-
chambers.
„Ég get ekki annað en hvatt menn
til að koma hingað í Verslunarráðiö
og skrá sig áður en þingið hefst á
Sögu á þriðjudaginn. Ekki er ætlun
að skrá menn á sjálfum þingstaðn-
um,“segirHerbert. -JGH
Gömlu erkif jendumir taka nú höndum saman
Metaðsókn á viðskiptaþing
á skömmum tíma. Öfund gæti ríkt
vegna velgengni hans. Helgi Jóns-
son, fyrrum eigandi Hótel Arkar, er
með ævintýrastimpilinn á sér í huga
fólks.
Eitt er víst. Vinsæll forsfióri skapar
jákvætt viðhorf til fyrirtækis síns á
meðal almennings. Vinsældir Davíðs
Scheving eru mun meiri en gos-
drykkjasala hans. Til samanburðar
má nefna að Steingrímur Hermanns-
son er líka mun vinsælli sfióm-
málamaður en Framsóknarflokkur-
inn.
Það er greinilega ekki sama hver
stendur í stafni og stýrir knerri.
-JGH
Peningamarkaður
INNLÁNSVEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóðsbækurób. 5,5-9 sp
Sparireikningar
3jamán. uppsögn 5,5-10 Vb.Sp
6mán.uppsögn 5,5-11 Vb.Sp
12 mán. uppsögn 5,5-9,5 Ab
18mán. uppsögn 13 Ib
Tékkareikningar,alm. 1-4 Ib.Sp
Sértékkareikningar 3-9 Ib.Ab,-
Innlánverðtryggð Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 1-2 Vb
6mán.uppsögn 2-3,5 Sp.Ab,- Vb.Bb
Innlán með sérkjörum 3,5-16 Úb
Innlángengistryggð
Bandaríkjadalir 8-8,5 Ab.Sb
Sterlingspund 11,75- 12,25 Ab
Vestur-þýsk mörk 4,25-5 Ab
Danskarkrónur 6,75-8 Vb.Ab
ÚTLÁNSVEXTIR (%) lægst
Útlán óverðtryggð
Almennirvíxlar(forv.) 12-18 Lb
Viöskiptavíxlar(forv.)(1) kaupgengi
Almennskuldabréf 12-18 Lb
Viöskiptaskuldabréf(l) kaupgengi Allir
Hlaupareikningar(yfirdr) 15,5-21 Lb
Utlán verðtryggö
Skuldabréf 7.75-8,75 Lb
Utlántilframleiðslu
Isl. krónur 13-18 Lb
SDR 9.5 Allir
Bandaríkjadalir 11 Allir
Sterlingspund 14,75 Allir
Vestur-þýskmörk 7-7,25 Úb
Húsnæðislán 3.5
Lífeyrissjóðslán 5-9
Dráttarvextir 21,6
MEÐALVEXTIR
óverðtr. feb.89 13,2
Verötr. feb. 89 8.1
VÍSITÖLUR
Lánskjaravísitala feb. 2317 stig
Byggingavisitala feb. 414stig
Byggingavísitalafeb. 125,4stig
Húsaleiguvísitala Enginhækkun Verö- stöövun
VERÐBRÉFASJÓÐIR
Gengi bréfa verðbréfasjóöa
Einingabréf 1 3,526
Einingabréf 2 1,977
Einingabréf 3 2,302
Fjölþjóöabréf 1,268
Gengisbréf 1,586
Kjarabréf 3,509
Lifeyrisbréf 1.773
Skammtimabréf 1.225
Markbréf 1,860
Skyndibréf 1,071
Sjóösbréf 1 1.693
Sjóösbréf 2 1,426
Sjóösbréf 3 1,205
Tekjubréf 1,588
HLUTABREF
Söluverö aö lokinni jöfnun m.v. 100 nafnv.:
Almennar tryggingar 130 kr.
Eimskip 380 kr.
Flugleiöir 288 kr.
Hampiöjan 155 kr.
Hlutabréfasjóöur 151 kr.
lönaöarbankinn 177 kr.
Skagstrendingur hf. 200 kr.
Útvegsbankinn hf. 134 kr.
Verslunarbankinn 146 kr.
Tollvörugeymslan hf. 126 kr.
(1) Við kaup á viðskiptavlxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af þriðja
aðila, er miðaö viö sérstakt kaupgengi,
kge. Búnaðarbanki og Samvinnubanki
kaupa viðskiptavíxla gegn 31% ársvöxt-
um og nokkrir sparisj. 30,5%.
Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bb= Búnaðarbankinn, lb = lðnaðar-
bankinn, Lb = Landsbankinn, Sb =
Samvinnubankinn, Úb= Útvegsbankinn,
Vb = Verslunarbankinn, Sp = Sparisjóð-
irnir.
Nánarl upplýsingar um peningamarkað-
Inn birtast i DV á flmmtudögum.